Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
Fréttir I>V
Dramatík á heimsmeistara
mótinu í Austurríki
Islensku heimsmeistararnir
Hafliöi Halldórsson, Vignir Jónasson og Styrmir Árnason.
Árangur íslenska landsliðsins í
hestaíþróttum var glæsUegur á
heimsmeistaramótinu í Austurriki.
4 guU, 2 silfur og 5 brons liggja að
baki. Mikil dramatík einkenndi
mótið, sérstaklega keppni í 250
metra skeiði og tölti. Yfirleitt hafa
íslendingar sótt Uest sín guU í skeið-
greinunum en nú hafa Svíar skipað
sér í fremstu röð þar og íslensku
knapamir sóttu þvi á fjórgangs-
vænginn og náðu glæsUegum ár-
angri. Skeiðið var mikUvægt íslend-
ingunum þrátt fyrir aUt því þangað
sóttu þeir Uest sín stig í keppninni
um samanlagðan árangur. Þar var
árangurinn glæsilegur, þrjú efstu
sætin og sýnir hve sveitin er sterk
í heUd sinni. Þjóðverjar, Norðmenn
og Danir gerðu einnig góða ferö til
Austurríkis og voru iðulega með
knapa í úrslitum.
Tölt
Töltkeppnin var afar dramatísk.
Haíliði HaUdórsson komst með yfir-
burðum í efsta sætið í úrslitin en í
úrslitakeppninni sótti Karly Zings-
heim að honum og var mjótt á mun-
unum þegar Dökkvi frá MosfeUi
stökk út úr hringnum undir lok
keppninnar. Einungis tveir dómar-
ar af fimm sáu það og dæmdu hann
niöur. Hafliði var þar með orðinn
heimsmeistari í tölti, nokkuð sem
hann var búinn að spá fyrir um.
Þórarinn H. Amarson dró hest sinn
úr keppni vegna helti og varð í 5.
sæti en Karly í því sjötta.
Hafliði HaUdórsson (Islandi) sigr-
aði á Valiant frá Heggsstöðum, JoUy
Schrenk (Þýskalandi) var önnur á
Laxness frá Störtal, Styrmir Árna-
son (íslandi) þriðji á Farsæli frá
Amarhóli, Stian Pedersen (Noregi)
fjórði á Jarli frá Miðkrika, Þórarinn
H.Amarson (íslandi) fimmti á
Braga frá AUenbach og Karly Zings-
heim (Þýskalandi) sjötti á Dökkva
frá MosfeUi.
Fjórgangur
Styrmir Ámason (íslandi) var aU-
an tímann með sigur í hendi sér og
varð heimsmeistari á Farsæli frá
Amarhóli. JoUy Schrenk (Þýska-
landi) var önnur á Laxness frá Stör-
tal, Saskia Heumann (Þýskalandi)
var þriðja á Þyt frá Krossum, Stian
Pedersen (Noregi) var fjórði á Jarli
frá Miðkrika, Irene Reber (Þýska-
landi) var fimmta á Kappa frá Álfta-
gerði og Þórarinn H.Amarson (ís-
landi) sjötti á Braga frá Allenbach.
Fimmgangur
Vignir Jónasson (íslandi) sigraöi
á Klakki frá Búlandi, Magnús
Skúlason (Svíþjóð) var annar á Dug
frá Minni Borg, Samantha Leiders-
dorf (Danmörku) var þriðja á Depli
frá Votmúla, Ralf Wohllaib (Þýska-
landi) var fjórði til fimmti á Nælu
frá Skarði, Rune Svendsen (Noregi)
var fjóröi til fimmti á Hug frá Stóra-
Hofi og Elke Schafer (Asuturríki)
var sjötta á Blæ frá Minni-Borg.
Samanlagöur meistari
íslendingar eignuðu sér algjör-
lega keppnina um samanlagðan sig-
urvegara. Góður árangur í skeiði
var undirstaðan.Vignir Jónasson
(íslandi) sigraði á Klakki frá Bú-
landi, Sveinn Ragnarsson (Islandi)
var annar á Brynjari frá Árgerði,
Hugrún Jóhannsdóttir (íslandi) var
þriðja á Súlu frá Bjamastöðum,
Magnús Skúlason (Svíþjóð) var
fjórði á Dug frá Minni Borg og JoUy
Schrenk (Þýskalandi) fimmta á Lax-
ness frá Störtal.
