Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Síða 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Borgaryfirvöld leita nýrra leiða:
Vilja banna súlustaði
- í gegnum endurskoðað aðalskipulag
Borgaryfirvöld eru nú með til at-
hugunar að setja almenna reglu í
aðalskipulag borgarinn-
ar þess efnis að starf-
ræksla svonefndra
súlustaða sé óheimil í
Reykjavík, nema að
hún sé sérstaklega
leyfð í deiliskipu-
lagi. Endurskoðun
aðalskipulags
stendur nú fyrir
dyrum og hafa
lögfræðingar
þessa breyt-
ingu til skoðun-
ar. Hún yrði gerð í
samráði við Skipu-
lagsstofnun ríkis-
ins. Þá er fyrirhug-
að að kanna rétt-
arstöðu þeirra
staða sem þegar
eru starfræktir í
borginni
„Sú aðferð sem við höf-
um notað er sú að í hvert
skipti sem gert er deiliskipulag fyr-
ir tiltekinn reit í borginni þá er
tekið fram að þessi starfsemi sé
ekki heimiluð," sagði Árni Þór Sig-
urðsson, formaður skipulagsnefnd-
ar borgarinnar, við DV í morgun.
„Þetta er gríðarlega þungt i vöfum,
vegna þess að það eru hundruð
deiliskipulagsreita í borginni og
allur sá ferill er mjög seinunninn.
Nú erum við að láta athuga að láta
setja inn í aðalskipulag við endur-
skoðunina reglu um að þessi starf-
semi sé óheimil í Reykjavík í gegn-
um aðalskipulagið, nema að hún sé
sérstaklega leyfð í deiliskipulagi."
Árni Þór sagði að yrði þessi leið
farin og borgaryfirvöld hygðust
heimila súlustað í tilteknu hverfi
yrði sú tillaga auglýst og íbúar við-
komandi hverfis gætu sent inn at-
hugasemdir.
„Þessi breyting myndi koma í
veg fyrir nýja staði,“ sagði Árni
Þór. „Ég vil þessa staði burt úr
borginni, ég dreg enga dul á það.“
-JSS
Borgarleikhús styrkir baráttuna dv-mynd brink
Borgarleikhúsiö bauö sjúkraliöum í verkfallsaögeröum nýveriö á leiksýningu á sérstökum kjörum. „Viö geröum þeim
tilboö til aö styrkja þeirra baráttu, “ sagöi Guðjón Pedersen leikhússtjóri í samtali viö DV í morgun. Vissulega orkaöi
slíkt tvímælis þegar stofnun sem styrkt er af almannafé tæki afstöðu meö ákveðnum hópum. Hann sagöi þetta þó
ekki neina fastmótaða stefnu þannig aö aörir hópar i verkfalli gætu ekki gengiö aö slíkum tilboöum sem vísum.
Obreytt verðlag
Landsbankinn - Landsbréf spáir
, jk, óbreyttri vísitölu neysluverðs milli
október og nóvember. Gangi spáin eft-
ir verður vísitala neysluverðs miðað
við verðlag 1 nóvemberbyrjun óbreytt
eða 217,7 stig og mun vísitalan þá hafa
hækkað um 7,7% síðustu 12 mánuði.
Helstu þættirnir sem hafa áhrif á spá
um vísitöluna eru lækkun bensíns um
4 krónur og rúm 3% hækkun tóbaks.
Landsbankinn - Landsbréf heldur
sig við fyrri spá sína um 8,2% verð-
bólgu innan ársins og 6,5% miEi ára.
„Bíða verður niðurstöðu úr desem-
ber- og janúarmælingu þar til að fullu
liggur fyrir hver verðbólgan verður á
þessu ári. í fyrra voru niðurstöður
þessara mælinga lágar og var þar
helst að þakka rúmri 6% lækkun á
bensíni," segir í greinargerð með
verðbólguspánni. -BG
Gilding rifar segl
Fjárfestingarfélagið Gilding mun
minnka umsvif sín og hafa stjórnend-
ur félagsins m.a. ákveðið að draga úr
rekstrarkostnaði með fækkun starfs-
manna úr 11 í 6.
