Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 26
30 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 Tilvera I>V Litrík fjöll og fljúgandi skip „Litir frá öðrum heimr nefnir Ketill Larsen málverkasýningu sem hann opnar í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun. Myndirnar eru hátt á annað hundrað, unnar með akrýl- og olíulitum. Flestar eru þær byggð- ar á frjálsu hugarflugi, sýnum og ímyndunum listamannsins um aðra heima. Þar er litríkt, fjöllótt lands- M lag með blómum, fljúgandi skipum og gullnum kirkjum. Auk þess er frumsamin tónlist eftir listamann- inn flutt af bandi. Hún er í svipuð- um dúr. Ketill er þekktur leikari, sögumaður og skemmtikraftur og þetta er 32. einkasýning hans. Góöur gjörningur Sara Björnsdóttir myndlistar- maður opnar einkasýningu í Gallerí Skugga á morgun, 3. nóvember. Hún ber heitið „Fljúgandi diskar og önn- ur undursamleg fyrirbæri". Þar sýnir Sara skúlptúra, lágmyndir, myndbands- og hljóðverk og eru þau síðastnefndu unnin út frá rými gall- erísins. Við opnunina, kl. 16, stund- víslega, flytur Sara góðan gjöming sem áður var fluttur við opnun listamessu í Caracas í Venesúela. Rjóðrin minna á dómkirkjur Franska myndlistarkonan Dom- inique Ambroise opnar sýningu í __Gallerí Stölakoti við Bókhlöðustíg 6 á morgun kl. 15. „Staðir samspila" heitir hún. Þar verða olíumálverk og vatnslitamyndir af lífi og nátt- úru. Efnið sækir listakonan einkum í sveitaumhverfið í Frakklandi sem einkennist af gróskumiklum görð- um þar sem rjóðrin minna á dóm- kirkjur. Þar ólst hún upp en er nú búsett hér á landi. Við sköpun sinna ■4§- verka kveðst hún helst nota olíuliti „vegna litanna og ljómans". DV-MYND BRINK Kjöftugur og skemmtilegur karakter Jónas Halldórsson antiksali segist vera hræðilega manískur og hella sér affullum krafti út í það sem hann tekur sér fyrir hendur. „I antikinu tekst mér að sameina áhugamál og vinnu. “ Fornmunir: Antik er eins og hjónaband Jónas Halldórsson, eða Gonni eins og hann var kallaður í skóla, eigandi verslunarinnar Antikbúðin, stendur við skenk innst í búðinni og býður góðan daginn. Gonni er kjöftugur, sér- kennilegur og skemmtilegur karakter, hann er þéttur á velli og auðþekkjan- legur á hringuðu yfirvaraskegginu og minnir einna helst á sýslumann af gamla skólanum. Hann er alveg eins og ég ímyndaði mér að antiksali ætti að vera. Keypti fyrsta dánarbúið „Ég er búinn að vera antiksali í tíu ár þó ég hafi aldrei ætlað mér það. Konan mín og faðir voru í þessu og þau fengu mig einu sinni til að vera í búðinni í tvo tíma. Ég féll gersamlega fyrir starfinu og keypti fyrsta dánar- búið um kvöldið eftir smáauglýsingu í DV eins og ég hefði aldrei gert neitt annað.“ Gonni var fyrst með verslun á Hverfisgötu, síðan í Austurstræti, þaðan flutti hann sig yfir í Aðalstræt- ið og nú síðast upp á Laugaveg. „Það er svo merkilegt að flest húsin sem ég hef verið í hafa verið fjarlægð. í þetta sinn flutti ég mig því í tiltölulega nýtt hús sem á að geta verið á sama stað í að minnsta kosti níutíu ár.“ Hrikalega manískur Jónas segist reyndar alltaf hafa ver- ið veikur fyrir gömlum hlutum og þess vegna verið hræddur við að hella sér út í bissness tengdan antik. „Ég sé að vísu ekki eftir þvt í dag þar sem mér tekst að sameina vinnuna og áhugamál og skemmti mér konung- lega.“ Að sögn manna sem þekkja til Jónasar hefur hann víðtæka þekkingu á antikmunum og er því oft fenginn til að meta dánarbú fyrir fólk sem vill losna við óþarfa ágreining. Gonni er líka öruggur með sjálfan sig þegar hann er spurður um þekk- ingu sína á þessu sviði. „Það er mjög algengt að aðrir antiksalar hringi í mig og spyrji um verðgildi íslenskra hluta. Ég er hrikalega manískur og helli mér út í hlutina af fullum krafti þegar ég fæ áhuga á einhverju." Fyrsta skrúfan „Einu sinni var ég að aldursgreina skáp úr silkiviö með handmáluðum englum. Það tók mig langan tíma að eignast skápinn, ég sá hann snemma á ferlinum og það liðu fimm ár þangað til hringt var í mig og sagt að ég gæti fengið hann. Jæja, ég var að dunda mér við að skoða skápinn og bera hann saman við bækling hjá bresku uppboðsfyrir- tæki. Að mínu mati var skápurinn frá því rétt fyrir aldamótin 1800 en klukk- an hálftvö um nóttina fann ég skrúfu í einum fætinum sem setti strik í reikninginn. Að mínu viti kom skrúf- an fram á sjónarsviðið í kringum aldamótin 1900 en þessi var greinilega búin að vera í skápnum frá upphafi og hann var eldri