Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 28
%
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
>
t *
i
M
Skrílslæti í Úthlíð:
Lögregla varö
frá aö hverfa
Gerður var aðsúgur að Selfosslögregl-
unni þegar hún reyndi handtöku í Út-
hlíð í Biskupstungum í fyrrinótt. Mikil
ölvun og samsöfnuður fólks var á svæð-
inu og í kjölfar dansleiks upphófust
slagsmál og óspektir meðal ballgesta.
Um 5 til 700 manns voru í Úthlíð og réð
6 manna lögreglulið sem var til skipt-
anna í Ámessýslu á tímabilinu ekki
neitt við neitt.
„Það voru almennar óspektir meðal
fólksins og þegar lögreglumenn reyndu
að handtaka mann fyrir ofsaakstur
gerði lýðurinn aðsúg að þeim. Við urð-
um frá að hverfa og gátum ekkert gert
þótt verið væri að brjóta rúður í bílum
og berja mann og annan,“ segir Svanur
Kristinsson, lögreglumaður á Selfossi.
Svanur segir skipulagsleysi valda því
að illa fer.
„Ballinu lýkur klukkan þrjú og þá er
ekkert við að vera fyrir fólkið. Á venju-
legum útihátiðum er eftirlit og gæsla á
vegum aðstandenda hátíðanna. Þarna
var greinilega gert ráð fyrir því að lög-
reglan tæki að sér þessi störf en hún er
alltof fáliðuð og getur ekkert gert til að
hafa hemil á skrilnum sem er með
óspektir," segir hann. -jtr
Lokuð matvörubúð:
Mjólkurpeningar
gáfu 2,4 milljónir
Hún datt aldeilis í lukkupottinn,
konan á fertugsaldri sem ætlaði að
versla i 10-11 í Glæsibæ i gærkvöldi
klukkan 19.30. Hún kom að luktum
dyrum þar sem nú stendur yfir
vörutalning í verslunum landsins.
Hún skellti sér í staðinn með
mjólkurpeningana í spilakassa Gull-
námu Happdrættis Háskóla Islands
í sama húsi, i Ölveri í Glæsibæ, og
vann 2.386.099 kr.
Að sögn starfsmanns í Ölveri
varð konunni mikið um. Konan,
sem ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að vinningurinn kæmi sér að
sjálfsögðu vel enda væri hún að fara
í sumarfrí í útlöndum eftir 2 vikur.
Vinningurinn er ekki síður
skemmtilegur þar sem Happdrætti
Háskólans var að breyta kerfi sínu i
Gullnámunni á föstudag og er þetta
því fyrsti Gullpotturinn í nýja kerf-
inu. -DVÓ
Ofsaakstur:
Fullur á 150
- sofnaði
Ökumaður um tvítugt var tekinn
á tæplega 150 kílómetra hraða nærri
Laugarvatni um fjögurleytið aðfara-
nótt sunnudags. Þegar lögreglan tók
hann tali reyndist hann undir áhrif-
um áfengis. Maðurinn sofnaði ölv-
unarsvefni í bíl lögreglunnar þegar
hún ræddi við hann. -jtr
DV-MYND INGO
Þórsmerkurgleöi
Ekki finna sig allir knúna til að stunda slagsmál og ólæti í sumarfríum sínum. Þessi kátu ungmenni í Þórsmörk létu
gleðina ráða ríkjum og höfðu engar áhyggjur af skrílslátum margra annarra. Og þannig á sumarið aö vera.
Þroskaþ j álf averkf all:
Verö aö vera
bjartsýn
- segir Sólveig Steinsson
„Það er verkfall í gangi og mikil al-
vara á ferðum en ég verð að vera bjart-
sýn,“ segir Sólveig Steinsson, formað-
ur Þroskaþjálfafélags íslands. Samn-
ingafundur milli félagsins og samn-
inganefndar ríkisins verður haldinn
eftir hádegi í dag og kveðst Sólveig
vonast til að ríkið komi með eitthvað
bitastætt svo núverandi ástandi linni.
„Við þurfum að gera miðlægan samn-
ing við rikið til að geta gengið frá
samningum við sjáifseignarstofhanir.
Það er ljóst að peningamir verða að
koma frá ríkinu," segir Sólveig.
Þroskaþjáifar eru búnir að ganga frá
samningum við Reykjavíkurborg og
laúnanefhd sveitarfélaganna. Ósamið
er við Skálatún og Styrktarfélag van-
gefinna sem eru sjálfseignarstofnanir
og Reykjalund sem telst einkastofnun.
