Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Qupperneq 15
TÍskummolar Það er óhjákvæmilegt að fjaila um þá félaga Dolce & Gabbana þegar fjallað er um helstu tískuhönnuði heimsins. Þessir ítölsku snillingar hafa náð súperstjörnustöðu í tískuheiminum með skemmtilegum og sérlega kynæsandi fatnaði. Þeir eru elskendur sem klæða konur á borð við Madonnu, Nicole Kidman og Isabellu Rossellini. D&G O c3 jggíSSflt Það ættu allir sem hafa áhuga á tísku og fylgj- ast með að þekkja þá Dolce og Gabbana. Þeir hafa á nokkrum árum náð að fanga athygli heimsins og eru þeir mjög áhrifamiklir í tísku- heiminum. Með skemmtilegri hönnun sinni fara þeir sjaldnast troðnar slóðir. Þeir eru þekktir fyr- ir litagleði, áberandi mynstur og útsaum. I stuttu máli er hönnun þeirra kvenleg, íburðarmikil og ótrúlega sexí. Þeir eru elskendur og dýrka bresku drottningarmóðurina. Saman reka þeir og eiga fyrirtæki sem er metið á marga, marga milljarða. Domenico & Stefano Þeir heita Domenico Dolce og Stefano Gabbana. Dolce er fæddur árið 1958, nálægt Palermo á Sikiley og Gabbana árið 1962 í Mílanó. Fljótlega eftir að þeir kynntust stofnuðu þeir fyrirtæki sem sérhæfði sig í tískuráðgjöf. Þremur árum síðar, árið 1985, var þeim boðið að taka þátt ítískuvikunni ( Mílanó, í sýningu þar sem nýtt hæfileikafólk var kynnt. Þar sýndu þeir í fyrsta skipti undir nafninu Dolce &. Gabbana. Síðan hefur leiðin legið upp á við og eru þeir stöðugt að færast í aukana. Þeir hanna dömulínu, herralínu, ilmvötn fyrir bæði kynin, nærföt, gleraugu og fleira. Nærfötin utanyfir Hönnun þeirra er kvenleg og rómantísk. Inn- blástur sinn sækja þeir oft á æskuslóðir, til heitra sumardaga á Sikiley og til ítölsku kvikmynd- anna. Þeir segja sjálfir að kvikmyndir séu mikill áhrifavaldur, að þeir (myndi sér sögu og hanna svo búningana fyrir hana. Fatnaður þeirra er oft djarfur, hvort sem það er í litavali eða sniðum. Þeir eru þekktir fyrir stór og áberandi munstur og nota mikið dýramynstur. Fötin eru mjög kynæsandi og er það þeirra helsta einkenni. Þeir eru þekktir fyrir að nota undirföt á nýstár- legan hátt, oft utanyfir fötin. Þeir hafa t.d. not- að korsilett utanyfir og brjóstahaldarahlýra á föt- in. Nú, ef nærfötin eru ekki höfð utanyfir þá sjást þau oft hvort eð er, því þeir eru afar hrifnir af gegnsæjum efnum. D & G TEKNÓLAG Stjörnumar dýrka tvíeykið og hafa þeir hann- að mikið fyrir þær. Þeir gerðu þúningana fyrir „Girlie Show“ tón- leikaferðina hjá Madonnu árið 1993 og tónleika- ferð Whimey Houston árið 1999. Þeir gerðu líka Kylie Minogue bolinn sem Madonna var í á tónleikaferð sinni í fyrra og eins og frægt er orð- ið varð tískubylgja úr því. Isabella Rossellini er líka aðdáandi og hefúr hún m.a. skrifað bók um þá sem ber titilinn Ten years of Dolce &. Gabbana. Ahugi þeirra og sköpunargleði nær út fyrir tískuheiminn. Árið 1996 tóku þeir upp og gáfu út lag. Þar hljómar setningin „Dolce &. Gabbana is love“, eða D & G eru ástin, yfir teknótakti. Þó að þeir hafi hannað fatnað í 16 ár eru þeir samt sem áður frekar nýir í bransanum miðað við hina ítölsku risana eins og t.d. Gucci og Armani. Það breytir því ekki að merkið þeirra er eitt af aðalmerkjunum á Italíu og þeir með þeim allra frægustu í