Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Side 13
13
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001
DV
Dýrðleg veisla í Hrísey
Á morgun kl. 15. veröur opnuð myndlistar-
sýning í Hlein, Ráðhúsi Hriseyjar. Jafnhliða
sýningaropnuninni hefst sýning á gjörningnum
Dýrðleg veisla. Það er myndlistarkonan Sigrið-
ur Erla Guðmundsdóttir sem hefur veg og
vanda af veislunni en sex manns hefur hún sér
til aðstoðar.
„Hugmyndin að dýrðlegu veislunum á upp-
haf sitt í keramiknámi mínu. Námið gengur að
hluta til út á gerð nytjahluta en mig langaði að
tengja þá hluti inn í myndlistarsýningu og nota
hönnun mína á borðbúnaði í gjörning."
Fyrstu veisluna hélt Sigríður Erla í Listhúsi
39 í Hafnarfirði fyrir sjö árum.
„Sú veisla var svo skemmtileg þar sem eng-
in alvara var að baki henni - ja, nema sú al-
vara að hafa gaman af öllu saman,“ segir Sig-
ríður Erla og hýrnar yflr henni við minning-
una. Fljótlega segist hún hafa farið að íhuga
veisluhugtakið og ákveðið að skemmtilegast
væri að fara á stað þar sem hún þekkti engan
og bjóða þar til veislu. Áður hafi því verið
þannig farið að fólk sótti í gestrisnina á lands-
byggðinni en hún hafi viljað snúa þessu alveg
við.
„Ég set mig í samband við menningarfull-
trúa staðarins þar sem ég býð til veislunnar og
hann sér um að velja til hennar fólk. Helst vil
ég ekki þekkja það fólk neitt því ég er líka að
vinna með það traust sem það sýnir mér, blá-
ókunnugri manneskjunni, með þvi að þiggja af
mér mat.“
Sigríður Erla býður upp á sjö máltíðir og
matseðillinn er tileinkaður sjö löndum.
„Kona og karl setjast til borðs og hafa tutt-
ugu mínútur til þess að njóta dýrindismatar og
drykkjar. Þegar þau hafa lokið við að borða er
skipt um dúk og borðbúnað, annað par sest að
borðinu og fær einnig tuttugu minútur og svo
koll af kolli.“
Borðbúnaðurinn er allur unninn úr jarðleir
og hinar sjö máltíðir eiga uppruna sinn í
Grikklandi, Japan, Mexíkó, Ungverjalandi, á
Ítalíu, Indlandi og íslandi. Tónlist frá þessum
löndum verður leikin undir borðum eftir því
sem þykir hæfa. Einnig verður dúkað þrettán
manna borð sem Sigríður Erla kýs að nefna
Upprisið og þar geta allir fengið að bragða á
hnossgætinu.
Listamennirnir sem sýna verk sín í Hlein
eru, auk Sigríðar Erlu, þær Ingiríöur Óðins-
dóttir, Jóna Thors og Kristin ísleifsdóttir. Verk
þeirra eru unnin í leir, textíl og grafik. Sýning-
in, sem ber heitið Meira til, stendur til 15.
ágúst og verður opin á sama tíma og hrepps-
skrifstofurnar.
(Ó)þægileg tónlist,
smurt brauð og tedans
Meistari Jakob, veitinga-
maður Jómfrúarinnar við
Lækjargötu, á heiður skilinn
fyrir skemmtilega fiölbreytni í
rekstri veitingarstaðar síns.
Hér á ég ekki einungis við
danskan matseðO með smjör-
brauði á la Idu Davidsen eða
hökkuðu buffi á föstudögum (!)
heldur lika endurvakningu lif-
andi tónlistar á laugardagseft-
irmiðdögum sem lognaðist út
af hérlendis með síðustu
tedönsunum á KEA og
„rekstrasjónum" i Tjarnar-
kaffi. Þá dönsuðu gestir - oft
við svingslaufur Eydalbræðra
og/eða kurteislega tóna KK-
sextettsins með Gunnar Reyni
Sveinsson í hlutverki sveiílu-
meistarans.
Nú býður Jómfrúin upp á
léttan djass á laugardagseftir-
miðdögum, lifandi tónlist sem
er vandlega valin af veitinga-
manninum í samráði við Sig-
urð Flosason djassleikara. _
Þessir eftirmiðdagar Jómfrú-
arinnar hafa yfirleitt verið vel heppnaðir enda
er troðfullt hús hvern einasta laugardag á
sumrin. Þar hefur leikið og sungið okkar
ágætasta djassfólk við góðar undirtektir áheyr-
enda. Ekki síst þegar veður hefur gert tónlist-
armönnunum kleift að leika utandyra. Það eina
sem sem skyggir á annars ágætan tónlistar-
flutning er að Jómfrúin hefur ekki komið sér
upp píanói enn þá. Þar af leiðandi verða pí-
anistar og áheyrendur að sætta sig við rafpí-
anó/orgel, sem hljóma oft á tíðum vægast sagt
alveg hræðilega.
