Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 I>V Fréttir Lítill munur á rekstri TF-FMS og ráðherrabíla: Einkavæðing í flugumferðarmál- um til skoðunar - Þú brást iUa viö ósk Gísla S. Einarssonar alþingismanns til fjárlaganefndar um að nefndin kallaöi eftir loggbók flugvélar Flugmálastjómar, TF-FMS. Finnst þér að með því að spurt sé um ferðir vélarinnar sé reynt að koma á þig höggi? „í þessu tilviki voru teknar út sérstakar dagsetningar þar sem þingmaðurinn telur að umrædda daga hafi verið farnar ferðir sem voru óþarfar eða vafasamar. Hann beinir spjótum að ákveðnum dæm- um en spyr ekki almennt. Þess vegna skýrði ég á Alþingi frá ferð- um mínum sem ráðherra sem ekk- ert var óeðlilegt við. - Varstu ekki á flugi þá daga sem spurt er um? Ég flaug með TF-FMS þann 25. júni á þessu ári til Akureyrar og síðan til Stykkishólms. Ég hafði lofað að skrifa undir stóran samn- ing við Slysavarnafélagið-Lands- björg á Akureyri en sama dag þurfti ég sem ferðamálaráðherra að vera kominn í Stykkishólm og um kvöldið á frumsýningu í Ólafsvík. Eina leiðin til að ná þessu var að fljúga en ég ók heim um nóttina." - í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspum DV i sumar um ferðir ráðuneytisfólks með TF- FMS kemur fram að samgöngu- ráðherra á metið með 58,4 flug- tíma síðan 1998. Er þetta ekki mikið flug ef miðað er við að næstu ráðuneyti era með rúma 20 tíma á sama tímabili og sum- ir ráðherranna nota vélina ekk- ert? Mér finnst ekki óeðlilegt að ráð- herra sem fer með vegamál, hafna- mál, flugmál, siglingamáí, ferðamál og fjarskiptamálin sé mikið á ferða- lögum. Mikið er kallað eftir því að ég komi sem ráðherra ferðamála svo ferðamálafólk fái beint sam- band við mig og ég reyni að verða við því. Tími minn er dýrmætur og þess vegna nýti ég flugið. - Þú þarft að vígja skip hér, opna veg þar og taka skóflustungu einhvers staðar. Geturðu sinnt öllum þessum verkefnum? Er þetta nokkuð hægt, Sturla? Nei, þess vegna get ég ekki sinnt nema hluta þess sem beðið er um. Úr því Flugmálastjórn telur nauðsynlegt að eiga þessa vél finnst mér óeðli- legt að við látum hana standa aðgerðalausa með áhöfn. - Svo sem fram hefur komið í DV flaug TF-FMS í þrígang til Ilulissat við Diskóflóa á vestur- strönd Grænlands með jafn- marga ráðherra. Aðeins í einu tilviki er tilgreint að vélin hafi sinnt verkefnum fyrir græn- lensk flugmálayfirvöld. Er ekk- ert skrýtið við þá útreikninga að þessi leið sé hagstæðari en að fljúga með áætlunarflugi? Ég vil ekkert fullyrða um það en í þessum tilvikum hafa ráðuneytin valið þessa leið og talið hana hag- stæða. - Er þetta þá hagstætt fyrir þjóðina? Ég veit það ekki. Það er ekki vist. - Ferð hvers ráðherra til Grænlands tók allt aö fjórum dögum. .flydð um þann öryggis- þátt hérlendis sem vélin á aö sinna? Þar er fyrst og fremst um að ræða mælingar á flugvöllum sem er verkefni, unnið með skipulögð- um hætti eftir tímasettu plani. Það kemur mjög oft fyrir þegar við spyrjum hvort vélin sé laus að hún er bundin í föstum verkefnum. Þá leitum við annarra leiða. - Hvað um leitarflug. Á hún ekki að sinna slíku? Hún gerir það í undantekningar- tilvikum en Landhelgisgæslan sér um það að mestu. Flugmálastjórn leggur ríka áherslu á að vélin sé ekki sett í verkefni sem skarast við öryggisþættina. - Þú ert ráðherra sem stendur fyrir stórri einkavæðingu á Landssímanum og mikill tals- maður þess að horfið sé frá rík- isrekstri. Truflar það þig ekkert að ríkið standi að flugrekstri eins og gerist með Flugmála- stjórnarvélina? Á mínu fyrsta kjörtímabili var mikið um það rætt hvort ætti að endurnýja flugvél Flugmálastjóm- ar. Niðurstaðan varð sú að vélin var endurnýjuö og þess vegna finnst mér mikilvægt að ráðherrar noti hana þegar það er hagstætt fyrir ríkissjóð. - Er sú gagnrýni ekki eðlileg að ekki eigi að nota vélina til annars en mælinga á flugvöllum eins og gert er ráð fyrir? Úr því Flugmálastjóm telur nauðsynlegt að eiga þessa vél finnst mér óeðlilegt að við látum hana standa aögerðalausa með áhöfn. Rekstur þessarar