Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Page 31
35
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
DV Tilvera
faM
k.d. Lang fertug
Kanadíska söngkon-
an k.d. Lang á stóraf-
mæli í dag. Lang, sem
er mikil mannréttinda-
kona og talsmaður
samkynhneigðra, hefur
einnig leikið í kvik-
myndum, meðal ann-
ars Eye of the Beholder. Lang hafði
verið vel þekkt söngkona í Kanada og
Bandaríkjunum þegar hún gaf út
fjórðu plötu sína, Ingenue, en sú plata
seldist í mörgum milljónum eintaka
og gerði hana heimsfræga. Þess má
geta að k.d. Lang er frá Winnipeg og
vilja sumir halda því fram að hún sé
af íslenskum ættum.
Tvíburarnir (2
Jr1'
:
um á framfc
r1
Gildlr fyrir laugardaginn 3. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
I Þú þarft að hugsa þig
tvisvar um áður en
þú tekur ákvörðun.
Gefðu þér tima fyrir
þáð sem þú hefur áhuga á.
Happatölur þínar eru 1,12 og 15.
FiskarniK19. febr.-20, mars):
Þú ert óvanalega
Isnöggur upp á
lagið. Það er ekki
liklegt til þess að
afla þér vinsælda í vinahópi
eða í samstarfi.
Hrúturlnn (21. mars-19. aoríl):
I Þú verður beðinn um
i að láta skoðun þina í
ljós. Þetta snýst um
^ eitthvað innan heimil-
isins. Hætta er á stormasömu
timabih í ástarsamböndum.
Nautið (?0. anril-20. maíl:
Miklar framfarir og
breytingar verða á hfi
þínu. Þú ferð í ferða-
lag sem heppnast ein-
stakíega vel.
Happatölur þínar eru 9,17 og 19.
Tvíburarnir m.. maí-21. iúní):
Hugur þinn er mjög
’frjór um þessar mund-
ir. Þér gengur vel að
koma skoðunum þin-
um á framfæri og á þig er virki-
lega hlustað.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
Það verða einhver
I vandræði fyrri hluta
dags vegna loforðs sem
kT X þér var gefið. Síðari
hlutinn veröur mim betri að öllu
leyti.
Llónlð (23. iúli- 22. áeústl:
. Mikið verður um að
vera hjá einhverjum
þér nákomnum. Þú
hjálpar mest til með
því að sýna þolinmæði og æsa þig
ekki upp í öllum látunum.
IVIevÍan (23. ágúst-22. sept.l:
Það er ekki hægt að
tala um að stórslys
.verði í dag en röð
óhappa einkennir dag-
inn í dag. Reyndu að forðast öll
yandræði.
Vogin (23. _sept.-23. okt.l:
Þér hentar mun betur
að vinna einn en með
öðrum í dag. Hætt er
við að ef þú reynir að
gefa einhverjum ráð í dag taki
hann það óstinnt upp.
Sporðdrekl (24. okt.-21. nnv.l
Þú ert einum of auð-
trúa og hefur tilhneig-
jingu til að treysta
' * þeim sem eru ekki
traustsins verðir. Happatölur
þínar eru 4,13 og 29.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2.i. des.):
s* ’-----.Þú ert óþarflega við-
rkvæmur fyrir gagn-
rýni sem þú verður
fyrir. Þú ættir að
reyna að slaka pinuhtið á.
Peningamálin standa vel.
Steingeitin (22. des.-19.' ian,):
. Þú ert ekki sérlega
þohnmóður við þá sem
rr Jr\ þér leiðast og óhkur
sjálfum þér að ýmsu
leyti. Þú færð sérstaka ánægju út
úr vinnunni.
Vogin (23. se
ý
gefa einhvi
Ný reiðskemma í Siglufirði:
Billy sér eftir
Bósa ljósári
Grínleikarinn Billy Crystal sér
ekki eftir mörgu sem hann hefur
gert eða ekki gert um dagana. Eitt
er það sem veldur honum nokkru
hugarangri, nefnilega að hafa hafn-
að að tala fyrir teiknimyndahetjuna
Bósa ljósár í víðfrægum myndum
um geimlögguna og Vidda kúreka,
vin hans.
„Mér er illa við að talað sé um
þetta. Þetta er það eina sem ég sé
eftir að hafa látið mér úr greipum
ganga,“ segir leikarinn ástsæli og
skemmtilegi, að sumum finnst.
