Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
Fréttir I>V
Matvöruverð hækkar eftir því sem austar dregur á Suðurlandi:
Ein dýrasta mat-
vöruverslun í heimi
- segir formaður verkalýðsfélagsins í Vík í Mýrdal eftir verðkönnun í bænum
DV, SUDURLANDI:______________________
„Eg ákvað í framhaldi af verð-
könnuninni sem var tekin á Selfossi
og birtist í DV á fimmtudaginn að
bera saman verðlagið í verslun
Kaupáss hf„ Kjarval, hér í Vik við
niðurstöðu könnunarinnar á Sel-
fossi. Með þeim samanburði stað-
festist grunur minn um að hér væri
verðlag talsvert hærra en á Sel-
fossi,“ sagði Eiríkur Tryggvi Ást-
þórsson, íbúi í Vík í Mýrdal. Eirík-
ur sem er formaður verkalýðsfélags-
ins Víkings segir aö sér hafi í raun
ekki komið verulega á óvart sá
verðmunur sem hann uppgötvaði í
könnun sinni. „En aö verðlagið hér
væri 16 prósentum yftr meðalverð-
inu á Selfossi finnst mér einum of,“
sagöi Eiríkur. Hann segist ekki get-
að fundið tilheyrandi skýringu á
verðmuninum. „Fjarlægðirnar eru
tæplega það sem getur réttlætt
þetta. Það getur ekki verið að vörur
þurfi aö hækka þetta mikið þó aö
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Dýr aðföng
Eiríki Tryggva Ástþórssyni, verkalýös-
foringja í Vík í Mýrdal, blöskrar verö-
lagningin á lífsnauösynjum í sínum
heimabæ. Verölagiö er enn dýrara
en f dýrustu búöinni á Selfossi.
þær séu fluttar hér á milli sýslna á
Suðurlandi," sagði Eiríkur.
50% hærra verð
Innkaupakarfan í Vikinni kostaði
5.173 krónur. Það er 229 krónum
hærra en dýrasta karfan kostaði í
KÁ á Selfossi. Verðmunurinn milli
Kjarval í Vík og í Bónuss á Selfossi
er hins vegar 1.796 krónur eða
49,6%. I verðkönnun Eiríks studdist
hann við körfu DV í verðkönnun-
inni á Selfossi. Af þeim 15 tegund-
um sem voru í körfunni reyndust
aðeins tvær ódýrari í Víkinni en
hæsta verð á Selfossi, rauö paprika
og agúrka. Þrjár vörutegundir voru
jafndýrar og hæsta verð, bananar,
tómatar og kókómjólk. Það eru því
tíu tegundir sem eru dýrastar í
Kjarval í Vík, samanborið við versl-
anir á Selfossi. Ef aðeins eru teknar
dýrustu vörutegundirnar á Selfossi
er karfan í Vík samt 111 krónum
dýrari en það samansafn. Sjá töflu.
“Fyrst að verðlag á íslandi er það
hæsta í Evrópu, miðað við nýgerða
könnun, þá hlýtur það vöruverð
sem við búum við hér í Víkinni að
vera eitt það hæsta í veröldinni.og
því miður endurspeglar það ekki
það launaumhverfl sem við búum
við hér í Mýrdalnum," sagði Eirík-
ur Tryggvi Ástþórsson, verkalýðs-
leiðtogi í Vík i Mýrdal að lokum.
NH
Vík Self. lægst Self. hæst
°Maraþon-color 712 499 676 kr.