flugvélar stendur undir sér. - Kemur til greina að Flug- málastjórn verði skikkuð til að skilja flugreksturinn frá eins og ætlast er til þar sem ríkisrekst- ur er i samkeppni við hinn frjálsa markað? Ég tel sjálfsagt að fara yfir það. Þetta er hins vegar, að mér sýnist, í býsna góðu lagi. Mjög skýrar regl- ur eru um notkun vélarinnar. - Eru þær skriflegar? Ég veit ekki hvernig það er en reglurnar hafa verið kynntar mér. Ég geri ráð fyrir að Flugmálstjórn geti sagt ykkur frá þeim. - Farþegalistum vegna TF-FMS hefur ýmist verið fleygt eða þeir eru týndir. Finnst þér eðlilegt að þau gögn hverfi? Væntanlega er þessum listum ekki hent fyrr en flugi er lokið. Ég lit svo á að þessi gögn skipti ekki máli fyrir starfsemi Flugmála- stjórnar. Það er á valdi ráðuneyt- anna að halda yfirlit um það hvetj- ir fljúga. - En þetta er farþegaflug. Á ekki að geyma gögnin? Það geymir enginn farþegalista. Ég held að Flugleiðir hendi þeim eftir mánuð. - Rekstrarstjóri flugfélagsins Jórvíkur talar um botnlausa niðurgreiðslu og að vél, sam- bærileg TF-FMS, myndi kosta í leiguflugi á frjálsum markaði 110 til 130 þúsund krónur á tím- ann. Flugmálastjórn leigir ykk- ur hana á 85 þúsund krónur. Um áratugaskeið hefur verið talað um flugvélina sem tæki sem stjórnendur Flugmálastjórnar noti til að verðlauna ákveðna stjórnmálamenn. Flugmálastjóra er undir þínum hatti sem sam- gönguráðherra. Hefur þú farið ofan í reksturinn á TF-FMS og geturðu sagt fullum fetum að Nafn: Sturla Böðvarsson Staða: Samgönguráðherra Efni: Notkun ráðamanna á flugvél Flugmálastjórnar, TF-FMS, og einkavæðing. - Þú ert talsmaður einkavæð- ingar. Truflar þessi ríkisrekstur þig ekkert? Nei, þetta truflar mig ekkert. Þegar þessi þjónusta er verðlögð er litið til þess að fastur kostnaður af henni er borinn uppi af sérhæfðri notkun fyrir Flugmálastjóm. Vélin er með afskaplega sérhæfðan bún- að sem leiðir til þess aö ekki þarf að selja tímann á eins háu verði. Án þess að ég þori að fullyrða um það þarf ekkert að vera óeðlilegt við verðlagningu á þessu flugi. - Ertu ekki þeirrar skoöunar að útboð myndi skila meiri arð- semi en hefðbundinn ríkisrekst- ur? Ríkisrekstur getur verið arðbær en i langflestum tilvikum er far- sælla að menn beri sjálfir ábyrgð á þeirri stáfsemi sem þeir reka. Þess vegna er ég talsmaður einkavæð- ingar. - Ertu að hugsa um að breyta þessum rekstri í átt til hugsjóna þinna? Við höfum átt samtöl um þennan rekstur en þar er ekkert uppi á borðinu um breytingar. Það er ekki mikill munur á rekstri þessarar flugvélar og rekstri ráðherrabíl- anna. Ekki bjóðum við þá út. - Kemur til greina að einka- væða rekstur Flugmálastjómar að einhverju leyti? Það er ekki ómögulegt. í heimin- um hefur verið mikil gerjun varð- andi rekstur þessara þjónustustofn- ana. En flugöryggissviðið er þáttur sem ekki verður auðveldlega einka- vætt. Dæmi eru um að rekstur flugvalla hafi verið einkavæddur og við erum að skoða þessa hluti alla. - Er þá hugsanlegt að einka- væða flugumferðarstjóraina? Það er ekkert ómögulegt í þeim efnum. - Hversu mikla eign á íslenska rikið í Flugmálastjóra? Við höfum ekki metið það ná- kvæmlega en þetta er feiknalega mikil eign. 2 i í I * t i j.í.i •* i i J iiii i 1 14 < í 1 11 í I ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað varðandi ferðir vélarinnar? Ég get auðvitað ekki svarað því. Ég er ekki í vinnu hjá Ríkisendur- skoðun. Hins vegar treysti ég þessu fólki afskaplega vel til þess að sinna þessu verkefni. Flugmála- stjórn býður ekki upp á ferðir held- ur eru það ráðherrar og stjórnend- ur í ráðuneytunum sem velja þenn- an ferðamáta þegar það hentar. Ég vísa því á bug að Flugmálastjórn sé að gera eitthvað fyrir stjórn- málamenn. Pólitískir andstæðingar eru að tala um þægindaflug fyrir Reynir Traustason ritstjórnarfulltrúi ráðherra. Ættu menn að hafa eitt- hvert óþægindaflug fyrir ráðherra til að hefta för þeirra eða gera þeim starflð erfiðara? Þvert á móti á að gera ráðherrum og alþingis- mönnum þeirra erfiða starf auð- veldara. - TF-FMS er fyrst og