Tamning innan-
húss möguleg
Félagar í hestamannafélaginu
Glæsi í Siglufirði fögnuðu merkum
áfanga í sögu félagsins fyrsta vetrar-
dag þegar tekin var formlega i notk-
un ný reiðskemma. Húsið er byggt
úr stálgrind, um 300 fm að stærð og
áfast félagsheimili hestamanna.
Bygging þess hófs um miðjan ágúst,
jafnframt var útbúið gerði utan við
húsið, 16x30 m að stærð.
Hreinn Júlíusson, formaður
hestamannafélagsins, sagði þegar
hann gerði grein fyrir byggingunni
aö tilkoma hennar gerbreytti að-
stöðu hestamanna yfir veturinn því
nú væri mögulegt að vera við tamn-
ingar innanhúss, en fannfergi og
veðurlag hefur oft gert hestamönn-
um örðugt um vik á vetrum. Þá
mun reiðskemman einnig gerbreyta
aðstöðu varðandi unglingastarf hjá
félaginu. Að sögn Hreins var bygg-
ingin að langmestu leyti reist í sjálf-
boðavirinu, auk hestamanna komu
vinir og kunningjar og lögðu hönd á
plóginn þannig að sáralítið þurfti að
greiða í vinnulaun, aðallega fyrir
teikningar. Þá lánaði Þormóður
rammi hf. tæki á meðan á bygging-
unni stóð, einnig aðstoðaði bæjarfé-
lagið hestamenn meðan á fram-
kvæmdinni stóð. Enn fremur var
DV-MYND ÖRN
Byggingarnefnd reiðskemmunnar
Taliö frá vinstri: Haraldur Marteinsson formaður, Gunnar Guömundsson og
Símon Helgi Símonarson.
Jón Dýrfjörð járnsmíðameistari
afar hjálplegur félaginu, auk þess að
selja stálgrindina í húsið á afar
sanngjörnu verði. Um eitt hundrað
manns fögnuðu þessum áfanga með
hestamönnum og þáðu höfðinglegar
veitingar sem konur hestamanna
sáu um. -ÖÞ
Enginn vill kaupa
stefnumót við Liz
REUTER-MYND
Leikarar dásama heimiliserjur
Leikararnir Vince Vaughn, Teri Polo og John Travolta stilla sér upp fyrir
Ijósmyndarana á frumsýningu kvikmyndarinnar Heimiliserja í Hollywood.
Myndin segir frá föður nokkrum sem reynir aö vernda son sinn fyrir
grimmum stjúpfööur. Almennar sýningar hefjast síöar í vikunni.
Nú er af sem áður var. Breska
fyrirsætan og leikkonan Liz Hurley,
sem einu sinni var með eftirsótt-
ustu stúlkum þessa heims, verður
víst að sætta sig við að vinsældirn-
ar hafa dalað. Reyndar svo mikið að
skoska viskífyrirtækið Chivas
Regal hefur hana ekki lengur með í
uppboði sem það efnir til á stefnu-
mótum við fræga fólkið.
Fólk er tilbúið að greiða háar fjár-
hæðir fyrir að snæða með kyn-
bombunni Charlize Theron eða fara
á frumsýningu með John Travolta.
Enginn sýnir Liz hins vegar áhuga.
„Við fengum því miður ekkert
boð í þetta núrner," staðfestir tals-
maður viskífyrirtækisins.
Annars spá menn mikið i það
hvort Liz sé nokkuð ólétt. Maginn á
henni þykir víst óvenju framsettur
en sjálf harðneitar fyrirsætan að
segja nokkuð til um hvort hún geng-
Ozzy gamli
beint í 1. sætið
Ozzy Osbourne er ekki dauður úr
öllum æðum þótt oröinn sé 53 ára og
búinn að syngja og rokka og djöflast
í meira en þrjátíu ár. Það sýndi sig
best á dögunum þegar nýja sólóplat-
an hans fór rakleiðis i fyrsta sætið á
sænska vinsældalistanum.
„Ótrúlegt. Ég get ekki þakkað
sænskum aðdáendum mínum nóg-
samlega," segir gamli rokkarinn í
viðtali við sænska blaðið Afton-
bladet.
Þar segir hann að velgengni plöt-
unnar megi meðal annars skýra
með þvi að það hafi verið svo gam-
an að vinna hana.
REUTER-MYND
Liz Hurley
Gamla kærastan hans Hughs Grants á ekki sjö dagana saela um þessar
mundir, pað er ef hún lætur sig vinsældir sínar einhverju skipta.
ur með barn undir belti. Hermt er
að hún sé gengin þrjá mánuði.