Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Page 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001 JOV Maria Sung í hungurverkfalli í Róm vegna hvarfs eiginmannsins, erkibiskupsins Milingos. Fór á blæðingar María Sung, eiginkona Emmanu- els Milingos erkibiskups, hefur tek- ið af öll tvímæli og segist nú ekki vera ólétt, eins og hana grunaði fyr- ir helgi. Hún er nú í hungurverk- falli í Róm vegna hvarfs eigin- mannsins. Vatíkanið bar Maríu þau boð á dögunum að Milingo hefði af- neitað henni og gengið aftur til liðs við kaþólsku kirkjuna en þau gift- ust í fjöldabrúökaupi sértrúarsafn- aðar í vor. Milingo sást síðast í Róm fyrir níu dögum, eftir að hafa rætt við kardínála i Vatíkaninu. Nató-leiðangur í bobba: Atök brutust út í Makedóníu á ný Átök brutust út að nýju i Makedóníu í gær. Þar með eru áform Nató um að senda 3500 hermenn til landsins í uppnámi. Þegar eru um 400 breskir hermenn í Makedóníu að kanna jarðveginn fyrir komu Nató- liðsins. Albanskir uppreisnarmenn og Makedóníuher skiptust á skotum í þremur þorpum kringum Tetovo, helstu borg Albana í landinu. Til- kynnt var um nokkur hús sem lögð höfðu verið í rúst. Átökin hófust ein- ungis nokkrum klukkustundum áð- ur en yfirhershöfðingi Nató í Evr- ópu, Joseph Ralston, var væntanleg- ur til Makedóníu til þess að meta ör- yggisástand í landinu. Svo virtist sem átökunum væri lokið seint í gærkvöld. Sendimenn Nató funda þessa dag- ana í Brussel um það hvort skyn- samlegt sé að hætta á að senda her- sveitir inn á óstöðugt svæði. Þeir munu byggja ákvörðun sína um Albanar og Nató Vöröur leiötoga Frelsishers Albana meö fána Albana og Nató í bak- grunninum. hvort senda skuli hermennina 3500 á upplýsingum frá bresku könnunar- sveitinni sem nú er i Makedóníu. Ef ástandið reynist ekki vera viðunandi mun Nató hætta við að senda her- sveitir til landsins og þjóðirnar tvær, Albanar og slavneskir Makedónar, verða þá að leysa sín mál sjálfar. Hermönnum Nató er ætlað að af- vopna albanska uppreisnarmenn á 30 dögum. Það er eitt helsta skilyrði þess að friðarsamkomulag þjóðanna gangi eftir og Albanar öðlist réttindi sín að afvopnunin gangi eftir. Leið- togi Frelsishers Albana, Ali Ahmet, hefur lýst þvi yfir að allar sveitir hersins muni afhenda vopn sín Nató- hermönnunum. Ekki var vitað í gærkvöld hvor fylkinganna hefði átt upptökin að skothríðinni sem ógnar nú við- kvæmu friðarsamkomulagi í Makedóníu, síðasta hluta fyrrverandi Júgóslavíu sem á í borgarastríði. Sérferd Visa korthafa Þrjár nætur í Sevilla og 4 nætur í Albufeira. Bráðskemmtileg ferð þar sem þú upplifir allt i senn menningu Andalúsíu, töfra Sevilla og flatmagar á gylltum ströndum Portúgals. Fararstjóri er Hrund Guðjónsdóttir. kr. á mann í tvíbýli með sköttum Skoðunarferðir greiðast sérstaklega. Rússneskur hermaður fagnar Þessi rússneski hermaöur var einn fárra sem fögnuöu í gær 10 ára afmæli misheppnaörar uppreisnar kommúnista sem endaöi meö valdatöku Borísar Jeltsíns og upplausn Sovétríkjanna. Fimm myrtir í gær: Peres vill semja við Palestínumenn Shimon Peres, utanrík- isráðherra ísraels, vill fá ísraelsmenn aftur að samningaborðinu. Hann hefur hlotið umboð frá ísraelska forsætisráðherr- anum, Ariel Sharon, til að hefja viðræður til þess að koma á vopnahléi. Sjálfur segist Sharon ekki vilja undir neinum kringum- stæðum hefja samninga- viðræður nema vopnahléi hafi verið komið á og of- beldið