Ríkið hefur greiningarstöðvar og
svæðisskrifstofur fatlaðra á sinni
könnu og þar er allt í lamasessi meðan
verkfall varir. -Gun
Slagsmál og drykkjulæti í Þórsmörk:
Fólk þarf reglulega að
láta eins og skepnur
- segir læknir sem sendi eftir aukabirgðum af tvinna
Um 1500 manns voru samankom-
in í Langadal í Þórsmörk á laugar-
dagskvöldið. Samfögnuðurinn ein-
kenndist af ' slagsmálum og
drykkjulátum og þurfti fjöldi fólks
að leita ásjár læknis og Rauða
krossins. Lögreglan á Hvolsvelli
þakkar Ólafi Árna Sveinssyni, af-
leysingalækni á Hvolsvelli og Hellu,
fyrir að ófremdarástand skapaðist
ekki í Þórsmörk. Ólafur stóð vakt-
ina í Langadal frá kvöldi laugardags
fram á miðjan sunnudag, samtals 18
tíma. Hann segir stöðugan straum
illa haldins fólks hafa legið til sín.
„Ég hef ekki tölu á því hversu
margir komu til mín en það hlýtur
að hafa hlaupið á tugum. Það var
ljótt að sjá hvernig fólk var farið.
Menningarstigið var komið ansi
langt niður þarna um nóttina og
hrottafengin slagsmál voru mörg.
Það fylgir kúltúrnum á íslandi að
fólk þarf að láta eins skepnur við
og við til þess að fá útrás,“ segir
Ólafur.
Ástandið var slíkt í Þórsmörk að
lögreglan þurfti að sækja aukabirgð-
ir af tvinna til Hvolsvallar, svo vett-
vangslæknirinn í Mörkinni gæti
haldið áfram að sauma.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
tvisvar kölluð á svæðið á laugardag.
í annað skiptið var það vegna þess
að maður sem talinn var ölvaður
prílaði í klettum við hlíð Vala-
hnjúks. Hann féll niður sex metra
hæð og brotnaði á báðum höndum.
Auk þess var hann talinn með inn-
vortis blæðingar. Annar var sóttur
eftir að hafa fallið niður meðvitund-
arlaus af ókunnum orsökum. Þess
utan kærði einn maður líkamsárás
þar sem hann var sleginn í andlitið'
með glerflösku. Hann skarst mikið í
andliti.
Ólafur læknir segist vona að fólk
muni endurskoða þennan hátt sem
það hefur á sumarfríum sínum.
„Mikil hætta fylgir því ef fólk
hópast saman ölvað á svæði eins
og Þórsmörk. Þar eru gil og klettar
sem eru slysagildrur fyrir fullt fólk að. Það þarf að endurskoða þessar
sem finnur oft hjá sér hvöt til að samkomur rænulítils fólks.“ -jtr
fara í gönguferðir hingað og þang-
Þyrlan í Þórsmörk
Tvö útkalla þyrlu Landhelgisgæslunnar voru í Þórsmörk. Þarna er hún að
sækja mann sem hrapað hafði í klettum og brotnað á báðum höndum. Hér
er verið að bera manninn slasaðan um borð.
Neistaflug milli vélstjóra og annarra í forystusveit fiskimanna:
Hef nóga til að tala við
- segir Helgi Laxdal, formaöur Vélstjórafélagsins
„Ef Sævar ætlar aldrei að ræða við
mig aftur, þá verð ég að búa við það, ég
hef nóga til að tala við. Við stungum
engan i bakið með rýtingi en gerðum
bara kjarasamning fyrir félagið. Haldi
Sævar það virkilega að við hefðum feng-
ið að vera í verkfalli marga mánuði í
viðbót, þá er ég honum fullkomlega
ósammála. Ég veit að allar ríkisstjómir
hefðu gripið inn í deiluna," sagði Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags Is-
lands, í gærkvöldi. Aðrir forystumenn
fiskimanna hafa fordæmt framgöngu
Helga og félaga hans harðlega I fram-
haldi af kjaradómi sem úrskurðaði sjó-
mönnum launahækk-
anir um helgina.
Helgi hafnar því að
pólitísk afskipti sín
hafi haft nokkuð með
samninga vélstjóra að
gera.
Helgi segist ekki
vilja úttala sig um
Helgi Laxdal.
hvort enn stæði verkfaU á fiskiskip-
um ef ekki hefði verið gripið inn í en
segir að markmið útgerðarmanna
hafi verið að fá niðurstöðu í mönnun-
armálum. Hann sagði að ljóst væri að
Kristján Ragnarsson hafi ekki síst lát-
ið af störfum vegna þessara mála.
„Varðandi þennan dóm þá hef ég
ekkert með það að gera í sjálfu sér. En
mér sýnist að margt sé skárra hjá þeim
ef eitthvað er. Grétar Mar var að tala
um launalækkun hjá einhverjum sínum
mönnum, skipstjórum á uppsjávarveið-
um, en við sömdum auðvitað ekki fyrir
skipstjóra. Þeirra samningur gildir í tvö
og hálft ár en okkar í fjögur og hálft ár.
Þeir hafa því svigrúm til að sækja bætt
kjör fyrir sína umbjóðendur án þess að
Vélstjórafélag íslands komi þar nokkuð
nærri,“ sagði Helgi Laxdal. -JBP
- Nánar bls. 2.
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
Verö frá
35.500 EVRÓ
Allar stærðir
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4