Gæöingaskeið
íslenska greinin gæðingaskeið,
grein sem fslendingar einokuðu
lengi vel og unnu í fimm fyrstu
skiptin og átta skipti af tíu, létu þar
í minni pokann, en Svíar komu út
sterkir með fyrsta og fjórða sætið.
Johann Haggberg (Svíþjóð) sigraði á
Aski frá Hakansgarden, Höskuldur
Aðalsteinsson (Austurríki) var ann-
ar á Katli frá Glæsibæ II, Vignir
Jónasson (íslandi) var þriðji á
Klakki frá Búlandi, Anna Skúlason
(Svíþjóð) var fjórða á Mjölni frá Dal-
bæ og Marianne Tschappu (Sviss)
fimmta á Gammi frá Ingveldarstöð-
um.
Slaktaumatölt
íslendingar hafa ekki náð mjög
góðum árangri í þessari grein í
heimsmeistarakeppni til þessa, en
þar stóð sig best Sveinn Ragnarsson
á Brynjari frá Árgerði og varð í
3.sæti. Anne Balslev (Danmörku)
sigraði á Hrammi frá Þóreyjarnúpi,
Nicole Kempf (Þýskalandi) varð
önnur á Kóngi frá Wetsinghe,
Sveinn Ragnarsson (íslandi) varð
þriöji á Brynjari frá Árgerði, Magn-
ús Skúlason (Svíþjóð) varð fjórði á
Dug frá Minni-Borg, Fredrick
Rydström (Svíþjóð) varð fimmti á
Gesti frá StaUgarden og Piet Hoyos
(Austurríki) sjötti á Heljari frá
Brautartungu
250 metra skelð
Keppni í 250 metra skeiði hefur
verið ein aðal uppspretta Islendinga
til gullverðlauna á heimsmeistara-
mótum tU þessa og nú var tækifæri
á guUi. Keppnin var afar dramatísk.
Raftímatakan brást og varð að gripa
til handklukkna. Aðalkeppnishestur
Þjóðverja Gammur frá Krithóli, sem
Lothar Schenzel hefur riðið hefur
náð afar góðum tíma í sumar, en
hann meiddist og var úr leik. Ann-
ar keppinautur íslendinga Magnús
Lindquist (Svíþjóð) ákvað að hvUa
Þór frá Kalfsvik, sem hefur ítrekað
ná 21,4 sekúndum á 250 metrunum,
í fyrstu tveimur sprettunum en í
þriðja spretti slitnaði taumurinn og
í fjórða spretti lá Þór ekki. Anna
Skúlason Svíþjóð) náði besta timan-
um i 2. spretti 21,6 sek. og sigraði en
Sigurbjörn Bárðarson sannaði enn
einu sinni reiðhæfileika sína er
hann stýrði Gordon frá Stóru-Ás-
geirsá til silfurverðlauna. Nokkur
umræða hófst eftir annan sprett
önnu og Mjölnis og töldu íslending-
ar að hesturinn hefði stokkið upp,
en niðurstaðan var sú að hesturinn
var talinn liggja.
Anna Skúlason (Svíþjóð) sigraði á
Mjölni frá Dalbæ á 21,6 sek. Sigur-
björn Bárðarson (íslandi) var annar
á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá á 21,7
sek., Reynir Aðalsteinsson (Islandi)
var þriðji á Sprengi-HveUi frá Efsta-
dal á 22,0 sek„ Höskuldur Aðal-
steinsson (Austurriki) fjórði á Katli
frá Glæsibæ II og Sveinn Ragnars-
son (íslandi) fimmti á Brynjari frá
Árgerði á 22,3 sek.
100 metra skeiö
Sigurbjörn Bárðarson (íslandi)
sigraði í þessari sýningargrein, sem
hvorki telst með tU stiga né til
heimsmeistaratitils á Gordon frá
Stóru-Ásgeirsá á 7,68 sek. Tanja
Gundlach (Þýskalandi) fór einnig á
7,68 sek. á kynbótahryssunni Hrönn
frá Godemoor og varð í 2. sæti,
Sandra Mayer-Knipps (Þýskalandi)
var þriðja á Lippu frá Svignaskarði
á 7,72 sek., Reynir Aðalsteinsson (ís-
landi) var fjórði á Sprengi-HveUi frá
Efstadal á 7,73 sek. Og Magnus
Lindquist (Svíþjóð) fimmti á Þór frá
Kalfsvik á 7,92 sek. AUir skráðir
þátttakendur á heimsmeistaramót-
inu máttu vera með og nýttu marg-
ir sýnenda kynbótahrossanna sér
það.
