Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Page 20
24
_______________________________________________FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001
Tilvera I>V
Sumarstemning á
hafnarbakkanum
í nokkur ár hefur það verið ár-
legur viðburður að sett eru upp
aUs konar skemmtitæki á gamla
hafnarbakkanum í Reykjavík. Þó
Tívolí sé sérdansk nafn fyrir einn
frægasta skemmtigarð heimsins
þá köllum við íslendingar þessa
samstemningu Tívolí og krakk-
amir vita nákvæmlega að hverju
þau ganga þegar minnst er á
Tívolí. Það myndast mikil stemn-
ing á hafnarbakkanum á góð-
veðrisdegi og allir eru ánægðir.
Ljósmyndari DV tók þessa mynd
af hressum krökkum sem voru í
einu af mörgum og litskrúðugum
skemmtitækjum á hafnarbakkan-
um.
Sendu okkur myndir af dvrum, -e&a dýrum og börnum
"Lengstu Ijósmyndasýningu landsins", sem haldin veröur í Fjölsk
í sumar. Hægt er áb skila inn myndum til verslana Hans Petersén,”
Fjölskyldu- og húsdýragarösins og Krakkaklúbbs DV. Einnig má skila inn myndum á
tölvutæku formi á slóöinni www.hanspetersen.is.
Skilafrestur er til 25. júlí 2001. Munib að merkja myndirnar meb nafni og heimilisfangi
I myndin þín fer á
lu- og húsdýragarö
30 Kodak einnota myndavélar með framköllun
20 Bolir meb mynd
50 Boðsmiðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
Vertu meb og þú gætir haft heppnina meó þéri
Innsendum myndum verður ekki skilað til baka og áskilja
I aðstandendur Ijósmyndaleiksins sér rétt til þess að nota
myndirnar í auglýsingar á sínum vegum. » #
5FJOLSKYLDU- OC
HÚSDÝRA6ARÐURINN
www.hanspetersen.is
1OO heppnir þátttakendur fá glaðning
Eminem fær
gervivélsög
Vandræðagemlingurinn og næpu-
rapparinn Eminem fær að halda
tónleika i Bretlandi, að því tilskildu
að hann noti gervivélsög á sviðinu.
Bretamir vilja ekki hugsa til þess
að raunveruleg vélsög fljúgi út í
áhorfendaskarann. Eminem fékk
vegabréfsáritun til Ástralíu með
mestu erfíðleikum á dögunum. Árit-
uninni fylgir viðvörun um að hann
skuli bera virðingu fyrir fjölþjóö-
legu samfélagi og gildum þess.
Rapparinn fékk inngöngu í landið
eftir að hann lofaði að hegða sér vel.
Þrýstisamtök fjölskyldufólks i Ástr-
alíu höfðu sett sig á móti komandi
tónleikaferðalagi Eminems í land-
inu.
Fór gandreið á
Ferrari
P. Diddy, áður þekktur sem Puff
Daddy eða Sean Combs, er enn og
aftur kominn í kast við lögin. Ekki
vegna tíðra nafnbreytinga heldur
fyrir háskaakstur. Diddi er sagður
hafa verið stjórnlaus á götum New
York á Ferrari-bifreið félaga síns.
Hann keyrði á ofsahraða og keyrði
næstum niður vegfaranda fyrir
framan nefið á lögreglunni. Skipti
svo engum togum að hann ruddist
upp á gangstétt fyrir framan stripp-
búllu og flúði inn. Þegar lögreglan
fór inn í klúbbinn var hann hvergi
sjáanlegur. Þeir sáu líklega bara
berstrípaðar stúlkur. Lögreglan seg-
ist hafa fundið marijúana í bílnum
sem Diddi fór gandreiðina á. Hann
segist ekki eiga grænmetið sjálfur.
Laura Dern er
ekki einsömul
Leikkonan Laura Dern er kona eigi
einsömul. Kærasta hennar, rokkar-
anum Ben Harper, hefur tekist að
barna hana. Síðast fréttist af Lauru
þegar Billy Bob Thomton yflrgaf hana
fyrir hasarkvendið Angelinu Jolie.
Hún virðist nú vera búin að sleikja
sárin og gott betur. Síðustu 6 mánuði
hefur hún átt í sambandi við umrædd-
an Harper. Þetta er í fyrsta skiptið
sem Laura uppfyllir möguleika sína
sem kona í blóma lífsins. Líklega er
öðrum en henni þar um að kenna. Það
veit hver sem vill að ekkert hefur
sprottið af sambandi Billys Bobs með
Angelinu, ekkert frekar en með
Lauru.