Þórður Magnússon, stjórnarfor-
maður Gildingar, segir að verið sé að
bregðast við gjörbreyttu rekstrarum-
hverfi og miklu gengistapi. Heimir
Haraldsson framkvæmdastjóri lætur
af störfum og tekur Þórður við hans
stöðu. Hins vegar liggur ekki fyrir
hvað Heimir tekur sér fyrir hendur.
Yfir 80% eigna Gildingar í óskráð-
í-Áum félögum eru í ölgerð Egils Skalla-
grímssonar og Securitas. Stærstu
skráðu eignirnar eru í Pharmaco,
Baugi, össuri og Marel. -HKr.
HVA0 VERÐUR UM
ÖNDVEGISSÚLURNAR?
Ráöherra hugar að einkavæðingu í flugumferðarmálum:
Breytt rekstrarform
en ekki einkavæðingu
- segir formaður flugumferðarstjóra. Órar, segir Össur
„Okkur er ljóst
að það er löngu
tímabært að gera
breytingar á þessu
rekstrarformi. Það
verður að aðskilja
flugumferðarstjórn-
ina frá eftirlitsaðil-
anum,“ segir Loftur
Jóhannsson, for-
maður Félags flug-
umferðarstjóra,
vegna þeirrar yfirlýsingar Sturlu
Böðvarssonar samgönguráðherra í
DV-yfirheyrslu í dag að verið sé að
skoða mögulega einkavæðingu i flug-
umferðarmálum. Loftur varar við að
gripið sé til grjótharðrar einkavæð-
ingar enda sé það ekki hægt þar sem
ekki sé um neina samkeppni að ræða.
„í þessari grein verður aldrei nein
samkeppni eins og hjá Símanum þar
sem margir geta veitt sömu þjónustu
á sama svæði. Við viljum hlíta og
fylgja leiðbeiningum Alþjóðaflugmála-
stjórnarinnar í þessum efnum. Þeir
vilja ekki að einkavætt sé í þeim
skilningi sem einkavæðing venjulega
þýðir. Þeir vilja að flugumferðar-
stjórnin verði áfram á ábyrgð ríkisins
svo sem Chicago-sáttmálinn kveður á
um. Þeir vilja að búin sé til sérstök
stofnun sem heitið gæti t.d Flugum-
ferðarþjónusta íslands. Þar væri um
að ræða sjálfstæða stofnun sem aflaði
sér eigin tekna og ráðstafaði þeim að
vild. Stofnunin yrði áfram á ábyrgð og
i eigu ríkisins," segir Loftur.
Hann segir Alþjóðaflugmálastofn-
unina hafa haft áhyggjur af þeirri þró-
un sem átt hefur sér stað víða í einka-
væðingarmálum. Sérstakar áhyggjur
hafi stofnunin af Bretlandi þar sem
flugumferðarstjórnin hafi verið einka-
vædd í sumar. Þaðan hafi heyrst af
ýmsum vanköntum. Loftur setur
spurningarmerki við einkavæðingu
flugvalla.
„Ég veit ekki hvort nokkur maður
hefur áhuga á að kaupa flugvelli.
Hver á að kaupa flugvöllinn í Stykkis-
hólmi eða á Hólmavík?" segir Loftur
og bendir á að ráðherrann hafi reynd-
ar verið að dreifa flugvöllunum á
stofnanir sína. Þannig eigi Vegagerð-
in núna flugvöllinn á Húsavík.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingar, segir að það séu
„hreinir órar að ætla að einkavæða
loftið yfir landinu".
„Hér er einnig um að ræða mikil-
væga flugöryggisþætti sem ráðherr-
ann virðist tala um í hálfkæringi.
