Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Page 24
36
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
Tilvera DV
Hefö og saga
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar ber heitið Hefð og
saga. Þar getur að líta úrval verka
eftir Sigurjón Ólafsson frá þrjátíu
ára tímabili, 1930-60. Á
sýningunni eru þrjátíu ljósmyndir
og tuttugu og fjögur skúlptúrverk,
bæði raunsæ portrett og
abstraktverk, meðal annars verk
sem ekki hafa verið sýnd
opinberlega í fjóra áratugi.
Sýningar
■ KIRKJA. ARKITEKTÚR. SKRÚÐI
Sýningin Samræmd heildarmynd -
Kirkja, arkitektúr, glerlist, skrúði
stendur yfir í Fella- og Hólakirkju.
Þar eru sýnd frumdrög að
teikningum kirkjunnar, frumdrög
vinnuteikningar og Ijósmyndir af
vinnuferli glerlistaverkanna og
skrúðans. Hönnuðir eru Leifur
Breiöfjörð og Sigríöur Jóhannsdóttir.
Sýningin stendur til 8. júlí og er opin
alla virka daga kl. 10-16.
■ ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG
^VINTYRI Sumarsýning
i sgrímssafns að Bergstaöastræti
4 í Reykjavík ber heitið íslenskar
'jóðsögur og ævintýri. Þar eru
largar af frægustu þjóðsagna-
, lyndum listamannsins. Einnig er
'innustofa hans, heimili og innbú
lans til sýnis.
■ VÍKINGAR í BYGGÐASAFNI
HAFNARFJARDAR Götulíf
víkinganna í York og Blóðug
vígaferli eru sumarsýningar
Byggðasafns Hafnarfjaröar. Þar er
endurgerö á götu í víkingaþorpi þar
sem hægt er að sjá fólk við vinnu
stna og hins vegar má sjá
beinagrind og hauskúpur víkinga
sem féllu í bardögum. Á sýningunni
eru raunverulegar líkamsleifar sem
geta valdiö óhug hjá viðkvæmum
sálum. Sýningin er opin alla daga
frá 13-17.
■ LIST FRÁ LIÐINNI ÖLD í
LISTASAFNI ASI Svninein List frá
iiðinni öld stendur yfir í Listasafni
ASÍ. Þar eru öndvegisverk I eigu
Listasafnsins. Litið er til fyrri hlutar
síöustu aldar og sjónum meðal
annars beint að yngri verkum
frumherjanna.
■ SVIPIR LANPS OG SAGNA í
ÁSMUNDARSAFNI Svning á verkum
Asmundar Sveinssonar í Listasafni
Reykjavíkur, Ásmundarsafni, heitir
Sviplr lands og sagna. Þar eru verk
sem spanna allan feril
listamannsins. Sýningin er opin
daglega frá 10-16.
■ 1461 PAGUR Á
KJARVALSSTOÐUM I Mlðrými
Kjarvalsstaöa er sýningin 1461
dagur. Þar sýnir Grétar Reynisson
verkefni sem hann hefur unnið að
frá 1. janúar 1977 og sér ekki fyrir
endann á. Þetta er nefnilega
vaxtarverkefni.
■ KRISTBERG Á AKUREYRI Verk
Kristbergs O. Péturssonar eru sýnd
í Ketilhúslnu á Akureyri um þessar
mundir. Sýningin stendur til 8. júní.
■ ÞORRI í LÓNKOTI Þorri
Hringsson ætlar að framlengja
sýningu sína í Galleríi Sölva
Helgasonar í Lónkoti til 7. júlí.
Krár
j PUNDURraEtTÍR Á GÁUKNÚM
Dúndurfréttlr veröa aftur á sínum
stað á Gaukl á Stöng í kvöld og
færa okkur allt þetta helsta.
■ TRÚBBINN EINAR Trúbadorinn
Einar Orn frá litla bænum Bolungar-
vík ætlar aö trylla KR-inga á Rauða
Ijóninu í kvöld.
