Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Page 8
2001
8
Fréttir I>V
Maður í gæsluvarðhaldi sem flutti 2516 e-töflur til landsins í ágúst:
Ungur Portúgali ját-
ar allar sakargiftir
Tvítugur Portúgali, Dilson
Dombaxe Mateus Lumbu, mætti
fyrir héraösdómara í gær þar sem
tekið var til meðferöar mál ríkis-
saksóknara gegn honum fyrir inn-
flutning á 2516 e-töflum þann 3.
ágúst, Maðurinn, sem var að koma
frá Lissabon í gegnum London,
hafði komiö efnunum fyrir innan
klæða, limt þau utan á líkama
sinn.
Það voru tollverðir sem stöðv-
uðu manninn í Leifsstöð. Lögregl-
an telur ljóst að maðurinn hafi
verið að koma á vegum einhvers
sölu- eöa dreifingaraðila hér á
landi. Hins vegar gaf Portúgalinn
ekki upp um neitt varðandi
tengiliði frekar en gert er í flestum
öðrum fikniefnamálum.
Ekki er reiknað með að réttar-
höldin taki langan tíma, aðeins
um eina klukkustund. Maðurinn
hefur viðurkennt brot sitt og eng-
inn ágreiningur uppi í málinu.
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
Portúgalinn ungi hreinan sakar-
feril.
Refsiramminn þar sem um er að
ræða stærri fíkniefnamál eins og
þetta er 12 ára fangelsi, hækkaði
um tvö ár eftir að lög gengu í gildi
á þessu ári um að hann skyldi
hækkaður úr 10 ára fangelsi. Áður
en þau gengu í gildi fékk Hollend-
ingur, sem kom með rúmlega 14
þúsund e-töflur til landsins, 9 ára
fangelsi.
-Ótt
Dilson Dombaxe Mateus Lumbu í Héraðsdómi í gær
Portúgalinn var tekinn meö á þriöja þúsund e-töflur í Leifsstöö. Lögregla telur
Ijóst að maöurinn hafi veriö á vegum dreifingaraöila hér á landi.
Níu mánaöa uppgjör:
325 miljjóna
króna tap Síldar-
vinnslunnar hf.
Síldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað var rekin með 325 milljóna
króna tapi á fyrstu níu mánuðum
ársins 2001. Tap af reglulegri starf-
semi eftir reiknaða tekjuskattsinn-
eign nam 240 milljónum króna.
Veltufé frá rekstri nam 833 millj-
ónum króna. Ekki hefur verið birt
níu mánaða uppgjör áður og eru
því samanburöartölur ekki fyrir
hendi.
Áhrif verkfalls mikil
„Félagið er að mestu leyti íjár-
magnað í erlendri mynt og breyt-
ingar á gengi krónunnar setja því
verulegt mark á rekstrarniður-
stöðuna. Við sjáum hins vegar
nokkurn bata í rekstri félagsins á
árinu. Verkfall sjómanna sem stóð
í 50 daga í vor hafði mikil áhrif á
reksturinn þar sem reiknað var
með kolmunnaveiði á þeim tíma.
Kolmunninn er ekki bundinn
kvóta og sá afli sem annars hefði
veiðst á þessum tíma veröur ekki
tekinn seinna, er m.ö.o. alfarið
glataður úr rekstrinum," segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar. Hann segir síð-
ari hluta ársins yfirleitt lakari hjá
Síldarvinnslunni hf. en þann fyrri
en nú megi hins vegar reikna með
betri síðari hluta vegna hás mark-
aðsverðs fyrir sildarafurðir, frosn-
ar og saltaðar, svo og fyrir mjöl- og
lýsisafurðir. Það byggist hins veg-
ar á því aö síldin veiðist en veiöar
hafa gengið treglega til þessa.
Þrír þættír ráðandí
Að sögn Björgólfs hafa áætlanir
félagsins um afkomu ekki gengið
eftir á tímabilinu en það megi að-
allega rekja til þriggja þátta: í
fyrsta lagi aukins fjármagnskostn-
aöar vegna mikils gengistaps á
tímabilinu og hækkandi vaxta. í
öðru lagi hefur olíuverð hækkað á
timabilinu en reiknað var með
lækkunum í áætlunum. Og í þriðja
lagi hafði 50 daga verkfall sjó-
manna veruleg áhrif þar sem
reiknað hafði verið með veiði á
kolmunna á þeim tíma, sem fyrr
segir. -gk
ítaktviðtímann
Fjórir mismunandi kostir til að leggja bílnum.
Þitt er valið. Við mælum með bílastæðum
miðborgarinnar við öll tilefni.
Pi ef þú ert að flýta þér, P2 ef þú þarft ódýrt stæði nokkra
stund, P3 ef þú vilt gefa þér góðan tíma og bílahúsin þegar
þú vitt njóta tímans.
QfH Bílastæðasjóður
VJ " | f ...svo í borg sé leggjandi