Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
Skoðun DV
Brunabótamat íbúöa veröur hækkaö
Og „verdmyndun" mun ekki skekkjast.
Skattborgarar frá vöggu til grafar
Hvað finnst þér um breyttan
afgreiðslutíma skemmtistaða?
Sigríöur Pálsdóttir kennari:
Mér finnst í lagi aö afgreiðslutími
skemmtistaða sé takmarkaður.
Elva Dögg Blumenstein nemi:
Mér finnst nýr afgreiðslutími mjög
gott mál.
Eva Sæmundsdóttir, í Bæjarvinnu:
Mér finnst þetta gott mál.
Alma Rós Ágústsdóttir, atvinnulaus:
Ég vil helst að skemmtistaðir séu
opnir allan sólarhringinn.
Guðrún Valsdóttir hjúkrunarfræðingur:
Ég vil ekki stytta afgreiöslutímann.
Berglind Heiða Guðmundsdóttir
hestakona:
Mér finnst þetta glataö. Ég vil frjáls-
an afgreiðslutíma.
Geir R. Andersen
blm. skrifar:__________________________
Það er ekki á hverjum degi að skatt-
borgarar hér fá tilkynningu um
skattalækkun. Þetta skeði þó með bréf-
inu til okkar skattborgaranna um
lækkun brunabðtamats. Brunaiðgjald-
ið sem tryggingafélögin innheimta er
nefnilega miðað við brunabótamat en
er þó ekki raunverulegt iðgjald nema
að sáralitlu leyti. Mestur hluti bruna-
iðgjalds er skattur til ríkisins. Þessi
nýja og óvænta tilkynning þýddi, að
öðru jöfnu, að brunaiðgjaldið, sem
gjaldkræft er í janúarmánuði ár hvert,
myndi lækka. - En eins og venjulega
er sjaldan allt sem sýnist. Þvi stuttu
seinna tjáði Samband íslenskra trygg-
ingafélaga sig um málið og lét þess get-
ið að ekki væri sjálfgefið að iðgjaldið
(brunatrygginga) sjálft lækkaði þótt
brunabótamatið lækkaði. Þar með
hvarf sá sólskinsblettur á bak við
skattaskýin.
Heilu „stigagangarnir" snerust líka
öndverðir gegn lækkun brunabóta-
matsins og hyggjast kæra! Þeir vilja
hafa matið óbreytt - helst hærra. Til
hvers? Jú, til að halda uppi söluverði
íbúðanna og hugsanlegir kaupendur
Einar Ingvi Magnússon
skrifar:
Ég heyrði í fréttum nýlega, að Eð-
vald Hinriksson hefði verið fundinn
sekur fyrir alþjóðadómstóli og sakaður
um stríðsglæpi. Hefði hann undirritað
margar dauðarefsingar eftir hernám
Þjóðverja í Póllandi og Litháen, þar
sem hann bjó á stríðstíma seinni
heimsstyrjaldar. Eðvald lést fyrir
nokkrum árum.
Furðulegt er þegar verið er að draga
gamla nasista fyrir rétt, jafnvel að
þeim látnum, fyrir tengsl þeirra við
þriðja ríki Hitlers. Þessi árátta sem er
fáránleikinn og hégóminn uppmálaður
viirðist engan endi ætla að taka.
Nasistar töpuðu striðinu og eru
Nýjasta en jafnframt ósvífn-
asta dœmið er svo að Orku-
veita Reykjavíkur býður íbú-
um Akraness 34% lœkkun á
heitu vatni og 11% lækkun á
rafmagni og tekur á sig einn
milljarð í skuldum Skaga-
manna.
eigi kost á hærra láni. „Stigagangarn-
ir“ mótmæltu ekki sérstaklega hækk-
un fasteignamatsins, þeir hrærðu öllu
saman í blaðaviðtölum en lögðu
áherslu á brunabótamatið. Nú hefur
viðkomandi ráðherra, fyrir eftirgangs-
semi samtaka fasteignasala, lofað að
hækka brunabótamatið, svo að verð-
myndun á markaðnum „skekkist
ekki“. - Lögin höfðu klúðrast i með-
ferð, svo þetta verður auðveldur við-
snúningur. En þetta er nú bara eitt og
nýjasta dæmið i skattakraðakinu.
Tekjuskattur hefur verið undir
stækkunargleri hins opinbera um ára-
bil, allt frá þvi að lofað var að hann
yrði „afnuminn í áfóngum". Og nú eru
eignaskattar komnir undir glerið líka
„Furðulegt er þegar verið er
að draga gamla nasista fyr-
ir rétt, jafnvel að þeim
látnum, fyrir tengsl þeirra
við þriðja ríki Hitlers. “
hundeltir enn þann dag í dag. Fyrir
skömmu þótti sagnfræðingi einum
ástæða til að fjalla um háaldraða konu,
sem er nú nýlátin, og bendla hana við
nasista úti í hinni gömlu Tékkóslóvak-
íu, þar sem SS-menn höfðu leigt her-
bergi í húsi hennar og maður hennar
hyllst stefnu Þjóðverja.
