Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 24
I
28______
Tilvera
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
DV
Reddarinn
Dustin Hoffman sviðsetur stríð í
Wag the Dog.
Wag the Dog ★★★ 45^
t®)
Forsetavandræði
I upphafi erum við í Washington
og mikil vandræði steðja að Hvíta
húsinu. Svo virðist sem forsetinn
hafi átt í fullinnilegu sambandi við
unga stúlku og einungis nokkrir
dagar til kosninga. Það verður því
að bregðast skjótt við og stjórnar
Conrad Brean (Robert De Niro)
varnaraðgerðum sem eru fyrst og
fremst fólgnar í þvi að dreifa athygli
fjölmiðla frá hinni viðkvæmu yfír-
sjón forsetans. Brean fær til liðs við
sig kvikmyndaframleiðanda frá
Hollywood (Dustin Hoffman). Sam-
an setja þeir á svið stríð og það við
Albana af öllum þjóðum. Frábær
skemmtun með góðum leikurum og
vel skrifuðu handriti:
Sýnd á Stöö 2 á sunnudag kl. 23.3
1
* *fC
Tveir góðir
Jackie Chan og Chris Tucker prófa
v hvor annan.
Rush Hour ★★★
Ólíkir félagar
Jackie Chan hefur þaö fram yflr
aðra leikara sem eru á sömu línu og
hann að hafa gott auga fyrir því
spaugilega í öllum hasarnum og er
greinilegt að hann hefur góðan
húmor. Það var því snjallt að etja
honum saman við Chrish Tucker
sem slær út sjálfan Eddie Murphy
þegar kemur að kjaftavaðli. Þessir
tveir ólíku leikarar ná vel saman í
Rush Hour sem er fyrst og fremst
vel heppnuð gamanmynd, enda eru
yfirleitt slagsmálatriðin útfærð á
—■ > þann hátt að áhorfandinn getur
hlegið um leið og hann fylgist
spenntur með.
Sýnd á Stöö 2 á laugardag kl. 22.10
Innbrotsþjófur
Clint Eastwood er meira og minna
á flótta í Absolute Power.
Absoiute Power ★★!
Clint í vondum málum
Clint Eastwood leikur flinkan
innbrotsþjóf sem er rangur maður á
röngum stað. í upphafi sjáum við
hann vera að brjótast inn i villu
eina og ræna þvi sem hann telur
verðmætast. Hann verður vitni að
því þegar maður kemur inn með
konu, bæði eru drukkin og gera sig
likleg til bólfara. Áður en af því
verður æsist leikurinn í þá veru að
,r maöurinn verður konunni að bana.
Okkar innbrotsþjófur hefði betur
verið annars staðar þegar í ljós
kemur hver morðinginn er. Fín af-
þreying sem óhætt er að mæla með.
Eastwood er kannski ekki alveg jafn
fljótur og áður en hefur útgeislun á
viö marga yngri leikara.
Sýnd I Sjónvarpinu á laugardagskvöld kl.
^ 22.35
Maðurinn
bak við
Frasier
Leikarinn Kelsey
Grammer er einn vinsœl-
asti sjónvarpsleikari
heims. í mörg ár hefur
hann leikið sálfrœðing-
inn Frasier í samnefnd-
um þáttum, fengið frá-
bærar viðtökur og hreppt
fjölda verðlauna. Einka-
líf Grammers var löngum
erfitt og markað af áföll-
um, en hann segist nú
hafa fundið hamingjuna.
Foreldrar Kelsey Grammers
kynntust í tónlistarskóla í New York.
í hjónabandi sinu eignuðust þau son-
inn Kelsey og dótturina Karen. Eftir
fæðingu dótturinnar, sem var tveim-
ur árum yngri en Kelsey, var hjóna-
bandinu lokið og móðirin flutti með
börnin til foreldra sinna.
Kelsey saknaði ekki foður sins sem
var skapmikill áflogaseggur. Faðir-
inn giftist á ný en var drepinn 38 ára
gamall þegar Kelsey var tólf ára.
Morðinginn hafði kveikt eld kringum
hús hans og þegar faðirinn fór út að
rannsaka málið var hann skotinn til
bana. Morðinginn var talinn vanheill
á geðsmunum. Kelsey segist ekki
hafa áttað sig fullkomlega á dauða
föður síns fyrr en hann varð sjálfur
38 ára gamall. Þá gerði hann sér fyrst
grein fyrir því hversu skamma ævi
faðir hans hafði átt.
hnífum fjörutíu og tvisvar sinnum,
aðallega í bak og axlir. Síðan hentu
þeir henni út úr bílnum. Einhvern
veginn hafði hún styrk til að
skríöa að húsi. Það var mann-
laust og þegar húseigandinn
kom heim hafði henni blætt út.
