Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001
DV
5
Fréttir
Umsjón: Birgír Guömundsson
Veöurfréttir og Ijóö
Hinn geðþekki veðurfréttamaður
og jarðfræð-
ingur, Ari
Trausti
Guðmunds-
son, er mað-
ur ekki ein-
hamur um
þessar mund-
ir. Ekki ein
asta situr
hann þessa
dagana og
skrifar bók um islensk eldfjöll, sem
væntanleg er á næstunni, heldur
hafa borist spurnir af því í heita
pottinn að hann sé einnig að vinna
að gerð smásagnasafns. Það er
spútnikforlagið JPV sem mun gefa
smásögur Ara Trausta út eins og
margt fteira kræsilegt. Má raunar
nefna að þetta er ekki fyrsta tillegg
Ara til fagurbókmenntanna því
hann er í hópi þeirra Grafarvogs-
skálda sem fyrir síðustu jól sendu
frá sér ljóða- og sagnasafnið Brúin
út í Viðey sem sent var i hvert hús
í hverfinu...
Grátt gaman
Gamansemi getur verið vand-
, meðfarin á
þeim myrku
músíkdög-
um sem
þjóðin upp-
[ lifir þessa
dagana. Hér
á þessum
stað í blað-
inu í gær
var þess
freistað, af
nokkrum vanefnum, að henda grín
að húsbyggingu Guðna Ágústs-
sonar ráðherra á Selfossi en gár-
ungarnir þar í bæ segja fjölda fólks
leggja leið sína að heimili ráðherr-
ans og héraðshöfðingjans til að
skoða, enda forvitni landans við
brugðið. Var látið að því liggja að
Guðna væri ekki svefnsamt þar eð
flestallar verklegar framkvæmdir
alþingismanna veki nú tortryggni
fólks. Hér var farið of geyst í
gamninu og biður blaðið Guðna af-
sökunar á því að bendla hann við
umtöluð málefni líðandi sem hann
er alls ótengdur...
Vegavísa
í pottinum eru menn orðnir leið-
ir á rigning-
unni og kuld-
anum sem
dunið hefur á
mönnum víða
um land síð-
ustu daga. Það
mim eiga við
um fleiri því
Hákon Aðal-
steinsson,
hagyrðingur og skógarbóndi, var á
ferð í bil sínum fyrr í vikunni þeg-
ar norðanáttinn datt niður og
blessuð sólin lét sjá sig. Þá var til
þessi dýrt kveðna vísa sem hann
mun kalla Vegavísu:
Yljar mér Drottinn á sinn hátt
eins og í potti hér um bil.
Niður er dottin norðanátt,
nú finnst mér gott að vera til.
Lokaleikurinn
Skáld og hagyrðingar landsins
spreyta sig
nú flestir á
; Ámavísum
þessa dagana
og hér kem-
ur ein sem
eignuð er
Þórarni Eld-
járn og fjall-
ar um afsögn
hans sem for-
manns bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins.
Ámi lokaleikinn vann
á lífsins peyjamóti:
Úr formennskunni fer nú hann
með fulla vasa af grjóti.
Skilorðsbimdinn dómur héraðsdóms í Bláhvammsmálinu sá sami og í september 2000:
nögurra mánaöa fangelsi
Dómur féll í gær í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra í máli ríkissaksóknara
gegn Þórði Braga Jónssyni, Bláhvammi
í Reykjahreppi. Þórður Bragi var
ákærður fyrir að hafa aðfaranótt 18.
mars 2000 banað foður sínum, Jóni Frí-
manni Jónssyni, í svefnherbergi hans
að heimili þeirra feðga i Bláhvammi
með því að skjóta þremur riflilskotum í
höfúð hans sem leiddu til dauða. í Hér-
aðsdómi Noröurlands eystra 29. septem-
ber 2000 var Þórður Bragi dæmdur i
fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbund-
ið í þrjú ár. Ákærði krafist staðfesting-
ar héraðsdóms i Hæstarétti.
í dómi Hæstiréttar 22. febrúar sl.
sagði m.a. að rökstuddur grunur væri
fyrir hendi um að ákærði væri sekur en
nauðsynlegt væri að þau gögn sem
skiptu máli kæmu fram áður en máliö
yrði til lykta leitt. Einnig þótti Hæsta-
rétti nauðsynlegt að héraðsdómur
kvæði skýrt á um mat sitt á sönnunar-
gildi og trúverðugleika framburðar
ákærða. Því ómerkti Hæstiréttur hér-
aðsdóm og vísaði málinu aftur heim í
hérað til frekari gagnaöflunar.
Dómur Héraðsdóms Norðurlands
eystra féll á sömu lund í gær. Þórði
Braga er gert að sæta fangelsi í fjóra
mánuði en fresta skal fullnustu refsing-
ar og hún faila niður að þremur árum
liðnum frá uppkvaðningu dómsins,
haldi ákærði almennt skilorð. Ákærði
hefur þegar afplánað gæsluvarðhalds-
vistina með því að sitja i gæsluvarð-
haldi í 6 mánuði.
Örlygur Hnefill Jónsson, verjandi
Þórðar Braga, segir að frá því að fyrri
dómur var kveðinn upp hafi dómarar
verið að afla ýmissa gagna, m.a. að ósk
Hæstaréttar, og að þau gögn hafi styrkt
framburð skjólstæðings hans. M.a. hafi
legið fyrir gögn frá læknaráði og mats-
skýrsia frá matsmönnum.
„Auðvitað er ég sáttur við þennan
dóm. Þetta mál er mikill flölskyldu-
harmleikur og hefur reynt mikið á
skjólstæðing minn og Qölskyldu hans
sem hefur staðið þétt við bakið á hon-
um. Ég á von á því að málið'fari til
Hæstaréttar en best hefði verið að nið-
urstaðan hefði fengist hér og nú. Þórður
Bragi hefur nú þrisvar hlýtt á dóm í
þessu erfiða máli og það tekur á,“ segir
Örlygur Hnefiil.
Ákæruvaldið hefur 8 vikna frest til
að áfrýja málinu til Hæstaréttar en sá
ákærði 4 vikur. -GG