heiminum í dag. D & G í Reykjavík Það er hægt að nálgast Dolce og Gabbana fatnað í helstu stórborgum heimsins, en hann er dýr og þvf ekki á allra færi að kaupa hann. Þv( hafa þeir félagar hannað ódýrari l(nu sem þeir nefna einfaldlega D & G, sem er hægt að kaupa í Reykjavík hjá Sævari Karli í Bankastrætinu. Það er líka hægt að kaupa fatnað þeirra á netinu; Dolce&.Gabbana@forzeric.com. Dolce og Gabbana. Nafn: Vignir Freyr Andersen. STARF: Verslunarstjóri. Þinn stíll: Ég mundi segja að hann væri svona „casual“/finn. Ég er oftast í jakkaföt- um, en er svo jafnvel bara í bol eða peysu við. FLOTTUSTU MERKIN: Ég er ekkert merkjafrík og mér finnst þau vera aukaatriði. Ég spái samt í gæði og þekki þau. Ég nota mikið ítalskan fatnað og skó, Reporter-föt og Brassboot-skó. Mottó: Koma til dyranna eins og ég er, bros- andi. SÍÐAR TÖSKUR Töskur eru ómissandi fylgihlutur og höfum við flestar Ifka góð not af þeim. Það er eins með töskurnar og skóna, þessir hlutir geta gert mjög mikið fyrir heildarútlitið og er mikilvægt að huga að þeim. Sfðustu misserin hafa töskurnar verið afar kvenlegar og penar. Sfðastliðið sum- ar voru þó stóru afslöppuðu pokarnir vinsælir en náðu ekki að festast f sessi hér á landi. Það nýjasta nýtt f þess- um málum eru töskur með löng bönd. Taskan hangir lágt, á mjöðmunum eða jafnvel neðar. Þær eru aðeins farnar að sjást hér á landi og skulum við vona að íslendingar verði ekki of lengi að taka við sér f þetta skiptið. Þetta er f lott- ur og afslappaður stíll. Taskan á myndinni er úr verslun- inni Nqí á Laugaveginum og kostar hún 4995 krónur. Ríkt tískulið Nýverið var listinn yfir rfkasta fólk Bretlands gefinn út. Þar trónir á toppnum, sem fyrr, stjórnandi Formúlu I, Bernie Ecclestone, og hafði hann 788 millónir punda ftekj- ur árið 2000. Það er þó nokkrir úr tfskuheiminum sem komust á listann að þessu sinni. Alexander McQueen er f fyrsta skipti á listanum, hann er f 102. sæti og var hann með 5,75 milljónir punda f laun f fyrra, eða u.þ.b. 860 millj. króna. Það voru Ifka nokkrar fyrirsætur sem komust á list- ann. Karen Elson var 240. sæti með 2,75 milljónir punda., Erin O’Connor f 251. sæti með 2,6 milljónir punda, Kate Moss f 435. sæti með 1,75 milljónir punda og Naomi Campbell var f480. sæti og hafði hún 1,55 milljón punda f árstekjur. Stella McCartney var líka á listanum með 2 milljónir punda. Hún á enn langt f land með að ná pabba sfnum Paul, þvf hann var f topp 20. Tískan og heimsmálin í nóvember-tölublaði bandarfska Vogue tjáir Marc Jac- obs sig um þau vandamál sem herja á heiminn. Hann seg- ist halda sfnu striki og ætlar ekki að láta óttann um hryðjuverk hafa áhrif á Iff sitt eða störf. Um tfsku segir hann að hún sé munaðarvara, að ásamt tónlist og kvik- myndum sé hún gerð til þess að gera heiminn fallegri. Hann segir að tfskan hafi aldrei átt að leysa nein vanda- mál. Auðvitað er það rétt og það er enginn að ætlast til þess að tfskuhönnuðir bjargi heiminum. En það er eins með þá og annað frægt, efnað og valdamikið fólk, þeir eru fyrirmyndir þúsunda og gætu þar af leiðandi látið eitt- hvað gott af sér leiða, ef þeir bara vildu það. ROWELLS Tíska • Gæði • Betra verð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.