Hvernig í ósköpunum ætla menn að
einkavæða þá þætti. Þá er það einfald-
lega grundvallaratriði sem jafnvel
Sjálfstæðisflokknum er ljóst að einka-
væðing þar sem samkeppni ríkir ekki
leiðir tU einokunar og verðspreng-
inga. Ég spyr líka hver ætti að kaupa
og halda úti smáflugvöEum úti um
land. Þetta er svo sérkennEegt tal hjá
ráðherranum að halda mætti að
Sturla væri ekki lentur eftir síðasta
flugtúr með Flugmálastjómarvél-
inni,“ segir Össur.
Sjá nánar DV-yfirheyrslu á bls. 6
-rt
Sveitarstjórinn í Hrísey:
Fullur stuðningur meirihluta
Meirihluti hreppsnefndar Hríseyj-
arhrepps lýsti á fundi sínum í gær-
kvöldi yfir fyUsta stuðningi við Pétur
BoUa Jóhannesson sveitarstjóra. í
bókun sem meirihlutinn lagði fram
segir að standi Þorgeir Jónsson
slökkvEiðsstjóri við kæru á hendur
Pétri vegna framgöngu hans á bruna-
stað um sl. helgi sé samstarfsgrund-
völlur miEi þeirra brostinn, en Þor-
geir situr i minnihluta hreppsnefndar
og er verkstjóri áhaldahúss hrepps-
ins.
Fundur hreppsnefndarinnar í gær-
kvöldi tók tíu mínútur. Pétur BoEi
sveitarstjóri lagði fram bókun þar
DV-MYND SBS
Frá hreppsnefndarfundi
Meirihlutinn styöur sveitarstjórann -
og slökkviliösstjórinn skammaöur.
sem hann segir ásakanir slökkviliðs-
stjórans á hendur sér vera tEhæfu-
lausar og til þess fallnar að koma
óorði á sig og sína persónu. 1 bókun
sveitarstjórans - og einnig meirihlut-
ans - er Þorgeir gagnrýndur fyrir að
hafa rætt málið við fjölmiðla, þar sem
það hafi verið „blásið út“. Friðsælt
samfélag hafi veriö sett „í uppnám í
persónulegum og pólitískum til-
gangi“, eins og sveitarstjóri segir í
bókun sinni.
Á fundinum sagði Kristinn Áma-
son, oddviti minnihlutans í Hrísey, að
Þorgeir væri tilbúinn að faEa frá
kæru sinni ef sveitarstjórinn bæðist
afsökunar. Jafnframt sagðist Kristinn
hafa nefnt þann möguleika að Þorgeir
viki úr sveitarstjórn ef það mætti
verða til að lægja öldurna. -sbs
Tónlistarkennarar:
Óánægja með
fréttabann
„Staðan er mjög óljós. Maður heyr-
ir aEs konar sögur,“ sagði Helgi Þ.
Sigurðsson, skólastjóri Tónlistarskól-
ans á Akureyri, i samtali við DV.
Nýr fundur hefur verið boðaður
miEi Félags tónlistarkennara, FÍH og
launanefndar sveitarfélaga í dag en í
gær stóð fundur yfir í háEa áttundu
klukkustund. Ríkissáttasemjari sendi
í gærkvöld frá sér frétt þar sem segir
að kröfur tónlistarkennara megi meta
til rúmlega 70% hækkunar á launum
en á móti komi frádráttur frá auka-
greiðslum sem þó hafi enn ekki verið
metnar. Tilefni tilkynningarinnar var
fréttaflutningur af umræðum borgar-
stjórnar Reykjavíkur um málið í gær.
Sigrún Grendal, formaður Félags
tónlistarkennara, sagðist í morgun
ekkert geta tjáð sig um stöðuna en
verkfaEið hefur nú staðið yfir í 11
daga. Fréttabann ríkir af samninga-
umleitunum en tónlistarkennarar
munu samkvæmt heimEdum DV ekki
aEs kostar sáttir við þá stöðu og er
hugsanlegt að þeir muni óska eftir af-
námi fréttabannsins ef fundurinn í
dag skilar ekki árangri. -BÞ
Útiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800