Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 9
 Fréttir Ónákvæmt bókhald vegna ráðherraflugs: Siv er spör á TF-FMS - segir ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis „Eina flugið sem farið hefur verið á vegum umhverfisráðuneytisins með TF-FMS á þessu ári var þegar ofan- flóðanefnd flaug til Neskaupstaðar. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra var ekki með í þeirri ferð enda er hún spör á TF-FMS," segir Magnús Jóhannes- son, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu- neytinu, vegna þeirra upplýsinga sem Flugmálastjóm gaf um notkun ráðu- neyta á vél Flugmálastjómar. í gögn- um sem DV fékk frá Flugmálastjóm kom fram að umhverfisráðuneytið hefði leigt vélina í samtals 5 klukku- stimdir í ár. Magnús leitaði skýringa vegna þess að í hans bókum var aðeins að finna eitt flug. í ljós kom að starfs- menn Flugmálastjómar höfðu fundið reikning á ráðuneytið frá 1999. Þá var Magnús Siv Jóhannesson. Friðleifsdóttir. ofanflóðanefnd á ferð á Isafirði án ráð- herrans. Þetta flug sem tók 1,7 klukku- stundir var fært sem flug í apríl á þessu ári. Þar með skipar Siv sér í hóp þeirra ráðherra sem minnst nota vél- ina en þar er að finna Pál Pétursson fé- lagsmálaráðherra, sem aldrei hefur flogið með TF-FMS, og Guðna Ágústs- son landbúnaðarráðherra sem flogið hefur í 90 mínútur síðan 1998. Fleiri skekkjur virðast vera í bók- haldi vegna flugs TF-FMS því sam- kvæmt því sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir hefur ráðu- neyti hans aðeins greitt 1,9 milljónir króna fyrir leiguflug með Flugstjórnar- vélinni síðan hann tók við ráðherra- dómi. Samkvæmt bókum Flugmála- stjórnar hefur ráðuneytið í tíð Sturlu leigt vélina samstals í rúmlega 40 flug- tlma. Þar sem verðskrá fyrir vélina var 77 þúsund krónur á flugtímann en hækkaði í 85 þúsund um síðustu áramót hlýtur flugið að vera mjög niðurgreitt. 40 flugtímar kosta samkvæmt verð- skránni rúmar 3 milljónir króna. -rt Myndarleg fura felld Á dögunum var fellt furutré sem stóö á horni Hlíðarbrautar og Hringbrautar í Hafnarfiröi. Tréö haföi veriö skemmt þannig aö berki haföi veriö flett af nær öllum efri hluta þess. Meö skemmdarverkinu var tréö i raun og veru drepiö og ekki annaö aö gera en aö fella þaö. Á myndinni má sjá Guöjón, verkstjóra í áhatdahúsi bæjarins, fella tréö. Eftíminn Notaðu tímann Gefðu þér tíma , Njóttu timans er naumur Þarftu að skjótast í bæinn? Þá mælum við hiklaust með stöðumælum, en aðeins í stutta stund. Pi er þar sem umferðin er mest og mikilvægt er að sem flestir hafi aðgang að bílastæðum yfir daginn. Pi-bílastæði eru hentug skammtíma- stæði við Laugaveginn, Bankastræti og í Kvosinni þegar þú ert að flýta þér. Vinnufundur eða stefnumót? Stemning miðborgarinnar er einstök og kaffið óvíða betra. Sum stæði veita þér meira svigrúm en önnur. Á miðastæðum er enginn lágmarkstími. P2-bílastæði eru ódýr skammtímastæði á plönum og hliðargötum í þægilegri göngufjarlægð frá miðborgarkjarnanum. Þegar þú þarft að gera allt sem þú átt eftir að gera. Eða þegar þig langar að gera ekkert sérstakt. Stundum er gott að vera bara á rölti í bænum. Við mælum með P3 miðastæðunum þegar þú vilt gefa þér góðan tíma. P3 -bílastæðin við hafnarbakkann, Skúlagötu og Landakot eru hagkvæm- ustu langtímastæði miðborgarinnar. Freistandi. Þú borgar aðeins fyrir þann tíma sem þú þarft. Notaðu húsin og njóttu þess að hafa ekki áhyggjur af tímanum. Við mælum með bílahúsunum ef þú vitt njóta lífsins í rólegheitum. Svo eru þau alltaf opin klukkustund lengur en verslanir. Bílahús miðborgarinnar og þú nýtur þess að hafa allt á hreinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.