Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 9
9 MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001_____________________________ DV Fréttir Víkin fagra fegruð Helsti baðstaöur Reykvikinga, Nauthóisvíkin, er aö veröa glæsileg í alla staöi, enda hefur mikiö veriö lagt í endurbætur á baöaöstööunni þar á síöustu misserum. Þessi málari lét ekki sitt eftir liggja í veðurblíöunni. Suðræn jurt kemur starfsmönnum í opna skjöldu: Landsbankinn ilmar - hefur aldrei blómstrað fyrr hér á landi „Það fer ekkert á milli mála. Það er komin allt önnur lykt í aðalsal Landsbankans hér við Austurstræti og það er blóminu að þakka,“ segir Erla Waage ræstingakona sem gekk fram á skrautjurt í bankanum þar sem hún var við vinnu sína og sá sér til mikillar furðu að jurtin blómstraði. „Ég hef sjálf átt svona blóm í 16 ár og það hefur aldrei blómstrað. Ég veit ekki til þess að þetta blóm hafi nokkru sinni blómstrað hér á landi. Lyktin er dá- samleg og það er allt annað að vinna hér eftir en áður,“ segir Erla sem telur að hér sé um að ræða svo- kallaða Aspardesta-jurt en hún er höfð til skrauts í annarri hverri stofnun í höfuðborginni. Starfsfólk Landsbankans í Aust- urstræti hefur ekki farið varhluta af nýju lyktinni sem leggur um alla sali líkt og mjúkur blær. Ánægjan er almenn en þó mest hjá Erlu Waage sem er mikill blómaaðdá- andi og vinnur oft ræstistörf sin í Landsbankanum ein síns liðs. Nú er hún ekki lengur ein. Ilmurinn fylg- ir henni eins og traustur vinur og það á við um fleiri starfsmenn bank- ans svo ekki sé minnst á viðskipta- vinina sem sumir hverjir halda að þeir séu komnir til himna þegar þeir ganga inn í bankann: „Það er af sem áður var,“ eins og einn þeirra orðaði það. -EIR Milljónafolar að Möðrufelli - fangið kostar tugi þúsunda Hestaræktun þarf að taka eins og hvert annað starf en ekki sem tóm- stundagaman sem stundað er eftir aðra hefðbundna vinnu. Ræktun íslenskra gæðinga er heldur ekki á allra færi, til þess verður viðkomandi að hafa góða innsýn í hegðun og atferli íslenska hestsins og hafa gott næmi fyrir því hvaða hryssa og foli gefi saman bestan árangur. Matthías Eiðsson á Möðru- felli í Eyjafirði, oft kenndur við bæinn Brún við Akureyri þar sem hann bjó þar til fyrir nokkrum árum, segir að þrátt fyrir að menn séu alltaf að læra sé enn gríðarlega margt ólært. Úrvals- gæðingur skili ekki alltaf þeim árangri sem vænst er, bæði folar og hryssur séu t.d. misjafnlega erfðafóst. Hryssan Ósk er í eigu Matthíasar, en á 20 ára tímabili hefur hún sýnt mikla erfðafestu, alltaf góð folöld, sama hver faðirinn hefur verið. Hún er nú á Hólum þar sem tekin verða úr henni egg og sett í aðra hryssu en faðirinn verður Nagli frá Þúfu. Matthias eign- ast helminginn í folaldinu sem fæðist næsta vor. Matthías segir að þessi að- ferð njóti vaxandi fylgis, en á þessu vori verður Ósk einnig haldið undir folann Kormák frá Flugumýri. Matthí- as segir að það gangi illa að sæða, ólíkt því sem t.d. gerist í sauðfé, og hann segist verða manna glaðastur ef það tekst ekki. Það mundi koma niður á gæðum og því mannlega næmi sem þurfi einnig að vera til staðar þegar velja eigi saman hryssu og fola. Éitt mesta efni sem komið hefur fram á siðustu árum er Óskar-Hrafn, undan Ósk og hinum eina og sanna Hrafni frá Holtsmúla. Um hann var stofnað hlutafélag. Óskar-Hrafn er í tamningu á Feti í Rangárvallasýslu og DV-MYND BRINK Matthías Eiðsson á Möðrufelli í Eyjafirði með helsta djásn og gullmola hestaeignar sinnar, Dósent. Dósent er fallegur foli sem hefur gefiö góö afkvæmi, m.a. folana Víking og Hreim, en ráöunautar eru ekki sáttir viö byggingu hans, og því er Matthías mjög ósammála. Sölu- verömæti Dósents er um milljón nú, sem Matthías telur langt undir sannviröi. í húsi þennan dag voru nokkrir folar og verömæti þeirra er taliö í tugum milljóna króna. verður til notkunar seinni hluta júlí- mánaðar. Matthías telur dóm „sérfræð- inga“ um hann vera mjög sérkennileg- an, þeir hafi ekki gefið honum nógu góða einkunn fyrir byggingu en hins vegar fái hann 8,7 fyrir hæfileika. Það kostar 30 þúsund krónur að fá hryssu fyljaða af Óskar-Hrafni en meðalverð í dag er á bilinu 20 til 25 þúsund krónur fyrir hryssu í hólfl. Bölvaðar skóhlífar Dýrast er að halda undir Orra frá Þúfu, allt upp í 50 þúsund krónur, en hann mun vera í Auðsholtshjá- leigu og þangað er stefnt undir hann öllum helstu hryssum landsins. Matthías segir að helsti galli Orra sé að hann sé hæggengur en með gott brokk, ekki mikið skeið og það vanti rými í ganginn. En hann sé hríf- andi hross. Hann sé hins vegar ekki mjög erfðafastur og undan honum komi stundum „bölvaðar skó- hlífar“. Matthí- as segir að hrossasóttin fyrir þremur árum hafi skað- að söluna erlendis en það hafi gripið um sig eitthvert æði þegar hún gekk yfir og það sé ekki í fyrsta skipti hér- lendis en áður hafl hún ekki verið eins skæð. Það sé viðurkennt nú að á lands- mótinu á Melgerðismelum hafi verið veik hross, jafnvel verðlaunahross, en sannleiknum haldið í þagnargildi. Sal- an í Þýskalandi hafi ekki náð sér aftur sem hafi glatt margan Þjóðverjann en á síðasta Evrópumóti hafi hestar héð- an komið til baka með krafti og skilið Þjóðverjana eftir á hælunum. -GG Blómiö í Landsbankanum ilmurinn liggur í loftinu líkt og mjúkur þlær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.