fremst í bremsuprófunum á flugvöllum sem fer ört fækkandi. Af hverju ekki að bjóða reksturinn út og ná niður kostnaði? Ég vil alls ekki segja að það eigi að reka þessa vél til eilífðarnóns með þeim hætti sem nú gerist. Ég er talsmaður einkavæðingar og stöðugrar endurskoðunar ríkis- reksturs. Við eigum alltaf að velja hagstæðustu kostina. - Samkvæmt verðskrá Flug- málastjómar kostar sú þjónusta sem þið hafið fengið síðan 1998 fimm milljónir á verðlagi yfir- standandi árs. Hvers vegna ve- fengir þú þá tölu? Þann tíma sem ég hef verið sam- gönguráöherra hefur ráðuneytið greitt 1,9 milljón króna í leigu á vélinni. Þetta kemur fram í bók- haldi ráöuneytisij^^ií imrnrffTnTfffíff Umsjón: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@dv.is Kjaftstopp I morgunsjónvarpi Stöðvar 2 í gær tók Mörður Ámason fyrir mál sem risið hefur vegna notkunar ráðherra og ýmissa embætta á flugvél Flugmála- stjómar. Hafa flugrekstraraðilar gagn- rýnt mjög þennan rekstur sem þeir segja kominn í beina samkeppni við al- mennt farþegaflug í landinu. Pétur H. Blöndal alþingismað- ur, sem löngum hefur verið talinn einn helsti andstæðingur opinberrar útgerð- ar af öllum toga og bruðls á opinberum vettvangi, var viðmælandi Marðar. Þegar útvarpsráðsmaðurinn snjalli spurði Pétur hvernig gengi að reka þetta ríkisrekna flugfélag varð Pétur hreint kjaftstopp. Sagt er að fyrir marga hafi það þótt stærri tíðindi en sjálft bruðlið með Flugmálastjómarvél- ina. Aldrei áður hafi þingmaðurinn orðið uppiskroppa með orð þegar ríkis- bruðl er annars vegar ... Hætta á minni aðsókn Enn berast tíðindi frá ríkisfangels- inu Litla- Hrauni. Nú er það ekki vegna stroks fanga heldur vegna gríð- arlegrar skerðingar á rétti fyrirmynd- arfanga. Fangelsisyfirvöld settu á sín- um tima I gang áætlun sem mið- aði að því að fá fanga til að hegða sér betur. Var komið upp eins konar „gulrótarkerfi“, þar sem fyrir- myndarfangar fengu að dveljast á sér- stökum fyrirmyndargangi fangelsisins með meiri fríðindum en gengur og ger- ist. Virðist sem fangar hafi þar gengið á lagið og þegar fangaverðir fundu fjölda skammta af eiturlyfmu LSD hjá einum fyrirmyndarfanganum var ákveðið að grípa til aðgerða. Ganginum var lokað og fangar fá að dúsa bak við sína gömlu rimla. Er allt eins búist við að hagsmunafélag fanga á Litla-Hrauni bregðist ókvæða við og beini því til meðlima undirheimanna að sniðganga með öllu þetta gistiheimili... Gulrótarreglugerö Þa§ eru víöar notaðar „gulrætur" til að hvetja fólk en á Litla-Hrauni. Læknar hafa tíðum fengið sendar slík- ar gulrætur sem eiga að liðka fyrir ávísun þeirra á til- tekin lyf. Frægt er þegar Pétur Péturs- son, læknir á Akur- eyri, fékk eina slíka gulrót í rauðvínslíki sem hann reyndar skilaði í fússi. Ásta ] Ragnheiður Jóhann-1 esdóttir tók málið upp á þingi í fyrra- dag og taldi að hérlendis þyrfti skýr- ari línur í þessum efnum. Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra tók undir það svo væntanlega má því búast við sérstakri gulrótarreglugerð vegna ábendinga Péturs læknis... Byggt á trúnnl Hólmgeir Baldursson, sjónvarps- gúru með meiru, hefur mikla trú á að hægt sé að reka sjónvarpsstöð sem byggist eingöngu á auglýsingatekjum en engum áskriftar- gjöldum. Svo mikil er trú Hólmgeir að hann hyggst hefja út- sendingar Stöðvar 1 í þessum mánuði. Er það þriðja áskriftar- lausa sjónvarpsstöðin hérlendis. Fyrir á markaðnum eru Skjár einn og kristi- lega sjónvarpsstöðin Omega. Þetta gerist á sama tíma og fréttir hafa ver- ið af erfiðleikum Stöðvar tvö, Skjás eins og Ríkisútvarps - sjónvarps. Þar er barist við peningaleysi. Omega byggir reynar á trúnni eins og Hólm- geir en þó kannski öllu bókstaflegar. Trúin virðist reyndar flytja stór íjöll í 5ölmiðlaheiminum þessi misserin. Auk Omega, eru þrjár íslenskar út- varpsrásir i loftinu sem byggja á trú- arlegum boðskap. Guö sér greinilega um sína. Menn velta því fyrir sér hvort Hólmgeir sé kominn með að- . gáng aðþeirri uppsprettu... s i i i 1,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.