Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Blaðsíða 15
14
FÖSTUDAGUR 20. JÚLl 2001
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Bjöm Kárason
Aóstoðarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fróttastjóri: Birgir Guómundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð: ísafoidarprensmiðja hf. Prentun: Án/akur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk„ Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Mál Áma Johnsens
Vika í lífi stjómmálamanns er langur tími. Þetta hefur
oftsinnis veriö sagt við margvísleg tilefni. Og víst er það
rétt að sjö dagar geta miklu breytt í lífi manna. Rétt vika
er í dag frá því DV reið á vaðið í fréttaflutningi af fjár-
málaumsýslu Ama Johnsens alþingismanns. Sú vika hef-
ur verið viðburðarík í meira lagi en um leið átakanleg og
sorgleg í vissum skilningi. Og víst er að maðurinn sem
leikið hefur dramatískt aðalhlutverk í flóknu leikverkinu
hefur ekki átt sjö dagana sæla.
Mál Árna hefur tekið margar stefnur frá því á föstudag.
Fólk hefur verið upplýst um umdeild kaup hans á bygg-
ingarefni í BYKO, afpantanir á þakrennum frá Vírneti,
skröksögur um steinakaup hjá BM-Vallá og aðrar skrök-
sögur um tjarnardúk úr Garðheimum. Þar við bætast
fréttir um samstarf alþingismannsins og verktakafyrir-
tækisins ístaks sem virðist hafa fengið fjölda verkefna
með fulltingi Árna, án útboðs. Loks bendir smiður ístaks
á viðhaldsvinnu sína á heimili Árna, án reikninga.
Allt er þetta mál með þeim hætti að menn setur hljóða.
Ámi Johnsen hefur verið vinsæll og áberandi maður í ís-
lensku þjóðlífi um áratugaskeið. Dugnaði hans hefur ver-
ið við brugðið. Taumlaus gleði hans hefur glatt marga og
víst er leitun að mönnum sem siglt hafa víðar eftir fróð-
legum sögum af fólki í forvitnilegum menningarkimum.
Það hefur gustað um Árna á Alþingi og þar hefur hann
vissulega farið óvenjulegar leiðir eins og honum er lagið.
Þeim mun leiðara og stærra er fallið.
Öll umsýsla Áma með fjármuni rikis og Vestmanna-
eyjabæjar er komin undir smásjá. Umhugsunarvert er
hvort Ríkisendurskoðun hefur nægan mannafla til þess að
sinna þessu æma verkefni, sem í reynd er sakamál.
Lögregla ætti að skerast í leikinn. Mest er þó um vert að
kerfið hefur tekið við sér. Rannsóknin mun leiða margt í
ljós. Hún mun án efa leiða til ákæm og efalítið til dóms,
líklega skilorðsbundins, sem þó er ekki víst.
Alþingismaður hefur aldrei lent í öðru eins.
Mál Áma Johnsens er hins vegar langtum stærra en
svo að það snúist einvörðungu um undarlega umsýslu
hans sjálfs. Málið í heild sinni varpar skugga á íslenska
stjómsýslu og allt kerfi embættismanna hér á landi. Það
sýnir að íslensk stjórnsýsla er lin og veik. Málið speglar
margvíslegar glufur i kerfinu og enn fremur að alls konar
menn, alþingismenn sem aðrir, geta leikið lausum hala í
ráðum og nefndum á kostnað ríkisins án þess að ráðherr-
ar, ráðuneytisstjórar og deildarstjórar æmti.
Mál Áma Johnsens snertir vitaskuld íslenska þing-
mennsku og siðferðisþrek þeirra manna sem veljast til
starfa fyrir þjóðina og gegna mikilvægum trúnaðarstörf-
um fyrir hana. Það sýnir enn og aftur hvað trúnaðarmenn
þjóðarinnar eiga erfitt með að átta sig á ábyrgð sinni. í
Bretlandi og víða á meginlandi Evrópu segja alþingis-
menn af sér af minnsta tilefni og vilja aldrei njóta vafans
en á íslandi sitja menn ekki bara á meðan stóllinn vaggar
heldur líka eftir að hann hefur verið margbrotinn.
