Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 19
leiðarvisir
um skemmtana- og
menningarlífið
Rapprokkararnir í Ouarashi hafa haft sig lítið I frammi í hefðbundnu tónleika-
haldi undanfarið enda uppteknir við fágaðri hluti. Sinfónían og Borgarleik-
husið hafa verið vinnuveitendur þeirra en nú er mál að linni og blása
drengirnir til hefðbundinna tónleika á Gauki á Stöng á miðvikudagskvöld.
Quarashi spilar a Gauknum
„Þessir tónleikar eru ekki af neinu sérstöku tilefni. Okkur
bárust fregnir af þvf að fjölmargir velgjörðamenn Quarashi
hefðu ekki náð í miða á Sinfóníutónleikana með okkur og Botn-
leðju. Við sáum okkur knúna til þess að bæta úr því. Auk þess
höfum við einungis spilað á þrennum tónleika í ár og okkur var
farið að leiðast aðgerðaleysið í tónleikahaldi Quarashi," segir
Höskuldur Ólafsson, einn liðsmanna sveitarinnar.
Nú verður Smfónían ekki með á Gauknum. Hvemig leggst það í
•ykkur?
„Nei, það er rétt. En ég held að það breyti ekki miklu. Marg-
ir komu að máli við okkur eftir tónleikana og sögðu að við hefð-
um verið miklu betri en Sinfó. Eg er ekki maður til að rengja
þetta ágæta fólk í fjölmiðlum. Einn lét meira að segja hafa það
eftir sér að Sinfó hefði verið eins og „glassúr á áður súkkulaði-
húðuðum kanelsnúð". Sá hinn sami og sagði þetta er mikilsvert
skáld hér í borg eins og giögglega sést.“
Hvað ætlið þið að sþila?
„Við eigum enn þá safn af lögum sem margir hafa aldrei heyrt
og engir tveir tónleikar eru úr sama hatti dregnir. Einn blaða-
maður Morgunblaðsins taldi sig hafa heyrt nýtt lag á síðustu
tónleikum okkar. Það reyndist vera tveggja ára gamalt svo að
kannski segir það meira en mörg orð. Við ætlum bara að taka
þau lög sem okkur finnst skemmtilegast að spila.“
Hvað er svo fram undan?
„Við erum að spá í að halda til Bandaríkjanna og spila þar.
Ómari (Swarez) var fyrr í mánuðinum boðið að halda fyrirlestur
við hinn fræga Juiliard-tónlistarskóla í NY. Erindi hans nefnist:
Rapptónlist; afkvæmi velferðarkerfisins? Hann er sjálfur úr
Breiðholtinu. í framhaldi af því höfðum við samband við vini
okkar í USA sem buðu okkur að spila á nokkrum stöðum. Það
sem stendur hvað hæst upp úr þessum giggum eru „ELO tribu-
te“ tónleikar þar sem við munum spila með Mormónakórnum f
Utah. Ef af þessu verður, geri ég ráð fyrir að þetta verði ein mesta
misindisferð síðan Boris Jeltsín fór í sína fyrstu opinberu heim-
sókn til Evrópu," segir Höskuldur að lokum. Tónleikar Quaras-
hi verða á Gauknum miðvikudaginn 21. nóvember og verður
húsið að vanda opnað klukkan 21. Forsala miða fer ffarn á
Gauknum.
„Við ætlum bara að taka þau lög sem okkur finnst skemmtilegast að spila,“
segja liðsmenn Quarashi um tónleika sína á Gauknum næstkomandi miðviku-
dag.
fostudagur
ld_i 16/11
•Popp
■ KUfll. DIKTA OG UÓTUR HUNDUR Á
FÓSTUDAGSBRÆÐINGI i kvöld munu þrjár
hljómsveitir stíga á stokk og leika Ijúfa tóna á
föstudagsbræbingi Hins hússins sem haldinn
er á Geysi Kakóbar. Hljómsveitirnar sem koma
fram eru Kuai, sem nýlega gaf út fyrstu breið-
skífu sína og hitaði upp fyrir Blonde Redhead í
sumar; Dikta, sem er á hraðri uppleið eftir
mikla spilamennsku undanfarið; og Ljótur hund-
ur sem nýverið komu fram á jómfrúartónleikum
sínum í Norðukjallaranum. Drengirnir í Ljótum
hundi ætla að baka vöfflur á meðan þeir spila
sem verða gefnar viðstöddum að tónleikunum
loknum. Allir hvattir til að mæta klukkan 20 og
verða vitni að einstaklega skemmtilegum at-
burði. Tónleikarnir standa til 22:30, aðgangur
er ókeypis fýrir 16 ára og eldri sem sýna skilriki
við hurð.
