Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Síða 8
8 Fréttir MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001 DV Mazda MX5 (Miata) árg. 2000 til sölu, ekinn 12.000 km ATH. harður toppur, samlitur bílnum fylgir. í síma: 577 3777 (Bíll.is) Upplýsingar Smáauglýsingar atvinna DV 550 5000 Loðnuveiöin fer ákaflega hægt af stað: Reiðileysi á flotanum - segir Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni DV, AKUREVRI:_________________ Afli nótaskipanna sem fóru til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum og síðan til loðnuveiða hér við land hefur verið mjög lítill og ekki mikil hamingja ríkjandi meðal þeirra sjómanna sem staðið hafa í þessum árangurslitlu veiðum. Ekki náðist að taka nema mjög lítinn hluta af kvóta Islands úr síldarkvót- anum og þá hefur loðnan gert mönnum erfitt fyrir að undanförnu og ekki hægt að tala um neina sam- fellda veiði sem einhverju nemur. „Þetta er bara hittingur. Ástandið hefur verið þannig að það finnst e.t.v. einhver loðna og þeir sem koma fyrstir þeir fá, aðrir ekki. Það hafa veiðst einhverjir slattar út af Langanesi og við Kolbeinsey en þegar fleiri hafa komið á vettvang hefur allt verið búið. Svona gengur þetta fyr- ir sig og það er engu líkara en við höfum reitt himnafóð- urinn til reiði,“ segir Bjami. Hann segir að sú loðna sem þó hefur fengist hafi verið mjög vel á sig komin. Hún hafi verið allt að 16% feit sem eins og ástandið eigi að vera á henni i lok júlí eða i ágúst. Ekki er nóg með að veiðin hafi ver- ið slök, þegar skipin hafa kastað hefur einhver marglyttutegund eða þörungur komið í flekkjum í nótina og gert mönnum erfltt fyrir. „Ég veit ekki hvað þarna er eigin- lega á ferðinni. Maður hefur á til- finningunni að það séu fleiri þús- und tonn í nótinni en svo lekur þetta út. Þetta er hálfgerð drulla, líkist helst marglyttu en við köllum þetta einfaldlega „sultu“,“ segir Bjami. Hann segir dæmi þess að nætur hafi rifnaö þegar þessi ófögn- uður hefur komið í þær og þetta hef- ur einnig leitt tfl þess að skipin hafa fengið næturnar í skrúfurnar. -gk Bjarni Bjarnason. ■i-ftm-..... Svalandi afdrep í veöurblíöunni Hjá bænum Sauðhúsvelli undir Eyjafjöllum nota hrútarnir gamla pakkageymslu við þjóðveginn fyrir afdrep, ekki var það vegna þess að veörið væri svo vont heldur vegna þess að þeim var trúlega fullheitt í veöurblíðunni sem lék við Sunnlendinga í gærdag. Sýslumaður gerir áreið að fornum sið DV, VESTFJORDUM:________ Olafur Helgi Kjart- ansson hefur verið yf- irvald ísfirðinga um alllangt skeið. Á hann ættir að rekja til fjórð- ungsins. Er Ólafur tal- inn farsæll í starfi. Hann er meðal annars kunnur fyrir áhuga sinn á tónlist The Roll- ing Stones og annarra þekktra erlendra popp- ara og sækir gjaman tónleika hljómsveitar- innar. En lífið er ekki bara DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Áreiö Ólafur Helgi, vinsæll sýslumaöur ísfirðinga, er hér í áreið í Dýrafirði. rokk og ról. Skyldur sýslumanns eru marg- ar og margvíslegar. Á dögunum þurfti Ölafur Helgi að skera úr um vafaatriði um land- nytjar og landamerki í Dýrafirði. Hélt hann á staðinn og gerði áreið að fornum sið. Þótti málsaðilum gott að skoða aðstæður með þessum hætti og virt- ust þeim mál hafa skýrst að áreið lok- inni. -VH Búðardalur: Mótmæla harðlega lokun sláturhúss og kjötvinnslu DV, DALASYSLU:______________________ A fundi sveitarstjórnar Dala- byggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt harðorð ályktun þar sem hún átelur harðlega þau vinnubrögð sem stjórn Goða hf. hefur viðhaft við ákvörðun sína um að loka sláturhúsinu í Búðar- dal og kjötvinnslu. „Það er mat sveitarstjórnar að forsvarsmenn Goða hf. hafi ekki hirt um að líta til mikilvægis byggðarinnar og þeirra mögifleika sem hún býður upp á í framleiðslu á kjöti þegar ákvörðunin var tekin. Sveitarstjóm hefur allt frá árinu 1988 tekið þátt í uppbyggingu slát- urhússins í Búðardal með það að markmiði að treysta innviði þess með hagsmuni byggðarinnar að leiðarljósi. Fyrst sem stór hluthafi í Afurðastöðinni í Búðardal hf. og síðan sem eignaraðili að Norðvest- urbandalaginu hf. í gegnum eign- arhlut sinn í Afurðastöðinni. Þá felur sveitarstjórn oddvita og sveit- arstjóra að óska eftir viðræðum við forsvarsmenn Goða hf. um mál- efni sláturhússins í Búðardal," seg- ir í ályktun sveitarstjórnar Dala- byggðar. Menn segja að lokun sláturhúss- ins sé álíka áfall fyrir Dalamenn og fyrir Akurnesinga ef þeir misstu Járnblendið og fyrir Hafnfirðinga ef þeir misstu álverið. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.