Þetta sögulega mál snýst um traust. Samband kjósenda
og þingmanns snýst aðeins um traust, eins og Davíð Odds-
son hefur réttilega bent á. Alþingismenn eru ekki opinber-
ir starfsmenn. Þá er ekki hægt að reka eins og hverja aðra
kerfiskarla. Til þeirra eru gerðar langtum meiri kröfur en
svo að þær verði jafnaðar við ábyrgð annarra starfa. Árni
Johnsen hefur nú loks tekið ábyrgð á gerðum sínum.
Hann gerði það tilneyddur af vinnusömum fjölmiðlum og
heiðvirðu fólki sem fannst nóg komið.
Sigmundur Ernir
Skoðun
I>V
Verðbólga og vextir
Einar Már Sigurðarson,
þingmaður Austurlands.
Hluti af grunn-
þjónustu
„Flugið er ekki annað en hluti
af kerfl almenningssamgangna í
landinu og í mjög víða um heim-
inn er flugið talið vera hluti af þessari grunnþjón-
ustu. Flug hér er á margan hátt sambærilegt járn-
brautakerfi annarra þjóða. Nauðsynlegt er hins
vegar að koma á heildarskipulagi almenningssam-
gangna, þar sem hlutverk ríkisins yrði skilgreint.
Ég sé þá fyrir mér að öll sú þjónusta sem telja má
hluta af nefndum samgöngum sitji við sama borð.
Þar nefni ég að flug til Eyja hefur verið í sam-
keppni við ríkisstyrktan Herjólf og rekstur sérleyf-
isbíla víða um landið fær stuðning úr opinberum
sjóðum - rétt eins og flug á nokkrum leiðum.“
í hvert sinn er verðbreyt-
ingar verða að einhverju
ráði er varpað fram þeirri
spurningu hversu mikil
áhrif sú breyting hafi á
skuldir einstaklinga. Ein-
hverra hluta vegna er minna
hugsað um skuldir fyrir-
tækja, ríkis og sveitarfélaga
í þessu sambandi. Viðbrögð-
in eru í sjálfu sér eðlileg þar
sem aukning skulda vegna
hækkunar lánskjaravísitölu
brennur á þorra þjóðarinn-
ar. Nú er talið að einstaklingar skuldi
nokkuð á sjötta hundrað milljarða
króna í verðtryggðum lánum og að
alls séu skuldir þeirra á sjöunda
hundrað milljaröa króna.
Lítill skilningur
Sett í það samhengi sem almenning-
ur skilur eða getur séð fyrir sér - er
hér um að ræða jafngildi tveggja
Kárahnjúkavirkjana ásamt öllum
þeim göngum, skurðum, uppistöðu-
lónum og línum sem þeirri virkjun
fylgja ásamt tvöföldum áformum
Reyðaráls um ver í Reyðarfírði. Það
auðveldar skilning á háum tölum að
sjá fyrir sér það sem fólk þekkir, frek-
ar en að einblína á tölur því
oft er lítill skilningur lagður
í fjárhæðir og skiptir þá ekki
miklu hvort núllinu er einu
fleira eða færra.
Annað sem hækkandi
verðlag hefur í fór með sér
(verðbólguskot) eru hærri
vextir. Bæta mætti orðinu
„voða“ við skotið því vissu-
lega yrði hinn rómaði stöð-
ugleiki fyrir voðaskoti yrði
raunin sú að kaupliðum
samninga á almennum
vinnumarkaði yrði sagt upp vegna
hækkunar verðlags umfram forsendur
þeirra. Ofan á veðtryggða vexti bætast
verðbætur sem miðast við breytingar
lánskjaravísitölu.
í verðbólgu sem er fimm af
hundraði reynast nafnvextir lána sem
bera 12% vexti þvi liðlega sautján af
hundraði. Þegar verðlag hækkar um
1,5% á milli mánaða eins og nýleg
dæmi sýna, þótt nú hafi nokkuð dreg-
ið úr hraða hækkana, reynist verð-
bólga nítján og hálfur af hundraði.