°1 kg rauð paprika 849 539 898
°Gunnars-majo. 250 g 98 kr. 67 88
°Bananar1 kg 225 kr. 49 225
“Tómatar 1 kg 498 kr. 169 498
“Agúrkur1 kg 398 kr. 239 399
“Maxvell-kaffi, 500 gr 429 kr 329 409
°0ra-fiskbollur, heild. 312 kr 195 279
°Royal-lyftiduft í dós 338 kr. 243 314
“Camembert-ostur 289 kr. 221 279
°Létt og laggott 185 kr. 155 179
°1 I mjólk 82 kr. 73 81
°2 I kók 220 kr 183 219
°Kókómjólk 250 ml 59 kr 41 59
“Cocoa puffs 553 g 479 kr. 335 459
°Samtals karfa: 5.173 3.437 5.062
Raforkuframleiðsla að hefjast í Súgandafirði:
Raforkubændur reisa stöðvarhúsið
DV, SUDUREYRI:______________________
Bændurnir í Botni II og Birkihlíð
í Súgandafirði hafa unnið að þvi nú
um nokkurt skeið að koma upp
vatnsaflsvirkjun á landi sínu. Fram-
kvæmdir hófust í vor og er nú unn-
ið að því að reisa stöðvarhúsið.
Virkjunin mun framleiða 230-500
kilówött af rafmagni eftir árstíðum.
Þegar hefur verið gengið frá sölu á
rafmagninu til Orkubús Vestfjarða.
Fyrir skömmu kom færeyska flutn-
ingaskipið Skandia með rör frá
Sandevik í Noregi til virkjunarinn-
ar. Um er að ræða um tvo kílómetra
af rörum úr trefjaplasti og mesta
flutningsgeta um 500 sekúndulítrar.
Stofnað hefur verið einkahlutafé-
lag um virkjunina.
Birkir í Birkihlíð segir vonir
standa til að hægt verði að fram-
leiða rafmagn öðru hvoru megin við
áramótin. „Við erum fullir bjartsýni
þrátt fyrir það að gengið hafi fallið
verulega undanfarið sem raskar að
sjálfsögðu öllum arðsemisútreikn-
ingum. Ég tel að víðar séu tækifæri
til að virkja hagkvæmt á Vestfjörð-
um.“ -VH
DV MYND VALDIMAR HREIÐARSSON.
Rörin komin
Bræöurnir Björn og Svavar Birkissynir taka á móti rörunum sem fara í aðveitulögn til virkjunarinnar.
Háskóli íslands bregst við nýrri aðalnámsskrá:
Inntökuskilyrði í endurskoðun
7 in 'i 'i <* <it <s ,n " n
n 1111 n 11« j
-TfWtt’nTTfK
TivviMPRrr
i
Inntökuskilyröi tll skoöunar
Vinna stenduryfir í Háskóla íslands viö skilgreiningar á inntökuskilyröum til
samræmis viö nýja aöalnámsskrá í framhaldsskólum landsins.
Nú er unniö að því í Háskóla ís-
lands að skilgreina og endurskoða
inntökuskilyrði til samræmis við
nýja aðalnámsskrá sem farið er að
vinna eftir í framhaldsskólum
landsins Þá er unnið að leiðbein-
ungum fyrir framhaldsskólanema
um æskilegan undirbúning fyrir
nám í HÍ. Aðalnámsskráin felur í
sér breytingar á því hvernig stúd-
entsprófið er samsett og hvaða leið-
ir eru í boði til að ljúka stúdents-
prófi á bóknámsbrautum.
Þórður Kristinsson, kennslustjóri
i Háskóla íslands, sagði að inntöku-
skilyrði gætu breyst að einhverju
marki í HÍ við endurskoðunina.
Ekki hefði veriö tekin ákvörðun um
i hverju þær breytingar yrðu fólgn-
ar.
„Þetta snýst einkum um aö við-
komandi einstaklingur hafi þann
undirbúning sem hann þarf til að
geta tekist á við námiö í háskóla,"
sagði hann. „Hins vegar er ekkert á
döflnni að gera einkunnir aö ein-
hverju skilyrði í þessu sambandi. „
Þóröur sagöi horft til samsetning-
ar á náminu, þ.e. hvaða greinum
viðkomandi nemandi hefði lokið.
Meöan ekki væru samræmd próf í
tilteknum greinum væri saman-
burður á einkunnum varasamur. í
framtíðinni mætti gera ráð fyrir
samræmdum prófum í íslensku,
ensku og stærðfræði í framhalds-
skólunum. Með því yrði allur sam-
anburður auðveldari. Þá kæmi til
greina að láta útkomu úr framhalds-
skóla ráða að einhverju leyti, til
dæmis ef breytt yrði fyrirkomulag-
inu á inntöku nemenda í greinar
svo sem heilbrigðisgreinar þar sem
nú væri takmörkun með samkeppn-
isprófum.
