Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001
DV
Fréttir
Vestmannaeyingar upplifa sorg vegna framgöngu þingmanns síns:
„Taktu pusið
í hnakkann<£
Skattalækkun á dísilbíla
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
áformar að lækka
skatta á minni dísil-
bifreiðar þannig að
innfluningur á þeim
aukist á kostnað
bensínbifreiða. Sam-
gönguráðherra
kynnti í gær skýrslu um losun gróður-
húsalofttegunda frá samgöngum. Um
25% til 30% minni útblástur er frá
dísilbílum en bensínbílum.
Tugur innbrota upplýstur
Lögreglan á Akranesi og í Borgar-
nesi upplýsti í dag bmbrot i 8 sumar-
bústaði í Svínadal og Skorradal, sem
framm voru um síðustu helgi. Fimm
menn á aldrinum 16 til 20 ára voru
handteknir í fyrrinótt eftir að hafa
reynt að brjótast inn í húsnæði í Borg-
arfirði og í kjöifar húsleitar hjá þeim
fannst töluvert magn af þýfi úr eldri
innbrotum.
Atvinnuleysi eykst
í júni voru 1.820 manns á atvinnu-
leysisskrá. í þeim hópi voru tvöfalt
fleiri konur en karlar. Jókst á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem það var 1,3%.
Á landsbyggðinni batnaði hins vegar
atvinnuástandið miðað við maímánuð,
- RÚV greindi frá.
Óljóst um orsök sjóslyss
Enn er óljóst hvað olli því að Una í
Garði sökk. Þrir skipverjar voru yfir-
heyrðir í gær hjá lögreglunni í Kefla-
vík. Þar kom fram að báturinn sökk á
innan við mínútu og tveimur mönnum
sem fórust hafi ekki tekist að komast
úr bátnum. Skipstjórinn telur leka þó
helstu skýringuna.
Siv vongóð
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra
er stödd í Bonn í
Þýskalandi þar sem
hún vonast til þess
að hægt verði að út-
færa frekar Kyoto-
bókunina svoköÚuöu
sem kveður á um los-
un koltvioxíðs í andrúmsloft. Island
hefur farið fram á að fá undanþágu frá
takmörkunum.
Olíuflutningabann
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt
að leggja til að bannað verði að flytja
olíu og bensín um Hvalfjarðargöng og
ítrekaði þar með samþykkt bæjar-
stjómar frá 1999. Bæjarráðið bendir á
nýlegt atvik þar sem bensín lak í Hval-
fjarðargöngum með augljósri hættu
fyrir vegfarendur.
Kannski tækifæri
Ómar Benedikts-
son, framkvæmda-
stjóri íslandsflugs,
sagði stjómendur ís-
landsflugs ekkert hafa
rætt þá möguleika að
félagið tæki upp flug á
þeim áætlunarleiðum
sem Flugfélag íslands
hætti að fljúga á. „Við vorum á útleið i
innanlandsfluginu en kannski er þama
eitthvert tækifæri," segir Ómar við
Fréttablaðið.
Hættir gjaldtöku
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra lagði til á ríkisstjómarfundi í
gær að flugleiðsögugjald af innan-
landsflugi yröi fellt niður frá og með 1.
ágúst. Tekjur ríkissjóðs af þessu gjaldi
hafa verið um 45 milljónir á ári.
Leitað að olíu
Iðnaðarráöherra hefúr veitt norska
fyrirtækinu InSeis leyfi til leitar að
olíu og gasi innan íslensku efnahags-
lögsögunnar. Þetta er i fyrsta skipti
sem leyfi af þessu tagi er veitt á ís-
lensku hafsvaeði samkvæmt heimild í
lögum frá því í vor. -HKr.
- sagði vinur í síma við beygðan Árna Johnsen
Höföaból, helmlll Áma Johnsens í Vestmannaeyjum
Árni var í gær í óöaönn ásamt smiöum aö klæöa þéttidúk á þakiö á nýþygg-
ingu sem er viö hiiö hússins.
Kannski mynd
Árni vildi ekkert ræða þau mál
sem tröllriðið hafa islenskum fjöl-
miðlum að undanfömu. Þó féllst
hann á, fyrir gamlan kunningsskap
við Gunnar V. Andrésson ljósmynd-
ara, að láta taka af sér mynd. Ella
hefði hann líkast til tekið á móti
blaðamönnum að sjómannasið eins
og hann orðaði það. Hann vildi að
myndin yrði tekin á einum af hans
uppáhaldsstöðum, suður undir Stór-
höfða á Heimaey. Myndatakan skyldi
framkvæmd á klöppunum í fjörunni í
svonefndri Klauf. Það var hins vegar
ekki við það komandi að taka mynd
af Árna við húsbygginguna, nóg væri
samt að gert.
Farðu bara á baksund og
taktu pusiö í hnakkann!
Árni sagði fátt á leiðinni niður í
Klauf. Hann vildi ekkert ræða við-
brögð flokksfélaga sinna, ráðherra
eða sína hlið á málinu. Hann vildi
frið til að íhuga stöðuna. Þó minntist
hann á að hafa fengiö ótal símhring-
ingar undanfarna daga. Mjög margar
hafi verið frá góðum vinum og kunn-
ingjum.
