Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Blaðsíða 15
15
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001___________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
REUTER-MYND
Donald Rumsfeld
Bandaríski iandvarnaráöherrann vill
fleiri sérsveitarmenn til Afganistans.
Fleiri sérsveitar-
menn í baráttuna
Bandarísk stjórnvöld ætla aö
senda fleiri hópa sérsveitarmanna
inn í Afganistan á næstunni, herða
loftárásirnar og annan stuðning við
heimamenn sem berjast gegn tali-
banastjóminni, að því er Donald
Rumsfeld landvarnaráðherra skýrði
frá í Washington í gær.
Sérsveitarmenn hafa þó orðið frá
að hverfa síðustu daga þegar þeir
reyndu að komast inn í Afganistan
með þyrlum. Bæði gerði slæmt veð-
ur þeim erfitt fyrir og þá ekki síður
mótspyma talibana sem punduðu á
þyrlumar úr byssum sínum.
Tæplega eitt hundrað sérsveitar-
menn bandarískir eru nú i norðan-
verðu Afganistan. „Ég vil að tala
þeirra þrefaldist eða fjórfaldist sem
fyrst,“ sagði Rumsfeld.
Þrándur í götu
Kyoto-samnings
Babb er komið í bátinn á lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í Marrakesh í Marokkó þar sem
reyna átti að ganga endanlega frá
Kyoto-samningnum um losun gróð-
urhúsalofttegunda. Nokkur ríki,
Japan, Rússland, Kanada og Ástral-
ía, reyna nú hvað þau geta til að
tefja fyrir því að reglur um refsingu
þeirra sem menga meira en þeir
mega verði lagfærðar. Ríki þessi
vilja að reglur þar að lútandi verði
ekki ákveðnar fyrr en á árinu 2003,
enda eru þau ekki jafnáhugasöm og
ESB um Kyoto. Kanadískir embætt-
ismenn sögðu að núna væri of
skammur timi til stefnu.
Trúarbræður bin Ladens
Osama bin laden hefur sent
trúarbræðrum sínum í Pakistan opiö
bréf þar sem hann hvetur þá til
varnargegn krossferö kristinna.
Bin Laden hvetur
múslíma til varnar
gegn kristnum
Osama bin Laden hefur sent pakist-
önskum baráttubræðrum sin opið
bréf sem birt var á al-Jazeera sjón-
varpsstöðinni í Qatar í gær þar sem
þeir eru hvattir til að verja Islam gegn
því sem hann kallar „krossferð krist-
inna“.
Sjónvarpsstöðin sýndi mynd af
bréfinu, sem er handritað á arabisku
og undirritað af bin Laden sjálfum.
„Verið er að drepa trúarbræður ykk-
ar í Afganistan og ríkisstjóm Pakist-
ans styður það. Krossferðin gegn
múslímum er í fuilum gangi og heim-
urinn er klofinn í tvennt þar sem ann-
ar helmingurinn er undir áhrifum
heiðingjans Bush en hinn undir áhrif-
um íslams," segir i textanum.
Aukinn viðbúnaður á vesturströnd Bandaríkjanna:
Hótanir um að sprengja
helstu brýr í Kaliforníu
REUTER-MYND
Öldungur fær sér blund
Gamall maöur fær sér blund í fæðu-
dreifmgarmiöstöö Rauöa krossins í
Kabúl, höfuöborg Afganistans.
Annan vill fá hlé
á loftárásunum
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær
til þess að hlé yrði gert á loftárásun-
um á Afganistan til þess að hægt
væri að koma aðstoð tn flóttamanna
og annarra sem eiga um sárt að
binda. Annan sagði að samtökin
hefðu aðeins getað dreift um helm-
ingi aðstoðarinnar sem hún hafði
gert sér vonir um að færa Afgönum.
„Við höfum ekki staðið við mark-
mið okkar. Við þurfum um 50 til 60
þúsund tonn af matvælum á mánuði
en við komum aðeins helmingi þess
út,“ sagði Annan á fundi með frétta-
mönnum í Genf.
Á sama tíma tilkynntu Bretar og
Rússar að þeir ætluðu að vinna
saman að því að flytja níu þúsund
tonn af matvælum inn i norðaustur-
hluta Afganistans á næstu tveimur
mánuðum.
Þjóðveldisflokk-
urinn spáir í
danska þingið
Þjóðveldisflokkurinn í Færeyjum
tekur ákvörðun um það um helgina
hvort hann býður fram í kosningun-
um til danska þingsins sem haldnar
verða 20. nóvember, að sögn Hogna
Hoydal, ráðherra sjálfstæðismála og
leiðtoga flokksins.
Færeyingar eiga tvo menn á
danska þinginu, fulltrúa jafnaðar-
manna og Fólkaflokks Anflnns
Kallsbergs lögmanns.
Að sögn færeyska blaðsins
Dimmalætting er hins vegar hætta
á að fulltrúi Fólkaflokksins nái ekki
kosningu ef Þjóðveldisflokkurinn
ákveður að bjóða fram.
Flokkurinn hefur áður átt mann
á danska þjóðþinginu.
