Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
I>V
7
Fréttir
Ungir framsóknarmenn þinga um helgina:
Brýnt aö Fram-
sókn taki við
stjórninni
- segir formaðurinn - vill uppstokkun í Evrópumálum
„Við teljum brýnt að Framsókn-
arflokkurinn taki hið fyrsta við
stjórn landsins," segir Einar
Skúlason, formaður Sam-
bands ungra framsóknar-
manna. Efnt er til auka-
þings SUF um helgina og
verða mörg mál i deigl-
unni.
í drögum að ályktunum
þingsins er lagt til að
Framsóknarflokkurinn
taki við nokkrum þeirra
ráðuneyta sem ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins sinna
nú. Eru forsætis- og fjármálaráðu-
neyti þar sérstaklega nefnd. Ekki
er þó nefnt hvaða ráðuneyti Fram-
sókn ætti að láta af hendi sem
skiptimynt.
EES-samningurinn er óviðun-
andi fyrir íslendinga, segja ungir
framsóknarmenn.
„Við íslendingar getum ekki
búið við það að taka við ýmsum
lögum og reglum frá Brussel án
þess að hafa nein áhrif á gerð
þeirra. Því höfum við ekki nema
tvo kosti í stöðunni; annars vegar
að taka samninginn upp eins og ut-
anríkisráðherra hefur lagt til eða
fara í aðildarviðræður við ESB,“
segir Einar Skúlason.
Fyrir þinginu liggur einnig til-
laga um að Framsóknarflokkurinn
setji á laggirnar nefnd sem vinni
drög að siðareglum fyrir
félaga í flokknum. Einnig
vilja liðsmenn SUF að
settar verði reglur um
fjárreiður stjórnmála-
flokka.
Útfærslan gæti falið i
sér, segir Einar, að flokk-
arnir yrðu að gefa upp
hverjir styrkja starfsemi
þeirra ef framlögin fara
yfir tiltekna fjárhæð. Að-
spurður um hvort ungliðar Fram-
sóknar séu þá tilbúnir sjálfir að
stíga fyrsta skrefið og opna bók-
hald sitt svo að lýðum væri ljóst
hverjir styrktu þá, sagði Einar að
málið hefði ekki verið rætt innan
vébanda þeirra, en sjálfur kvaðst
hann vera opinn fyrir hugmynd-
inni sem sé fordæmisgefandi.
Einar Skúlason gefur kost á sér
til endurkjörs sem formaður en að
öðru leyti er nokkur endurnýjun
fyrirsjáanleg í stjóm. Búist er við
að um fimmtíu manns muni sitja
þingið, sem er opið öllum ungum
framsóknarmönnum, sem eru á
átjánda hundrað. -sbs
Einar Skúlason.
FRÁBÆRIR FÖSTUDAGAR
Alþingiskona á stefnumóti,
Fréttir og Málið kemur á óvart.
Dembdu þér í Djúpu laugina.
Hvað ber kvöldið í skauti sér?
20.00 Charmed
21.00 Kokkurinn og piparsveinninn
21.50 Fréttir og Málið
22.00 Djúpa laugin
22.50 Malcolm in the Middle (e)