Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Page 30
34 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson HKÍ22&BI1 85_ára________________________________ Óli Valdimarsson, Hliöarhúsum 7, Reykjavík. 80 ára________________________________ Einar Runólfsson, Sundabúö 1, Vopnafiröi. Kristinn Siguröur H. Jóhannesson, Víöinesi, Reykjavík. 75 ára________________________________ Guöný Hólmgeirsdóttir, Garðarsbraut 51b, Húsavík. Jensína Gísladóttlr, Reykjavíkurvegi 16b, Hafnarfiröi. 70 ára________________________________ Ásgeir Benediktsson, Fannafold 77, Reykjavík. Ingibjörg Benediktsdóttir, Brekku, Geiradal, Gilsfiröi. Kristín Baldursdóttir, Melasíöu 4e, Akureyri. Una Sveinsdóttir, Njálsgötu 108, Reykjavík. 60 ára________________________________ Jóhanna Þórisdóttir, Lautasmára 14, Kópavogi. Lovísa Siguröardóttir, Meðalholti 3, Reykjavík. Vilhjálmur Agnarsson, Furulundi 13c, Akureyri. 50 ára________________________________ Halldóra Ásdís Gestsdóttir, Litlu-Giljá, 541 Blönduós. Siguröur Ásgeirsson, Dalhúsum 91, Reykjavík. Sólveig V. Kristjánsdóttir, Laugarásvegi 5, Reykjavík. Þorvaldur Finnbogason, Heiöargerði 50, Reykjavík. 40 ára________________________________ Aöalbjörn Gröndal, Brandshúsum 4, Selfossi. Andrea Guörún Guömundsdóttir, Holtsgötu 16, Reykjavík. Andrés Magnússon, Mööruvallastræti 1, Akureyri. Brynja Ingadóttir, Þórsgötu 17, Reykjavík. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Staöarvör 13, Grindavík. Hólmfríður S. Sveinsdóttir, Kollsvlk, 451 Patreksfjöröur. Jóhanna Bryndís Jónsdóttir, Brúnastööum 53, Reykjavtk. Jón Garðar Hafsteinsson, Kvlholti 1, Hafnarfirði. Ólafur Gíslason, Fálkahrauni 9, Hafnarfirði. Smári Gestsson, Sigtúni 10, Patreksfiröi. Sæunn Lúðvíksdóttir, Lóurima 12, Selfossi. Þórdís Sveinsdóttir, Melum, Egilsstööum. Allt til alls ►I550 5000 Bryndís Ósk Reynisdóttir og Ólafur Sig- urösson létust af slysförum 29.10. Páll Rósinkrans Sæmundsson vélstjóri, Bergþórugötu 11, Reykjavík, lést sunnud. 28.10. Skafti Bjarg Helgason, Háholti 16, Hafnarfirði, andaöist þriðjud. 23.10. Út- förin hefur fariö fram. Jónína Ástríöur Jónsdóttir, Hafnarbraut 18, Höfn, Hornafirði, lést á hjúkrunar- heimlinu Skjólgaröi mánud. 29.10. Jónína Guömundsdóttir, Rauðalæk 42, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Land- sþltala Hringbraut mánud. 29.10. Unnur Ágústsdóttir Schram lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 31.10. Sigríður Björnsdóttir, Hrafnistu, áður Einarsnesi 21, Reykjavík, lést laugard. 20.10. Útförin fór fram I kyrrþey aö ósk ■hinnar látnu. . mHWf?HffufffHtmtt><i itti FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 DV Fólk í frcttum Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, var valinn Markaðsmaður Norðurlanda fyrir árið 2001. í tilefni þess tók hann á móti verðlauna- skjali og verðlaunapeningi frá Mari- anne Jelved, efnahagsmálaráðherra Danmerkur í Börsen - kauphöllinni í Kaupmannahöfn á mánudaginn var. Þetta kom fram í DV-frétt á þriðjudaginn. Starfsferill