Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Side 8
8 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001 Fréttir I>V Dramatík á heimsmeistara mótinu í Austurríki Islensku heimsmeistararnir Hafliöi Halldórsson, Vignir Jónasson og Styrmir Árnason. Árangur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum var glæsUegur á heimsmeistaramótinu í Austurriki. 4 guU, 2 silfur og 5 brons liggja að baki. Mikil dramatík einkenndi mótið, sérstaklega keppni í 250 metra skeiði og tölti. Yfirleitt hafa íslendingar sótt Uest sín guU í skeið- greinunum en nú hafa Svíar skipað sér í fremstu röð þar og íslensku knapamir sóttu þvi á fjórgangs- vænginn og náðu glæsUegum ár- angri. Skeiðið var mikUvægt íslend- ingunum þrátt fyrir aUt því þangað sóttu þeir Uest sín stig í keppninni um samanlagðan árangur. Þar var árangurinn glæsilegur, þrjú efstu sætin og sýnir hve sveitin er sterk í heUd sinni. Þjóðverjar, Norðmenn og Danir gerðu einnig góða ferö til Austurríkis og voru iðulega með knapa í úrslitum. Tölt Töltkeppnin var afar dramatísk. Haíliði HaUdórsson komst með yfir- burðum í efsta sætið í úrslitin en í úrslitakeppninni sótti Karly Zings- heim að honum og var mjótt á mun- unum þegar Dökkvi frá MosfeUi stökk út úr hringnum undir lok keppninnar. Einungis tveir dómar- ar af fimm sáu það og dæmdu hann niöur. Hafliði var þar með orðinn heimsmeistari í tölti, nokkuð sem hann var búinn að spá fyrir um. Þórarinn H. Amarson dró hest sinn úr keppni vegna helti og varð í 5. sæti en Karly í því sjötta. Hafliði HaUdórsson (Islandi) sigr- aði á Valiant frá Heggsstöðum, JoUy Schrenk (Þýskalandi) var önnur á Laxness frá Störtal, Styrmir Árna- son (íslandi) þriðji á Farsæli frá Amarhóli, Stian Pedersen (Noregi) fjórði á Jarli frá Miðkrika, Þórarinn H.Amarson (íslandi) fimmti á Braga frá AUenbach og Karly Zings- heim (Þýskalandi) sjötti á Dökkva frá MosfeUi. Fjórgangur Styrmir Ámason (íslandi) var aU- an tímann með sigur í hendi sér og varð heimsmeistari á Farsæli frá Amarhóli. JoUy Schrenk (Þýska- landi) var önnur á Laxness frá Stör- tal, Saskia Heumann (Þýskalandi) var þriðja á Þyt frá Krossum, Stian Pedersen (Noregi) var fjórði á Jarli frá Miðkrika, Irene Reber (Þýska- landi) var fimmta á Kappa frá Álfta- gerði og Þórarinn H.Amarson (ís- landi) sjötti á Braga frá Allenbach. Fimmgangur Vignir Jónasson (íslandi) sigraöi á Klakki frá Búlandi, Magnús Skúlason (Svíþjóð) var annar á Dug frá Minni Borg, Samantha Leiders- dorf (Danmörku) var þriðja á Depli frá Votmúla, Ralf Wohllaib (Þýska- landi) var fjórði til fimmti á Nælu frá Skarði, Rune Svendsen (Noregi) var fjóröi til fimmti á Hug frá Stóra- Hofi og Elke Schafer (Asuturríki) var sjötta á Blæ frá Minni-Borg. Samanlagöur meistari íslendingar eignuðu sér algjör- lega keppnina um samanlagðan sig- urvegara. Góður árangur í skeiði var undirstaðan.Vignir Jónasson (íslandi) sigraði á Klakki frá Bú- landi, Sveinn Ragnarsson (Islandi) var annar á Brynjari frá Árgerði, Hugrún Jóhannsdóttir (íslandi) var þriðja á Súlu frá Bjamastöðum, Magnús Skúlason (Svíþjóð) var fjórði á Dug frá Minni Borg og JoUy Schrenk (Þýskalandi) fimmta á Lax- ness frá Störtal. Gæöingaskeið íslenska greinin gæðingaskeið, grein sem fslendingar einokuðu lengi vel og unnu í fimm fyrstu skiptin og átta skipti af tíu, létu þar í minni pokann, en Svíar komu út sterkir með fyrsta og fjórða sætið. Johann Haggberg (Svíþjóð) sigraði á Aski frá Hakansgarden, Höskuldur Aðalsteinsson (Austurríki) var ann- ar á Katli frá Glæsibæ II, Vignir Jónasson (íslandi) var þriðji á Klakki frá Búlandi, Anna Skúlason (Svíþjóð) var fjórða á Mjölni frá Dal- bæ og Marianne Tschappu (Sviss) fimmta á Gammi frá Ingveldarstöð- um. Slaktaumatölt íslendingar hafa ekki náð mjög góðum árangri í þessari grein í heimsmeistarakeppni til þessa, en þar stóð sig best Sveinn Ragnarsson á Brynjari frá Árgerði og varð í 3.sæti. Anne Balslev (Danmörku) sigraði á Hrammi frá Þóreyjarnúpi, Nicole Kempf (Þýskalandi) varð önnur á Kóngi frá Wetsinghe, Sveinn Ragnarsson (íslandi) varð þriöji á Brynjari frá Árgerði, Magn- ús Skúlason (Svíþjóð) varð fjórði á Dug frá Minni-Borg, Fredrick Rydström (Svíþjóð) varð fimmti á Gesti frá StaUgarden og Piet Hoyos (Austurríki) sjötti á Heljari frá Brautartungu 250 metra skelð Keppni í 250 metra skeiði hefur verið ein aðal uppspretta Islendinga til gullverðlauna á heimsmeistara- mótum tU þessa og nú var tækifæri á guUi. Keppnin var afar dramatísk. Raftímatakan brást og varð að gripa til handklukkna. Aðalkeppnishestur Þjóðverja Gammur frá Krithóli, sem Lothar Schenzel hefur riðið hefur náð afar góðum tíma í sumar, en hann meiddist og var úr leik. Ann- ar keppinautur íslendinga Magnús Lindquist (Svíþjóð) ákvað að hvUa Þór frá Kalfsvik, sem hefur ítrekað ná 21,4 sekúndum á 250 metrunum, í fyrstu tveimur sprettunum en í þriðja spretti slitnaði taumurinn og í fjórða spretti lá Þór ekki. Anna Skúlason Svíþjóð) náði besta timan- um i 2. spretti 21,6 sek. og sigraði en Sigurbjörn Bárðarson sannaði enn einu sinni reiðhæfileika sína er hann stýrði Gordon frá Stóru-Ás- geirsá til silfurverðlauna. Nokkur umræða hófst eftir annan sprett önnu og Mjölnis og töldu íslending- ar að hesturinn hefði stokkið upp, en niðurstaðan var sú að hesturinn var talinn liggja. Anna Skúlason (Svíþjóð) sigraði á Mjölni frá Dalbæ á 21,6 sek. Sigur- björn Bárðarson (íslandi) var annar á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá á 21,7 sek., Reynir Aðalsteinsson (Islandi) var þriðji á Sprengi-HveUi frá Efsta- dal á 22,0 sek„ Höskuldur Aðal- steinsson (Austurriki) fjórði á Katli frá Glæsibæ II og Sveinn Ragnars- son (íslandi) fimmti á Brynjari frá Árgerði á 22,3 sek. 100 metra skeiö Sigurbjörn Bárðarson (íslandi) sigraði í þessari sýningargrein, sem hvorki telst með tU stiga né til heimsmeistaratitils á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá á 7,68 sek. Tanja Gundlach (Þýskalandi) fór einnig á 7,68 sek. á kynbótahryssunni Hrönn frá Godemoor og varð í 2. sæti, Sandra Mayer-Knipps (Þýskalandi) var þriðja á Lippu frá Svignaskarði á 7,72 sek., Reynir Aðalsteinsson (ís- landi) var fjórði á Sprengi-HveUi frá Efstadal á 7,73 sek. Og Magnus Lindquist (Svíþjóð) fimmti á Þór frá Kalfsvik á 7,92 sek. AUir