Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Page 18
- Sigtryggur Magnason skrifar hárþvottarýni í Fókus: Ég er með átta þusund taugaenda f hársverðinum Því miður hefur hárþvottarýni aldrei verið stunduð í islenskum fiölmiðlum. Menn þvælast hins vegar á milli leikhúsa, listasafna, kvikmyndahúsa og veitingastaða til að tjá alþjóð hvað þeim finnst um upplifun sína. Ég ætla að breyta út af vananum núna og segja hársögu mina og af einstakri hárþvottarupplifun. Ég held ég hafi í fyrsta sinn far- ið til prófessjónal hárgreiðslu- konu þegar ég var fimmtán ára. Ég er nefnilega úr sveit og var klipptur af frænku minni þangað til. Fannst það fínt og þóttist líka sleppa vel því að næsti ættliður á undan hafði lent í kúaklippum afa mins. Svo flutti ég og frænka mín var víðs fjarri með sín ágætu skæri og enginn laghentur i nán- asta umhverfi þannig að ég þurfti að fara á þartilgerðar stofur og láta faglært fólk snyrta á mér höf- uðleðrið, oft fyrir morð fjár. Eins og gengur þá vildi maður auðvitað spara og mætti því yfir- leitt á stofuna frekar snemma á morgnana með hárið í frjálsu falli til að geta svarað spurningunni ertu með hreint hár? játandi. Ef klippitímarnir drógust fram eftir degi þá hélt maður sig bara frá mæta skapara mínum og lækk- andi tölum á bankareikningi min- um. Konan bleytti hárið og byrj- aði að nudda sjampóinu í af kost- gæfni. Hársvörðurinn tók við- bragð við þessa athygli sem hon- um var loksins sýnd. Og ég per- sónulega - ég var frelsaður. Frels- aður undan oki hárþvottagjalds- ins. Frelsaður undan hársvarð- arfeimni og, það sem meira var: ég hafði fundiö nýja nautn. Og á þriðjudaginn brá ég mér enn einu sinni í klippingu og nú á stofu um miðbik Laugavegarins. Hafði ekki látið skerða hár mitt vikum saman og var orðinn eins og Fritz Wepper þegar hann var upp á sitt besta. Ég beið smástund eftir að komast að en var síðan vísað á skolskálina góðu þar sem ég lagðist aftur og beið frelsunar- innar. Og þvílík unun það er að láta nudda svörðinn. En þegar venjulegu hárþvottsferli var lokið og ég tilbúinn að standa upp og ganga til klippistóls þá hélt stúlk- an áfram. Og hún var með fingur- gómana logandi af einhverri tor- kennilegri orku þegar hún hélt áfram að nudda hársvörðinn. Ég ranghvolfdi augunum til að at- huga hvort ég væri dáinn og Guð fólki með óunnið hár. Svona gekk þetta í mörg ár allt þar til einn daginn var ég svo illa skipulagður að spurningu hárgreiðslukonunn- ar varð ekki svarað með jái held- ur bláköldu neii. Skjálfandi á beinunum gekk ég i átt að skol- skálinni. Ég ímynda mér að frum- gerð skolskálarinnar hafi orðið til þegar starfsmenn Gustavsberg- verksmiðjanna fóru of snemma í kaffi og gleymdu að setja brennsluofninn sem herðir kló- settin á fullan hita. Þess vegna hafi klósettið sem ætlað var á ír- landsmarkað fallið saman og orð- ið vangæft. En hvað með það, ég settist í stólinn við skálina og kon- an setti varlega handklæðið á axl- imar á mér og bað mig halla mér aftur. Ég gerði það, reiðubúinn að væri eitthvað að fokka í hausnum á mér. En nei, ég var enn á hár- greiðslustofunni og mér varð sannleikurinn ljós: ég hlaut að vera með átta þúsund taugaenda í hársverðinum. Og ég ætla aftur á þessa stofu. Ég held að það sé hætt að rukka sérstaklega fyrir hárþvott, í það minnsta reyni ég að telja mér trú um það í seinni tíð. Én jafnvel þótt ég þyrfti að greiða einhverja hundraðkalla fyrir hárþvott einu sinni í mánuði þá léti ég mig hafa það. Sumir reykja pakka eða tvo á dag og borga fyrir það mörg hundruð krónur. Mín nautn er einfaldari, náttúrulegri og skað- laus með öllu. Össur Skarphéðinsson, formaður írski garðálfurinn. Samfylkingarinnar. Lennon söng einu sinni lag sem hétThe Luck of the Irish. Ossur Skarp- héðinsson virðist hafa verið sá eini sem fattaði hvað hann meinti og sneið útlit sitt eftir írska garðálfinum sem á svo margar styttur af sér í fallegum görðum út um allan heim að Stalín, Lenín og allir hinir hefðu blánað af öfund. Planið hjá Össuri virkaði, að minnsta kosti er ekki annað að heyra og sjá á honum sjálfum en að hann sé ánægður með lífið. Enda verður að segjast að formaðurinn og álfurinn eru sláandi líkir - allt frá hökuskegg- inu, bústnum kinnunum og broshrukkunum kringum augun yfir í smæstu smáatriði, eins og hárflókann sem liggur fram á ennið. Svona búralegir, báðir tveir. Nú er bara spuming hvort Ossuri takist að yfirfæra heppnina yfir á Samfylkinguna. Ætli grænir hattar, bollukinnar og hökuskegg verði