SJá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.ls
Fókus 3 ára:
TP* • •• *
Fjor a
Fókushátíð
- líf færöist í Hljómskálagarðinn
Hljómskálagaröurinn iðaði af lífi
síðastliðinn fóstudag þegar vikurit-
ið Fókus fagnaði þar þriggja ára af-
mæli sínu. Nokkrar af fremstu
hljómsveitum landsins tróðu upp af
þessu tilefni og má þar nefna Jagú-
ar, X Rottweilerhunda og í svörtum
fótum. Einnig tók misheppnaði kyn-
skiptingurinn Hedwig tvö lög fyrir
gesti og var fagnað ógurlega að söng
loknum. Leiktæki stóðu yngstu kyn-
slóðinni til boða og voru langar rað-
ir í þau fram eftir kvöldi. Þeir sem
vildu fá meiri útrás og adrenalín-
flæði í líkamann gátu skellt sér í
teygjustökk og nýttu margir sér það
tækifæri. Hápunktur kvöldsins var
þó valið á Herra Fókus. Um þá eftir-
sóttu nafnbót kepptu fimm vaskir
sveinar sem voru hver öðrum
þokkafyllri og átti dómnefnd því svo
sannarlega úr vöndu að ráða.
Knattspyrnukarlar
Keppt var í svokölluöu „Human
Table" í Hljómskálagaröinum á
föstudaginn en sá leikur likist risa-
vöxnu fótboltaspili meö lifandi leik-
mönnum.
Veiðidans
Einn keppenda í Herra Fókus stíg-
ur nokkur eggjandi dansspor
áhorfendum til mikillar gleöi.
DV-MYND EINAR J.
Hedwig í ham
Kynskiptingurinn misheppnaði,
Hedwig, flutti tvö lög úr samnefnd-
um söngleik.
UllgL Ug ICIhUI 9CI
Gestir afmælishátíðar Fókuss voru
á öllum aldri. Þessir tveir piltar
tókust á um hvor ætti aö fara fyrst
í hoppkastalann.
Fylgst með Herra Fókus
Jafnt stelpur sem strákar fylgdust
af áhuga meö Herra Fókus og
létu álit sitt á keppendum
óspart í Ijós.
X Rottweilerhundar
Þaö ríkti engin lognmolla í kringum rappsveitina X Rottweilerhunda frekar
en fyrri daginn. I lokalaginu djammaöi fönksveitin Jagúar meö þeim pilt-
um og hefur annar eins samhljómur aldrei heyrst á Islandi.
Hálf öld frá 29. júní 1951:
íþróttaafreka
minnst
Föstudagsins 29. júni 1951 verður
lengi minnst af íþróttaáhugamönn-
um en þann dag unnu íslenskir
íþróttamenn mikil afrek. Ekki var
nóg með að íslenska landsliðið í
knattspymu ynni sigur á sænska
landsliðinu heldur unnu íslenskir
frjálsíþróttamenn einnig glæsta
sigra á norskum og dönskum frænd-
um sínum. Á föstudaginn var liðin
nákvæmlega hálf öld frá þessum
mikla dýrðardegi í íslenskri íþrótta-
sögu og af því tilefni komu gamlar
íþróttakempur saman og minntust
liðinna stunda. Dagskráin hófst með
athöfn i Neskirkju þar sem látinna
félaga var minnst en síðan var geng-
ið fylktu liði yfir á Hótel Sögu þar
sem snæddur var hátíðarkvöldverð-
ur og hetjurnar heiðraðar.
Gamlar kempur
Hluti landsliös íslands í knattspyrnu áriö 1951 stillir sér upp til mynda-
töku í kvöldsólinni.
Fram, fram fylking
Að lokinni athöfn í Neskirkju var gengiö undir
fánum til kvöldveröar á Hótel Sögu.
Ráðherra íþróttamála
Menntamálaráöherra heiöraöi íþróttahetjurnar
meö nærveru sinni. Hér er hann ásamt eigin-
konu sinni, Rut Ingólfsdóttur tónlistarmanni, og
Ellerti B. Schram, forseta íþróttasambands ís-
lands, eftir athöfnina í Neskirkju.
Sjá mátti fána og merki hinna ýmsu íþróttafélaga
i göngunni
Hér er fáni Knattspyrnufélags Reykjavíkur bor-
inn í hús. Ellert B. Schram fylgist meö.