Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 28
32 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 Tilvera DV %'f ' . ^ i ^ Jj ' I D’Artagnan í skylmingum Fyrrum módel, Justin Chambers, leikur þessa frægu söguhetju. The Musketeer: Skytturnar aldrei verið fjörugri Frumsýnd verður í dag ævintýra- myndin The Musketeer, sem gerð er eftir hinum frægu sögum Alexandre Dumas um D’Artagnan og félaga við frönsku hirðina. Hér á landi hafa bækurnar notið vinsælda sem ann- ars staðar. Leikstjóri er Peter Hyams (The Presidio, Stay Tuned, End of Days) og nýtur hann aðstoð- ar slagsmálahönnuðarins Xin Xin Xiong frá Hong Kong til að sýna okkur það nýjasta í framsetningu bardagaatriða. Hyams leggur meg- ináherslu á söguna um D’Artagnan og eru þvi hinar skytturnar auka- persónur í myndinni. D’Artagnan (Justin Chambers) er sveitastrákur sem er með hreint ólíkindum lipur með sverðið. Hann tekur þá ákvörðun að ferðast til Parísar og freista þess að komast í úrvalslið skyttnanna, sérlegrar líf- varðasveitar franska konungsins. Þegar D’Artagnan kemur til Parísar er hinn illi kardínáli Richelieu bú- inn að leysa upp lífvarðasveitina og hyggst hrifsa til sín völdin, en hann hefur sér til aðstoðar Febre, sérlega hættulegan og færan skylmingar- mann. D’Artagnan er fljótlega kom- inn í baráttu gegn kardinálanum og hyski hans, þar sem hann, með kjör- orð skyttnanna að leiðarljósi, reyn- ir að hindra valdaránið og forða Frakklandi frá stríði við Englend- inga. Justin Chambers, sem leikur D’Artagnan, var upphaflega módel, uppgötvaður af starfsmanni Calvins Kleins í neðanjarðarlest New York- borgar. Aðrir leikarar eru Catherine Deneuve, sem leikur Önnu drottningu, Stephen Rea leik- ur Richelieu kardínála, Mena Suvari leikur Francescu, sem D’Artagnan er hrifinn af, og Tim Roth leikur Fabre, hættulegasta óvininn. -HK Fossvogsdalur Kort úr bæklingnum Gönguleiöir í Reykjavík. Útg. Reykjavíkurborg. Kortagerö: Garöahönnun. Björn Jóhannsson. Fossvogsdalurinn: Heill heimur út af fyrir sig Þótt tekið sé að snjóa í fjöll er engin ástæða til að leggja gönguskóna á hilluna. Enn er víöa snjólaust á láglendi og ekki þarf alltaf að fara um langan veg til að finna ákjós- anlegar gönguleiðir. Þær eru allt í kringum okkur. Á höf- uðborgarsvæðinu er ótöluleg- ur fjöldi göngustíga, langra og stuttra. Sumir tengja byggðar- lög og hverfi, aðrir mynda hringleiðir um ákveðin svæði og sums staðar er hægt að velja úr mörgum misjafnlega stórum hringjum um sama svæðið. Margir þessara stíga hafa verið lagðir eftir að byggð og gatnakerfi var skipulagt og þá eins fjarri ökuleiðum bifreiða og hægt hefur verið að koma við. Því er hægt að ganga um þá, til- tölulega laus við óloft og eimyrju frá blikkbeljunum. Byrjar við Nauthól Einn skjólsælasti staðurinn í Reykjavík og nágrenni er Fossvogsdalurinn. Hann er líka afar vinsæll til göngu- ferða og meðal þeirra sem þar eru kunnugir er Sigurlaug Jóna Sigurðardóttir læknarit- ari. „Fossvogsdalurinn er heill heimur út af fyrir sig,“ segir hún og kveðst gjarnan ganga þar lengri eða styttri brautir eftir því sem henti hverju sinni. En hvar byrjar hún og hvert fer hún? Best að fylgja henni eftir einn hring. „Mér finnst fmt að fara út að Nauthólsvík og byrja þar, ekki síst vegna þess að þar er svo gott að setjast inn á Naut- hól á eftir og fá sér