Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Síða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
JOV
Maria Sung
í hungurverkfalli í Róm vegna hvarfs
eiginmannsins, erkibiskupsins Milingos.
Fór á blæðingar
María Sung, eiginkona Emmanu-
els Milingos erkibiskups, hefur tek-
ið af öll tvímæli og segist nú ekki
vera ólétt, eins og hana grunaði fyr-
ir helgi. Hún er nú í hungurverk-
falli í Róm vegna hvarfs eigin-
mannsins. Vatíkanið bar Maríu þau
boð á dögunum að Milingo hefði af-
neitað henni og gengið aftur til liðs
við kaþólsku kirkjuna en þau gift-
ust í fjöldabrúökaupi sértrúarsafn-
aðar í vor. Milingo sást síðast í Róm
fyrir níu dögum, eftir að hafa rætt
við kardínála i Vatíkaninu.
Nató-leiðangur í bobba:
Atök brutust út í
Makedóníu á ný
Átök brutust út að nýju i
Makedóníu í gær. Þar með eru áform
Nató um að senda 3500 hermenn til
landsins í uppnámi. Þegar eru um
400 breskir hermenn í Makedóníu að
kanna jarðveginn fyrir komu Nató-
liðsins.
Albanskir uppreisnarmenn og
Makedóníuher skiptust á skotum í
þremur þorpum kringum Tetovo,
helstu borg Albana í landinu. Til-
kynnt var um nokkur hús sem lögð
höfðu verið í rúst. Átökin hófust ein-
ungis nokkrum klukkustundum áð-
ur en yfirhershöfðingi Nató í Evr-
ópu, Joseph Ralston, var væntanleg-
ur til Makedóníu til þess að meta ör-
yggisástand í landinu. Svo virtist
sem átökunum væri lokið seint í
gærkvöld.
Sendimenn Nató funda þessa dag-
ana í Brussel um það hvort skyn-
samlegt sé að hætta á að senda her-
sveitir inn á óstöðugt svæði. Þeir
munu byggja ákvörðun sína um
Albanar og Nató
Vöröur leiötoga Frelsishers Albana
meö fána Albana og Nató í bak-
grunninum.
hvort senda skuli hermennina 3500 á
upplýsingum frá bresku könnunar-
sveitinni sem nú er i Makedóníu. Ef
ástandið reynist ekki vera viðunandi
mun Nató hætta við að senda her-
sveitir til landsins og þjóðirnar tvær,
Albanar og slavneskir Makedónar,
verða þá að leysa sín mál sjálfar.
Hermönnum Nató er ætlað að af-
vopna albanska uppreisnarmenn á
30 dögum. Það er eitt helsta skilyrði
þess að friðarsamkomulag þjóðanna
gangi eftir og Albanar öðlist réttindi
sín að afvopnunin gangi eftir. Leið-
togi Frelsishers Albana, Ali Ahmet,
hefur lýst þvi yfir að allar sveitir
hersins muni afhenda vopn sín Nató-
hermönnunum.
Ekki var vitað í gærkvöld hvor
fylkinganna hefði átt upptökin að
skothríðinni sem ógnar nú við-
kvæmu friðarsamkomulagi í
Makedóníu, síðasta hluta fyrrverandi
Júgóslavíu sem á í borgarastríði.
Sérferd
Visa korthafa
Þrjár nætur í Sevilla og 4 nætur í Albufeira.
Bráðskemmtileg ferð þar sem þú upplifir allt i senn
menningu Andalúsíu, töfra Sevilla og flatmagar á gylltum
ströndum Portúgals.
Fararstjóri er Hrund Guðjónsdóttir.
kr. á mann í tvíbýli með sköttum
Skoðunarferðir greiðast sérstaklega.
Rússneskur hermaður fagnar
Þessi rússneski hermaöur var einn fárra sem fögnuöu í gær 10 ára afmæli
misheppnaörar uppreisnar kommúnista sem endaöi meö valdatöku Borísar
Jeltsíns og upplausn Sovétríkjanna.
Fimm myrtir í gær:
Peres vill semja
við Palestínumenn
Shimon Peres, utanrík-
isráðherra ísraels, vill fá
ísraelsmenn aftur að
samningaborðinu. Hann
hefur hlotið umboð frá
ísraelska forsætisráðherr-
anum, Ariel Sharon, til að
hefja viðræður til þess að
koma á vopnahléi. Sjálfur
segist Sharon ekki vilja
undir neinum kringum-
stæðum hefja samninga-
viðræður nema vopnahléi
hafi verið komið á og of-
beldið algerlega stöðvað.
