Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Side 11
11
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001______________________________________________________________________________________________
JOV Útlönd
Falun Gong félaga mlnnst
Ellen Chou, taívanskur félagi Falun Gong, heldur hér ásamt fleiri úr Fatun Gong á minningarspjöldum um trúarbræöur
sína sem kínversk stjórnvöld eru sökuð um aö hafa banaö. Safnaöarmeölimirnir gengu aö þinghúsi Bandaríkjanna til
aö mótmæla meöferð kínverskra yfirvalda á trúfélaginu Falun Gong.
Sólarfilma á glugga
- þegar sólin angrar
Frlösamleg mótmæli
Þrátt fyrir áhyggjur hafa mótmæli aö
mestu veriö friösamleg.
Barlómur í Bonn
Þaö fer ekki mikið fyrir bjartsýni
á loftslagsráðstefnunni í Bonn. Þrátt
fyrir að bjartsýni hafi aukist til
muna þegar Japanir lýstu því yfir
að þeir ætluðu að gera sitt til að
styðja Kyoto-sáttmálann. Eftir það
lýstu Kanadamenn einnig yfir
stuðningi sínum. Bandaríkin hafa
hins vegar hvergi hvikað frá höfnun
sinni á sáttmálanum.
Sú staðreynd vofir eins og skuggi
yfir ráðstefnunni þar sem 185 ríki
reyna að leysa þau deilumál sem
enn koma í veg fyrir endanlegan
texta fyrir rikin að samþykkja.
Stærsta deilumálið er talið vera
hversu stóru hlutverki gróður á að
gegna sem frádráttur frá útblæstri
gróðurhúsalofttegunda. Nokkur
lönd þar sem stærstu löndin eru
Japan, Rússland, Kanada og Ástral-
ía, hafa farið fram á að fá verulega
frádrætti út á skóga og gróðurfar.
Sérstaklega Kanada og Rússland
sem saman ráða yfir 70% landmassa
og 70% gróðurs þessara landa.
Mikið er sagt bera þeirra í milli
sem vilja nota gróður til frádráttar
og þeirra sem vilja fara varlega í
þeim málum, undir forystu Evrópu-
sambandsins. Ráðstefnugestir telja
flestir að ekki náist saman í þessari
lotu.
Zhirinovsky af
gyðingaættum
Rússneski öfgamaðurinn Vla-
dimir Zhirinovsky viðurkennir í
nýútgefinni bók að faðir hans hafi
verið gyðingur af pólskum ættum.
Zhirinovsky hefur í gegnum tíðina
neitað að viðurkenna ættemi föður
síns og lítið viljað ræða það. Hann
hefur einnig veriö þekktur fyrir að
viðra hatur sitt á gyðingum og m.a.
kennt þeim um fall Rússlands og að
stunda sölu á heilbrigðum börnum,
líffærum og kvenfólki til vændis.
Zhirinovsky vill þó enn meina að
hann sé hreinræktaður Rússi. Einn
lítill blóðdropi úr föður hans dugi
ekki'til að afneita hinni raunveru-
legu arfleifð sinni.
Gott gengi flokks Zhirinovskys í
kosningum árið 1993 olli brottflutn-
ingi þúsunda rússneskra gyöinga.
Gyðingahatur er á undanhaldi í
Rússlandi.
Miami:
Dráp lögreglu
rannsökuð
Lögreglan í Miamiborg í Banda-
ríkjunum er undir rannsókn fyrir
skotgleði sína sem bitnar á minni-
hlutahópum. Lögregluforinginn í
Miami rak í síðustu viku lögreglu-
þjón fyrir að hafa reynt að fela dráp
lögreglunnar á heimilislausum
manni fyrir fjórum árum. Lögreglan
taldi hann hafa byssu en rannsókn
leiddi í ljós að byssan reyndist vera
ferðaútvarp. Engu að síður fannst
byssa á vettvangi, sem lögreglumað-
urinn hafði komið fyrir. Einnig er í
rannsókn dráp á manni í hjólastól,
sem lögreglan skaut fjórum sinnum
i bakið. Miami á sér sögu kynþátta-
óeirða. Áriö 1980 létust 17 í uppþoti
svartra gegn lögregluofbeldi.
Vladimlr Zhirinovsky
Hefur í gegnum árin talaö fjálglega
um óbeit sína á gyöingum.