„Það skal undirstrikaö í þessu
sambandi, að aðgangur að háskólan-
um er opinn. Við reynum að taka
inn alla sem uppfylla inntökuskil-
yrði,“ sagði Þórður.
Hann kvaðst búast við að Háskóli
íslands gæfi út leiðbeinigar til fram-
haldsskólanna í haust. Nemendurn-
ir gætu þá skipulagt nám sitt í sam-
ræmi við þær leiðbeiningar.
-JSS
Umsjðn: Sigurður Bogi Sævarsson
netfang: sigurdur@ff.dagur.is
Mörður í fullu fjöri
Mörður Árnason íslenskufræð-
ingur kann svo sannarlega þá list
að valda usla með beinskeyttum
skoðunum sínum. Fólki er enn í
fersku minni
þau læti sem
urðu vegna
þess að Mörð-
ur fékk það
samþykkt í út-
varpsráði að
Evrvisjónlag Is-
lendinga skyldi
flutt á íslensku.
Nú hefur Mörð-
ur skorið upp herör gegn rasisma
innan íþróttahreyfingarinnar og
ekki stendur á viðbrögðunum. Fót-
boltabullur með þær skoðanir að
örstutt sé á milli svertingja og apa
hella sér yfir íslenskufræðinginn 1
afkimum Netsins. Ekki er búist
við því að Mörður skipti um skoð-
un í þessu máli eins og Evró-
visjónmálinu forðum...
Garðabæjarspildan
Fornvinur Marðar Árnasonar,
prófessor Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, á sér líka baráttu-
mál. Hann hefur um árabil haldið
á lofti meint-
um siðlausum
viðskiptahátt-
um Jóns
Ólafssonar
Skífustjóra
sem dvelur f
velllystingum í
Lundúnum.
Hannesi Hólm-
steini hefur
orðið tíðrætt um málefni Jóns sem
og Garðarbæjarlandið sem fjár-
málajöfurinn keypti fyrir 700 millj-
ónir króna en getur ekki losnað
við. Nú mun rofa til varðandi sölu
landsins ef marka má vefsíðu ís-
landsnets sem staðhæfir að landið
verði selt í smáum spildum til
verktaka....
Flótti?
Frétt um brotthvarf dagskrár-
stjórans Páls Baldvins Baldvins-
sonar af Stöð 2 hefur vakið mikla
athygli. Páll Baldvin hefur haft
sterka stöðu
sem einn hejsti
ráðamaður
sjónvarpsris-
ans. Talið er að
með þessu sé
Páll Baldvin að
axla sinn hluta
ábyrgðar þess
að uppsagnir
áskrifta hafa
sópast inn það sem af er árinu. Nú
spyrja menn hvort fleiri toppar
séu á förum og er þar horft til
sjálfs forstjórans, Hreggviðs
Jónssonar sem hlýtur að eiga erf-
iðar stundir...
Kratinn kinnarjóði
Eins og DV greindi frá um helg-
ina er Helgi Pétursson meðal um-
sækjenda um starf í nýsköpunar-
deild Orkuveitu Reykjavíkur sem
nýlega var
auglýst laust
til umsóknar
- og er raun-
ar fullvíst
talið að Helgi
hreppi þetta
staif. Með
þessu mun
hinn kinnar-
jóöi Ríó-maður
í borgarstjóm
vera að bjarga sér fyrir horn, en
bæði hann og aðrir innan Reykja-
víkurlistans telja að pólitískur fer-
ill Helga sé á enda. Bæði hafi
hann ekki þótt neitt heljarmenn á
sviði borgarmálanna en einnig sé
tæpast vært fyrir fyrrverandi
framsóknarmann að sitja sem
krati í borgarstjórn, á sama tíma
og Samfylkingin er að bíta i
skjaldarrendur á öllum sviðum -
þar á meðal í borginni.