Sigurður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá Ví 1967, vipðskiptafræði- prófl frá HÍ1971, og MBA i rekstrar- hagfræði frá University of North Carolina í Chapel Hill í Bandaríkj- unum 1973. Sigurður var rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi hf. 1973-74, forstöðumað- ur fjárreiðueildar Flugleiða hf. 1974-79, forstöðumaður hagdeildar 1979-80, framkvæmdastjóri fjár- málasviðs Flugleiða 1980-83, fram- kvæmdastjóri starfsemi Flugeiða hf. í Bandaríkjunum með aðsetur í New York 1983-85 og hefur verið forstjóri Flugleiða hf. frá 1985. Sigurður sat í stjórn Lífeyrissjóðs Flugvirkjafélags íslands 1975-83, í stjórn Ferðaskrifstofunnar Úrvals 1977-83 og formaður 1982-83, í vara- stjórn Arnarflugs hf. 1978-83, for- maður fslensk-ameríska verslunar- ráðsins 1986-89, í framkvæmda- stjórn VSf 1987, i stjóm Þýsk-ís- lenska verslunarráðsins frá 1995 og formaður framkvæmdanefndar rik- isstjórnarinnar um bætta sam- keppnisstöðu fslands, tilnefndur af fjármálaráöherra 1995. Sigurður var styrkþegi Rotary Foundation 1971, styrkþegi Amer- ican-Scandinavian Foundation 1972, var valinn framúrskarandi einstak- lingur á íslandi 1985 af Junior Chambers á íslandi, og voru veitt Aviation Week’s 1992 Laurels Award fyrir framúrskarandi stjóm- un alþjóðaflugfélags. Þá hefur hann verið sæmdur fjölda heiðursmerkja. Fjölskylda Sigurður kvæntist 25.8. 1973 Peggy Oliver Helgason, f. 17.7. 1950, BA í kennslufræði, MA í kennslu- og uppeldisfræði, MA í stjórnunar- fræðum og MA i iðjuþjálfun. Hún er dóttir William Brinkley Oliver, f. 26.5. 1896, d. 26.9. 1961, lögmanns í Fuquay-Varina í North-Carolina í Bandaríkjunum, og k.h., Audrey Oliver, f. 11.11. 1918, d. 11.9. 1973, húsmóður. Systkini Sigurðar eru Sveinn Gunnar, f. 28.10.1947, viðskiptafræð- ingur hjá Landsbanka íslands; Ágústa, f. 17.5. 1949, hjúkrunarfræð- ingur; Jóhann Helgason f. 8.10.1951, dr. í jarðfræði; Helgi Sæmundur Helgason, f. 22.6. 1953, viðskipta- fræðingur og framkvæmdastjóri Til- raunastöðvarinnar í meinafræði að Keldum. Foreldar Sigurðar: Helgi Jónsson Sveinsson, f. 7.11. 1918, d. 22.6. 1999, fulltrúi hjá innheimtudeild LÍÚ, og k.h., Sigríður Sigurðardóttir, f. 30.5. 1920, húsmóðir. Ætt Helgi var sonur Sveins, sjómanns og verkamanns í Reykjavík, bróður Jóns, foður Jóns Margeirs útgerðar- manns. Sveinn var sonur Jóns, b. í Stapakoti í Njarðvíkum, bróður Helgu, ömmu Jóns Gíslasonar, for- manns Ættfræðifélagsins. Jón var sonur Einars, b. á Syðri-Brúnavöll- um á Skeiðum Eggertssonar, hrepppstjóra á Litlu-Fljótum í Bisk- upstungum Einarssonar. Móðir Ein- ars var Valgerður Halldórsdóttir, hreppstjóra í Bræðratungu Þórðar- sonar, pr. á Torfastöðum Halldórs- sonar. Móðir Þórðar var Vigdís Pálsdóttir, pr. á Torfastöðum Presta-Högnasonar. Móðir Sveins var Margrét, dóttir Jóns, pr. á Húsa- felli Grímssonar og Helgu Lýðsdótt- ur, sýslumanns Guðmundssonar. Móðir Helga var Anna Sigríður Guðjónsdóttir, b. í Reykjanesi í Grímsnesi, bróður Ástríðar, langömmu Vigdisar Finnbogadótt- ur. Guðjón var sonur