Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Qupperneq 13
13
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2001
PV________________________ Landið
Krýsuvíkurkirkja
Greinilega mátti sjá að grafið hafði verið í gamian kirkjugarð við vesturgafl
Krýsuvíkurkirkju. Ekki hefur tekist að uppiýsa hverjir hafi verið þar að verki
eða í hvaða tilgangi þar hefur verið grafið.
Dularfullt jarðrask við Krýsuvíkurkirkju:
Sökudólgur ófundinn
- búið er að tyrfa svæðið að nýju
Ekki hefur tekist aö upplýsa
hver eða hverjir hafa staðið að
uppgreftri við Krýsuvíkurkirkju i
byrjun mánaðarins. Lögreglan í
Hafnarfirði rannsakaði þetta dul-
arfulla jarðrask en engin niður-
staða fékkst. Er nú búið að ganga
frá verksummerkjum og tyrfa yfir
gröfina.
Að sögn Haralds Helgasonar,
sem hefur umsjón meö húsasafni
Þjóðminjasafns íslands, var hringt
í hann vegna málsins mánudaginn
8. október. Lögreglumaður, sem
leið átti þarna um, hafði orðið var
við að grafið hafði verið við sunn-
anverða kirkjuna. Hafði hann fyrst
samband við Erlend Sveinsson
kvikmyndagerðarmann en faðir
hans er grafinn þarna rétt hjá. Er-
lendur hafði síðan samband við
Harald og í framhaldinu rannsak-
aði lögreglan í Hafnarfirði málið.
Þegar blaðamenn DV bar þar að
garði 10. október var búið að setja
krossviðarplötu yfir holuna en
þarna í garðinum eru nokkrar
gamlar grafir.
Segir Haraldur að leyfi þurfi til
að uppgraftar af þessu tagi. Slík
mál heyri nú undir nýtt embætti
sem heitir Fornleifavernd ríkisins
og stýrt er af Kristínu Huld Sigurð-
ardóttur. Sagði Haraldur að þau
heföu farið fyrir viku að skoða
verksummerki en þá hefði verið
búið að ganga frá holunni. Lög-
regla var þá búin að skoða málið
en fann ekkert sem benti til hverj-
ir voru sekir um þetta rask. Staö-
festi lögregla það í samtali við DV
í gær.
Haraldur segir að sem betur fer
hafi afskaplega litlu verið raskað
og ómögulegt að segja eftir hverju
menn hefðu verið að grafa. Þama
hafi menn komið niður á kistu-
hom og greinilega séð að ekki var
eftir miklu að sækjast. „Sem betur
fer eru slik atvik mjög sjaldgæf,
enda má slíkt alls ekki gerast
nema í vísindalegum tilgangi.
Þetta er mjög viðkvæmur staður
og menningarminjar með gamalli
byggð þarna skammt frá,“ sagði
Haraldur Helgason. -HKr.
Efhún
erekki
inni
skalég
hundur
heital
Slökkviliö Reykjavíkur á ekki búnaö til að eiga við eld í göngunum:
Áhyggjur af vanbúnaði
slökkviliðsins
Slökkvilið Akraness hefur bætt
svo búnað sinn að liðið er nú betur
í stakk búið til að takast á við hugs-
anlegan eldsvoða í Hvalfjarðar-
göngunum. Slökkvilið Reykjavíkur
hefur hins vegar látið þess getið í
erindum sínum að það hafi ekki
yfir að ráða búnaði sem nauðsyn-
legur væri í slíkum eldi. Þetta kem-
ur fram í pistli sem Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi og stjórnar-
formaður Spalar, skrifar á heima-
síðu Akraneskaupstaðar sem nefn-
ist Innlegg í brunavarnir í Hval-
fjarðargöngum. Stjórn Spalar lýsir
að sjálfsögðu áhyggjum sínum yfir
þessum vanbúnaði Slökkviliðs
Reykjavíkur og vonast til þess að
úr verði bætt hið fyrsta.
Varðandi flutning á bensíni og
olíu hefur stjórn Spalar samþykkt
ályktun um að þeir flutningar
verði takmarkaðir frekar en nú
er gert og að flutningur á
própangasi verði alfarið bannað-
ur. í því sambandi má þó nefna
að sú takmörkun sem fyrir hendi
er á flutningi hættulegra efna um
Hvalfjarðargöng er líklega strang-
ari en hjá öðrum þjóðum fyrir
sambærileg göng. Oliufélögin
hafa sjálfviljug hætt flutningi á
própangasi en því er ekki að
neita að bensín- og olíuflutningur
hefur frá því að göngin voru opn-
uð aukist verulega.
„Olíufélögin hafa réttilega bent
á að þeir bílar sem þau nota til
flutnings á eldsneyti séu vel úr
garði gerðir en þar á móti kemur
að ekki er gott að treysta því að
hinn almenni vegfarandi sé án
nokkurrar áhættu og þannig get-
ur vel búinn bensínbíll oröið
verulegur háski vegna aðgæslu-
leysis annarra vegfarenda. Olíu-
félögin benda einnig á að ekki sé
vitað hvað sé í förmum vöruflutn-
ingabíla eða hvernig ástandi
þeirra bifreiða sé háttað. Það leið-
ir hugann einmitt að eftirliti og
skoðun flutningabíla en án vafa
er ástæða til þess að skoða þann
þátt betur í þvi skyni að fækka
ferðum bifreiða í slöku ástandi
um göngin," segir Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi. -DVÓ
Verða betri ökumenn á eftir dv-mynd júlía imsland
Þetta var ógeðslega erfitt, sögðu tveir nemendanna en við lærðum mjög mik-
ið og teljum okkur verða betri ökumenn eftir þá fræðslu sem við höfum feng-
ið á námskeiöinu.
Meiri þekking - betri ökumenn:
Þrefalt lægri tjóntíöni
eftir ökunámskeið
Sjóvá-Almennar og Umferðarráð
héldu um daginn ökunámskeið í Fram-
haldsskólanum í Nesjum fyrir unga
ökumenn á aldrinum 17- 21 árs.
Þrír kennarar sáu um námskeiðið
sem nítján ungmenni frá Homafirði og
nágrenni sóttu. Ásamt umferðar-
fræðslu er mikil áhersla lögð á hóp-
vinnu nemenda á verkefnum, til dæm-
is hvernig ungur ökumaður getur
breytt aksturshegðun þannig að hann
lendi ekki í óhappi og hvemig helst
megi bæta umferðarmenninguna. Sam-
kvæmt könnunum hafa námskeið sem
þessi borið mjög góðan árangur og eru
þeir hópar sem sótt hafa námskeiðin
með þrefalt lægri tjóntíðni en saman-
burðarhópurinn sem ekki hefur mætt,
og auk þess eru tjón þeirra smærri og
færri alvarleg slys. -JI
Oryggisfilmur
og gleriö verdur
þrefalt sterkara
Glöi ehf s: 544 5770
Dalbrekku 22 Kóp.
www.gloi.is
Aðeins í Smáralind
L.____________________J
í Útilíf
Smáralind
Rýmum fyrir 2002 módelunum
Alltað
• Snjóbretti
• Snjóbrettaskór
• Snjóbrettabindingar
• Snjóbrettafatnaður
Skíðadagar
á sama tíma
Aðeins í Glæsibæ
25. október - 4. nóv.
ÚTILÍF
svóV-V-W á btetti °g vertu ^
SMÁRALIND
Sími 545 1500 • www.utilif.is