Hvað með stríðsglæpi bandamanna?
en ólíklegt verður að telja að þeir
hreyfist nema upp á við. Félag eldri
borgara hefur verið að möndla með
ályktanir og sett fram rökstuddar kröf-
ur um afnám óréttmætra skatta eftir-
launaþega. En þar sem vitað er að
eldri borgurum vex ekki ásmegin héð-
an af eru þeir ekki virtir viðlits. - „Die
himmelfahrt" þykir næg uppskera
þeim til handa.
Nýjasta en jafnframt ósvífnasta
dæmið er svo að Orkuveita Reykjavik-
ur býður íbúum Akraness 34% lækk-
un á heitu vatni og 11% lækkun á raf-
magni. - í Reykjavík skal hins vegar
koma um 5% hækkun á hvoru tveggja!
Orkuveita Reykjavíkur mun svo i allri
auðmýkt taka yfir einn milljarö króna
í skuldum orkufyrirtækja Akraness!
Rembihnúturinn verður svo hnýtt-
ur á allra næstu vikum, þegar fyrir-
tækin í landinu, hverju nafni sem
nefnast, verða verðlaunuð enn á ný
meö verulegum skattalækkunum. Al-
menningur, hinn sauðsvarti skatt-
borgari, skal liggja óbættur, enda inn-
heimta fyrirtækin skatta hans fyrir
ríkið með stakri prýði. - Ég á heim’á
Skattlandi, Skattlandinu góða.
Var það ekki glæpur gegn mannkyni
að varpa kjarnorkusprengju á Hiros-
hima og Nagasaki? Sá sem það gerði
var aldrei sakaður um glæpi gegn
mannkyninu, þótt hann hefði orðið
valdur að dauða þúsunda flölskyldna.
Hann framfylgdi skipunum ríkisins.
Það gerðu þýskir hermenn líka. Og
hvað með Víetnamstríðið?
Þessar ásakanir á hendur nasista
eiga fullan rétt á sér eingöngu ef allir
aðrir gerast ábyrgir gjörða sinna. Eini
munurinn á nasistum og bandamönn-
um er sá að nasistar töpuðu stríðinu
en bandamenn fóru með sigur af hólmi
og réttinn til að ófrægja til hinsta
manns. Jafnvel út yfir gröf og dauða.
N asistaof sóknir
John O’Lafs kaupir banka
Garri sér fyrir óorðna hluti. Garri sér jafnvel
lengra en Davíð. Og sér hann þó talsvert. Það er
löngu ljóst.
Þessu til staðfestingar skal eftirfarandi upp-
lýst: Garri hefur fyrir margt löngu áttað sig á
öllum flækjunum sem tengjast lönguvitleysunni
í Landsbankamálinu. Þar er teningunum kastað
fyrir margt löngu. Kaupandinn, sem er einn
kjölfestufjárfestir úti í heiminum ljóta, er búinn
að setja sig í stellingar og mun kaupa þegar sist
varir.
Gaga mál
Mál þetta allt er fyrir löngu orðið gaga. Og
minnir okkur blaðalesendur á að það er erfitt að
kenna gamalli pólitík að sitja. í Landsbankamál-
inu hafa ráðamenn ekki einasta misst út úr sér
vitleysu, heldur og misstigið sig og fallið og gott
ef ekki fótbrotnað - í pólitískum skilningi. Allt
hefur komið fyrir ekki; málið er komið í graut
og almenningur, sem ætlaði að dreifa sér í
smærri einingar og kaupa hlut, má það nú ekki.
Og hver má það þá? Jú, einn erlendur kjöl-
festuijárfestir. Nógu flott er orðið og fer vel í
möppum. En hvað þýðir það? Hvað merkir þetta
orð sem fer eins og ormur um fæla i íslensku
viðskiptalífi þessi dægrin? Sem fyrr sér Garri
fyrir óorðna hluti og hér kemur fléttan:
Só sorrí
Þessi eini erlendi kjölfestufjárfestir er þegar
kominn á stúfana og farinn að telja kort sin og
sjóði. Hann er búsettur í Lundúnaborg og hefur
svo verið um alllangt skeið. Hann flutti, sumir
segja flúöi, úr landi fyrir nokkrum misserum
eftir að hafa þeytt skífum í mann og annan og
fengið heldur bágt fyrir. Hann er í hópi efnuð-
ustu manna í innhverfum heimsborgarinnar og
slær þar um sig ekki ósvipað og Mohammad Al-
Fayed.