Palestínumenn hafa tek-
ið vel í friöarvilja Peresar
og hefur Yasser Arafat,
leiðtogi þeirra, látið þau boð berast
að hann sé reiöubúinn til að hefja
viðræður hvenær sem Peres vill.
Hins vegar segja Palestínumenn að
ekki sé hægt að hefja neinar mark-
tækar viðræður fyrr en ísraelsmenn
láta af hersetu sinni á
Austurlandahúsinu svo-
kallaða sem hýsir höfuð-
stöðvar palestínsku heima-
stjórnarinnar.
í gær héldu átök áfram á
heimastj ómars væði
Palestínumanna. ísraelsk-
ar Apache-herþyrlur gerðu
flugskeytaárás á höfuð-
stöðvar varðsveitar
Arafats. Enginn var í
byggingunni en einn veg-
farandi særðist. Þá skutu
ísraelskir hermenn 14 ára
dreng og 38 ára mann til
bana í tveim árásum. Auk
þess lést meðlimur palest-
inskra samtaka ásamt 7 ára dóttur
sinni og 6 ára sonar í sprengjuárás
á heimili hans i gærkvöld. Palest-
ínumenn og ísraelar bentu hver á
annan varðandi ábyrgö á árásinni.
14 ára fórnarlamb
ísraelsher skaut 14
ára palestínskan
pilt til bana í gær.
Bandaríkjunum að kenna
Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands,
kennir bandarísku
efnahagslífi um að
hamla gegn hagvexti
í Þýskalandi. Bar-
átta hans fyrir end-
urkjöri á næsta ári
er hafin og er hon-
um í mun að útskýra vanefndir á
því kosningaloforði sínu að minnka
atvinnuleysi.
Höggvinn með öxi
16 ára norskur piltur hjó jafn-
afdra sinn í höfuðið með öxi fyrir
utan einbýlishús nærri Hokksund á
sunnudagsnótt. Þeir voru báðir
undir áhrifum áfengis. Fórnarlamb-
ið slasaðist ekki lífshættulega.
Dýr sveindómsmissir
Nærri fjórir af hverjum 10 ítölsk-
um piltum á aldrinum 14 til 18 ára
segjast hafa leitað til vændiskvenna
í fyrstu kynlífsreynslU sinni. Ýmist
létu þeir undan hópþrýstingi eða
óttuðust að valda væntanlegum
kærustum sínum vonbrigðum.
Ákærandi segir tii nafns
Konan sem ákærir breska þing-
manninn fyrrverandi, NeilHamil-
ton, og eiginkonu hans, Christine,
fyrir nauðgun hefur sagt til nafns
sins. Hjónin höfðu gagnrýnt kon-
una, sem er 4 barna móðir, fyrir að
skýla sér á bak við nafnleynd.
Hamilton hótar að lögsækja hana
fyrir meiðyrði.
Fékk Júmbóþotu að gjöf
Saddam Hussein,
leiðtogi íraka, fékk
um helgina Boeing
747 Júmbóþotu í
gjöf frá arabískum
viðskiptajöfrum.
Þeir nefndu gjöfina
hóflegt framlag til
að binda enda á 11
ára viðskiptaþvinganir SÞ á írak.
Saddam fékk síðast Júmbóþotu gef-
ins frá konungsfjölskyldu Quatar í
nóvember á síðasta ári.
150 bílar í árekstri
150 bíla árekstur varð á hrað-
brautinni milli Madrid og Valencia
á Spáni í gærdag. Að minnsta kosti
einn lést og 80 slösuðust í árekstrin-
um sem orsakaðist af dimmri þoku.
Vill aftur á
forsetastól
Sandistinn Dani-
el Ortega, sem var
forseti Nikaragúa á
niunda áratugnum,
er nú í kosninga-
baráttu til að kom-
ast aftur á forsetastól. Skoðana-
kannanir sýna að Ortega hefur for-
ystu í baráttunni. Bandarikin að-
stoðuðu við að koma honum frá
völdum.
Námuslys í Úkraínu
36 menn létust og 14 er saknað eft-
ir slys í kolanámu í borginni Do-
netsk í Úkraínu í gær. 259 verka-
menn voru í námunni þegar spreng-
ing varð meira en kílómetra undir
yfirborðinu. 140 manns höfðu látist
á þessu ári i námuslysum í Úkraínu
fyrir þetta slys.
Bílasprengja við hótel
Bílasprengja sprakk fyrir utan
hótel í spænsku ferðamannaborg-
inni Salou á laugardag. 13 hótelgest-
ir hlutu smávægileg meiðsl við að
rýma hótelið fyrir sprenginguna.