Alþýðublaðið - 19.03.1969, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 19.03.1969, Blaðsíða 12
12 Alþýðublaðið 19. marz 1969 SÚM Framhald af 9. síðu. Sp.: Teljið þið grundvöll fyrir rekstri Galleríe SÚM? Kristján: Já, á þann hátt sem við rekum það. Þ.e.s. við höldum því sjálfir gangandi, með eígiij vinnu og skotsilfri. — Það verður rekið með tapi. Sig.: Víð stofnuðum þetta gaiierie vegna þess að hér eru menn með alls konar hluti, sem er erfitt að fá inni með annarstaðar. Kristján: Það er eyðilegging á veggjum, sem menn setja fyrir sig, það er vond lykt, það er rafmagn, það er hljpð, og hitt og þetta. Og slíkt er iolk mjög hrætt við. Sp.: Hvað eruð þið að fást við í SÚM? Kristján: Það eru' sumir ungir menn sem eru með þann frasa að allt eigi að vera svo „gott“, og að abstrakt-sjón sé bara einhverskonar „dekor“, sem ekki hafi haft meinn tilgang. Einnig segja menn, nú sé popið „komið“ og að þá sé geóme- trían „búin“, nú sé popið aftur að deyja. Þetta er ægilegur misskilning- ur, vegna þess þetta hefur allt tilgang. Sig.: Fólkið héfur tilhneigingu til áð skilja málefnalega myndlist allt öðrum skilningi, en fígúrutíva, og abstraktsjón. Það vill sjá ákveðnar myndasög- ur; og fólk'spyr sig: af hverju setur hann þetta þarna, og þetta orð þannig, — slíkt er hindrun á veg skilningsins. ■» Sig.: Það fer að brjótar'heilann svo mikið um eitthvað nonsens, í stað þess að horfa á þetta einsog fallega stúlku. Það er miklu heil- brigðara. Kristján: Það er alveg eins hægt að skoða setningu sem tilfinningu, á sama hátt og rauður litur er til- finning, form. Myndlistarverk er ákveðið atmósfer, og það er ákveð- ið mentalitet. Ef þú hrífst af þessu mentaliteti þá hleðstu upp af þess- ari kennd. Og þegar þú ert upp- fullur af þessari kennd, þá krefst það af þér annarrar breytni. Þetta er að mínu áliti, aðal giidi listar að breyta afstöðunni til hlutanna, og þarmeð breyta heiminum í kringum þig. Afstaða þín til hlut- anna, það eru hlutirnir. Sig.: Spyrjið mann sem er ást- fanginn af stúlku; hann byrjar ekki á að telja fram nef, höku, munn. Sp.: Hver er afstaða ykkar í SÚM til málara af eldri kynslóðinni? Sig.: Ég held að afstaða SÚM manna sé ákaflega pósitív til cldri málara. i Erns og falleg vefcjaraklukka meS slitna fiöður Kristján: Verk þeirra virka á mann eins og falleg vekjaraklukka með slitna fjöður. Þau höfðu gildi á sínum tíma fyrir mig, en hafa það ekki Iengur. Sp.: Hvernig er hægt að veita listinni hjálparhönd, án þess það breytist í einhverskonar umbun við gamla afreksmenn? Sig.: Hollendingar hafa kerfi sem þek kalla „kontrapresstansi“. Það virkar þannig að frá ríkinu, og Síðan frá listasöfnunum koma menn og meta allar aðstæður, hvernig listamaðurinn vinnur o.s.f.v., taka A—5 myndir á ári, og þú færð pcninga til að lifa af á meðan. Flest- ir málarar njóta góðs af þessu. Sjón- •armiðið hjá þeim er: Við tökum alla, borgum þeim Iftið kaup, þann- ig að þetta verði ekki eftirsóknar- vert og útilokum um leið að menn fari útí þetta sem business. Ollum er greitt jafn rnikið, því þeir telja sig þess ekki umkomna að velja og dæma einstaka úr hópnum. Þess vegna styrkja þeir alla. Raunin hef- ur orðið .sú, að síðan heltast hinir lélegri úr lestinni, sauðirnir skiljast sjálfkrafa frá höfrunum. Sp.: Hvaða gildi hefur menntun málara? Sig.: Prófin gera engan fleygan, þú getur menntað þig í fjölda ára, en möguleikar þínir í þjóðfélaginu breytast ekki við það. Það er raun- ar ágætt, því skólar geta ekki garenterað góða myndlist. Menn verða að sprengja skólana utanaf sér. Kristján: Persónulega held ég að þeir séu ágætir, en ég hef aftur á móti aldrei gengið á skóla. Aðalatriðið er