Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
Fréttir I>V
Krabbameinsrannsóknir íslenskrar erfðagreiningar ekki hafnar:
Persónuvernd sögð
standa í veginum
- engin mál óafgreidd hjá okkur, segir framkvæmdastjóri Persónuverndar
Mikill kurr er
sagður innan ís-
lenskrar erfða-
greiningar vegna
samskipta fyrir-
tækisins við Per-
sónuvemd, en
samkvæmt heim-
ildum DV hefur
Persónuvemd sett
íslenskri erfða-
greiningu mun
strangari skilyröi fyrir krabba-
meinsrannsóknum en öðrum aðil-
um, s.s. Krabbameinsfélaginu og
Urði Verðandi Skuld. Þettta hefur
orðið til þess að íslensk erfðagein-
ing hefur enn ekki hafið rannsókn-
ir sínar.
Talsvert hefur gengið á í sam-
skiptum ÍE og Persónuvemdar upp
á síðkastið og ÍE hefur ekki getað
hafið neinar rannsóknir á grund-
velli þeirra samninga sem fyrirtæk-
iö gerði við Krabbameinsfélagið
snemma ársins og hefur DV fyrir
því traustar heimildir að ÍE hafi
verið gert að sæta „allt öðrum og
strangari reglum en öllum öðrum
sem koma að svona rannsóknum"
eins og það var orðað við DV. Þá
eru heimildir fyrir því að þetta hafi
reynst ÍE fjárhagslega dýrt.
Því kemur á óvart að Páll Magn-
ússon, fjölmiðlafulltrúi ÍE, vill ekki
tjá sig efnislega um málið en þegar
DV hafði samband við hann í gær
sagði hann einungis: „Við viljum
ekki tjá okkur um þetta mál á þessu
stigi.“
Þegar þetta var borið undir Sig-
rúnu Jóhannesdóttur, forstjóra
Persónuverndar, sagði hún að
alls ekki væri um neina mismun-
un að ræða. „Ég get í rauninni
ekki sagt neitt um svona fullyrð-
ingu meðan hún er algjörlega
órökstudd. Persónuvernd starfar
eftir settum lögum og reglum og
fylgir þeim varðandi öll erindi
sem berast, alveg óháð hvaða aö-
ili á i hlut. Þessum aöfinnslum
sem þú berð undir mig get ég því
ekki svarað meðan þær eru óút-
skýrðar og órökstuddar," sagði
Sigrún.
Þeirri spurningu hvort ÍE hafi
átt í efiðleikum með að uppfylla
einhver þeirra skilyrða sem þeim
eru sett svarði Sigrún þannig að
nokkuð væri um
liðið síðan síðast
hafi verið gerð
úttekt varðandi
ÍE og þá hafi
ekkert óeðlilegt
komið I ljós. En
hver er þá skýr-
ingin á því að
fyrirtækið hefur
ekki hafið þær
rannsóknir sem
hafnar?
„Þú verður að spyrja þá um
það, en það er ekki vegna þess að
fyrirtækið hafi ekki fengið öll
umbeðin svör. Mér er alveg
ókunnugt um hvað getur valdið
því, hér er ekkert óafgreitt,"
sagði Sigrún. -gk
Lækkun á bensínverði um 4 krónur:
Leiðir til 0,2 prósenta
lækkunar verðbólgu
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra:
Sjúkraliðadeilan
nánast á byrjunarreit
Fjögurra
króna lækkun
oliufélaganna á
lítraverð á elds-
neyti leiðir til
tæplega 0,2 pró-
senta lækkunar
á vísitölu
neysluverðs,
eða 0,19 prósent,
samkvæmt upp-
lýsingum Jökuls
Péturssonar á
Hagstofu ís-
lands. Þetta
samsvarar tæp-
lega 0,2 prósenta lækkun á verð-
bólgu.
Olíufélögin lækkuðu í gær bens-
ínverð um fjórar krónur á lítrann.
95 oktana bensinið kostar nú með
fullri þjónustu hjá öllum þremur
félögunum 95,70 kr. Og 98 oktana
bensinið kostar 100,40 kr. Ef bileig-
endur dæla sjálfir er veittur
tveggja til þriggja króna afsláttur.
Á sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB,
sem eru í eigu Olíss, og hjá Esso
Express, kostar
lítrinn nú 91,30.