Gray Davis, ríkisstjóri i Kaliforn-
íu, hefur fyrirskipað herta öryggis-
gæslu við helstu brýr ríkisins, þar á
meðal hina víðfrægu Golden Gate
brú í San Francisco, vegna hótana
um að þær verði sprengdar í tætlur.
Yfirmenn löggæslumála reyndu
hins vegar að draga úr ótta manna
með því að segja að hótanirnar
hefðu verið mjög almenns eðlis og
að engin ástæða væri fyrir almenn-
ing að hafa áhyggjur.
Viðvörun ríkisstjórans er hin
fyrsta frá árásunum á New York og
Washington í september þar sem
embættismaður tilgreinir ákveðin
mannvirki sem hugsanleg skotmörk
hryðjuverkamanna.
„Við viljum að almenningur viti
ef öryggi hans er ógnað og við vilj-
um að hann viti hvað gert er til að
tryggja öryggi hans,“ sagði Davis
við fréttamenn.
„Ég er þess fullviss að brýrnar
eru öruggar. Þeirra hefur aldrei ver-
REUTER-MYND
Hauskúpur úr sælgæti á degi hinna dauöu í Mexíkó
Mexíkóar héldu upp á dag hinna dauöu í gær, 1. nóvember. Hauskúpur eru mikilvægur liöur í hátíöahöldunum þar
sem fólk fer um götur borga og bæja með slíkar grímur fyrir andlitunum. Hér sjáum viö hins vegar Titu Beltran, sem
býr í Mexíkóborg, meö hauskúpur úr sælgæti. Hauskúpurnar hefur hún heima hjá sér.
REUTER-MYND
Hótað aö sprengja brýr
Golden Gate brúin I San Francisco er helsta kennileiti borgarinnar og þekkt
um allan heim. Nú er talið að hryðjuverkamenn hafi hótaö aö sprengja hana,
eöa aörar brýr i Kaliforníu, á allra næstu dögum. Viðbúnaöur er mikill.
ið jafnvel gætt,“ sagði ríkisstjórinn
enn fremur.
Kalt vatn rann milli skinns og
hörunds á mönnum á vesturströnd-
inni þegar Gray Davis tilkynnti á
fréttamannafundi að sér hefðu
borist það sem hann kallaði trú-
verðugar upplýsingar um að reynt
yrði að sprengja eina af helstu brúm
Kaliforníu á háannatíma einhvem
tíma milli 2. og 7. nóvember, það er
í dag og fram á næsta miðvikudag.
Aðspurður sagði Davis að brýrn-
ar sem hér um ræddi væru Golden
Gate- og Bay-brýrnar í San
Francisco, Vincent Thomas-brúin
við höfnina í Los Angeles og
Coronado-brúin í San Diego.
Borgaryfirvöld í San Francisco,
þar sem hundruð þúsunda fara um
brýrnar tvær á degi hverjum, lögðu
áherslu á að engin ástæða væri til
að óttast þar sem hótunin hefði ver-
ið misskilin. Þeir sögðu að menn
yrðu við öllu búnir.
Breskir fjölmiðlar segja ferð Blair til Miðausturlanda misheppnaða:
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, segist bjartsýnn á að friður
komist á fyrir botni Miðjarðarhafs eft-
ir ferð sina um Miðausturlönd tvo síð-
ustu daga. Þar ræddi hann við forystu-
menn í Sýrlandi, Sádí-Arabíu, Jórdan-
íu, ísrael og Palestinu og segist hafa
fundið fyrir friðarvilja í einkaviðræð-
um sínum við forystumenn landanna.
Hann sagðiast þó hafa orðið var við
„gjá misskilnings" milli vestrænna
ríkja og múslímskra þegar baráttan
gegn hryðjuverkum var rædd.
Breskir fjölmiðlar eru ekki á sama
máli um árangur ferðarinnar og hafa
bæði The Guardian og The Daily
Telegraph fjallað um hana á forsíðum
sinum og sagt hana misheppnaða.
Sérstaklega hefði fundurinn með
Bashar al-Assad, forseta Sýrlands
komið illa út fyrir forsætisráðherr-
ann, þar sem Sýrlandsforseti hefði
Blair og Sharon
Frá blaöamannafundi sem haldinn
var eftir fund Tony Blairs meö Ariel
Sharon í Jerúsalem í gær.
lýst yfir tvöföldu siðgæði Vesturlanda
með þvi að styðja árásir Bandaríkja-
manna á Afganistan á meðan ekkert
væri sagt um yfirgang ísraela gegn
Palestínumönnum sem væri ekkert
annað en hryðjuverk.
Fundur þeirra Blairs og Ariels
Sharons, forseta Israels, í gær var
líka gagnrýndur í ísraelskum dag-
blöðum, en Sharon notaði tækifærið
til að tilkynna að hann væri að setja
saman samningnefnd sem hitta
myndi fulltrúa Palestínumanna strax
og vopnahlésskilmálarnir héldu en
alls ekki fyrr en lát yrði á þrettán
mánaða ófriði á svæðinu. Palestínu-
menn eru þó enn passlega sannfærðir
um friðarvilja Sharons og hafa sagt
að þetta útspil hans sé aðeins sýndar-
mennska vegna fyrirhugaðs fundar
hans með Bush Bandaríkjaforseta í
næstu viku.
Tony Blair bjartsýnn á
aö friður komist á