Flml
íslendingar slepptu fiminni en
þar sigraði Karly Zingsheim (Þýska-
landi) á Dökkva frá Mosfelli. Jolly
Schrenk (Þýskalandi) var önnur á
Laxness frá Stördal, Stian Pedersen
(Noregi) þriðji á Jarli frá Miðkrika,
Christina Lund (Noregi) fjórða á
Galsa frá Stokkseyri og Isabelle
Felsum (Danmörku) fimmta á Garpi
frá Hemlu.
„Ég ætla að
fara fram á að
handtökutími
minn frá Rieden í
Þýskalandi 1999
verði birtur og að
hann verði stað-
festur sem heims-
met. Hann er 20,8
eða 20,9 minnir
mig,“ segir Sigurbjörn Bárdar-
son. Lög FEIF, eigenda og vina ís-
lenska hestsins, heimfla aö heims-
met í skeiði séu staðfest sama
hvort sem notast er við rafræna
eða handvirka tímatöku. Raftíma-
tökumet Gordons í Rieden var
21,16 en SprengihveUur og Reynir
Aðalsteinsson bættu það í sumar
í Austurríki og fóru á 21,0 sekúnd-
um og var notast við handtíma-
töku. Sigurbjörn gæti því átt enn
einn sprettinn, en nú á ritveUin-
um.
Blaðamanni DV varð starsýnt
á einn ungu mannanna sem kom
frá íslandi á heimsmeistaramótið,
en hann keypti Red BuU drykkinn
í tugatali. Minnugur umræðna um
að drykkurinn væri hættulegur
innti hann ungann eftir því hvort
hann væri ekki hræddur um að
detta niður dauður. „Veit ekkert
um það,“ sagði unginn, „en manni
stendur í viku.“
Margir íslendingar sýndu kyn-
bótahross fyrir önnur lönd en ís-
land. Enginn komst þó lengra en
Guðmundur Björgvinsson sem
sýndi hryssuna Völvu frá Ros-
enlund fyrir Danmörk og stóðhest-
inn Stefni frá Sandhólaferju fyrir
Island. Jóhann Skúlason sýndi
einnig kynbótahross fyrir Dan-
mörku: Gleði frá Dal.
Sigurður Marínusson keppti
fyrir HoUand í íþróttagreinunum
á Sóley frá Aldenghoor og sýndi
hana einnig fyrir hoUenska rækt-
un.
íslendingar sýndu öll fjögur
sænskfæddu kynbótahrossin.
Sveinn Hauksson sýndi Frama
frá Haringe og keppti einnig á
honum í íþróttakeppninni, Magn-
ús Skúlason sýndi Náttfaradís frá
Wreta, Garðar Gislason sýndi
Nótt frá Knutshyttan og Styrmir
Snorrason sýndi Kedlu frá
Skradam.
Margir íslendinganna gistu í
borginni Wels, sem er um 20 kíló-
metra frá Stadl Paura. Margir
þeirra gátu ekki vanist klukkun-
um sem hringdu nokkuð pent á
klukkutímafresti en hófu upp
raust sina klukkan 6.00 á morg-
ana. Fyrst sló klukka sex sinnum,
afar þungum og dimmum hljóm-
um og eftir það tók við klukkna-
spil um langa hríð og áttu margir
erfitt að sofna aftur.
Valdimar Auðunsson sýndi
tvær hryssur fyrir Austurríki:
Ljónslöpp frá Krahenweide og
Svörtu frá Krahenweide. Tveir ís-
lenskir knapar kepptu á íþrótta-
sviðinu fyrir Austurríki: Gestur
Júliusson á Emi frá Efri-Brú og
Höskuldur Aðalsteinsson á Katli
frá Glæsibæ II.
íslenska stúlkan Sigriður Pjet-
ursdóttir var eina blómastúlka
Austurríkismanna. Hún hefur bú-
ið í Austurríki undanfarin tvö ár
og er í námi ásamt kærastanum.
s ■MMjl iftnmim
THE AUTHENTIC WESTERN JEAN8
gallabuxur
fyrir hestamenn
[w m W\
THE AUTHENTIC WESTERN JEANS
ÍTOLTl
HEIMflR
Miklu meira úrval - betra verð
ITOLTI
HEIMflR