Ódýrast er svo
bensínið á
sjálfsafgreiðslu-
stöðvum
Orkunnar. Þar
er verðið á 95
oktana bensín-
inu 91,10. 99
oktana bensín-
ið kostar þar
99,90.
Samkvæmt
útreikningum
Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda voru öll
efni til þess að lækka bensínlítrann
um 5 kr. Talsmaður FÍB sagöi í gær
í samtali við DV að svo virtist sem
oliufélögin væru að auka álagningu
sína á bensínið. Það mál væri í sér-
stakri athugun hjá félaginu og væri
niðurstöðu að vænta fljótlega.
Ef lítraverðið hefði lækkað um 5
krónur hefði það leitt til 0,24 pró-
senta lækkunar á vísitölu neyslu-
verðs. -JSS
„Ég hef mjög
miklar áhyggj-
ur af sjúkra-
liðadeilunni og
ég hef fylgst
með því alvar-
lega ástandi
sem skapast
við þessi stuttu
verkföll, sér-
staklega á
stærsta spítal-
anum. Starf-
semin lamast
meira og
minna og þetta
virkar í sjálfu sér eins og stöðugt
verkfall," sagöi Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra í gær. „Ég
legg þunga áherslu á að þetta mál
fari að hreyfast og þá þurfa
sjúkraliðar líka að hreyfa sig,
málið er nánast á upphafsreit sem
er það alvarlegasta i málinu."
Jón Kristjánsson hafnaði því að
ríkið væri erfiður viðsemjandi,
búið væri að semja við allar stétt-
ir í heilbrigðismálum nema
sjúkraliða og
bráðabirgða-
samkomulag
væri við lækna
sem rennur út
í febrúar.
Samningsum-
boðið er hjá
Geir Haarde
fjármálaráð-
herra og hans
fólki.
Jón sagðist
enn fremur
hafa áhyggjur
af flótta sjúkra-
liða úr stéttinni. „Ég hef alltaf
sagt að við verðum að skoða
starfsumhverfi þessarar stéttar og
gera það aðlaðandi að vera í
henni. Launin eru þar stór þáttur
en ef þaö er eitthvað annað sem
hægt er að skoða í því sambandi
þá er ég til í aö skoða það. Það er
auðvitað nauðsynlegt að náist
saman hið fyrsta um launin við
þessa mikilvægu stétt,“ sagði heil-
brigðisráðherra. -JBP
Athuga aukna álagningu
Félag íslenskra bifreiöaeigenda athugar
nú sérstaklega hvort oiíufélögin séu að
auka álagningu sína á eldsneyti.
Deilan dregst á langinn
Ráöherra leggur þunga áherslu á ab
hreyfing komist á samningaviöræöur
sjúkraliöa og viösemjenda.
Suðureyri:
Fiskikar fauk
á mann
Björgunarsveitarmaður, sem var
að störfum á Suðureyri í gær, varð
fyrir því að fiskikar fauk á hann.
Talið er að maðurinn hafi rifbrotn-
að og hann meiddist einnig á fæti.
Hann var fluttur á sjúkrahús til að-
hlynningar.
Viöa vestanlands var mjög
hvasst í gærkvöldi og fram eftir
nóttu. Vindurinn fór t.d. í 64 m á
sekúndu á Þverfjalli á Breiðadals-
heiði., Víða var eitthvað um að
smáhlutir væru að fjúka og þurfti
aö huga að ýmsu en ekki er kunn-
ugt um aö veðriö hafi valdið alvar-
legu tjóni. -gk
Sprengju-
hótun rakin
Rýma varð Flugstöö Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli i
grkvöldi eftir að tilkynning barst í
síma á tíunda tímanum um að
sprengja væri í stöðinni.
Engir farþegar voru í flugstöð-
inni á þessum tíma en greiðlega
gekk að koma starfsfólki úr bygg-
ingunni. Síðan fór fram „hefðbund-
in“ leit þar sem m.a. tóku þátt
sprengjusérfræðingar frá Land-
helgisgæslunni en engin sprengja
fannst.
Símtalið var rakið og er vitað
hver þarna var að verki. Sá mun
væntanlega fá á sig dóm fyrir vik-
ið, enda svona hlutir litnir mjög al-
varlegum augum. -gk
Tveir á slysadeild
Mjög harður árekstur tveggja
bifreiða varð á mótum Suðurhlíð-
ar og Bústaðavegar í Reykjavík
um kvöldmatarleytið í gær.