algerlega stöðvað. Palestínumenn hafa tek- ið vel í friöarvilja Peresar og hefur Yasser Arafat, leiðtogi þeirra, látið þau boð berast að hann sé reiöubúinn til að hefja viðræður hvenær sem Peres vill. Hins vegar segja Palestínumenn að ekki sé hægt að hefja neinar mark- tækar viðræður fyrr en ísraelsmenn láta af hersetu sinni á Austurlandahúsinu svo- kallaða sem hýsir höfuð- stöðvar palestínsku heima- stjórnarinnar. í gær héldu átök áfram á heimastj ómars væði Palestínumanna. ísraelsk- ar Apache-herþyrlur gerðu flugskeytaárás á höfuð- stöðvar varðsveitar Arafats. Enginn var í byggingunni en einn veg- farandi særðist. Þá skutu ísraelskir hermenn 14 ára dreng og 38 ára mann til bana í tveim árásum. Auk þess lést meðlimur palest- inskra samtaka ásamt 7 ára dóttur sinni og 6 ára sonar í sprengjuárás á heimili hans i gærkvöld. Palest- ínumenn og ísraelar bentu hver á annan varðandi ábyrgö á árásinni. 14 ára fórnarlamb ísraelsher skaut 14 ára palestínskan pilt til bana í gær. Bandaríkjunum að kenna Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, kennir bandarísku efnahagslífi um að hamla gegn hagvexti í Þýskalandi. Bar- átta hans fyrir end- urkjöri á næsta ári er hafin og er hon- um í mun að útskýra vanefndir á því kosningaloforði sínu að minnka atvinnuleysi. Höggvinn með öxi 16 ára norskur piltur hjó jafn- afdra sinn í höfuðið með öxi fyrir utan einbýlishús nærri Hokksund á sunnudagsnótt. Þeir voru báðir undir áhrifum áfengis. Fórnarlamb- ið slasaðist ekki lífshættulega. Dýr sveindómsmissir Nærri fjórir af hverjum 10 ítölsk- um piltum á aldrinum 14 til 18 ára segjast hafa leitað til vændiskvenna í fyrstu kynlífsreynslU sinni. Ýmist létu þeir undan hópþrýstingi eða óttuðust að valda væntanlegum kærustum sínum vonbrigðum. Ákærandi segir tii nafns Konan sem ákærir breska þing- manninn fyrrverandi, NeilHamil- ton, og eiginkonu hans, Christine, fyrir nauðgun hefur sagt til nafns sins. Hjónin höfðu gagnrýnt kon- una, sem er 4 barna móðir, fyrir að skýla sér á bak við nafnleynd. Hamilton hótar að lögsækja hana fyrir meiðyrði. Fékk Júmbóþotu að gjöf Saddam Hussein, leiðtogi íraka, fékk um helgina Boeing 747 Júmbóþotu í gjöf frá arabískum viðskiptajöfrum. Þeir nefndu gjöfina hóflegt framlag til að binda enda á 11 ára viðskiptaþvinganir SÞ á írak. Saddam fékk síðast Júmbóþotu gef- ins frá konungsfjölskyldu Quatar í nóvember á síðasta ári. 150 bílar í árekstri 150 bíla árekstur varð á hrað- brautinni milli Madrid og Valencia á Spáni í gærdag. Að minnsta kosti einn lést og 80 slösuðust í árekstrin- um sem orsakaðist af dimmri þoku. Vill aftur á forsetastól Sandistinn Dani- el Ortega, sem var forseti Nikaragúa á niunda áratugnum, er nú í kosninga- baráttu til að kom- ast aftur á forsetastól. Skoðana- kannanir sýna að Ortega hefur for- ystu í baráttunni. Bandarikin að- stoðuðu við að koma honum frá völdum. Námuslys í Úkraínu 36 menn létust og 14 er saknað eft- ir slys í kolanámu í borginni Do- netsk í Úkraínu í gær. 259 verka- menn voru í námunni þegar spreng- ing varð meira en kílómetra undir yfirborðinu. 140 manns höfðu látist á þessu ári i námuslysum í Úkraínu fyrir þetta slys. Bílasprengja við hótel Bílasprengja sprakk fyrir utan hótel í spænsku ferðamannaborg- inni Salou á laugardag. 13 hótelgest- ir hlutu smávægileg meiðsl við að rýma hótelið fyrir sprenginguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.