Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Qupperneq 22
34
_______________________________________________MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
íslendingaþættir______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_________________________________
Málmfríður Jóhannsdóttir,
Austurgötu 25, Hafnarfiröi.
Jón Kristinsson,
Austurbyggö 21, Akureyri.
Helga Eysteinsdóttir,
Hrauni 2, Selfossi.
80 ára_________________________________
Rannveig Kristjánsdóttir,
Boöahlein 5, Garöabæ.
7.5 ára________________________________
Herdís Guðrún Ólafsdóttir,
Mávahlíð 23, Reykjavík.
Adam Örn Ingólfsson,
Mýrarvegi 111, Akureyri.
Snorri Þór Rögnvaldsson,
Goöabyggö 12, Akureyri.
Halldór Ingimundarson,
Bröttuhlíö 16, Hveragerði.
70 ára_________________________________
Örn Stefánsson,
Skúlagötu 20, Reykjavík.
Gísli Guðmundsson,
Kambsvegi 25, Reykja-
vík er sjötugur í dag,
Hann tekur á móti gest-
um í félagsheimili
Kiwanisklúbbsins Eld-
eyjar viö Smiðjuveg
13a í Kópavogi eftir
klukkan 17.00 í dag.
Sigurbjörn Þorgrimsson,
Hamraborg 22, Kópavogi.
María S. Eyjólfsdóttir,
Gullsmára 5, Kópavogi.
Eyjólfur Helgason,
Tunguvegi 2, Njarövík.
Oddur Pétursson,
Seljalandsvegi 38, ísafirði.
Jón Guðmundsson,
Lyngheiöi 18, Selfossi.
60 ára_________________________________
Gunnhildur Valtýsdóttir,
Markholti 8, Mosfellsbæ.
Sonja F. Jónsson,
Skagabraut 35, Akranesi.
Sigurður Kristjánsson,
Stöng 2, Reykjahlíö.
Aðalheiður Óskarsdóttir,
Heiðarvegi 6, Selfossi.
Ingibjörg Sæmundsdóttir,
Selvogsbraut 13, Þorlákshöfn.
50 ára_________________________________
Anna Sigrún Hermannsdóttir,
Leifsgötu 3, Reykjavík.
Ragnar Þorsteinn Ragnarsson,
Búlandi 16, Reykjavík.
Anna Guðný Ásgrímsdóttir,
Bakkastööum 21, Reykjavík.
Guðrún Krístinsdóttir,
Mánageröi 6, Grindavík.
Anne Grethe Hansen,
Arkarholti 10, Mosfellsbæ.
40 ára_________________________________
Þröstur Brynjarsson,
Grettisgötu 46, Reykjavik.
Áslaug íris Valsdóttir,
Drápuhlíð 24, Reykjavík.
Maria Egdicia Valladolid Chavez,
Þingaseli 5, Reykjavík.
Guðrún Ásta Franks,
Þverárseli 4, Reykjavík.
Gunnar Ás Vilhjálmsson,
Logafold 41, Reykjavík.
Guðmundur Skúlason,
Lækjarhjalla 24, Kópavogi.
Brynja Laxdal,
Jökulhæö 1, Garöabæ.
Bjarni Jónsson,
Bjarnastaöavör 6, Bessastaðahreppi.
Sólveig Sigurðardóttir,
Noröurvör 11, Grindavík.
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Sverrir Einarason Bryndís
útfararatjóri Valbjomardóttir
úttararstjóri
Útfararstofa íslands
Su6urhlló35* Sími 581 3300
Fólk í fréttum
Sigurður Björnsson
krabbameinslaeknir
Sigurður Björnsson
Sigurður Björnsson, formaður Krabbameinsfélags íslands, hefur meðal ann-
ars verið í fréttum að undanförnun vegna samnings við ÍE um aögang að
Krabbameinsskrá félagsins.
Sigurður Björnsson, krabba-
meinslæknir og formaður Krabba-
meinsfélags íslands hefur verið í
fréttum að undanförnu vegna samn-
ings Krabbameinsfélags íslands við
íslenska erfðagreiningu og vegna 50
ára afmælis félagsins.
Starfsferill
Sigurður fæddist þann 5. júní
1942 í Princeton í New Jersey í
Bandaríkjunum. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1961 og cand. med. frá Háskóla ís-
lands 1968. Hann tók Amerískt út-
lendingapróf í Reykjavik 1968, og
sérfræðipróf í lyflæknisfræði 1973.
Árið 1974 tók hann Amerískt lækna-
próf og sérfræðipróf í lyflækningum
krabbameina 1975 - öll tekin í
Buffalo í New York-ríki.
Sigurður fékk almennt lækninga-
leyfi á íslandi 1969 og í New York-
ríki 1974. Þá fékk hann sérfræðings-
leyfi í lyflækningum í Bandaríkjun-
um 1973 og í lyflækningum krabba-
meina 1975. Sama ár fékk hann sér-
fræðingsleyfi i almennum lyflækn-
ingum og lyflækningum krabba-
meina á íslandi.