að vera f félagsskap góðra málara, að vera innanum fólk, sem er 5 einhverjum átökum. Ef listamaður er mjög frjór, þá þarf hann ekki á skóla að halda. Sigurður: Skólar ættu að leggja mun meiri áherzlu á að þroska nemandann með hugmyndáfræði- kennslu t.d., heldur en eilífu tækni- bragðastagli. Teknikin er núll í nútíma myndlistarverki. Sama gild- ir þetta eilífa nudd um kompósisjón. Sp.: Hver er afstaða ykkar til gamalla listatradisjóna? Kristján: Eg finn ckkert fallegt í þeim. Eg veit að Móna Lísa er meistaraverk, en hún virkar ekki á mig sem fegurð, ekki lengur. Sama gildir Van Gogh, hann hefur engin áhrif á mig. Fyrir mörgum árum síðan fannst mér hann óskaplega góður málari, sem hann eflaust hef- ur verið, en ef ég mundi byrja að mála eins og Van Gogh í dag, þá mundi ég kasta upp á hvert einasta verk sem ég gerði. Það er nú svona með þessa ágætu myndlist, að mað- ur er búinn að skilja hana í eitt skipti fyrir öll, og er orðinn mettur af henni. Oll list og öll fegurð er svo óskaplega háð tímanum. Sp.: Teljið þið að myndlistin túlki það þjóðfélag sem hún er sköpuð í? Kristján: Myndlist okkar túlkar ekki það þjóðfélag sem við lifum í. Sem myndlistarmaður gæti ég alveg eins verið þjóðverji eða eitthvað allt annað. Annars eru litlar líkur á því að popmálverk veki hrifningu hjá einhverjum eskimóum uppá grænlandsjökli. Islenzk myndlist túlkar engin séríslenzk vandamál, við erum ekki íslendingar sem málarar, heldur þá kannski frekar evrópumenn. Sig.: Sumir halda að myndlistar- menn hafi éinhverskonar samtök um það að mála svona myndir núna og hinsegin myndir næst, en mynd- listin vex bara upp svona af sjálfu sér þannig að blóm sömu ættar vaxa upp á tveimur mismunandi stöðum samtímis. Þó hafa Skandínav ar ofast verið byggjendur, en Þjóð- verjar, Frakkar og Spánverjar eru meiri fanatíkerar og þarafleiðandi frjórri, þeir hafa tilhneigingu til að ganga lengra. Kristján: Hinir beztu skandina- vísku myndlistarmenn eru þeir sem slitnað hafa frá þessum skandina- víska móral. Engin ástæða að vlta neitt um Leenardo Sp.: Skiptir gærdagurinn máli fyrir Jistmálara? Sig.: Nei, þetta virkar á mig eins og samhangandi nýsköpun. Gærdagurinn er fyrir hendi, en maður hefur ekkert við gærdaginn að gera, engin ástæða tilað brjóta heilann um hann. Aðalatriðið fyrir myndlistarmann er að vera spontant, þá sérstaklega í hugsun. Kristj.: Það er engin ástæða fyr- ir málara að vera vel að sér í sögu málverksins langt aftur í aldir. Það er ef ti! viil skemmtilegt, en ekkert fram yfir það. Málari í dag þarf ekki að vita neitt um Leónardó Da Vinci, ekki einusinni að hann hafi verið til, vegna þess það eru ótalmargir af- burðargóðir myndlistarmenn, sem við höfum aldrei heyrt getið um, og hví •skyldum við ekki alveg eins þurfa að vita um þá, eins og Leónardó Da Vinci. Sp.: Hvað finnst ykkur um tengsl milli ungra hreyfinga í mis- munandi listgreinum? Sig.: Já, sem kúnst er þetta allt undir sama hatt, þetta er aðeins spuratng um matrfal, form. Þú getur alveg eins notað lykt eða hljóð, eða jafnvel snertingu. Til dæmis ef hljómlistarmaður heldur happening, þá getur verið erfitt að greina í milli hvort urn er að ræða tónlist eða myndlist. Ljóðlistin hefur seilzt inn á svið myndlistarinnar með graphískri ljóðagerð, þar sem upp- setning ljóðsins er hluti af list ljóðsins. Kristján: Myndlist í dag er oft hreint og beint Jesin. Þú getur notað hvað sem er t myndlist, vafið inn í hana orðum, og fengið þar ready made ástand gegnum eitt orð. Alveg því sama og maður getur náð með að mála ákveðna athöfn inn í verkið. Þú getur sett hljóð í myndlistarverk, það er oft gert til að ná ákveðnum áhrifum, ákveðnum