Nafnvextir við slíkar aðstæður eru þá
orðnir tæplega þrjátíu og fjórir af
hundraði. Hlýtur nú ýmsum að
bregða í brún en þeirri árshækkun
Kristjón Kolbeins
viöskiptafræOingur
Að trúa lyginni
Stefán Jónsson, sá ágæti fréttamað-
ur, komst einu sinni svo að orði, að
mig minnir á útiskemmtun í Atlavík,
að sá væri munur á Austfirðingum og
öðrum landsmönnum að Austfirðing-
ar þyrftu alltaf að láta segja sér lygina
þrisvar til að trúa henni meðan hin-
um nægði að heyra hana einu sinni.
Þessi orð hafa komið upp í huga
minn öðru hvoru núna að undanfórnu
í sambandi við umræðuna um fyrir-
hugaða Kárahnjúkavirkjun og álver á
Reyðarfirði. Nú hefur Landsvirkjun
lagt fram skýrslu um mat á umhverf-
isáhrifum fyrirhugaðrar virkjunar og
kynnt hana almenningi. Það er sann-
arlega svört skýrsla, svo ekki sé sterk-
ar að orði kveðið. Það er smám sam-
an að koma betur í ljós, eftir því sem
fleiri hliðar málsins eru skoðaðar.
Áhrif á atvinnusköpun
stórlega ýkt
í lokaorðum matsskýrslu Lands-
virkjunar segir: „að umhverfisáhrif
virkjunarinnar séu innan viðunandi
marka í ljósi þess efnahagslega ávinn-
ings sem sölu orkunnar fylgir,"
Hér eru settar fram fullyrðingar
sem hafa verið hraktar rækilega af
ýmsum, m.a. Þorsteini Siglaugssyni
rekstrarhagfræðingi sem sýnt hefur
fram á með sterkum rökum að slík
virkjun kemur aldrei til með að skila
arðsemi. Og víst er að áhrif álvers á
atvinnusköpun á Austfjörðum eru
stórlega ýkt. En vel á minnst, meng-
unin frá álverinu er víst líka „innan
viömiöunarmarka", eins og segir í
matsskýrslunni um álverið, sem
Reyðarál hefur lagt fram.
En nú vil ég spyrja, hvað telur
Landsvirkjun viðunandi mörk þegar
um umhverfisáhrif er að
ræða? Hvernig eru þessi
mörk skilgreind og hver hef-
ur sett þau, e.t.v. Lands-
virkjun sjálf að einhverju
leyti? Er ekki líklegt að um-
hverfisröskun verði alltaf
innan viðmiðunarmarka að
dómi Landsvirkjunar,
hversu alvarleg sem hún
kann að verða?
Áhrif virkjunarinnar á
Löginn og Lagarfljót munu
verða margvísleg og hafa
ófyrirséðar afleiðingar. Við-
urkennt er í matsskýrslunni
að meðalrennsli Lagarfljóts muni tvö-
faldast, a.m.k. neðan til, og vatns-
borðshækkun nema tugum sentí-
metra, sem gæti gætt allt að 500 m út
fyrir fljótsbakkana, þar sem lægst er.
Svifaur í Fljótinu mun margfaldast og
gegnsæi minnka, hitastig vatnsins
mun lækka um 0,5-1 gráðu á sumrin
og lífsskilyrði versna að mun. Litur
Fljótsins mun breytast, í stað hins
sérstaka gulgráa litar verður það
dökkt eða brúnleitt.
Þögn sama og samþykkí?
Kannski finnst einhverjun þetta
ekki stórvægileg atriði. Að mínum
dómi verða þetta þó einhver verstu
umhverfisspjöllin sem virkjunin mun
hafa í för með sér. - Virkjunarmenn
segja: Við leysum þetta, við reddum
öllu. Við dýpkum farveginn utan við
brú og sprengjum klapparhaft við
Lagarfoss. Þá verður vatnshæðin eðli-
leg. Við greiðum þeim bætur sem
missa tún undir vatn. Við getum leyst
allt með peningum, og af þeim er nóg
hjá Landsvirkjun.