Dansað af lyst
Laugardaginn 7. júni sl. lék trió píanóleikar-
ans Árna Heiöars fyrir gesti Jómfrúarinnar
innandyra. Með Árna léku þeir Tómas R. Ein-
arsson, bs, og Matthías M. D. Hemstock, trm.
Kvartett Hauks Gröndal á Jómfrúnni
Það er oft á tíöum erfitt aö leika utandyra eins og flestir reyndir lúörasveitamenn
þekkja. Haukur var stundum eilítið falskur á efri nótunum og Thoroddsen og Kvar-
an áttu í baráttu viö sumargoluna sem m.a. flutti tóna þeirra í samflot viö rokk-
hljómsveit sem var aö leika í námunda viö Lækjartorg.
Þeir léku þægilega tónlist sem féll áheyrendum
augljóslega vel í geð. Að minnsta kosti gátu
tveir þeirra ekki stillt sig þegar hljómsveitin
lék „Girl from Ipanema" með miklum tilþrifum
og dönsuðu af mikilli lyst inn á milli matar-
borðanna sjálfum sér og öðrum til mikillar
ánægju. Það var ekki laust við að þeir eldri
meðal áheyrenda könnuðust við stemninguna
frá fyrri tíð á KEA/Tjarnarkaffi.
Tríóið sem slíkt bar ótvíræð merki byrjun-
arörðugleika. Ámi Heiðar hefur búiö í London
síðastliðinn vetur og stundað þar nám i klass-
ískum píanóleik. Hann hefur því ekki náð
„djassgripunum" enn þá en þau verða fljót aö
koma. Ég veit að Árni er ágætur djasspíanó-
leikari en það var gjörsamlega ómögulegt að
gera sér grein fyrir hve góður hann er við
hlustun á rafpíanóleik hans. Þægileg tónlist
þeirra félaga varð meira og minna
óþægileg fyrir þá sem vildu hlýða
á hana af einhverri alvöru.
í baráttu viö sumargoluna
Á laugardaginn var lék kvartett
Hauks Gröndals utandyra. Kvar-
tettinn lék á Jómfrúartorginu við
góðar undirtektir fjölmargra
áheyrenda sem nutu veðurblíð-
unnar og leiks þeirra Björns
Thoroddsen, gtr., Gunnars Kvaran
Hrafnssonar, bs., Matthiasar M.D.
Hemstock, trm., og Hauks Grön-
dals, altosax. og klar.
Það er oft á tíðum erfitt að leika
utandyra eins og flestir reyndir
lúðrasveitamenn þekkja. Hér var
engin undantekning. Haukur var
stundum eilítið falskur á efri nót-
unum og Thoroddsen og Kvaran
dv-mynd: einar orn áttuí baráttu við sumargoluna sem
m.a. flutti tóna þeirra í samflot við
rokkhljómsveit sem var að leika í
námunda við Lækjartorg.
Þrátt fyrir þetta var kvartettinn
einstaklega áheyrilegur. Þeir
Bjöm og Haukur náðu vel saman
og léku skemmtilega sveiflutónlist sem naut
sín ekki síst þegar Haukur lék á klarínettið.
Hér er kominn kvartett sem á eftir að skemmta
landsmönnum vel og rækilega ef strákarnir fá
fleiri tækifæri til að leika saman.
Að minnsta kosti fannst „fastagestunum“
þess virði að bregða undir sig betri fætinum
þegar kvartettinn lék „Girl from Ipanema"
samkvæmt sérstökum óskum viðstaddra dans-
ara!
Ólafur Stephensen
Pjé-ess:
Þar sem Múlinn er ekki starfræktur á sumr-
in væri ekki upplagt að fá flygil „Heita potts-
ins“ lánaðan yfir á Jómfrúna á meðan Múlinn
er í sumarfríi?
_______________________Menrnng
Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Undrabarn í
Hallgrímskirkju
Um helgina heldur
Felix Hell, fimmtán ára
gamall þýskur orgelleik-
ari, tónleika í Hallgríms-
kirkju. Felix Hell leikur
á hádegistónleikum í
kirkjunni á morgun kl.
