Alþýðublaðið - 19.03.1969, Blaðsíða 3
Britt segist aldrei
hafa elskað Seilers
— Ég hcf raunverulega aldrei
elskað Peter Sellers, segir sænska
leikkonan Britt Egland, fyrrum
eiginkona Sellers, sem nú er orð-
uð við ítalskan greifa í Róm. Britt
Ekland staðhæfði í skilnaðarrétt-
inum að Sellers hefði beðið henn-
ar í símtali og hefði hún sagt já,
án þess að bera snefil af heitum
tilfinningum í hans garð.
— Ef ég gifti mig á ný, þá
verður það af ást, segir Britt nú.
Það gengur fjöllunum hærra að
Britt Ekland sé nú ástfangin af
ítölskum greifa og kvikmyndafram-
leiðanda, Bino Cicogna, og sjáist
þau daglega í nærveru hvors ann-
ars.
Britt Ekland hefur verið orðuð
við fleiri menn í Róm, m. a. kvik-
mvndamanninn Giuliano Montaldo
og blaðakónginn Paclo Vassallo,
sem flaug nokkrum sinnum til
Bandaríkjanna til að vera í félags-
skap. léikkonunnar þegar hún lék
í mvnd í Hollywood, en Cicogna
virðist hins vegar hafa skotið þeim
báðum ref fyrir rass og slegið eign
sinni á Ekland.
Þau skötuhjúin geta þó ekki
vænzt þess að mega ganga í það
heilaga á næstunni, því Bino Ci-
cogna hefur enn ekki fengið skiln-
að frá fyrstu konu sinni, en sem
kunnugt er getur slíkt tekið lang-
an tíma á Italíu.
Leiðrétting;
Hvimleið prentvilla slæddist
inn í 'laugardagsgrein Gylfa Þ.
Gíslasonar viðskiptamálaráð
herra s-1. laugárdag. Þ,ar stóð
rétt framan við síðustu greina
skil í greininni: Hins vegar er
líka til fólk, sem ekkert lærir
og ekkert Iþroskast, 'þótt' árin
líði, og hefur í ellinni að öðru
leyti sömu skoðanir .. . Þarna
átti að standa: að öllu leyti.
Þessi glöp leiðréttast "hér með.
Framsóknarþingmaður sakar útvarps-
mann um hlutdrægni.
a Reykjavík — H.P.
í gær og fyrradag hafa farið
™ fram umræður á Alþingi um
9 áfengismál. Þetta er eitt þeirra
@ mála, þar sem ekki er um skýrar
Á flokkslínur að ræða, en í slíkum
a málum getur hitinn orðið hvað
[ mestur í umræðum. Verða þing
w mönnum þá stundum á munni
skemmtilegar athugasemdir.
I fyrradag var á dagskrá, breyt-
A ingartillögur á áfengislögunum. I
. ræðu er Sigurvin Einarsson (F)
™ flutti kom hann inn á, að nú væri
WP sá ófögnuður kominn til í Reykja-
A vík, sem nefndist næturklúbbar. —
A Taldi hann, að í sambandi við þá
^ starfsemi hefðu verið framin ein
grófustu áfengislagabrot, er orðið
W befðu í seinni tíð. Vitnaði bann m.
a. í Alþý'ðublaðið, en á forsíðu þess
ffe hefði, hinn 11. þ. m., birzt mynd,
a úr einum þessara klúbba. A hennt
m gæfi að líta stúlku, sem varla væri
a meira en 16 ára, og virtist hún hall-
. ast upp að vegg og varla vitað mikið
af sér! Taldi þingmaðurinn að þarna
mundi áfengið vera með í förurn.
& I framhaldi af þessum orðum fór
þingmaðurinn að ræða um þáttinn
„Daglegt lí£“ í útvarpinu sl. laugar-
dag, en þar taldi hann hafa gætt
mikillar hlutdrægni, er menn voru
spurðir um, hvort þeir álitu að leyfa
ætti næturklúbba í Reykjavík eða
ekki. Hefðu næstum allir, er spurð-
ir voru, talið æskilegt að leyfa slíka
starfrækslu, en það álit manna taldi
þingmaðurinn ekki geta verið rétta
spegilmynd af hug bprgarbúa til
slíkrar starfsemi.
