Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 12
12 Viðskipti Umsjón: Viöskiptablaðið Flugleiðir gera ráð fyrir miklum samdrætti: Vilja verja markaðsstarfið og auka sölu íslandsferða - vænta mikils af samstarfi við ríkið Flugleiðir leggja höfuðáherslu á að verja þann árangur sem náðst hefur í markaðsstarfi um fjölgun ferðamanna til Islands. Er því gert ráð fyrir sókn í sölu íslandsferða. Samgönguráðherra gaf vilyrði fyrir þátttöku ríkisins í því starfi á ferða- ráðstefnu fyrir skömmu. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um með hvaða hætti slíkt verði gert, en Ferðamálaráð fundaði um málið í gær. Flugleiðir kynntu markaðsstarf- semi sína á blaðamannafundi á Hót- el Loftleiðum i gær. Þar kom fram að Hagfræðistofnun Háskóla íslands hefur metið mikilvægi Flugleiða í þjóðarbúskapnum. Benda niður- stöður þeirrar athugunar til að sam- dráttur hjá Flugleiðum, sem orsaki 10% fækkun ferðamanna til tslands, muni leiða til 10,7 milljarða króna neikvæðra atvinnu- og efnahagsá- hrifa í hagkerfinu. Það myndi einnig leiða til fækkunar ársverka á íslandi um 1100. Á sömu forsendum myndi 30% samdráttur leiða til 32 milljarða neikvæðra áhrifa og fækk- unar sem nemur 3400 ársverkum. Steinn Logi Björnsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðs- sviðs Flugleiða, sagði að gert væri ráð fyrir umtalsverðum sölusam- drætti á öllum mörkuðum félagsins á árinu 2002. Sóknarfærin liggi helst i sölu íslandsferða. Þar væri aukn- ing í bókunum fyrir þennan mánuð frá fyrra ári á sama tíma og mikill samdráttur er í ferðaþjónustu flestra landa heimsins. Byggist það einna helst á ímynd íslands sem ör- uggs lands. í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september hef- ur orðið 35% samdráttur í flugi evrópskra flugfélaga yfir Norður- Atlantshaf. Hjá Flugleiðum nemur samdrátturinnn 21%. Gert er ráð fyrir að minnkandi eftirspurn leiði til 1000 milljóna króna lakari af- komu árið 2001 og verulega versn- andi afkomu árið 2002. Þegar hefur verið ákveðinn 35% samdráttur í Ameríkuflugi félagsins í vetur og DV-MYND E.ÖL Flugleiöir kynna markaösstarf Steinn Logi Björnsson, Gunnar Eklund, Hannes Hilmarsson og Stefán Eyjólfsson kynntu umfangsmikla markaðsstarf- semi Flugleiöa í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar hefur mikill árangur náöst meö þrotlausu starfi sem kostaö hefur mikla peninga. Þeim árangri má ekki glutra niöur, að mati sölu- og markaössviðs Flugleiöa. 18% samdráttur í Evrópuflugi. Flugi til New York verður hætt í tvo mánuði og ákveðið hefur verið að draga saman flug til og frá ís- landi um 11% næsta sumar. Full- trúar Flugleiða leggja þó ríka áherslu á að mikið uppbyggingar- starf sé í húfi og markaðir í Evrópu megi ekki tapast. Því er mikils vænst af samstarfi við íslensk stjórnvöld þar sem félagið standi nú veikt fjárhagslega. -HKr. Sigmundur ráð- inn framkvæmda- stjóri Norðlenska Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri Matbæjar ehf., hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Norðlenska ehf. Hjá félaginu verða starfandi tveir framkvæmda- stjórar, en fyrir er starfandi Jón Helgi Björnsson. Sigmundur er iðn- rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri. Hann er kvæntur Önnu Lilju Stefánsdóttur og eiga þau einn son, Stefán Einar. Á næstu vikum er fyrirhugað að skipta félaginu í tvö meginsvið, þ.e. svið er lýtur að vinnslu og annað er lýtur að slátrun. Mun nýtt skipurit verða kynnt í framhaldi af þessari skiptingu. Ákveðið hefur verið að Sigmundur muni sinna fram- kvæmdastjórn á sviði vinnslu en Jón Helgi á sviði slátrunar. Norðlenska ehf. varð til við sam- runa Kjötiðju K.Þ. og Kjötiðnaðar- stöðvar KEA á miðju ári 2000. í árs- byrjun sameinaðist Nýja bautabúr- ið hf. félaginu auk þess sem Norð- lenska keypti kjötvinnslur Kjötum- boösins hf. (áður Goði hf.) í júlíbyrj- un. Umfang félagsins hefur vaxið mikið frá stofnun þess og er áætluð ársvelta félagsins tæpir 3 milljarðar króna. Félagið starfrækir fjórar kjötvinnslur á Húsavík, Akureyri, Borgarnesi og í Reykjavík auk þess að reka sláturhús á Húsavík, á Ak- ureyri og í Borgamesi. Á þriöja hundrað stöðugildi eru hjá Norð- lenska. Kaupþing spáir 0,2% verðbólgu í nóvember SfB.gr ISfif JLlÁðfU X'2'vZ ZtZ-2 - *uu u u 22 .'3" p iii n 16 13 * « jL. 1 J'/l ♦ 4 - 3/ •-«-» V 1 ■ N j-CK jp. •<. ) o u 1.1 v> 1 4 + 1 - 40 f&x. 8p& ©8!