12.-12.30 og á kvöldtón-
leikum daginn eftir kl.
20. Meðal verka sem
hann flytur eru orgelverk eftir Johann
Sebastian Bach.
Organistarnir sem koma fram í tónleika-
röðinni Sumarkvöld við orgelið i sumar
eiga það sameiginlegt að vera ungir og efni-
legir og á Hell meira erindi i þann hóp en
flestir aðrir. Frá tólf ára aldri hefur hann
haldið tónleika vítt og breitt um heiminn
og hvarvetna vakið aðdáun.
Felix Hell fæddist í Þýskalandi árið 1985.
Hann lék við fyrstu kirkjuathöfn sina á
páskadag árið 1994. Sem barn hlaut hann
mörg verðlaun í Þýskalandi bæði fyrir org-
elleik og píanóleik, en hann hefur notið
kennslu margra virtra organista víða í Evr-
ópu.
Felix Hell hefur nú þegar leikið inn á
nokkra geisladiska og hann er aðstoðar-
organisti við Saint Peter’s Lutheran
Church í New York. Tónlist er ekki eina
áhugamál hans þvi linuskautar og mótor-
hjól eru líka hátt skrifuð.
Hagyrðingar styrkja
Þjóðlagasetrið
Annað kvöld verður
hagyrðingamót í íþrótta-
húsinu á Siglufirði. Þar
mætast fjórir lands-
þekktir hagyrðingar:
Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, séra Hjálmar
Jónsson dómkirkjuprest-
ur, Ósk Þorkelsdóttir, út-
gerðarmaður á Húsavík,
og Þórarinn Eldjárn rithöfundur. Að lok-
inni rimmu þeirra verður stiginn dans við
undirleik siglfirsku hljómsveitarinnar
Storma.
Hagyrðingakvöldið er haldið til styrktar
uppbyggingu Þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þor-
steinssonar á Siglufirði. Eins og kunnugt er
þá festi Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna
Þorsteinssonar kaup á Maðdömuhúsinu
svokallaða, elsta húsi Siglufjarðar, en því
er ætlað að hýsa þjóðlagasetrið. Sr. Bjami
bjó i Maðdömuhúsinu á meðan hann vann
að þjóðlagasöfnun sinni í lok 19. aldar og
þar urðu Hátíðarsöngvarnir til sem sungn-
ir eru í kirkjum landsins á stórhátíðum
kirkjunnar. Ætlunin er að hefja endurbæt-
ur á Maðdömuhúsinu og koma því í upp-
haflegt horf.
Hagyrðingakvöldið hefst kl. 21. og dans-
leikurinn um kl. 23.30.
Tónleikar utan dyra
Á áttundu tónleikum sumartónleikarað-
ar veitingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu, laugardaginn 21. júlí, kemur
fram Jazzkvartettinn Major. Kvartettinn
skipa Snorri Sigurðarson trompetleikari,
Ásgeir J. Ásgeirsson gítarleikari, Valdimar
K. Sigurjónsson kontrabassaleikari og Ein-
ar Scheving trommuleikari. Tónleikarnir
hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Tónleik-
arnir fara fram utandyra á Jómfrúartorg-
inu ef veður leyfir, en annars inni á Jóm-
frúnni. Aðgangur er ókeypis.
Rósa á Hlemmi
Á morgun kl. 16 opnar ■
Guðný Rósa Ingimarsdóttir I
sýningu á I
galleri@hlemmur.is. Þetta I
er hennar sjötta I
einkasýning. Sýningin ber I
yfirskriftina Tognuð tunga I
en þar ferðast listakonan á |
milli nokkurra augnablika |
með aðstoð verka frá þessu ■
og síðasta ári.
„Eftir bruna hverrar skepnu var innvolsió
eins og öfugsnúió. Viö eyddum nokkrum vikum
d röngunni. Svo kom aó því aö einhver sagöi
eitthvaó sem fletti okkur inn aftur. Veggur
skyldi byggöur til varnar svo ekki yróu á
okkur varanlegar skemmdir."
Guðný Rósa útskrifaðist frá MHÍ 1994 og
hélt þá til náms i Brussel þar sem hún hefur
verið búsett síðan. Hún hefur verið virk í
sýningahaldi þar ytra og hlotið
viðurkenningar fyrir störf sín þar og hér
heima.
Galleri@hlemmur.is er opið frá fimmtudegi
til sunnudags, kl. 14-18. Sýningunni lýkur 12.
ágúst. Engin boðskort hafa verið send út en
allir eru hjartanlega velkomnir.