Fjórum mánuðum siðar voru
morðingjar hennar handtekn-
ir, þrir menn, sextán, sautján
og nítján ára. Karen var
sjötta manneskjan sem þeir
höfðu drepið. Hún var átján
ára þegar hún var myrt.
Fimm árum síðar varð
enn einn Qölskylduharm-
leikurinn þegar tveir
hálfbræður Kelseys
drukknuðu.
Fljótlega eftir að Karen
var myrt hætti Kelsey
vinnu sinni sem þjónn, enda
hafði hann gert sér grein fyrir
því að leiklistin væri það eina
sem hann gæti starfað við ætti
hann að verða ánægður. Hann
lék við leikhús í San Diego og frá
1976 til 1978 lék hann í verkum eftir
Shakespeare, Bemard Shaw, Ionesco
og Harold Pinter. Hann lék á sviði
víða um Bandaríkin og á Broadway i
Macbeth og Othello. Hann kom fram
í nokkrum sjónvarpsþáttum. Stóra
tækifærið kom árið 1984 þegar hann
fékk hlutverk Frasier Krane í sjón-
varpsþáttunum Staupasteini. Frasier
var sálfræðingur sem vissi nákvæm-
lega hvað var að öðrum en gat ekki
leyst úr eigin vandamálum. Upphaf-
lega átti Kelsey einungis að leika í
sjö þáttum en frammistaða hans þótti
svo frábær að hann var gerður að
fastagesti. í kjölfarið fékk hann eigin
Kelsey Grammer
Líf hans hefur sannarlega ekki verið
áfailalaust.
FJölskylduharmleikir
Kelsey var þrettán ára þegar afi
hans lést. Mjög náið samband hafði
verið milli þeirra og Kelsey leitaði
huggunar i verkum Shakespeares.
Hann lék í skólaleikritum og kennar-
ar hans hvöttu hann til að leggja fyr-
ir sig leiklist. Hann var sautján ára
þegar hann komst inn í Julliard-lista-
háskólann en þótti ekki standa sig
nægilega vel og var vísað úr skóla.
Þá fór hann að vinna fyrir sér sem
þjónn. Systir hans Karen vann á
þessum tíma á veitingastað. Eitt
kvöld lögðu þrír menn bíl sinum
við veitingastaðinn og ætluðu að
ræna hann. Karen gekk til þeirra
spurði hvað þeir væru að gera. Þeir
hentu henni inn i bílinn og keyrðu
með hana burt. Hún komst út úr bíln-
um en þeir náðu henni aftur, nauðg-
uðu henni og stungu hana síðan með
Frasier
Samleikur þeirra Kels-
ey Grammers og David
Hyde Pierce hefur ver-
ið mjög góður frá upp-
hafi.
Kvikmyndaleikarinn
Kelsey Grammer.
Kelsey Grammer hefur
ekki leikið í mörgum
kvikmyndum. Síðast
lék hann vafasaman
sjónvarpsfréttamann í
15 Minutes.
sjónvarpsþátt um Frasier sem hlotið
hefur fjölda Emmy-verðlauna. Þetta
árið er þátturinn tilnefndur til ellefu
verðlauna.
Átakamikið einkalíf
Einkalíf Kelsey Grammers hefur
verið átakamikið. Fyrsta eiginkona
hans var Broadway-dansmær en
hjónabandið var stormasamt frá upp-
hafi og þau skildu skömmu eftir að
dóttir þeirra fæddist. Kelsey eignað-
ist aðra dóttur milli hjónabanda.
Hann kvæntist í annað sinn konu
sem var ofbeldisfull fatafella. Eftir að
hann kærði hana fyrir líkamsárás
reyndi hún að fyrirfara sér með þvi
að blanda saman töflum og víni. Hún
skaðaði ekki sjálfa sig en missti fóst-
ur. Síðan seldi hún sögu sína slúður-
blaði. Á þessum tíma var líf Kelseys
í molum og hann var orðinn háður
kókaíni. Hann sat inni í mánuð eftir
að hafa verið tekinn drukkinn við
stýri og fyrir að hafa kókaín í fórum
sínum. Árið 1996 velti hann bíl sin-
um eftir að hafa verið drukkinn við
stýrið. Hann sakaði ekki en var mjög
brugðið og fór í meðferð áður en
hann sneri aftur til vinnu við Frasi-
er-þættina
Kelsey kvæntist í þriðja sinn árið
1997 sýningarstúlku og dansara,
Camillu. Nýlega eignuðust þau hjón
dóttur, sem meðgöngumóðir fæddi. I
dag segir Kelsey Grammer: „Mér
finnst ég vera einn af heppnustu
mönnum í heimi. Þrátt fyrir alla
sorgina hef ég kynnst meiri ham-
ingju en ég hefði getað ímyndað
mér.“