Benyamin Ben-Eliezer, vamar-
málaráðherra ísraels, sagði í gær að
ísrael gæti þolað að bandarískum
eftirlitsmönnum yrði komið fyrir í
landinu til að fylgjast með framtíð-
arvopnahléi Palestínumanna og
gyðinga. Þetta stingur í stúf við
fyrri stefnu ríkisstjórnar Israels.
Utanríkisráðherrar 7 helstu iðn-
ríkja heims ásamt Rússlandi hvöttu
deiluaðila fyrir botni Miðjarðarhafs
til að samþykkja að þriðji aðili fengi
að fylgjast með framgangi vopna-
hlésins. Palestínumenn hafa beðið
um alþjóðlega eftirlitsmenn á svæð-
ið til að vernda þá gegn ísraelsher.
Bandaríkin hvöttu ísraelsmenn í
gær eindregiö til þess að draga aft-
ur hersveitir sínar sem þeir hafa
sent inn á Vesturbakkann siðustu
daga. ísraelsmenn segjast hafa fjölg-
að í herliðinu til þess að vara Yass-
er Arafat, leiðtoga Palestinumanna,
við því að stöðva ekki árásir palest-
inskra uppreisnarmanna. Banda-
Fornarlomb landnema
Tveir menn og 3 mánaöa barn voru skotin til bana af ísraelskum landnem-
um. Fórnarlömbin voru í bíl á leiö úr brúðkaupi. 5 aörir í bílnum særöust og
var hann aö þeirra sögn fullur af blóöi og byssukútum.
ríkjamenn hvöttu einnig Palestínu-
menn til að láta af árásum sínum.
Ofbeldið hefur stigmagnast á svæö-
inu síðan tvítugur Palestínumaður
gerði sjálfsmorðsárás á lestarstöð í
miðhluta Israels með þeim afleið-
ingum að tveir hermenn létust.
ísraelskir landnemar skutu á
palestínska fjölskyldu á leið úr
brúðkaupi í gær. Þrír úr fjöl-
skyldunni féllu, þar á meðal þriggja
mánaða barn. Barnið er yngsta
fórnarlamb 10 mánaða ofbeldistíma
í Palestínu. Fimm aðrir særðust í
bílnum, sem sagður var fullur af
blóði og byssukúlum eftir árásina.
Landnemarnir eru í samtökum sem
kalla sig „Vegaöryggishópinn" og
berjast fyrir auknu öryggi fyrir gyð-
ingalandnema á vegunum. Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels,
fordæmdi árásina í gær.
Talið er að útfor fórnarlambanna
í dag muni æsa upp hefndarþorsta
meðal Palestínumanna.
Vitnisburdur laföi
Archer rannsakaður
Helgi Snorrason
s: 863 5757 helgisn@binet.is
J
Jeffrey Archer lávarður, meðlimur
bresku lávarðardeildarinnar og rit-
höfundur, hóf fjögurra ára fangelsis-
vist sína í gær í háöryggisfangelsinu
Belmarsh, oft kallað „Hellmarsh“.
Það er kaldhæðni að fangelsið er að-
eins nokkra kílómetra frá þakíbúð
Archers við ána Thames. Archer
verður fluttur í lágöryggisgæslu eftir
nokkrar vikur.
Hann var dæmdur í gær fyrir að
bera ljúgvitni og reyna að hindra
framgang réttvísinnar í skaðabóta-
máli Archers gegn dagblaðinu Daily
Star árið 1987. Skaðabótamálið var
höfðað þar sem dagblaðið birti grein
um að Archer hefði sofið hjá vændis-
konu. Lögfræðingar Archers segjast
ætla að áfrýja málinu.
Nú er veriö að rannsaka vitnisburð
eiginkonu Archers sem hún gaf í rétt-
Jeffrey Archer
Fangelsiö aöeins nokkra kílómetra
frá þakibúðinni.
arhöldunum. Talsmaður lögreglu
sagði að málið yrði skoðað en ekkert
hefði verið ákveðið í því sambandi.
Daily Star hefur hafið nýtt mál þar
sem ætlunin er að ná aftur þeim
500.000 pundum sem Archer fékk í
skaðabætur í upphaflega málinu. Sú
upphæð að viðbættum vöxtum er nú
komin upp í 2.2 milljónir punda.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
NY NAM
rÁwww.ttsi.is
T’W
TÖLVUTÆKNISKÓLI
ÍSLANDS
Gætu þolaö erlenda
eftirlitsmenn í ísrael