„Einna vænst þótti mér um orð
Guðlaugs Friðþórssonar (sem bjarg-
aði sér á sundi á ótrúlegan hátt úr
sjávarháska) sem sagði: „Ámi, farðu
bara á baksund og taktu pusið í
hnakkann!" - Þetta máttu hafa eftir
mér,“ sagði Árni Johnsen. -HKr.
Það er einkennilegt andrúmsloft í
Vestmannaeyjum þessa dagana í kjöl-
far ótrúlegra uppljóstrana um mis-
ferli þingmannsins Áma Johnsens.
Helst er hægt að lýsa því sem sorg,
rétt eins og fólk hafi glatað einum af
sínum bestu sonum.
Á götum vill fólk helst ekki ræða
málið, þykir það óþægilegt og finnur
til með þingmanninum. Sjá má fólk
ræða í hálfum hljóðum á götuhornum
og á höfninni voru menn sammála
um að þetta væri vandræðamál fyrir
bæjarfélagið. Forráðamenn bæjarins
hafa tekið svipaða afstöðu og vilja
ekki ræða málið frekar en orðið er.
Árni Johnsen, fyrsti þingmaður
Sunnlendinga, tilkynnti Davíð Odds-
syni forsætisráðherra í gær að hann
myndi segja af sér þingmennsku á
allra næstu dögum. I heila viku hefur
vart verið um annað rætt á íslandi en
mál Áma Johnsens sem uppvís hefur
orðið að því að misnota aðstöðu sína
sem formaður byggingarnefndar
Þjóðleikhússins í eigin þágu.
Blaðamaður og ljósmyndari DV
brugðu sér til Eyja í því augnamiði að
heimsækja Árna Johnsen að heimili
hans, Höfðabóli, í gær. Árni stóð þá
úti við lítið hús i burstabæjarstil sem
hann er með í byggingu á lóðinni við
hús sitt. Með honum voru tveir smið-
ir að baksa við gráan þéttidúk í sól og
vindsperringi. Dúkurinn skyldi fara á
þakið sem síðan átti að tyrfa - en tek-
ið var fram að þetta væri ekki dúkur
úr Garöheimum!!!
Búlö er aö drepa mig
Það var greinilega bugaður maður
sem mætti blaðamönnum DV og allt
annar en sá kraftmikli og glettni Árni
Johnsen sem landsmenn hafa kynnst
í gegnum tíðina. Þrátt fyrir það sem á
hefur dunið notar hann nú krafta
sína við að klára þetta myndarlega
hús sem talsvert hefur komið við
sögu undanfama daga. Við hliðina á
byggingunni var timburstafli merkt-
ur frá verksmiðju með nafni BYKO
sem svo mjög hefur komið við sögu.
Árni þvertók fyrir að tjá sig nokk-
uö um það sem á hefur dunið að und-
anfórnu en sagði aðeins:
„Hvað get ég sagt þegar búið er að
drepa mig.“ Hann var greinilega mjög
sár út í kollega sína í blaðamanna-
stétt og engu líkara en hann gæti ekki
skilið það írafár sem misnotkun hans
á almannafé hefur valdið í þjóðfélag-
inu. Sjálfur lýsti hann þessu strax á
fóstudag í síðustu viku sem mistök-
um og yfirsjón og vart var að finna
það í gær aö það viðhorf hefði mikið
breyst.
Klapp á bakiö
Árni Johnsen stendur þó ekki einn
í öllum þessum hremmingum og það
fúndu blaðamenn DV vel á meðan
staldrað var við í Eyjum. Vinir Árna
DV-MYNDIR GUNNAR V. ANDRÉSSON
Ámi Johnsen í gær
Fyrsti þingmaöur Sunnlendinga eftir aö hafa tilkynnt forsætisráöherra aö hann hygöist segja af sér. Þarna siturÁrni
Johnsen á klöppunum í Kiaufinni á suöurhluta Heimaeyjar.
komu einn og einn í hlað, gengu tU
hans, klöppuðu á bakið og fóru að svo
búnu. Heyra mátti hlýleg orð í hálf-
um hljóðum á borð við „Árni, við
erum gamlir Eyjapeyjar og stöndum
saman, hvaö sem á dynur."
Dúkurinn á þakið var þungur og
þó Árni sýndist tveggja manna maki
á móti smiðunum tveim þá gátu
blaðamenn ekki horft aögerðalausir á
án þess að rétta þeim hjálparhönd við
að hemja dúkinn í vindsperringnum
sem þama var. Litlu síðar bar að
svartklæddan mann í jakkafótum,
sem sagði fátt. Þar var enginn annar
en presturinn Kristján Björnsson.
Hann heUsaði Árna, smiðum og
komumönnum. Óumbeðið greip hann
fjögurra tommu planka tU að leggja
smiðunum lið. Þannig var greinilegt
að vinir Árna í Eyjum komu hver af
öðrum til að stappa stálinu í niður-
brotinn þingmann sinn þó fátt væri
sagt.
Húslð góða komið með dúkinn á þakið
Byggingin, sem veröur meö torfþaki, hefur gengiö undirýmsum nöfnum. Hún
hefur veriö kölluö kapella og grillskáli en Árni kallar þetta vinnuskúr.