Þessi brottflutti borgari hefur hins vegar,
ólíkt Al-Fayed, hlotið náð fyrir augum breskra
immigranta, enda þegar búinn að kaupa eina
innflytjendaskrifstofu í útjaðri Watford. Hann
er, ólíkt Al-Fayed, hvítur - og kominn með papp-
íra upp á það að hann sé Breti og gott betur,
hann er Englendingur með hreim, ríkur og refFi-
lega klár.
Og núna er hann í essinu sínu úti í heimi.
Hann er að selja hluti sina í einhverjum smá-
bönkum uppi á íslandi og sömuleiðis arfabletti í
úthverfum - og það, ásamt innistæðunum í
Hambros, virðist ætla að duga fyrir þeim fáu
milljörðum sem það kostar að kaupa þriðj-
ungspart í þjóðbankanum heima á Fróni.
Hann er það sem þarf: Einn, erlendur og með
fastan kjöl. Sorrí Dave!
Garri
Ferðalög forseta
og kærustunnar
AuSur Jónsdóttir skrifar:
Ég ætla ekki að
setja mig á háan
hest vegna einka-
mála forsetans
okkar eða hneyksl-
ast á því hvernig
hann hagar sam-
búð með sinni
heitkonu. Hins Forsetinn til
vegar finnst mér . Færeyja
það óviðeigandi að Asamt heitkonu
forsetinn skuli ít- sinn{ ~ ekki ei&
rekað koma fram á inkonu.
erlendum vett-
vangi og fara í opinberar heimsóknir
með konu sem hann er ekki giftur. ís-
lenska ríkið greiðir fyrir allar ferðir
þeirra saman og þjóðin á því kröfu á
að samband forsetans við sambýlis-
konu sína sé lögum samkvæmt. Þarna
fer forsetinn yfir strikið í einkamál-
um sínum.
Beygluð Bylgjufrétt
Magnus Gunnarsson skrifar:
í hádegisfréttum Bylgjunnar
fimmtud. 28. júní sl. var vitnað til um-
mæla forsætisráðherra sem hefði
nefnt töluna 20 milljarða króna sem
það kostaði að taka upp evruna sem
mynt hér á landi. Til að staðfesta
þetta var svo skotið inn örstuttu broti
úr viðtali við utanríkisráðherra, Hall-
dór Ásgrimsson, frá þvi fyrr um
morguninn í þættinum I bítið og átti
að sanna fyrir hlustendum að forsæt-
isráðherra hefði nefnt þessa upphæð -
eða kannski til að gera ómerk orð for-
sætisráðherra! Það eina sem þó kom
fram hjá utanríkisráðherra í hádegis-
fréttinni var þetta: „Þekki ekki mál-
ið“. - Svona frétt hjá Bylgjunni finnst
mér vera ansi „beygluð" og ekki sæm-
andi fréttastofu sem vill láta taka
mark á sér.
Karadzic og Mladic
Ólafur Ólafsson hnngdj:
Nú berast frétth
að utan um að
skúrkurinn
Slobodan Milos-
evic, fyrrv. forseti i
Júgóslavíu, sé
næsti maður frá
Júgóslavíu fyrir
stríðsglæpadóm- Radovan
stólinn í Haag Karadzic
vegna ýmissa spill- /M/'k/u verri en
ingarmála og Milosevic.
ábyrgðar vegna
fjöldamorða í Bosníu á sínum tíma.
Ekki efa ég sekt Milosevics þessa en
umfram allt voru þeir læknirinn
Radovan Karadzic og hershöfðinginn
Mladic ábyrgh fyrir hinum hryllilegu
atburðum og svæsnustu glæpamenn-
irnir sem hafa að margra mati haft
Milosevic í vasanum og fjarstýrt hon-
um. Það stingur því í stúf við offorsið
gegn Milosevic að leita ekki þessa
kóna, Karadzic og Mladic, uppi og
ákæra þá.
Leitum sannleikans
Jón_Valur Jensson skrifar:
Það er að sjálfsögðu fréttnæmt ef ís-
lendingur var meðal mestu striðs-
glæpamanna Eistlands á hernámsár-
um nasista en það er álit alþjóðanefnd-
ar, stutt heimMum. í DV 21/6 álasar
E. Á. Bylgjunni fyrir frétt um þetta.
Vill hann þá ekki harma frétt Mbl.
20/6 um ákæruna? Er ekki meiri
ástæða til að gagnrýna þá valdamenn
sem komu í veg fyrir að mál mannsins
yrði rannsakað í dómskerfi okkar?
Erum við þó skuldbundin til þess að
kanna meinta þátttöku manna í þjóð-
armorði. - Ágæt frammistaða hans i
ísl. samfélagi breytir engu um þá
ábyrgð. Ég trúi því að réttlætiö sigri
að lokum en hef áhyggjur af þeim ís-
lendingum sem töldu og telja sér heim-
ilt að leggja stein í götu sannleikans og
réttvísinnar varðandi hugsanlega
hlutdeild Eðvalds í útrýmingu gyðinga
og annarra saklausra manna.
mm
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf tll: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reylgavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.