Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001 I>V 5 Fréttir Orkureikningar Akurnesinga lækka um 60-70 milljónir á ári: Enn nánara samstarf viö borgina hugsanlegt - segir bæjarstjórinn á Akranesi DV, AKRANESI:" Akurnesingar munu fá lægri orkureikninga eftir að sameining orkufyrirtækja þeirra og Orku- veitu Reykjavíkur gengur í garð í lok ársins. En fleira kann að vera fram undan í samstarfi nágranna- bæjanna, Reykjavíkur og Akra- ness. DV tók Gísla Gíslason, bæjar- stjóra á Akranesi, tali í gær. Eins og DV greindi frá verða Hitaveita Akraness og Andakílsár- virkjun sameinuð Orkuveitu Reykjavíkur þann 1. desember. Gísli Gíslason segir að ávinningur Akurnesinga við sameininguna verði margs konar: „I fyrsta lagi lækka orkureikn- ingar bæjarbúa verulega eða sem nemur allt að 60-70 milljónum króna á ári. Þyngst vegur lækkun á heitu vatni eða um 34% og raf- magn til heimila lækkar um 11% að meðaltali og tU fyrirækja um að meðaltali 5%. Að auki verður gjaldskrá fyrirtækja endurskoðuð tU frekari lækkunar. Þá má nefna að með þessari aðgerð verður orkumálum Akurnesinga komið í örugga höfn. Áhætta okkar af óvissu í breyttu raforkuumhverfí og óhagstæðri gengisþróun verður eytt, jafnframt því sem við leggjum öfluga eignarhluta inn í mjög sterkt fyrirtæki sem mun tU fram- tíöar eflast. Þannig verða hags- munir bæjarbúa best tryggðir bæði hvað varðar eignarhlut okkar í orkufyrirtækjum og hvaö varðar eins hagstæða gjaldskrá og kostur er,“ sagði Gísli Gíslason. En hvað með önnur hugsanleg samstarfsverkefni? „Hvaö það varðar þá verða hags- munir bæjarbúa látnir ráða ferð- inni sem og áhugi annarra að taka þátt í samstarfi við okkur. Því er hins vegar ekki að neita að vera kann að mögulegt sé að efna tU samstarfs á sviði almenningssam- Fá Borgnesingar heita vatnið á sama verði og ____ Akurnesingar? Tvær gjald- skrár í sama fyrirtæki DV, BORGARBVGGD:___________________ A fundi bæjarráðs Borgarbyggðar í gær var fjallað um áform Akranes- kaupstaðar um að leggja 53,7% eign- arhlut sinn i Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar inn í Orkuveitu Reykjavíkur en Borgarbyggð á 21,3% í HAB, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Borgarfjarðarsveit á 4,3% og ríkissjóður 20,7%. „Málið var rætt en það liggur ekkert fyrir um hver afstaða Borg- arbyggðar verður," segir Stefán Kalmansson, bæjarstjóri Borgar- byggðar, við DV þegar hann var spurður um nýjustu tíðindi af orku- málum á Vesturlandi. „Það er eðli- legt að menn kynni sér þá stöðu sem upp er komin, spyrjist fyrir um áform hins nýja meirihlutaeiganda á Hitaveitu Akraness og Borgar- fjarðar (HAB), gangi þessi mál eftir eins og fram hefur komið í fjölmiöl- um. Það virðist liggja fyrir að HAB muni selja Akurnesingum heitt vatn á sama verði og Orkuveitan gerir í Reykjavík. Við eigum eftir að fá að vita hvort HAB ætlar þar með að vera með tvær gjald- skrár gagn- vart við- skiptavinum sínum eða bjóða Hita- veitu Borgar- ness að kaupa vatnið á sama verði. Það verður farið yfir þessi mál með skipulögðum hætti og svo sjáum við hvernig málin þróast,“ sagði bæjar- stjórinn. „Annars vil ég nota tækifærið og óska Akurnesingum til hamingju með þá lækkun á orkuverði sem þeir virðast eiga í vændum með þessum samruna," sagði Stefán Kalmansson bæjarstjóri. -DVÓ gangna, hafnarmála og f fleiri málaflokkum. Reyndar má telja nauðsynlegt að sveitarfélögin frá Reykjanesi að Selfossi og norður fyrir Hvalfjörð láti gera sameigin- legt svæðisskipulag þar sem ljóst er að mikil þróun mun eiga sér stað á þessu svæði í komandi fram- tíð,“ sagði Gísli Gíslason, bæjar- stjóri á Akranesi við DV. -DVÓ __ Innköllun: Rafræn skráning hlutabréfa Flugleiða hf. frá og með 30. júlí 2001 Mánudaginn 30. júlí 2001 verða hlutabréf í Flugleiðum hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Islands hf. í samræmi við ákvörðun stjómar Flugleiða hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast liin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar urn rafræna eignarskráningu verðbréfa. Nánar tilgreint verða öll hiutabréf í Flugleiðum hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau em í þremur flokkum, auðkennd raðnúmerum J300001 — J800000; N000001 - N400000; S000001 - S030000 og gefin út á nafh hluthafa. Útgáfixdags er getið á hveiju bréfi. Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkum vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Flugleiða hf. að staðreyna skráninguna með fýrirspum til hlutaskrár Flugleiða hf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík, eða í síma 5050-289, netfang: shares@icelandair.is. Komi i ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir áðumefndan dag. Enn ffemur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Islands hf., fyrir skráningardag. Athygh hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu ldutabréf felagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til felagsins. Jafhframt er vakin athygh á að ferh rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum. Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfhm félagsins verður kynnt þetta bréfleiðis. Stjóm Flugleiða hf. ICELANDAIR ÍSLENSKA AUCLÝSINCASTOFAN EHF./SIA.IS • ICE 1 44 86 »5/200 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.