•Klúbbar
■ SPOTLIGHT Sisley.com á Spotlight. Dj Ses-.
ar sér um að hita góifið með blandaðri tónlist.
1/2 lítri bjór á 300 til 01.
•Krár
■ SVENSEN, HALLFUNKEL OG MflTUR Á
GULLÓLDINNI Gömlu, gömlu kempurnar Sven-
sen og Hallfunkel eru staðráðnir i því að
skemmta gestum Gullaidarinnar í kvöld, alveg
þangað til klukkan slær 3. Og fyrir fyllibyttunnar:
Heitur matur verður framreiddur frá klukkan 2
svo fólk fari nú ekki óétið í bólið.
■ ÁRNI SVEINS fl LÆKJARKOTI Það er meist
ari Árni Sveins sem sér um tónlistina á Lækjar-
koti í kvöld. Allar gömlu plöturnar hafa verið
grafnar upp og þú ert velkomin(n). Djammið
stendur frá 23-3.
■ DODDI LITLI Á 22 Það verður ekkert lítið að
gerast í búrinu á 22 í kvöld þegar Doddi iitli
mætir þangað í öllu sínu veldi. Blanda af nostal-
gíu og nýrri tónlist að hætti hússins. Fritt inn til
1 en fólk sem á stúdentaskírteini eða getur
fengið slík lánuð fær alltaf fritt.
■ CATALÍNA Á hinum magnaða skemmtistað
Catalínu Hamraborg verður hljómsveitin Grænir
vinir með dansleik.
■ CELTIC CROSS Hljómsveitin Tvö dónaleg
haust leikur fyrir dansi á Celtic Cross í kvöld.
Magnað band á mögnuðum skemmtistað, það
ætti ekki nokkur maður að láta þetta fram hjá
sér fara.
■ DÚNDRANDI VEGMÓT Dj Pétur veröur meö
dúndrandi stemningu eins og vanalega á Vega-
mótum.
■ PENTA Á CAFÉ AMSTERDAM Hljómsveitin
Penta verður með skemmtilegheit á Café
Amsterdam alla helgina. Landsbyggðarfólk sér-
staklega velkomið.
■ PLflST Á VÍDALÍN Það stígur ný sveit á stokk
á Vídalín í kvöld sem ber nafnið Plast. Sveitin
er vísu skipuð gömlu brýnum og ætti því ekki að
vera neinn byrjendabragur á kvöldinu. Það eru
þeir Tommi Tomm úr Rokkabillýbandinu, Gunni
Óla úr Skítamóral, Jonni úr Ensími og Diddi úr
Sniglabandinu sem skipa sveitina. Góða
skemmtun.
■ SIXTIES Á PLAYERS Stuðgrúppan Sixties
spilar á gleðistaðnum Players í Kópavogi.AC
■ SPILAFÍKLAR Á DUBLINERS Hljómsveitin
Spilafiklarnir sér um stemninguna á Dubliners.
■ SPÚTNIK Á KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin
Spútnik heldur uppi dúndurstemningu á Kaffi
Reykjavík. Auk þeirra mun Dj. Bestboy þeyta
skífur af sinni alkunnu snilld.
■ SPÚTNIK Á KflFFI REYKJAVÍK Sú saga
gengur um bæinn (Selfoss og nágrenni þ.e.) að
hljómsveitin Spútnik sé í hljóðveri að taka upp
nýja plötu. Þar sem sveitin er að spila á Kaffi
Reykjavík alla helgina er aldrei að vita nema
þetta nýja efni fái að hljóma. Hljómsveitina
skipa Kristján Gíslason söngvari, Ingólfur Sig-
urðsson trommari, Kristinn Gallagher bassa-
leikari, Bjarni Halldór Kristjánsson gitarleikari
og Kristinn Einarsson hljómborðsleikari.
■ SSSÓL Á GAUKNUM Stuðgrúppan SSSól
tjúttar feitt á Gauk á Stöng.
■ TJÚTT Á NELLYS Dj. le chef stendur vaktina
í búrinu á Nellys Café. Tilboð á bar og fritt inn.
•Sveitin
■ SKUGGABALDUR í VESTMANNAEYJUM
Meistari Skuggabaldur stekkur i Herjólf í dag og
gerir sig kláran til að skemmta á Lundanum í
Vestmannaeyjum í kvöld. Ert þú klár?