hressingu, ef tími og fjárhagur leyfa,” segir Sigurlaug. En hún slór- ar ekkert í upphafi heldur tekur stefnuna eftir stíg sem liggur austanvert í Öskjuhlið- inni. Þegar gengið er eftir þessum stíg er fljótlega komið Sigurlaug Jóna Sigurðardóttir „Eitt af því sem gefur dalnum gildi er aö þar er hægt aö velja um misstóra hringi eftir því sem tíminn leyfír hverju sinni. “ Við hirðina Richelieu kardínáli (Stephen Rea), Lúövík kóngur (Daniel Meguich) og Anna drottning (Catherine Deneuve). að áningarstað með borði og bekkj- um en þar sem við erum nýlagðar af stað stikum við stórum fram hjá honum. Stuttu seinna greinist stíg- urinn og við Sigurlaug tökum hægri beygju niður að voginum. Þar í fjör- unni eru sendlingar og sandlóur á vappi en við höldum vappinu áfram og innan skamms höfum við kirkju- garðinn á vinstri hönd. Um leið og við hugsum til þeirra sem eru hin- um megin grafar hækkum við flug- ið og göngum yfir brúna yfir Hafn- arfjarðarveginn. Það er dálítið skemmtilegt. Vatnaskil við Fossvogsskóla Skógræktin á vöxtulegan reit í dalnum og Svartiskógur heitir hann. Sigurlaug segir það vera stærsta samfelldan skóg á höfuð- borgarsvæðinu, með hæstu tré um 12 metra. Þar þjóta smáfuglar milli greina. Við fylgjum stígnum, fram hjá skógræktarstöðinni og færum okkur nær læknum sem rennur eft- ir miðjum dalnum. Bæði fólk og fer- fætlingar eru á ferðinni og teyga ferska loftið enda býður veðrið upp á útivist. Það er glansandi bjartur morgun, stafalogn og fyrsta vetrar- nóttin hefur skilið eftir sig hrím á stráum og greinum. Innar í dalnum göngum við fram hjá Fossvogsskóla. Þar eru vatnaskil. Lækimir í dalnum renna hvor í sína áttina, annar til vesturs í Fossvoginn, hinn til austurs í Elliðaárnar. Við fylgjum þeim sem fer í vestur, göng- um yfir brú og förum um Kópavoginn til baka fram dalinn. Sjáum við ekki ál! Göngustígurinn er óreglu- legri Kópavogsmegin. Krakkar á hlaupahjólum láta það samt ekki hindra sig i að bruna fram hjá. „Það hlýtur að vera gaman að vera á svona hjóli,” segir Sigurlaug og ekki er hægt annað en taka undir það. Kannski við fáum okkur svoleiðis. Snæland er gamalt kenni- leiti í Kópavoginum. Þar var býli. Við það eru Snæ- landsvídeó og Snælandsskóli kennd sem við örkum fram hjá. Stuttu seinna förum við yfir eina af mörgum brúm sem liggja yfir Fossvogslæk- inn og vippum okkur aftur yfir í höfuðborgina. Gufa stígur upp af Fossvogslækn- um og hann sýnist funheitur þar sem hann rennur milli hrímgaðra bakka. Þegar hendi er stungið í lækinn er hann samt eiginlega kaldur. Sigurlaug segir þar samt þrífast afls konar lífverur sem líki þetta hitastig. Og viti menn. Sjáum við ekki ál undir einni brúnni! Hann er nú samt eitthvað heilsulítill þegar að er gáð og gefur upp öndina í okkar viðurvist. Við reynum að afbera það og höldum ferð okkar áfram, komnar á sömu slóðir og við gengum um hálftima fyrr - fram hjá skógrækt, yfir brúna og beina leið á Nauthól. Úti fyrir er borð með vatnskönnu og glösum en við erum í þörf fyrir eitthvað heitt og súkkulaði með rjóma verður fyr- ir valinu. Við teljum okkur trú um að línurnar þoli það eftir svona hressilega göngu í hálfan annan tíma. -Gun. MYND GYÐA SIGGEIRSDÓTTIR Morgunn í Fossvogsdal Fyrsta vetrarnóttin hefur skiliö eftir sig hrím á stráum oggreinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.