Finns, b. á Kaldárhöfða Finnssonar og Guðrún- ar Beinteinsdóttur. Móðir Önnu Sig- ríðar var Jóhanna Finnsdóttir yngra, á Hrísbrú í Mosfellssveit Finnssonar og Guðrúnar Guð- mundsdóttur. Faðir Sigríðar var Sigurður, skip- stjóri og bæjarfulltrúi í Reykjavík Sigurðsson, í Garðhúsum í Reykja- vík Bjamasonar. Móðir Sigurður var Vilborg Sigurðardóttir, í Stein- húsinu í Reykjavík Þórðarsonar. Móðir Sigríðar var Ólína Ágústa Jónsdóttir, b. á Neðra-Hálsi í Kjós Guðmundssonar, og Sigríðar Jóns- dóttur, á Neðra-Hálsi Sæmundsson- ar. Sextug ■K'T 11 — Sextugur Sigurbjörg Björgvinsdóttir forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Kópavogi Haukur Hannibalsson starfsmaður Delta Sigurbjörg Björgvins- dóttir, forstöðumaður fé- lagsheimilanna Gull- smára og Gjábakka, Digranesheiði 34, Kópa- vogi, varð sextug í gær. Starfsferil! Sigurbjörg fæddist á Stóru-Reykjum í Vestur- Fljótum en ólst upp í Fyr- ir-Barði. Hún lauk prófi frá Kvenna- skólanum 1959, stúdentsprófi frá Öldungadeild MH 1989 og nam við félagsvísindadeild HÍ. Sigurbjörg vann hjá Samvinnufé- lagi Fljótamanna í Haganesvik 1959-62, í KRON við Álfhólsveg og í landbúnaðarráðuneytinu 1963-65. Með barnauppeldi og námi vann hún hlutastörf í Lyfjaverslun ríkis- ins í sautján ár, í Sjómannaskólan- um í átta ár og víðar. Hún hefur verið forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Kópavogi frá 1993. Sigurbjörg var formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópa- vogi, átti sæti í stjóm Kjördæma- sambands framsóknarmanna á Reykjanesi, sat í landstjórn og miðstjórn Framsóknarflokksins, í stjórn Landssambands framsóknar- kvenna, í svæðisráði fatlaðra á Reykjanesi, í nefndum um öldrunarmál, í stjórn Kvenréttindafélags ís- lands, Landsstjórn ITC- samtakanna og var blaða- fulltrúi samtakanna. Fjölskylda Sigurbjörg giftist 30.1. 1965 Hauki Hannibals- syni, f. 18.9. 1941, starfs- manni Delta. Hann er sonur Hanni- bals Guðmundssonar, bónda á Han- hóli, og k.h., Þorsteinu Kristjönu Jónsdóttur húsfreyju. Börn Sigurbjargar og Hauks: Heiða Jóna, maki Amar Bjarni Stef- ánsson; Hanna Þóra, maki Pétur Ingi Arnarson; Björgvin Jónas, maki Cinzie Fiorine; Birgir Már, maki Harpa Rós Jónsdóttir; Sigrún Edda, sambýlismaður Guðbjartur Pétur Ámason. Systkini Sigurbjargar: Erlendur Jón bifreiðastjóri; andvana f. dreng- ur; Sigurjóna kennari; Freysteinn múrari; Gylfi bankastarfsmaður; Guðjón bóndi; Þröstur Már mjólkur- fræðingur; Guðrún Fjóla banka- starfsmaður Foreldrar Sigurbjargar voru Björgvin Márusson, bóndi í Fyrir- Barði og k.h., Sigurlína Jónsdóttir. Haukur Hannibalsson, starfsmaður Delta, Digra- nesheiði 34, Kópavogi, varð sextugur þann 18.9. sl. Starfsferill Haukur fæddist í Þernuvik í Ögurhreppi en flutti til Bolungavíkur á fimmta ári og ólst þar upp. Hann lærði bifvélavirkjun hjá Sveini Egilssyni og lauk sveinsprófi 1965. Haukur hóf störf hjá Lyfjaverslun íslands 1968 og hefur síðan unnið í Borgartúni 6 við framleiðslu dreypi- og stungulyfja en nú heitir fyrirtæk- ið Delta. Haukur hefur setið í stjórn Vest- firðingafélagsins, stjórn Menningar- sjóðs vestfirskrar æsku og í stjórn Skógræktarfélags Kópavogs. Fjölskylda Haukur kvæntist 30.1.1965, Sigur- björgu Björgvinsdóttur, f. 1.11. 