■ EUROVEISLA í EGILSBÚÐ Almenn sýning á
Eurovision-rokkveislunni í Egilsbúð. Neskaup-
stað, kl. 20.30. Miðaverð 1500 kr. 1000 kr. fýr-
ir 12 ára og yngri og eldri borgara. Heiðursgest-
ur er maður þeirra Noröfirðinga, Einar Ágúst.
■ PELICAN Á POLLINUM Ein vinsælasta hljóm-
sveit áttunda áratugarins, Pelican, flýgur norður
um helgina og skemmtir gestum veitingastaðar-
ins Við Pollinn á Akureyri. Sveitina skipa Pétur
Kristjánsson söngvari, Ómar Óskarsson gftar og
söngur, Jón Ólafsson, bassi og söngur, Ásgeir
Óskarsson trommur og Tryggvi Hubner gítar.
■ STEMMING Á AKUREYRI Hljómsveitin
Gildrumezz verðum með frábæra Greedence
Clerwater dagskrá á skemmtistaönum Oddvit-
anum en þessi dagskrá hefur slegið í gegn á Ak-
ureyri.
■ SÁLIN Á BREIÐINNI Poppkóngarnir í Sálinni
hans Jons míns rokka á Breiðinni, Akranesi.
■ UPPSKERUHÁTH) HESTAMANNA í kvöld
verður haldin árleg Uppskeruhátíb hestamanna
á Broadway. Kynnir er Flosi Ólafsson og hljóm-
sveitin BSG leikur svo fyrir dansi.
■ ÚTÓPÍA Á DALVÍK Jaðarsveitin Útópía heldur
í víking til heimaslóðanna á Norðurlandi og held-
ur tónleika í Dalvíkurbíó frá kl. 20.30-22.30.
•Leikhús
■ BLESSAÐ BARNALÁN Leikfélag Akureyrar
sýnir um þessar mundir leikritið Blessað barna-
lán efitr Kjartan Ragnarsson. Heima menn sem
og aðrir nærsveitungar eru hvattir til að mæta
en sýningin hefur fengið afbragðs dóma og góð-
ar viðtökur áhorfenda. En eru örfá sæti laus.
■ BRÚOKAUP TONY OG TINU Leikfélag Mos
fellsbæjar sýnir kl.20 i kvöld leikritið Brúðkaup
Tony og Tinu en sýnt er í Bæjarleikhúsinu, Mos-
fellsbæ. Sýningin hefur fengið ótúlega góðar við-
tökur og uppselt hefur verið á allar sýningar til
þessa.
■ DAUÐADANSINN í kvöld sýnir Borgarleikhús-
ið verkið Dauðadansinn eftir August Strindberg
og hefst sýningin kl.20 en sýnt veröur á litla svið-
inu. Þetta er samstarfsverkefni Strindberg hóps-
ins og leikfélags Reykjavíkur en¥útkoman er sér-
lega áhugaverð.
■ ENGLABÓRN Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir í
kvöld leikritið Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson.
Síðustu sýningar fara nú í hönd en sýningin í
kvöld hefst kl.20 og skal það tekið fram að hún
er stranglega bönnuð börnum.
■ HAUST (slenski dansflokkurinn sýnir í kvöld 3
ný íslensk dansverk eftir íslenska höfunda en
verkin heita Da, Milli heima og Plan B en saman
heitir sýningin Haust. Sýnt verður í kvöld á nýja
sviði Borgarleikhússins kl.20. Þetta eru síðustu
sýningar en enn eru örfá sæti laus.
■ MEÐ VÍFH)! LÚKUNUM Borgarleikhúsið sýnir
í kvöld leikritiö Með vífið í lúkunum eftir Ray Coo-
ne. Leikritiö hefur verið til sýningar lengi vel og við
miklar vinsældir. Sýningin í kvöld hefst kl. 20 og
eru örfá sæti laus.
■ PÍKUSÓGUR Leikritið Píkusögur eftir Evu Esler
verður sýnt i kvöld á 3.hæð Borgarleikhússins.
Verkið er í raun frásögn nokkura kvenna en það
hefur notið mikilla vinsælda hérlendis sem og
annars staðar. Sýningin hefst í kvöld kl.20
■ PÚÐURTUNNAN ( kvöld veður sýning á vegum
Stúdentaleikhússlns á verkinu Púöurtunnan, en
þaö verður sýntí Vesturporti í kvöld kl.20. Verkið
er samtímaverk frá fyrrverandi júgóslavneska lýð-
veldinu Makedóníu og er eftir ungan rithöfund að
nafni Dejan Dukowskji.