Bifreiöarnar skullu saman af
miklum krafti og varð að flytja
ökumann annarrar þeirra á slysa-
deild, sem og farþega úr hinni bif-
reiðinni. Fólkið var ekki talið al-
varlega slasað en bifreiðarnar
voru mikið skemmdar. -gk
Tveir slasaðir í
Kringlumýri
Lögreglan í Reykjavík varð að
loka Kringlumýrarbraut fyrir
umferð á níunda tímanum í
morgun vegna áreksturs.
Þar skullu saman tvær bifreið-
ar og þurfti að flytja tvo úr þeim
á slysadeild. Ekki var yitað um
meiðsli þeirra þegar DV hafði
samband við lögreglu í morgun.
-gk
Veðrið í kvöld
Snjókoma norðanlands
Suðvestanátt, 15-20 m/s SV-lands en hægari
annars staöar. Skúrir eða él sunnan og vestan til
en víöa léttskýjað noröaustanlands. Snýst í N
8-13 meö dálítilli snjókomu eða éljum
noröanlands í kvöld en fremur björtu veöri
suðvestanlands. Hiti 3 til 9 stig, hlýjast austan til.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.08 16.44
Sólarupprás á morgun 09.17 09.10
Síódegisflóð 19.03 23.36
Árdegisflóð á morgun 07.19 11.52
Skýringar á veðurtáknum
^VINDÁTT lOV-Hm -10° '^►VINDSTYRKUR VroncT í úiiítriiih á soktimlu i HEIÐSKÍRT
3D D3 o
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
V w Q
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
W =====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Færð,
Hálka á heiðum og fjöllum
Á hringveginum er víöa hálka á heiðum
og fjallvegum. Þannig er um
Hellisheiði, Holtavörðuheiöi, á
Vatnsskaröi og Öxnadalsheiöi. Þá er
hálka á heiðum bæöi fyrir vestan og
austan og skafrenningur var á
Rafnseyrarheiöi í morgunsáriö.
Veturinn kominn
N 8-13 meö dálítilli snjókomu eða éljum norðanlands en fremur björtu
veöri suðvestanlands. Frost víöa um land.
Sunnud
Vindur:
3-8 m/s
Hiti 0° tii -6°
Manud
m
Vindur:
5—10 m/s
Hlti 4° til -0°
Þriöjudagur
Vindur:
4-9 m/»
Hiti 0° til -5°
Breytlleg átt, 3-8 m/s og
stöku él. Frost 0 tll 6 stlg.
Austlæg átt, 5-10 m/s og
dálítll slydda sunnan til en
stöku él annars staðar.
Hlýnar litlllega í veðri.
Fremur hæg breytileg átt
og stöku él, elnkum
sunnan og austan tll.
Kólnandl.
Veðrið kl. 6
AKUREYRI skýjaö 7
BERGSSTAÐIR skýjað 5
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 5
KEFLAVÍK hagl 3
RAUFARHÖFN léttskýjaö 5
REYKJAVÍK skúr 5
STÓRHÖFÐI slydduél 4
BERGEN súld 11
HELSINKI skýjaö 1
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 4
ÓSLÓ skýjaö 5
STOKKHÓLMUR -1
ÞÓRSHÖFN skýjaö 10
ÞRÁNOHEIMUR rigning 5
ALGARVE heiöskírt 16
AMSTERDAM skýjaö 8
BARCELONA skýjaö 13
BERLÍN skýjað 5
CHICAGO alskýjað 17
DUBLIN alskýjaö 11
HALIFAX skýjaö 12
FRANKFURT léttskýjaö 2
HAMBORG rigning 10
JAN MAYEN rigning 5
LONDON mistur 5
LÚXEMBORG léttskýjaö 5
MALLORCA léttskýjaö 10
MONTREAL alskýjaö 13
NARSSARSSUAQ heiöskírt -5
NEWYORK þokumóöa 14
ORLANDO hálfskýjað 21
PARÍS léttskýjaö • 5
VÍN hálfskýjaö 7
WASHINGTON hálfskýjaö 14
WINNIPEG alskýjaö 5
ETffiSI