1941, forstöðumanni félagsstarfs aldraðra í Kópavogi Hún er dóttir Björgvins Márussonar, bónda í Fyrir-Barði og k.h., Sigurlínu Jónsdóttur. Börn Hauks og Sigurbjargar: Heiða Jóna, maki Arnar Bjarni Stefánsson; Hanna Þóra, maki Pétur Ingi Arnarson; Björgvin Jónas, maki Cinzie Fiorine; Birgir Már, maki Harpa Rós Jónsdóttir; Sigrún Edda, sambýlis- maður Guðbjartur Pétur Árnason. Systkini Hauks: Sigur- vin vélstjóri; Guðríður kennari; Jón, nú látinn, kennari; Lilja hjúkr- unarfræðingur; Hulda verslunar- maður; Ásdis húsmóðir; Bragi skriftvélavirki; Sigríður Halldóra húsmóðir, Sigrún verslunarmaður; Margrét bóndi; Fjóla húsmóðir; Jó- hann bóndi; Rebekka skrifstofumað- ur; Þorsteinn forstjóri. Foreldrar Hauks: Hannibal Guð- mundsson, bóndi á Hanhóli sem er látinn fyrir allmörgum árum, og k.h., Þorsteina Kristjana Jónsdóttir húsfreyja. Hannibal var sonur Guðmundar Steinssonar, sjómanns í Bolungar- vík, og Guðriðar Hannibalsdóttur. Þorsteina Kristjana var dóttir Jóns Jónassonar, b. á Birnustöðum í Ögurhreppi, og Guðmundínu Her- mannsdóttur. EBaflBmw Pétur J. Thorsteinsson Pétur J. Thorsteinsson sendiherra fædd- ist í Viðey 7. nóvember 1917. Hann var sonur Eggerts Briem, búfræðings og óð- alsbónda í Viðey, og k.h., Katrínar, syst- ur Muggs myndlistarmanns. Katrín var dóttir Péturs Thorsteinssonar, stórút- gerðarmanns á Bíldudal og í Kaup- mannahöfn. Pétur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1937, prófi í viöskiptafræðum frá HÍ1941 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1944. Pétur var starfsmaður utanríkisþjón- ustu íslands frá 1944. Hann var sendi- herra íslands í fjölda ríkja og oft í mörgum ríkjum samtímis, lengst af með aðsetur í Moskvu, París og loks Washington. Auk þess var hann fastafulltrúi Islands hjá Nato, OECD og EBE. Þá var hann ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu 1969-76. Pétur átti farsælan feril í utanríkis- ráðuneytinu enda traustur embættis- maður, afar vel látinn og ætíð tilbúinn að leysa hvers manns vanda. Hann var í forsetaframboði 1980, ásamt Albert Guðmundssyni, Guðlaugi Þorvalds- syni og Vigdísi Finnbogadóttur. Pétur kvæntist Oddnýju Elísabetu Stefánsson, BBA i viðskiptafræði og húsmóður og eignuðust þau þrjá syni, Pétur Gunnar, Björgólf og Eirík. Pétur lést 12. apríl 1995. Sigrún Þormóðs, Grandavegi 47, Reykjavík, er látin. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstud. 2.11. kl. 13.30. Friðgeir Örn Hrólfsson, Seljalandsvegi 24, ísafirði, verður jarösunginn frá Isafjarðarkirkju laugard. 3.11. kl. 14. Helena G. Zoéga, Hæöargaröi 20, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstud. 2.11. kl. 13.30. Finnbogi Sigurbjörnsson, sem andaðist laugard. 27.10., verður jarösunginn frá Fossvogskapellu föstud. 2.11. kl. 15.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.