■ SYNGJANDI í RIGNINGUNNI Leikritið
Syngjandi í rigningunni verður sýnt í kvöld á
stóra sviði Þjóðleikhússins en meöal leik-
enda I sýningunni eru Selma Björnsdóttir og
Stefán Karl Stefánsson. Sýningin hefst kl.
20 studvíslega.
■ TÓFRAFLAUTAN íslenska óperan sýnir í
kvöld Töfraflautuna eftir Wolfgang Amadeus
Mozart en þetta er einhver viðamesta sýning
sem að þau hafa ráðist í og er hún stór-
glæsileg í alla staði. Sýnt verður I kvöld í ís-
lensku óperunni kl.20 ogeru örfá sæti laus.
■ VIUI EMMU í kvöld verður leikritið Vilji
Emmu sýnt á fjölum Þjóðleikhússins en
verkið er eftir David Hare. Sýningin hefst stu-
dvíslega kl.20 og verður sýnt á Smíðaverk-
stæðinu. Sýningum fer að Ijúka
■ VÓLUSPÁ Barnaleikverkið Völuspá verður
sýnt í dag á vegum Möguleikhússins en Þór-
arinn Eldjárn er höfundur þess.
•Kabarett
■ STUÐ í KJALLARANUM Hinir landsfrægu
skemmtikraftar Örn Árnason og Karl Ágúst
Úlfsson halda skemmtikvöld í Leikhúskjall-
aranum. Borðhald hefst kl. 20 og sýningin
kl. 22. Stuðboltarnir í Lúdó og Stefán leika
fyrir dansi fram á nótt. Húsið opnar fyrir
gesti kl. 23.30. Aðgangseyrir 1000.- kr.
■ ÁSGARDUR Félagar úr Harmonikkufélagi
Reykjavikur leika fyrir dansi í kvöld kl.22 og
Ragnheiður Hauksdóttir syngur í Ásgarði
Glæslbæ.
•Opnanir
■ HEKLUÐ TEPPI í GERÐUBERGI Bryndís
Björnsdóttir opnar myndlistarsýninguí Fé-
lagsstarfi Gerðubergs kl. 16. Félagar úr
Tónhorninu og Gerðubergskórinn syngja og
leika við opnunina.Bryndís starfaði sem
sjúkraliði þangaö til hún fór á eftirlaunaaldur
en hefur alltaf haft mikinn áhuga á listsköp-
un. Myndefnið sækir Bryndís aðallega í ís-
lenska náttúru með öllum sínum litbrigðum.
Sérstaða hennar eru þó hekluð teppi og þar
má sjá hve abstrakt og einföld myndform
eru áberandi í síðari verkum hennar. Sýning-
in stendur til 3.febrúar 2002. Opnunartímar
sýningarinnar eru frá mánd. til föstd. kl. 10-
17.Ý
■ SKARTGRIPIR j SPAKSMANNSSPJÖR-
UM Gullsmiðurinn Fríða verður með sýningu
á skartgripum sínum f versluninni Spaks-
mannsspjörum, Bankastræti ll.Fríða verður
á staðnum í dag og á morgun, laugardag.
Skartgripir Fríöu verða áfram til sýnis og
sölu í Spaksmannsspjörum.
•Fundir
■ LANDSFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR
Landsfundur Samfylkingarinnar verður hald-
inn á Hótel Sögu þessa helgina. Öflugar mál-
stofur I gangi milli kl. 15-16.
•Bíó
■ Kvikmyndasafn íslands stendur fyrir ein-
stæðri sýningu á þöglu myndinni Endalok
Sankti-Pétursborgar eftir Vsevolod
Pudovkín (1893-1953) í Bæjarbíó klukkan
20.00 við undirleik lifandi tónlistar. Endalok
Sankti-Pétursborgar (1927) var gerð í tilefni
tíu ára afmælisOktóberbyltingarinnar 1917
en myndin segir frá fátækri bændafjölskyldu
sem dregst inn í hringiðu atburðanna er lei-
ddu til áhlaupsins á Vetrarhöllina. Myndin
vakti heimsathygli fyrir magnaða klippitækni
og var Púdovkín umsvifalaust skipað á bekk
með fremstu kvikmyndagerðarmönnum sam-
tímans. Tónlistin við myndina er eftir Jóhann
Jóhannsson tónlistarmann. Jóhann notar
ýmis rafmagnshljóðfæri, auk Hammondorg-
els og rússneska rafmagnshljóðfærisins
Þeramíns við flutninginn, og nýtur þar að-
stoöar gítarleikarans Péturs Hallgríms-
sonar.
16. nóvember 2001 f ó k u s
19