Ekki dreg ég í efa að
Landsvirkjun ráði yfir tækj-
um, sem dýpkað geta farveg
Lagarfljóts, en spurningin er
aðeins hvernig Fljótiö muni
líta út eftir öll hervirkin.
Verður það sama Lagárfljót-
ið sem við þekkjum í dag?
Stendur íbúum Fljótsdals-
héraðs á sama hvernig þessi
mál þróast? Komið hefur
fram að aðeins helmingur
íbúa Héraðs styöur virkjun,
hvað með hinn helminginn?
Hvers vegna heyrist ekki
meira frá þeim sem ekki er
sama? Skoðast ekki þögn sama og
samþykki?
í Fljótsdal eru nú hafnar brúar- og
vegaframkvæmdir fyrir um 600 millj-
ónir króna, að því er okkur er tjáð.
Það er góð viðbót við það sem áður
hefur verið lagt í kostnað vegna und-
irbúnings og rannsókna við Kára-
hnjúkavirkjun. Greinilegt er að hér
er róinn pólitískur lifróður. Ríkis-
stjórnin með Halldór Ásgrímsson í
broddi fylkingar hefur ákveðið að
hefja framkvæmdir áður en endanleg
ákvörðun hefur verið tekin um hvort
af virkjun verður eða hvort hún
verður hagkvæm. Svo mikið liggur
við. Eða er þetta dúsa, sem stinga á
upp í mína gömlu sveitunga í Fljóts-
dalnum. Þeir fá þó alla vega veginn
og brýrnar, ef ekkert verður af virkj-
un, og get ég út af fyrir sig samglaðst
þeim með það. En finnst einhverjum
þetta eðlileg vinnubrögð, eða ætla
menn bara að láta sig hafa það að
trúa lyginni af því að búið er að
hamra svo oft á henni?!
Sr. Ólafur Þ. Hallgrímsson
Sr. Olafur Þ.
Hallgrimsson
prestur é Mælifeili
A Flugfélag íslands hefur ákveðið að hætta flugi til Eyja og Hornafjarðar vegna taprekstrar.
Ema Hauksdóttir,
Samtakum ferðaþjónustunnar
Skökk sam-
keppnisstaða
„Ég ætla ekki að svara því
hér og nú en það hlýtur að vera
til umhugsunar að einkafyrir-
tækjum sé gert að keppa við fyrirtæki sem njóta
ríkisstyrkja.
Þar á ég við ferjur, til dæmis Herjólf. Hér hjá
Samtökum ferðaþjónustunnar hefur ekkert ver-
ið ályktað um þetta mál en við bendum á að fyr-
irtæki eins og Flugfélag íslands hefur verið að
keppa við ferjufyrirtæki sem hefur notið mikilla
styrkja.
Það skekkir að sjálfsögðu þeirra samkeppnis-
stöðu og þar með rekstrargrundvöllinn."
„Spumingin er aðeins hvemig Fljótið muni líta út eftir öll hervirkin. Verður það
sama Lagarfljótið sem við þekkjum í dag? Stendur íbúum Fljótsdalshéraðs á sama
hvemig þessi mál þróast?“
„Nafnvextir við slikar aðstœður eru þá orðnir tœplega
þrjátíu og fjórir af hundraði. Hlýtur nú ýmsum að
bregða í brún, en þeirri árshœkkun geta vextir náð
miðað við hraðann í einstaka mánuðum.“ - Talið er að
einstaklingar skuldi á sjötta hundrað milljarða króna í
verðtryggðum lánum.
geta vextir náð miðað við hraðann í
einstaka mánuðum.