en það. Það tók mig því hálfa nóttina að komast að því að skrúfur voru fyrst notaðar um 1730 og að byrjað var að fjöldaframleiða þær um 1760. Aldursgreining reyndist því rétt og núna veit ég allt um uppruna skrúfúnnar." Þá er gaman Þegar Jónas er spurður hvemig fólk velji sér antik svarar hann þvi til að hver hlutur eigi sinn viðskiptavin. „Mér leiðast afskaplega sölur þar sem fólk er að reyna að fylla upp í óham- ingju með því að kaupa eitthvað. Fólk á að kaupa hluti sem passa akkúrat á rétta staðinn. Ég geng reyndar stund- um svo langt að skipta mér af því hvernig fólk raðar inn í íbúðirnar hjá sér og þá finnst mér garnan." Jónas segir að antik sé eins og hjónaband, fólk umgengst það alla ævi. „Þetta eru ekki hlutir sem þú hendir eftir nokkur ár frekar en mak- inn.“ Fólk er hætt að henda „Markaðurinn hefur breyst mikið síðan ég byrjaði í þessu, sem betur fer. Fólk er hætt að henda öllu gömlu og nýtnin orðin meiri. Það er líka til mikið af alls konar söfnurum sem eru að leita að einhverju spes. Þeir hegða sér yfirleitt öðmvísi en aðrir menn og ég þekki þá strax. Safnararnir eru upp til hópa hæverskir og rólegir menn sem lítið fer fyrir. Þeir spyrja yfirleitt um verðið á nokkrum hlutum og einn af þeim er hluturinn sem þeir eru að leita að.“ Gonni segir að þetta sé nauðsynlegt til þess að antiksalinn freistist ekki til að setja allt oft hátt verð á hlutinn sem safnarinn er að falast eftir og að þetta sé oft skemmtilegur leikur. „Stundum þegar ég kaupi inn hluti veit ég að ákveðinn aðila langar í hann og þá set ég hlutinn út i glugga. Oftast nær hringja þeir í mig um kvöldið og biðja mig um að taka hann frá. Ég skil ekki hvemig þeir fara að þessu en þeir eru ótrúlega naskir, ég er ekki einu sinni með skráð síma- númer heima hjá mér.“ Fólk safnar ótrúlegum hlutum Jónas segir að Islendingar séu miklir safnarar og segist standa á því fastar en fótunum að íbúar kaldra eylanda séu safnarar í eðli sínu. „Það er til fólk sem safnar ótrúlegustu hlut- um. Ég á til dæmis félaga sem safnar leikfóngum. Hann vinnur erfiðis- vinnu en notar hvert tækifæri til að koma með mér og skoða dót og ljómar af ánægju ef hann finnur eitthvað sem hann vantar í tíunda hvert skipti, en hann á lika einstakt leikfangasafn." Hvernig á að velja „Ný hús eru ekki hönnuð utan um gömul húsgögn þannig að fólk verður að kaupa einn og einn hlut í einu eft- ir því hvar hann passar. Heima hjá mér ægir öllu saman en hver hlutur á sér sögu eða eitthvað annað sem mér finnst sjarmerandi. Að mínu mati á fólk ekki að kaupa allt í sömu viðar- tegundinni, það er eins og að ganga alltaf í svörtu og sama sniðinu alla daga ársins. Það er út í hött að kaupa sér skáp sem passar svo ekki inn í húsið. Þegar fólk kaupir antik á það að passa sig á því að ekki sé búið að breyta hlutnum. Það verður að gæta sín á leyndum göllum og að ef hlutur- inn hefur verið lagaður að það sé vel gert.“ Jónas segir ekkert óeðlilegt við að hlutir bili eftir ákveðinn tíma en að það sé hægt að gera við allt. Það er bara ekki sama hvernig það er gert. „Menn verða líka að ganga úr skugga um að þeir fái réttar upplýs- ingar um aldur og uppruna hlutanna þannig að þeir viti hvað þeir eru með í höndunum." Að lokum er Gonni spurður að því hvað sé antik og það stendur ekki á svari. „Það er allt sem er eldra en fimmtíu ára gamalt og jafnvel glænýj- ir hlutir sem seljast upp og verða að söfnunargrip á fyrsta degi.“ -Kip Akureyri: Dýrðir í Síðuseli - á 20 ára afmælinu Það var mikið um dýrðir í leik- skólanum Síðuseli á Akureyri á dögunum þegar haldið var upp á 20 ára afmæli hans. Foreldrar fjöl- menntu í leikskólann af þessu til- efni þar sem bömin léku leikrit, sungu og sýndu hæfileika á ýmsa aðra lund. Fullorðnum var boðið upp á kaffi og meðlæti en krakkarn- ir fengu pitsuveislu. Um þessar mundir er vingjarn- leiki það þemaverkefni sem sérstak- lega er unnið með í Síðuseli. „Okk- ur þótti tími til kominn að leggja sérstaka áherslu á slíkt,“ segir Snjó- laug Pálsdóttir leikskólastjóri, en verkefnið er unnið í samvinnu við leikskólana Sunnuból og Krógaból. Alls eru í Síðuseli 89 börn sem flest eru úr Síðu-, Gilja- og Hlíðahverfum sem eru í Glerárþorpi á Akureyri. -sbs Góðar gjafir Foreldrafélag Síðusels færði skólanum aö gjöf stafræna myndavél sem Sig- urður Steingrímsson, formaður félagsins, sést hér afhenda Snjólaugu Páls- dóttur leikskólastjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.