tilgangi. Þar er öllu til fórnað. Það eru engín takmörk til. Það hafa aldrei verið til nein takmörk, menn héldu það bara. Fyrir myndlistarmann er hinn tekníski „skalli“ orðinn allt sjáan- legt, fyrir tónlistarmann allt sem eyrað nemur. Sp.: Getur listamaðurinn lifað einsog venjulegur góðborgari? Kristján: Það eru ýmsir hlutir, sem ágætt er fyrir listamann að komast yfir, einsog til dæmis sjáifs- virðing. Sigurður: En það er bara karakter veila hjá Iistamönnum að vilja sníða sig að þjóðfélaginu. Þeir geta það ekki nema sníða af list sinni á móti. I’að er ekki heppilegt fyrir málara að keppa að því að koma sér upp húsi og bíl, það er ekki hægt að þjóna tveimur herrum. Kristján: Það er alltílagi með bíl, hús, og gott líf, sé það afleið- ingin af list þinni, en að beygja listina undir þetta, þá ertu kominn á villigötur. Sp.: Hvað finnst ykkur um fjár- festingu almennings í listaverkum? Kristján: Hún er ótrúlega hlægi- leg. Ég þekki öngvan peningamann á íslandi í dag sem hefur vit á myndlist. Meðan söfn erlendis leggja áherzlu á að kaupa upp yngstu málarana, vegna þess hinir viðurkenndari eru einfaldlega orðn- ir of dýrir fyrir venjul. söfn. Hvernig ætti Listasafnið svo sem að geta sýnt hvað er að gerast í myndlist í clag með slíku háttalagi sem .hér tíðkast, eða gagnstæðu. Sigurður: En auðvitað á Listasafn- ið_að hafa annan tilgang en bara að eiga myndlist. Það má líka sýna myndlist. Það er jú þess vegna sem safnið er til, að sýna myndlist. Hvenær sér maður til dæmis erlend- ar sýningar á safninu hérna. Kristján: Það er einkennilegt, að safnið skuli ekki eiga nema eina mynd eftir Ferró, það er mikil smán. Sigurður: Það er voðalegt. Aukið aktsvitet Kristján: Það er stórfurðulegt. Sp.: Er hægt að stytta leið fólks- ins til listarinnar á einhvern hátt. Kristján: Það gerist, held ég, bara með auknu aktiviteti. Sp.: Hvert teljið þið vera hlutverk lisSræðinga? Kcistján: Listfræðingar eiga ekki að-grafa sig einsog moldvörpur aft- ur; í miðaldir, því ef þeir skilja ekki listina í dag, þá eru þeir ónot- ha'fif til síns brúks. Það eru anzi margir meðal listfræðinga sem eru í litium tengslum við nútímann. Þeir eru svo hrifnir af þessu námi sínu, þessari listsagnfræði. (Þeir endá" éinsog 5—6 fallegar bækur í bókahillu). Sigurður: Það er ennþá verið að ræða það vandamál hérna á Islandi, hvort fólkið skilur listina. Fólkið hefur aldrei kært sig um listina. I-istin á ekki að fara til fólksins, heldur á fólkið að koma til listar- innar. Kristján: Að vera það sem kallað er alþýðlegur listamaður er eins og að hlaupa á eftir fólki með rjóma bollur. Sá sem gerir list sem enginn vill kaupa er kallaður asni, þanrúg hefur þetta alltaf verið, og það er hreint engin tragedia. Sp.: Hvað viljið þið segja um mvndlistargagnrýnina ? Kristján: Flestir gagnrýnendanna eru eldri málarar og gagnrýnin mótast altént af því. Sigurður: Gagnrýnandinn skilur oft á tíðum ekki hvert listamaður- inn er að fara, vegna þess hann er óf bundinn eigin hugmyndum, sem hann vill ómögulega leggja frá sér, eða getur ekki Iagt frá sér. Þá skrif- lar hann eftirvill sttningar ’sem þessa: „Og var þar ekki margur feitur bitinn". Sífellt er verið að væna menn utn að keppast aðeips við að vera sem frumlegastir, sem er hrein della. Sigurður: Og svo er þetta eilífa raus um einhver eilíf prínsip, þrosk- aða kompósísjón, litagleði eða ein- hverja álíka þvælu. Kristján: Málari getur stefnt markvisst að því að gera mvnd fumkennda, væmna eða hallærislega og náð þannig tilgangi sínum. Við kveðjum Gallerie SUM pð sinni, og þrömmum útí rigninguna. Ölafur Kvaran Ólafur Haukur Símonarsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.