Skýtur skökku við
Sé tekið tillit til hraða verðbreyt-
inga núna reiknast nafnvextir verð-
tryggða lána, miðað við ár, um tutt-
ugu og þrír af hundraði. Vegna þess
að verðbætur leggjast á höfuðstól lána
og greiðsla þeirra dreifist á langt
tímabil verða skuldunautar ekki eins
áþreifanlega varir við þessa háu
skammtímavexti verðtryggðra lána
eins og annars mætti ætla. Á sama
tima og þetta ástand varir eru al-
mennir innlánsvextir óbundins fjár
afar lágir. Nánast því ekki neinir en í
flestum tilvikum á bilinu einn og hálf-
ur til tveir af hundraði. í raun nei-
kvæðir miðað við almennar verðlags-
breytingar. Engu að síður er af þeim
greiddur fjármagnstekjuskattur.
Skýtur nokkuð skökku við að gold-
in skuli tíund af tekjum sem í raun
engar tekjur eru. Rekstur lánastarf-
semi ætti að vera arðvænlegur við
slík skilyrði. Þess ber þó að geta að að-
eins hluti innlána eru með þessum
kjörum því sparifjáreigendum bjóðast
aðrir og betri kostir, vilji þeir binda fé
sitt til lengdar. Þó lætur nærri að allt
að þrír fjórðu innstæðna innlánsstofn-
ana séu bundnir til skemmri tíma en
þriggja mánaða og bera því afar lága
vexti jafnframt því að vextir útlána
reiknaðir til nafnvaxta í bráð nema
tugum af hundraði. - Vekur þessi
vaxtamunur nokkra furðu, m.a. vegna
aukins framboðs lánsfjár til endur-
lána og að lækkandi vextir þeirra
skuli ekki skila sér til endanlegra lán-
takenda.
Kristjón Kolbeins
Hálfdán Kristjánsson,
bœjarstjóri í Hveragerði.
Menn óar við
farmiðaverðinu
„Ég er talsmaður þess að rik-
ið komi að þessum þætti sam-
gangna eins og öðrum, þó ég
geri á þessari stundu mér ekki fullkomlega ljóst
hvaða leikreglur skuli gilda um stuðning við
flugið. Hins vegar hef ég orðið var við að þegar
menn eru að fljúga þá óar þeim við farmiöaverð-
inu sem er orðið allt of hátt þegar það er til
dæmis borið saman við farmiðaverð til annarra
landa. Þegar framan í mann eru rekin dæmi og
það trekk í trekk að ódýrara sé að fljúga til
London en Egilsstaöa þá er er einhvers staðar
pottur brotinn og fara þarf ofan í saumana á
málinu.“
Birkirjón Jónsson,
aöstoðarm. féiagsmálaráðherra
Sanngimis-
krafa
„Já, svo fremi sem það stang-
ist ekki á við alþjóðlega samn-
inga sem íslendingar hafa und-
irgengist. Flugsamgöngur ætti að styrkja rétt
eins og ferjusiglingar eða almenningssamgöng-
ur á höfuðborgarsvæðinu.
Sjálfsagt þykir að veita opinbert fé til þeirra
og hið sama ætti auðvitað að gilda um innan-
landsflugið.
Flugið er mikilvægt stöðum á landsbyggðinni
en stoðir byggðar þar munu veikjast enn frekar
ef flug þangað leggst af. Rökin fyrir stuðningi
við flugsamgöngur eru því einföld og ekki ann-
að en sanngirniskrafa.“
^ ,
Átök í aðsigi
Arabar vilja ekki frið, segir ísra-
elski sendiherrann á íslandi, og fjöl-
miðlar taka þetta athugasemdalaust
gott og gilt. íslenskir fjölmiðlar eru
ekki þeir einu sem draga taum ísra-
els, þeir bandarísku eru þar fremstir,
en sdlt er þetta byggt á úreltum hug-
myndum um Israelsríki. ísrael er ekki
lengur Davíð, sem er að berjast við ar-
abískan Golíat sem vill reyna að út-
„Vitað er að Sharon hefur tilbúnar
áœtlanir um að senda herinn inn á
sjálfstjómarsvœðin, afnema heima-
stjórnina og afvopna 40 þúsund
manna palestínskar öryggissveitir.
Slíkt mundi kosta blóðbað og önnur
arabaríki gætu ekki setið hjá. “
rýma þeim, rétt eins og Hitler fyrrum.
Sú hugmynd sem mótaðist í upphafi,
þegar ísrael var stofnað á vegum Sam-
einuðu þjóðanna sem einhvers konar
sárabætur til þeirra fyrir helfórina í
heimsstyrjöldinni, er lífseig, enda ala
ísraelsmenn stíft á hugmyndinni um
sjálfa sig sem minnimáttar. Því fer nú
fjarri, þvert á móti er ísrael mesta
herveldi Miðausturlanda, og með
þeim öflugustu í heiminum,
og ræður m.a.s. yfir kjarna-
vopnum.
Nær öll sú ólga sem hefur
hijáð Miðausturlönd síðustu
hálfa öld á rætur að rekja til
Israels. Fyrst vegna þess að
ekkert ríki araba viðurkenndi
rétt þeirra til Palestínu, sem
Bretar gáfu þeim i raun
(Jórdanía og Egyptaland við-
urkenna nú ísrael) og síðar
vegna harðneskju þeirra gagn-
vart íbúum hernámssvæð-
anna. Síðustu 34 ár hafa verið
eftirköst sex daga stríðsins
1967. Nágrannarikjunum
stafar meiri hætta af Israel en
ísrael af þeim.
Nýlendustríð
Sigurinn 1967, þegar ísrael
réðst fyrirvaralaust á Sýrland
og Egyptaland til þess að
verða fyrri tU, að því er þeir
sögðu, ásamt landvinningun-
um þá, hefur gjörbreytt Isra-
elsríki. Horfnar eru hugsjónir
síonista um mannúðlegt og
menningarlegt samfélag gyð-
inga. Þess í stað er stöðugt
meira áberandi herraþjóðar-
hugarfar og apartheid. Þau
Gunnar
Eyþórsson
blaOamaOur
gUdi sem að var stefnt með
stofnun ísraels hafa vikið
fyrir landgræðgi og árásar-
gimi í krafti hernaðar-
máttar. Landránið hefur
breytt hugsunarhætti ísra-
elsmanna. Gyðingar eru
nú „das Herrenvolk", ar-
abarnir „Untermenschen".
Þetta er ekki sagt beint,
en sumir ísraelsmenn af
gamla skólanum hafa bent
á þessa staöreynd í bókum
og blaðagreinum. ísraels-
menn hamra á því að aUir
séu hryðjuverkamenn, sem ekki sætta
sig möglunarlaust við harðneskjulegt
hernám þeirra og þá daglegu auðmýk-
ingu sem það fólk verður að þola sem
á aUt sitt undir herraþjóðinni. Þar
með séu aUir sem mótmæla réttdræp-
ir eins og hver önnur meindýr. Þetta
gengur i Bandaríkjamenn, sem hafa
gert ísrael að þvi hemaðarstórveldi
sem það er og eru sjálfir á því að
hryðjuverk séu mesta ógnunin við al-
mannaheiU síðan Grýla gamla í Sovét
geispaði golunni. Sharon forsætisráð-
herra kaUar Arafat stríðsglæpamann,
blindur á bjálkann í eigin auga. Land-
nemarnir eru í raun að breyta her-
námssvæðinu í ísraelska nýlendu. Sú
var ekki meiningin með stofnun ísra-
elsríkis á ábyrgð SÞ. Enginn fær að
gert, Bandaríkin hafa neitunarvald í
Öryggisráðinu.
Undirrót alls ills
Samkvæmt alþjóðalögum má ekk-
ert ríki hertaka eða innlima land frá
öðru ríki. TU að viðhalda þessu
grundvaUaratriði var farið í stríð við
írak í nafni SÞ út af Kúveit. En Isra-
elsmenn komast upp með að
hunsa alþjóðalög og SÞ. Þeir
hafa innlimað Gólanhæðir
Sýrlands og austurhluta Jerú-
salem frá Jórdaníu, og land-
nám þeirra er ekkert annað en
innlimun á arabísku landi, oft-
ast besta landinu.