Benedikt Gröndal (A) svaraði svo
þessum orðum Sigurvins í gær. Sagði
Benedikt, að Sigurvin hefði gert á-
rás á Arna Gunnarsson fréttamann,
er væri alls ómakleg. Arni hefði al-
drei sagt að þetta væru neinar skoð-
anakannanir, en svo hafði Sigurvin
nefnt þetta. Þetta væri og algengur
háttur fjölmiðlunartækja ýrniss kon-
ar. Sagði Benedikt, að sér væri og
kunnug um, að Arni vandaði mjög
til þessara þátta, og hefði jafnvel
haft vitni að því, að hann veldi að-
eins nöfn af handahófi úr símaskrá.
Það hefði aðeins verið tilviljun, að
í þessu tilfelli hefðu fleiri verið með
en móti.
Drykkjarvatninu ætti þá að vera borgié
Áformað að byggja tvo nýja stíflugarða við Elliðaár.
SENNILEGT er, að Reykvíking-
ar þurfi ekki í framtíðinni að óttast
mjög, að neyzluvatn þeirra mengist
vegna flóða í Elliðaánum, því að ráð-
gert er, að gera ráðstafanir, sem
koma í veg fyrir að slíkt geti gerzt.
Ritari óskast
í Fæðlngardaild Landspítalans er laus til umsóknar
'hálfsdags staSai læknairitara. Vinnutími fyrir hádegi.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun sam-
kvæmt úrskurði Kjaradóms. Umsóknir með upplý^s-
ingum um aldur, menn-lun og fyrrfi störf sendist
Sknifstofu ríkllsspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 30.
marz 1969.
Reykjavík, 18. marz 1969.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Alþýðublaðið 19. m'arz 1969 3
Þessa mynd birti Alþýðublaðið á forsíðu 11. þ. m. og varð hún að
umtalsefni á Alþingri í fyrradagr. Sigrurvin Einarsson, þingrmaðurf
FramsóknarfIokksins, áleit að hún væri af 16 ára stúlku|. s/em vissl
hvorki í þennan heim né annan vegrna áfengrisneyzlu.
Þingrmanninum hefur bama orðið á í messunni, því stúlkan er
f23 ára grömul ogr er að dansa einn af nýjustu dönsunum ogr bera/
ummæli Sigurvins með sér, að Öldungradeild Framsóknarflokksiins
fylgrist ekkl regrlulegra vel með nýjustu straumum danskúnstartnn
lar. Það var öðmvísi þegar amma var ung.
Sigurvin sat við sinn keip, kall-
aði þetta skoðanakönnun og sagðist
alls ekki hafa ráðist á neinn frétta-
mann, en talið, að útvarpsráð hefði
átt að sjá um að hlutleysis væri gætt.
Taldi Sigurvin, að full ástæða væri
til að leggja þáttinn niður, ef ekki
væri gætt hlutleysis.
Benedikt Gröndal sagði þá, að
skoðanir Sigurvins kæmu <;ngum á
óvart. Oldungadeildin í Framsókn-
arflokknum væri íhaldssamasti hlutí
þingmanna, en ekki væru þó allir
Framsóknarmenn eins sem betur
færi, og mundu ekki allir Framsókn-
armenn b'ta sömu augum á þennaa
þátt.
Sigurvin sagði enn, að ef öldunga-
deildin í Framsóknarfiokknum væri
svo slæm, þá hlyti unglingadeildin
í Alþýðuflokknum að standa fyrir
svona skoðanakönnunum.
Áformað er að byggja tvo stíflu-
garða við árnar í sumar, annan við
svonefndafi Kardimommubæ, en
binn hjá Nátthagavatni. Þessar
framkvæmdir eru taldar munu
kosta um fimm milljónir króna.
* Stíflan bjargar vatninu frá
mengun.
Þetta kom fram á blaðainanna-
fundi, sem Geir Hallgrrmsson.
Framjiald á bls. 10
ll.OkkSSIAICIIO
HAFNARFJÖRÐUR
Síðasta spilakvöld Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði á þessum
vetri verður haldið í Alþýðuhúsinu við Strandgötu n. k. fWmtu
dagskvöld. Stefán Júliusson rithöfundur flytur ávarp. Veitt verlða
góð kvöldverðlaun,
REYKJAVÍK
t
Listi uppstillingamefndar til stjórnarkjörs í Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur liggja frammi í skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu.