Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
I>V
Fréttir
íslenskur kvótadómur í skoðun hjá Sameinuðu þjóðunum:
Vatneyrarmálið fyrir
mannréttindanefnd
- óskað hefur verið eftir greinargerðtun málsaðila
Vatneyri BA 238 frá Patreksfiröi
Svavar Guönason útgerðarmaður og Björn Kristjánsson, skipstjóri á Vatneyr-
inni, eftir heimkomuna úr síðasta veiðitúrnum.
Mál Björns Kristjánssonar, skip-
stjóra á Vatneyri BA 238, sem kærö-
ur var 1999 fyrir að hafa stundað
ólöglegar fiskveiðar án þess að hafa
til þess veiðiheimildir er nú til með-
ferðar í mannréttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna. Nefndin hefur þegar
óskað eftir greinargerð lögfræðings
skipstjórans og ríkisins um málið.
Það ræðst síðan væntanlega af nið-
urstöðu þar hvort málið verður í
framhaldinu lagt fyrir mannrétt-
indadómstól Evrópu.
Forsaga málsins er sú að 15. febr-
úar 1999 fréttist af Vatneyrinni BA
238 frá Patreksfirði á leið til lands
með 35 tonn af fiski þótt báturinn
hafi fyrir veiðiferðina aðeins haft
heimild til að veiða tvö tonn sam-
kvæmt kvótastöðu skipsins. „Ef
þeir kæra mig ekki þá kæri ég þá
fyrir að kæra mig ekki,“ sagði Svav-
ar R. Guðnason útgerðarmaður í
samtali við DV á landstíminu. Vildi
hann með þessu fá dómstóla til að
skera úr um réttmæti þess að
skerða rétt manna í skjóli kvóta-
kerfis til að stunda fiskveiðar. Sagði
Svavar að ef héraðsdómur sýknaði
útgerðina þá væri kvótakerfíð í
raun hruniö.
Daginn eftir tók Fiskistofa sig til
og svipti Vatneyrina veiðileyfi.
Starfsmenn Ríkislögreglustjóra
fóru á stúfana og reiknuðu út veið-
ar skipsins utan kvóta og var kæra
undirbúin af hálfu saksóknara og
útgerðarmaður og skipstjóri dregnir
fyrir rétt á Vestfjörðum.
Þau stórtíðindi gerðust svo 6. jan-
úar árið 2000 að Héraðsdómur Vest-
fjarða sýknaði áhöfn og útgerð af
því að hafa stundað ólöglegt athæfi
og byggði m.a. á stjórnarskrár-
tryggðum rétti manna til atvinnu og
ákvæða um að auðlindir væru þjóð-
areign. Ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar voru hins vegar sannfærðir um
að Hæstiréttur myndi snúa við úr-
skurði héraðsdóms. Var fullyrt að
ráðamenn hafi í framhaldinu beitt
réttinn miklum þrýstingi í málinu.
Niðurstaðan varð reyndar sú að
Hæstiréttur sneri úrskurði Héraðs-
dóms Vestfjarða við þann 6. apríl
2000 og sakfelldi ákærðu.
Svavar Guðnason útgerðarmaður
og Björn Kristjánsson skipstjóri hafa
hins vegar ekki viljað una dómi
Hæstaréttar. í framhaldinu var
ákveðið að halda áfram með málið á
alþjóðlegum vettvangi.
Lúðvík Kaaber lögfræðingur fer
með mál Bjöms og sagði hann málið
hafa gengið heldur seinna fyrir sig
en hann hafi gert ráð fyrir. Ákveðið
var að leggja það fyrst fyrir mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóðanna
og í framhaldi af því fyrir Evrópu-
dómstólinn. Hefur nefndin nú óskað
eftir greinargerð þeirra um málið og
er verið að ganga frá henni.
Lúðvík segir að mannréttinda-
nefndin muni gefa út sitt álit eftir að
hafa yfirfarið málið. „Ef niðurstaðan
verður sú að ísland er talið hafa
brotið mannréttindasamþykkt SÞ, þá
verður íslenska ríkið spurt frekar
höstuglega hvernig það hyggst
tryggja það að eftir samþykktunum
verði farið.“
Nefndin gaf ríkinu frest tU 15. maí
til að skila greinargerð vegna máls-
ins, en það var ekki gert. Eftir að
nefndin ítrekaði ósk sína og þrýsti á
íslensk stjórnvöld skilaði greinar-
gerðin sér loks á haustdögum. Lúð-
vík segist ekki vita hvenær niður-
stöðu er að vænta, en gera megi ráð
fyrir að það verði ekki fyrr en eftir
nokkur misseri eða jafnvel ár.
-HKr.
Vél Rugmálastjórnar.
Flugleiöir:
Farþegalistar
geymdir í ár
Farþegalistar hjá Flugleiðum eru
geymdir i eitt ár samkvæmt upplýs-
ingum frá Guðjóni Arngrímssyni, upp-
lýsingafulltrúa félagsins. „Það eru
engar reglur til sem skylda okkur til
að geyma þessar upplýsingar en félag-
ið ákvað að gera þetta svona,“ sagði
Guðjón.
Eins og DV greindi frá lætur Flug-
málastjóm fleygja farþegalistum TF-
FMS, vélar Flugmálastjórnar, fljótlega
eftir að ferðum lýkur. Þannig er ekki
hægt að fá upplýsingar um það hvaða
farþegar hafi ferðast með vélinni sem
gjarnan er leigð ráðherrum eða ríkis-
stofnunum til ýmissa ferða innanlands
og til útlanda. Af ráðuneytunum hafa
aðeins umhverfisráðuneytið og félags-
málaráðuneytið upplýst DV um það
hverjir hafi ferðast með vélinni. Þá
upplýsti embætti forseta íslands blað-
ið um tilefni ferða og hverjir hafi far-
ið. Upplýsingar varðandi önnur ferða-
lög eru ekki tiltækar. -rt
Hannes á mögu-
leika á sigri
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði
Helga Ólafsson á minningarskákmót-
inu í Ráðhúsinu í gær og er í öðm til
fimmta sæti, hálfum vinningi á eftir
Ivan Sokolov sem gerði jafntefli í gær.
Spennan er þvi í hámarki fyrir síðustu
umferðina í dag og auk Sokolovs og
Hannesar eiga Jan Timman og Peter
Heine Nielsen, sem deila öðm sætinu
með Hannesi, og Jaan Ehlvest og Lars
Schandorff einnig möguleika á að ná
efsta sætinu fari allt á versta veg hjá
efstu mönnum. Hannes teflir gegn
Schandorff í dag og Sokolov gegn Frið-
riki Ólafssyni sem staðið hefur sig
með prýði á mótinu. Það má því segja
að það sé að stóram hluta undir
frammistöðu Friðriks í dag komið
hver fer með sigur af hólmi. -HK
DV-MYND BRINK
Pétur Már Olafsson veitir Bjarna Bjarnasyni Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
Bjarni skemmti viöstöddum í þakkarræðu sinni með því að segja þeim stystu skáldsögu í heimi: „Palli var einn í
heiminum. Svo var þankað, “ og túlka hana á ótal vegu, sem spennusögu, biblíusögu, sögu um geðveiki, sálfræðilega
skáldsögu og lýsingu á hinum fírrta nútímamanni m.m. Sjá viðtal við Bjarna á bls. 17.
Hafrannsóknastofnun undir smásjá:
Tveir sérfræðingar
skoða stofnunina
Fram kom í ræðu Áma Mathiesen
sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ í
gær að hann hefur fengið tvo óháöa
sérfræðinga til að fara yfir og meta
störf Hafrannsóknastofnunar og þá að-
ferðafræði sem hún beitir við stoíh-
stærðarmat sitt - sérstaklega á þorski.
Sagði ráðherrann að sjónarmið þessara
sérfræðinga myndu koma fram á sér-
stöku fyrirspumaþingi sem ráðuneytið
hefur boðað tfl og á að ræða faglega og
fræðilega stöðu Hafrannsóknastofnun-
ar og stofnamælinga við landið. Áður
hefur komið fram að ráðherrann hefur
óskað eftir áliti Andrews Rosenberg,
deildarforseta líffræði- og landbúnaðar-
deildar Háskólans í New Hampshire, á
Á LÍÚ-fundi
Árni Mathiesen sjávarútvegsráöherra
á aðalfundi LÍÚ í gær.
störfum stofnunarinnar en í gær upp-
lýsti hann að hann hefði einnig fengið
Tuma Tómasson, forstöðumann Sjávar-
útvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna, til
að taka saman helstu gagnrýni fræði-
legs eðlis sem fram hefur komið á störf
Hafrannsóknastofnunarinnar og leggja
mat á vísindalegan og faglegan grund-
völl gagnrýninnar. í ræöu Áma kom
fram að Andrew Rosenberg hefur þeg-
ar látið þá skoöun í ljósi að hjá Haf-
rannsóknastofnun sé margt mjög vel
gert og því er ekki að búast viö gagn-
rýni á nein grundvallaratriði í störfum
hennar frá honum. Frekar að athuga-
semdir verða að ræða sem lúta að út-
færslu. Tumi mun hins vegar skila
verkefni sínu af sér með erindi sem
hann mun flytja á væntanlegu fyrir-
spumaþingi. Andrew Rosenberg mun
jaíhframt flytja þar tölu en hann mun
hins vegar ekki skfla af sér fyrr en
næsta vor. -BG
Fjárfest fyrir 41 milljarð
Það kom fram í
svari Valgerðar
Sverrisdóttur við-
skiptaráöherra við
fyrirspurn Svan-
fríðar Jónasdóttur
á Alþingi um er-
lendar íjárfestingar
hér á landi að þær
nema um 41 milljarði króna. Þá
hafa erlend fyrirtæki fjárfest í at-
vinnurekstri hérlendis á síðasta ári
fyrir 12,4 miljarða króna. - RÚV
greindi frá.
Heildartjón 2,2 milljarðar
Heildaruppgjöri á tjónum vegna
jarðskjálftanna á Suðurlandi í júní í
fyrra er að mestu lokið. Samkvæmt
upplýsingum Viðlagatryggingar ís-
lands varð bótaskylt tjón á 2.500
eignum, eða matshlutum, og heild-
argreiðslur nema 2.215 miljónum
króna.
Keyrir um þverbak
Kristján Ragnars-
son, formaður
Landssambands Is-
lenskra útvegs-
manna, gagnrýndi
hart verðmyndun
olíu tO fiskiskipa á
aðalfundi samtak-
anna. Sagði hann
að nú keyrði um þverbak i þessu
efni. Álagning íslensku olíufélag-
anna hefði hækkað um 50% á einu
ári og verð á skipaolíu hér væri í
dag íjórðungi hærra en í Færeyjum.
Þörf væri opinberrar rannsóknar á
verömyndun á olíu hér á landi.
Lágt verð á þotueldsneyti
Verð á þotueldsneyti hefur ekki
verið lægra í tvö ár. Verðið er nú
rúmir 207 Bandaríkjadalir fyrir
tonnið en var 260 dalir að meðaltali
i septembermánuði. Fara þarf allt
aftur til októbermánaðar 1999 til að
fmna dæmi um lægra verð en þá
var verðið 206 dalir fyrir tonnið. -
Mbl. greindi frá.
111% hækkun
í leiðara frétta-
bréfs samtaka at-
vinnulífsins segir
Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri að
laun flugumferðar-
stjóra hafi hækkað
um 111% frá 1987.
Þessi hækkun sé
einsdæmi hér á landi og þótt víðar
væri leitað. Heildarlaun flugumferð-
arstjóra séu að jafnaði 522 þúsund á
mánuði.
Haldið til haga
í frétt DV í gær þar sem haft er
eftir Birni Karlssyni brunamála-
stjóra hver réttindi slökkviliös-
stjóra á vettvangi séu skal áréttað
að þar sem stóð að morgunljóst
væri að kröfur sveitarstjórans um
að hætta slökkvistarfi hefðu verið
út í hött voru túlkun og orð blaða-
manns en ekki brunamálastjóra.
-Hkr.Asbs.
i helgarblaö
í Helgarblaði DV
á morgun er fjallað
um feril Þórunnar
Aðalsteinsdóttur
sem í vikunni var
dæmd í Héraðs-
dómi fyrir að hafa
svikiö mOljónatugi
út úr átta öldruðum
einbúum víðs vegar um landið. Þór-
unn er 66 ára gömul, átta barna
móðir og hefur lengst af starfað við
skúringar.
Einnig er hressOegt viðtal við Al-
freð Þorsteinsson stjórnmálamann
sem segir hispurslaust skoðun sina
á pólitíkinni. Rætt er við Þorvald
Þorsteinsson, rithöfund og fjöllista-
mann, sem er ótrúlega afkastamik-
01. Geir Ólafsson söngvari kemur
við sögu, DV rifjar upp íslenskan
harmleik viö Rauðavatn og birtur
er kafli úr bókinni Eyðimerkur-
blómið eftir Warie Dirie og fjaOað
um íslenska tónlist í erlendum fjöl-
miðlum.