Síðan Óslóarsamkomulagið
var gert 1993 hefur landnem-
um fjölgað úr 115 þúsundum í
200 þúsund. Byggðimar 145 á
Vesturbakkanum og Gaza inn-
an um þrjár mUljónir biturra
og örvæntingarfullra araba,
binda hendur ísraelska hersins, sem
lítur á þær sem hluta af ísrael. Það er
ekki tUviljun að sá sem mestan þátt
átti í að efla landnemabyggðirnar var
Ariel Sharon þegar hann var hús-
næðsmálaráðherra. Þetta var liður í
þeirri stefnu hans að innlima her-
námssvæðin og hrekja aUa ibúana
yfir til Jórdaníu. Nú eru þaö her-
námssvæðin sem geta orðið kveikja
að striði. Þau eru undirrót alls Uls.
Vitað er að Sharon hefur tUbúnar
áætlanir um að senda herinn inn á
sjálfstjórnarsvæðin, afnema heima-
stjórnina og afvopna 40 þúsund
manna palestínskar öryggissveitir.
Slíkt mundi kosta blóðbað og önnur
arabaríki gætu ekki setið hjá. Aðeins
er beðið eftir heppUegu tUefni, 30 þús-
und hermenn eru í viðbragðsstöðu.
Afleiðingarnar mundu snerta aUan
heiminn. Bandaríkin bera ábyrgð á
þeim umskiptingi sem ísrael er orðið.
Það er á valdi Bush forseta að stöðva
þá þróun sem er að verða. Ulu heUli
báru Bandaríkjamenn ekki gæfu til að
velja hæfan mann tU forystu.
Gunnar Eyþórsson
- 7
Ummælí
Virðing í húfi
„Þingmenn sem ger-
ast brotlegir í starfi
verða að bera fuUa
ábyrgð á gjörðum sín-
um, siðferðUega, laga-
lega og pólitískt. Rétt og
eðlilegt er að settar
verði siðareglur fyrir þingmenn líkt og
er hjá mörgum starfsstéttum í þjóðfé-
laginu. Meðal annars á þingmönnum
að vera óheimU þátttaka í nefndum
utan þings sem leitt getur til hags-
munaárekstra. Líkt og í mörgum öðr-
um löndum ættu þingmenn að leggja
reglulega fram lista yfir öU störf sín í
nefndum utan þings. Einnig ættu þeir
aö gera grein fyrir Itökum sem þeir
kunna að hafa í atvinnurekstri eða
fjármálastofnunum með hlutabréfa-
eign, stjórnarsetu eða á annan hátt.“
Jóhanna Siguröardóttir alþingismaöur,
á heimasíöu sinni.
Kerfi á brauðfótum
„DeUur undanfarinna ára um fisk-
veiðistjómarkerfið og dómar sem fall-
ið hafa um afmarkaða þætti þess hafa
gert það að verkum að núverandi skip-
an stendur fjarri þvi traustum fótum.
Auðlindanefnd skilaði áliti sínu fyrir
bráðum ári, eftir ítarlega skoðun og
vittnu. Lögboðin nefnd sem endur-
skoða á lögin um stjóm fiskveiða fyrir
lok þessa fiskveiðiárs er að störfum og
er engan veginn ljóst hver niðurstaða
þeirrar nefndar gæti orðiö. Þessi „bið-
tími“ og sá ágreiningur sem augljós-
lega er um það hvert stefna skuli er
hluti af vanda sjávarútvegsins. Þá hef-
ur það sín áhrif að Hafrannsóknar-
stofnun liggur undir mikilli gagnrýni
þar sem sérfræðingar stofnunarinnar
hafa orðið að viðurkenna mistök í út-
reikningum á stærð þorskstofnsins."
SvanfríOur Jónasdóttir aiþingismaOur,
á heimasíöu sinni.
Spurt og svarað
Er rétt að ríkið styrki innantandsflugið?