Sigurður vann meðal annars á
námsárum sínum í Blönduóshéraði
og á Landspítalanum. Hann var að-
stoðarlæknir og stundaði sérfræði-
nám í lyflækningum á New Britain
General Hospital í New Britain í
Connecticut frá 1970 til 1972. Frá
1972 til 1974 var hann Resident Fell-
ow og í sérfræðinámi í lyflækning-
um krabbameina við Roswell Park
Memorial Institute 1 Buffalo í New
York-ríki, krabbameinslækninga-
deild. Síðar var hann í starfi þar og
við State University of New York
sem Senior Cancer Research Intern-
ist til 1976, þá Cancer Research Clin-
ician I til 1977 og loks Clinician II til
1978. Sérfræðingur í lyflækningum
og lyílækningum krabbameina á
Landskotsspítala frá 1978 til 1989, yf-
irlæknir frá 1989. Sérfræðingur á
Landspítalanum, geisladeild og síð-
ar krabbameinslækningadeild, frá
1978. Ráðgefandi sérfræðingur í lyf-
lækningum krabbameina á Borgar-
spítalanum frá 1978 til 1996 og yfir-
læknir blóðsjúkdóma- og krabba-
meinslækningadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur nú Landspítalans I
Fossvogi-háskólasjúkrahús frá 1996.
Sigurður hefur einnig starfað við
kennslu í Bandaríkjunum og hér á
landi. Hann hefur átt sæti i ýmsum
nefndum og verið í stjórn Krabba-
meinsfélags íslands frá árinu 1980.
Síðan 1998 hefur hann gegnt starfi
formanns. Sigurður var gjaldkeri
Sérfræðingafélags íslenskra lækna
1983 til 1985 og formaður frá 1995. í
stjórn Læknafélags Reykjavíkur
1983 til 1985 og i stjórn Samtaka
lækna gegn kjarnorkuvá 1983 til
1987. Þá hefur Sigurður verið í
stjórn Læknafélags Islands frá 1996.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar var Guðný
Stefanía Kristjánsdóttir, f. 26. sept-
ember 1945. Sigurður og Guðný
skildu. Sambýliskona Sigurðar er
Rakel Valdimarsdóttir, f. 24. júní
1946.
Börn Sigurðar og Guðnýjar eru:
1) Kristin, f. 12. mars 1966; 2) Björn
Pétur f. 18. janúar 1969; 3) Signý Sif
f. 5. febrúar 1978.
Foreldrar Sigurðar voru Björn
Sigurðsson, dr. med., læknir og for-
stöðumaður Tilraunastöðvar Há-
skólans 1 meinafræðum að Keldum,
f. 3. mars 1913, d. 16. október 1959 og
Una Jóhannesdóttir, fulltrúi og hús-
freyja í Reykjavík, f. 15. febrúar
1913, d. 8. desember 2000.
Ætt
Faðir Björns var Sigurður Árni
Björnsson, bóndi, hreppstjóri og
oddviti á Veðramóti í Skarðshreppi
i Skagafirði, síðar framfærslufull-
trúi í Reykjavík. Móðir Björns var
Sigurbjörg Guðmundsdóttir hús-
freyja.
Faðir Unu var Jóhannes Bjöms-
son, bóndi og hreppstjóri á Hofs-
stöðum í Viðvíkurhreppi, Skaga-
firði, síðar verkstjóri í Reykjavík.
Móðir Unu var Kristrún Jósefs-
dóttir húsfreyja.
Merkir Islendingar
Símon Bjarnarson Dalaskáld var fæddur þann 2. júní
1844 á Höskuldsstöðum í Blönduhlið í Skagafirði.
Þar ólst hann upp og réð sig ungur að árum sem
smalamaður að Ábæ í Austurdal. Þar bjó hann en
einnig að Goðdölum í Vesturdal.
Kenningarnafn hans Dalaskáld er einmitt dregið af
dvöl hans í Skagafjarðardölum. Símon var aldrei ábú-
andi á jörð en fyrri hluta ævinnar bjó hann í hús-
mennsku á nokkrum stöðum í innsveitum Skagafjarð-
ar.
Hann ferðaðist líka mikið um landið til að selja rit
sín. Síðustu æviár sín var Simon til heimilis í Bjarna-
staðahlíð í Vesturdal. Símon var talinn mjög harðkvæð-
ur maður og skemmti mönnum oft með vísnagerð.
Símon Bjarnarson
Hann orti meðal annars fjölda rimnaflokka á yngri ár-
um en nokkrir þeirra glötuðust. Meðal rímna sem
prentaðar voru má nefna Ríma af Kjartani Ólafssyni
(1871), Rímur af Gunnlaugi ormstungu (1878), Rímur af
Geirarð og Elínborgu (1884), Rímur af Ingólfi Arnarsyni
landnámsmanni (1912) og Tvennar rímur (1953).
Simon samdi einnig ljóð og dæmi um ljóðaverk eftir
hann eru Bragi (1876), Kórmakur (1886), Stúfur, (1892),
og Hallfreður (1909).
Eina skáldsögu samdi Símon og er það bókin Árni á
Arnarfelli og dætur hans (1951). Formála bókarinnar
skrifar Snæbjörn Jónsson.
Símon Bjarnarson lést árið 1916.
Elísabet Arnarsdóttir, Einholti lOb, Ak-
ureyri, verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 2. júll kl. 13.30.
María B.J.P. Maack, Langholtsvegi 5,
Reykjavík, lést á líknardeild Landspltal-
ans I Kópavogi fimmtudaginn 28. júnl.
Vilhjálmur Kristjánsson, vélvirkjameist-
ari, Álakvlsl 18, Reykjavík, lést miðviku-
daginn 27. júnl á Landspítalanum við
Hringbraut.
Erlendur Árni Ahrens trésmíðameistari
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 28.
júní.
DV
Ókeypis smáauglýsingar!
►! Gefins
-alltaf á miðvikudögum
►I Tapad - fundið
-alltaf á þriðjudögum
Smáauglýsingar (jx
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSIf.ÍS
allan sólarhringinn. www.Utforin.is