skyldulúkk hjá þingflokknum í vetur? Enn ein bílamyndin frá Hoiiywood sem sýnir nú og sannar að aldrei er góð vísa of oft kveðin - meðan enn klingir í peningakassanum. Geðveikur bfll, maður! Nú geta bílafríkin hugsað sér'gott til glóðarinnar því kvikmyndahúsin kynna til leiks bíla-spennu' tryllinn “The Fast and the Furious" eða “Hinir fljótu og hinir ljótu“ eins og Ómar Ragnarsson hefði eflaust þýtt það. Myndin byggist lauslega á blaðagrein sem fjallar um götugengi sem ferðast um á japönskum kappaksturþílum seint að næturþeli og veldur ýmsum usla. í aðalhlutverki er massa- búntið Vin Diesel sem er mörgum ferskur í minni eftir að hann lék í hinni ágætu Pitch Black hér um árið. Kappinn leikur Domenic Torett, höfuðpaur götuklíku í borg englanna, Los Angeles, sem er grunuð um að bera ábyrgð á stórfelldum þjófnaði á dýrum raftækjabúnaði. Einnig leikur Paul Walker lögregluþjón í sauðargæru sem vingast við klíkuna og reynir að komast að þvf hverjir það eru sem eru sífellt að stela raftækjabúnaðinum góða. A meðan rannsókn hans stendur verður hann að sjálfsögðu ástfanginn af systur Toretts, sem er leikin af Jor- daniu Brewster, enda væri sagan helst til köld og hranaleg ef engin væri rómantíkin! Rob Cohen hefur ýmsar myndir á ferlinum (og jafnvel á sam- viskunni) og ber þar helst að nefna „Dragon — the Bruce Lee story“, hina ágætu „The Rat Pack“, „The Skulls og síðast og sfst viðbjóðinn „Daylight" sem telst í besta falli vera merkileg heimild um hríðversnandi feril kvikmyndastjörnunnar Sly Stallone. Myndin ku vera framúrstefnuleg í meira lagi fyrir bandarískan markað þar eð allir bílarnir eru innfluttir asískir bílar og gefur hún amerískum vöðvabílum á borð við Chevrolet Camaro og Pontiac Trans-Am langt nef. Vonandi verður hún áhugaverð fyrir fleiri en gallharða áhugamenn um hvernig má breyta Hondu Civic 1.5 í sportbfl með því að kaupa spoilera-kitt á aðeins kr. 100.000. Nicholas Cage leikur ítalann sem hann er og veldur usla í sambandi grískra elskenda. Þumalputtareglan: Ef það gerist í Grikklandi, ferðu að gráta. Italskur lífskúnstner tóldregur hina grísku Pocahontas Captain Corelli's Mandolin fjallar um ítalska hermanninn ^Corelli (Nicholas Cage), foringja í hernámsliði Itala á grísku eyjunni Cephallonia. ítalir hernámu eyjuna árið 1940 meðan banda- menn þeirra, Þjóðverjar, börðust í Grikklandi og eins og Itala er siður snerist hugurinn fljótlega að öðrum og ánægjulegri hlutum en stríði og striti. Eyjan er nokkurs konar útópía, sæluríki með hvít- um sandi, tærum sjó og bláum himni og hugur Cor- elli stendur meira til söngva, dans og skemmtana en stríðs, sem hann hefur í raun óbeit á. Framkoma hans við eyjarskeggja einkennist meira af afsakandi góðmennsku en hernámstöktum. Lífsgleði hans og óperuást heillar jafn eyjaskeggja sem hans eigin hermenn og auðvitað hendir það fyrr en síðar að hann verður ástfanginn. Draumadfsin er læknis- dóttirin Pelagia (Penelope Cruz) en til allrar óhamingju fyrir hann - og kannski þau - er hún þegar lofuð einum eyjaskeggja, sjómanninum ólæsa, Mandras (Christian Bale), sem flúinn er til fjalla og genginn til liðs við andspyrnuhreyfinguna á staðnum til að berjast gegn innrásarliðinu. Til- finningaflækja Pelagiu byrjar að vinda upp á sig meðan hún reynir að gera upp við sig hvort hún - að eigin mati - eigi að svíkja ættjörðina og hlýða kalli ástarinnar eða stífa efri vörina og halda í ein- hvern óljósan trúnað og stolt við sig, Mandras og föðprlandið. Ástarsagan fléttast svo áfram og hjörtun slá sí- fellt hraðar, f og úr takti, meðan strfðið heldur áfram f bakgrunni sögunnar og virðist víðs fjarri en er það í raun aldrei. Og tekur sinn toll að lokum. Captain Corelli's Mandolin er ein þeirra mynda sem gerðar eru eftir bók og sem slík mun hún alltaf vekja upp spurningar' hjá púrítönum hvort ein- hverju hafi verið sleppt eða ekki gerð nógu góð skil. Myndin hefur þó hlotið afbragðs dóma, þykir lista- vel gerð að öllu leyti og koma metsölusögu Louis de Berniéres afar vel til skila. Kvikmyndatöku, hand- riti og leikstjórn hefur verið hrósað sérstaklega en leikstjórinn er John Madden sem gerði Shakespe- are in Love. Aðrir leikarar í myndinni eru John Hurt, sem leikur föður Pelagiu, mannvin og lækni, og David Morrissey í hlutverki þýsks hermanns sem fyrirlítur Itali fyrir slælega hermennskuhæfileika þeirra en hrífst ósjálfrátt af öðrum kostum þeirra sem hann kynnist á eyjunni útópísku. á 18 17. ágúst 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.