skráðir þátttakendur á heimsmeistaramót- inu máttu vera með og nýttu marg- ir sýnenda kynbótahrossanna sér það. Flml íslendingar slepptu fiminni en þar sigraði Karly Zingsheim (Þýska- landi) á Dökkva frá Mosfelli. Jolly Schrenk (Þýskalandi) var önnur á Laxness frá Stördal, Stian Pedersen (Noregi) þriðji á Jarli frá Miðkrika, Christina Lund (Noregi) fjórða á Galsa frá Stokkseyri og Isabelle Felsum (Danmörku) fimmta á Garpi frá Hemlu. „Ég ætla að fara fram á að handtökutími minn frá Rieden í Þýskalandi 1999 verði birtur og að hann verði stað- festur sem heims- met. Hann er 20,8 eða 20,9 minnir mig,“ segir Sigurbjörn Bárdar- son. Lög FEIF, eigenda og vina ís- lenska hestsins, heimfla aö heims- met í skeiði séu staðfest sama hvort sem notast er við rafræna eða handvirka tímatöku. Raftíma- tökumet Gordons í Rieden var 21,16 en SprengihveUur og Reynir Aðalsteinsson bættu það í sumar í Austurríki og fóru á 21,0 sekúnd- um og var notast við handtíma- töku. Sigurbjörn gæti því átt enn einn sprettinn, en nú á ritveUin- um. Blaðamanni DV varð starsýnt á einn ungu mannanna sem kom frá íslandi á heimsmeistaramótið, en hann keypti Red BuU drykkinn í tugatali. Minnugur umræðna um að drykkurinn væri hættulegur innti hann ungann eftir því hvort hann væri ekki hræddur um að detta niður dauður. „Veit ekkert um það,“ sagði unginn, „en manni stendur í viku.“ Margir íslendingar sýndu kyn- bótahross fyrir önnur lönd en ís- land. Enginn komst þó lengra en Guðmundur Björgvinsson sem sýndi hryssuna Völvu frá Ros- enlund fyrir Danmörk og stóðhest- inn Stefni frá Sandhólaferju fyrir Island. Jóhann Skúlason sýndi einnig kynbótahross fyrir Dan- mörku: Gleði frá Dal. Sigurður Marínusson keppti fyrir HoUand í íþróttagreinunum á Sóley frá Aldenghoor og sýndi hana einnig fyrir hoUenska rækt- un. íslendingar sýndu öll fjögur sænskfæddu kynbótahrossin. Sveinn Hauksson sýndi Frama frá Haringe og keppti einnig á honum í íþróttakeppninni, Magn- ús Skúlason sýndi Náttfaradís frá Wreta, Garðar Gislason sýndi Nótt frá Knutshyttan og Styrmir Snorrason sýndi Kedlu frá Skradam. Margir íslendinganna gistu í borginni Wels, sem er um 20 kíló- metra frá Stadl Paura. Margir þeirra gátu ekki vanist klukkun- um sem hringdu nokkuð pent á klukkutímafresti en hófu upp raust sina klukkan 6.00 á morg- ana. Fyrst sló klukka sex sinnum, afar þungum og dimmum hljóm- um og eftir það tók við klukkna- spil um langa hríð og áttu margir erfitt að sofna aftur. Valdimar Auðunsson sýndi tvær hryssur fyrir Austurríki: Ljónslöpp frá Krahenweide og Svörtu frá Krahenweide. Tveir ís- lenskir knapar kepptu á íþrótta- sviðinu fyrir Austurríki: Gestur Júliusson á Emi frá Efri-Brú og Höskuldur Aðalsteinsson á Katli frá Glæsibæ II. íslenska stúlkan Sigriður Pjet- ursdóttir var eina blómastúlka Austurríkismanna. Hún hefur bú- ið í Austurríki undanfarin tvö ár og er í námi ásamt kærastanum. s ■MMjl iftnmim THE AUTHENTIC WESTERN JEAN8 gallabuxur fyrir hestamenn [w m W\ THE AUTHENTIC WESTERN JEANS ÍTOLTl HEIMflR Miklu meira úrval - betra verð ITOLTI HEIMflR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.