« *KK l/I alfia 85=» Hftfi bíhk ~ wv 'Tzm* m jxty- m m S'.'xo j •**> 9 4(1 - 7 r v - 77 Tp K 4,'^f 9(1 * # - 14 t- . fiífl Minni spenna Viðsnúningur viröist eiga sér staö á vinnumarkaöinum og er gert ráö fyrir ai verulega hafi dregið úr hækkunum vegna launaskriös. Greiningardeild Kaupþings spáir 0,2% hækkun á vísitölu neysluverðs á milli mánaða sem samsvarar um 2,4% verðbólgu á ársgrundvelli. Gangi spáin eftir hefur vísitalan hækkað um 7,9% síðustu 12 mán- uði. Helstu forsendur spárinnar eru að bensínverð lækkar umtalsvert eftir miklar lækkanir á heimsmark- aði að undanfórnu en flugfargjöld og tóbak hækkar hins vegar. Bensín lækkar um 4% sem svarar til 0,19% lækkunar á vísitölu neysluverðs en bensín vegur þar býsna þungt. Flugfargjöld hækkuöu um 5% í kjölfar erfiðleika í flugsamgöngum eftir hryöjuverkin í BNA. Hækkun- in hefur 0,06% áhrif á neysluverðs- vísitöluna til hækkunar. Tóbak hækkar um 3,36% sem hefur 0,06% áhrif á vísitöluna til hækkunar. Þótt almennt hafi dregið úr spennu í hagkerfinu er gert ráð fyrir minni háttar hækkun á þjónustu. Ástæða þess er sú að Greiningar- defld telur að enn sé undirliggjandi eftirspumarþrýstingur í hagkerfinu. Hann hefur þó farið hraðminnkandi undanfarna mánuði. Viðsnúningur virðist eiga sér stað á vinnumarkaðnum og er gert ráð fyrir að verulega hafi dregið úr hækkunum vegna launaskriðs. Gert er ráð fyrir að opnun Smáralindar hafi almennt haft jákvæð áhrif á vöruverð þar sem samkeppni harðnar, þótt erfitt sé að meta áhrif- in á einstaka þætti vísitölunnar. Gengi íslensku krónunnar hefur verið að veikjast að undanfömu en veiking krónunnar skilar sér að öllu jöfnu fyrst í hækkuðu matvöru- verði. Því gerir GreiningardeUd ráð fyrir að matvöruverð hækki enn af þeim sökum en það hefur hækkað um 10% frá áramótum sem er mun meiri hækkun en hefur sést tfl að mynda í sérvöru. FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 DV Deutsche Bank segir upp 4.500 manns - ekki séð fyrir endann á slíkum aðhaldsaðgerðum Stærsti banki Þýskalands, Deutsche Bank, hefur tOkynnt um uppsagnir 4.500 manns í kjölfar slælegrar niðurstöðu rekstrar á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður bankans féll um 49% á þriðja árs- fjórðungi samanborið við sama tíma í fyrra en það skýrist meðal annars á aukningu í afskrifta- reikning útlána. Alls afskrifaði Deutsche Bank 408 milljónir evra vegna hryðjuverkaárásanna 11. september. Með fyrirhuguðum uppsögnum verður fjöldi þeirra sem hafa misst vinnuna innan bankans kominn í 7.100 manns. Alls hafa þýskir bankar sagt upp meira en 23.000 manns það sem af er árinu og gert er ráð fyrir frekari uppsögnum. HVB Group, næststærsti banki Þýskalands, ráðgerir að segja upp 2.200 manns og fjórði stærsti bank- inn, Commerzbank, mun fækka störfum um 3.400. Þýskir bankar eru þessa dagana undir miklum þrýstingi að skera niöur kostnað í ljósi efnahagsniðursveiflunnar sem hefur mikfl áhrif á kostnaðar- uppbyggingu þeirra. Stjórnunarkostnaður óx um meira en 5 milljarða evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra en var engu að síð- ur 8% lægri en sambærilegur kostnaður 2. ársfjórðungs ársins 2001. HEILDARVIÐSKIPTI 849 m.kr. - Hlutabréf 438 m.kr. - Húsbréf 220 m.kr. MESTU VIÐSKIPTI fi, Össur 131 m.kr. Pharmaco 84 m.kr. O Eimskip 70 m.kr. MESTA HÆKKUN O Hraöfrystihús Eskifj. 7,8% O Marel 3,7% O Eimskip 3,0% MESTA LÆKKUN O Húsasmiöjan 2,8% O Grandi 2,0% OÚA 1,7% ÚRVALSVÍSITALAN 1.088 stig - Breyting O -0,03% KAUP SALA j Hsl Dollar 104,130 104,660 títrj Pund 152,560 153,340 : 1*1 Kan. dollar 65,200 65,610 ÍríÍDönsk kr. 12,6480 12,7170 Bsl Norsk kr 11,8240 11,8900 S Sænsk kr. 9,8820 9,9370 ;H—Ifí. mark 15,8383 15,9334 1B 1 Fra. franki 14,3561 14,4424 1 li Belg. franki 2,3344 2,3484 i EJ Sviss. franki 63,9800 64,3300 | C3 Holl. gyllini 42,7325 42,9893 Pýskt mark 48,1484 48.4377 J! ít. líra 0,04863 0,04893 \ E3Q Aust. sch. 6,8436 6,8847 Itil Port. escudo 0,4697 0,4725 1« .1 Sná. peseti 0,5660 0,5694 ; 1 * 1 Jap. yen 0,85610 0,86120 £ lírsktpund 119,571 120,289 SDR 133,1600 133,9600 0ECU 94,1700 94,7359

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.