Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 16
H
Fréttirnar sem fæstir heyra
Stripp í þácu vísindanna
Stripp er nú stundað í stórum stíl í þágu læknavísindanna í Las
Vegas. Það er háskólaprófessorinn og hjartaskurðlæknirinn Simon
Stretzer sem stendur fyrir þeim herlegheitum en hann hefur fest
kaup á nektardansstaðnum Palomino Club þar í bæ til að fjármagna
kostnaðarsamar vísindarannsóknir. Bæjaryfirvöld hafa tekið framtak-
inu fagnandi sem og líklega einhverjir eiginmenn, því hvaða betri af-
sökun er til en að fara að horfa á stripp sem stuðlar að framförum í
hjartaaðgerðum? Hjartalæknirinn gæti einnig náð sér í nokkra sjúk-
linga á staðnum þar sem hætta á hjartaáfalli er töluverð á svona stöð-
Kýr fyrir kynlíf
Konungurinn í Swazilandi, Mswati III,
hefur brotið lög sem banna kynlíf með
persónum undir 18 ára aldri, og eru gild í
ákveðinn tíma á ári hverju, með því að
taka 17 ára stúlku sem sína níundu eigin-
konu. Meðal kvenþjóðarinnar í landinu
varð uppi fótur og fit við þessar fréttir og
tóku 300 konur þátt í mótmælum þar
sem þær tóku eina af kúm kóngsins og
drápu hana og steiktu. Ef nýja eiginkon-
an verður ófrísk á meðan lögin eru enn í
gildi verður kóngurinn að punga út enn
einni kú. Afsökunin sem konungurinn
hefur gefið þegnum sínum er ótti við
HlV-veiruna en meir en 25% af fullorðn-
um íbúum landsins eru smituð af henni.
VlLL EINHVER ELSKA 71 ÁRS GAMLAN
MANN?
Belgískur milljónamæringur leitar nú
logandi ljósi að fertugri eiginkonu sem er tilbúin til að ala honum
bam. Einu kröfumar sem konan þarf að uppfylla er að hún þarf að
vera vel talandi á frönsku, ensku, hollensku eða þýsku. Sjálfur er
maðurinn 71 árs og býr í Suður-Kóreu. Það er belgíska hjóna-
bandsmiðlunin Bien-Aller sem tekur við umsóknum en alls hafa
2250 konur nú þegar haft samband. Einhverjar þeirra hafa hitt
milljónamæringinn en enginn af þeim var hans Oskubuska. íslensk-
ar Öskubuskur eiga því enn góða möguleika.
Nærbuxnalaus eicinmaður
Það eru margar ástæðurnar fyrir því að fólk ákveður að skilja en
ástæðan sem hin 24 ára Emese Nagy í Rúmeníu hefur gefið upp fyr-
ir skilnaði við eiginmann sinn Tamas verður að teljast harla óvenju-
leg. Þetta ár sem Nagy-hjónin hafa verið gift hefur eiginmaðurin
Tamas verið nærbuxnalaus, sem er nokkuð sem kona hans getur alls
ekki sætt sig við. Hún segir að hún hafi gert allt til þess að fá mann
sinn til að nota nærföt en með litlum árangri. Tamas hefur sagt við
dómstóla að hann elski konu sína meir en nokkuð annað en sér finn-
ist einfaldlega óþægilegt að vera í nærbuxum. Dómstólinn í
Covasna í Rúmeníu hefur enn ekki kveðið upp úrskurð sinn varðandi
það hvort Emese fái að skilja við mann sinn vegna þeirrar einu ástæðu
að hann vilji ekki ganga í nærbuxnum.
4000 MIÐAR FYRIR EINKAKONSERT
26 ára poppsöngkona, Coca Trzan að
nafni, hélt að hún væri að fara að halda tón-
leika fyrir fullu húsi í Belgrad því 4000 mið-
ar voru seldir á tónleikana. Hún var hins
vegar við það að bresta í grát þegar hún gekk
inn á sviðið og sá að það var einungis einn
gestur í salnum. Sá hinn sami, forríkur við-
skiptajöfur, hafði keypt upp alla miðana á
tónleikana svo hann gæti fengið sóló-
konsert með söngkonunni. Eftir tónleikana
bað hann hennar og bauð henni farmiða til
heimilis síns í Genf. Ekki fylgir sögunni
hverju söngkonan svaraði.
ola
Klámnám í Kanada
Við háskólann í Toronto í Kanada er nú
boði allsérstætt nám undir stjórn prófessors-
ins Brian Pronger. Námsefnið er 5000 bækur, 800 tímarit og 3000
myndbönd, öll með grófu klámefni og þetta verða þeir námsmenn
sem skráð hafa sig á námskeiðið að fara í gegnum. Allt þetta klámefni
var gefið háskólanum af útvarpsmanninum Max Allen á CBC-út-
varpsstöðinni en hann hefur safnað klámi í 40 ár. Ætlunin er að pró-
fessorinn og nemendur hans fari í gegnum þetta efni, flokki og skoði
út frá sjónarhorni félagsfræðinnar og setji síðan niðurstöður sínar á
veraldarvefinn.
Plötu Aómur
OUARASHI - KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
★ ★★★
Mermingar-
bylting
undir jökli
„Tónlistin er kraftmikil og
nútímaleg en virkar samt
aldrei óviðeigandi. Það
besta við þessa plötu er að
Ouarashi tekst að framreiða
sannfærandi leikhústónlist
en ná um leið að koma sín-
um tónlistareinkennum að.“
Það er óhætt að segja að hljómsveitin Qu-
arashi taki að sér óvenjuleg verkefni þessa dag-
ana. Hljómleikar með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands eru nýafstaðnir og lukkuðust nokkuð vel,
merkilegt nokk, þó að útkoman hafi kannski
ekki markað tfmamót í tónlistarsögunni. Og
svo voru þeir jú fengnir til þess að semja tón-
list við uppfærslu Borgarleikhússins á Kristni-
haldinu, en sú tónlist er nú fáanleg á geisladisk
í takmörkuðu upplagi. Þessi nýtilkomni áhugi
menningarelítunnar á hljómsveitinni er svo-
lítið sniðugur. Við vonum að listamannalaun
fylgi í kjölfarið. En hvemig hljómar svo leik-
hústónskáldið Quarashi?
í fyrsta lagi skal tekið fram að við erum ekki
að tala um hip-hop óperu af Kristnihaldinu,
nei, Beitarhúsamenn eru ekki endurfæddir
sem rappgengi og Jón Prímus hefur ekki verið
uppfærður í MC Jón Rímus. Tónlistin hér er
ekki heldur rapp. Lögin þrettán á plötunni eru
leikhústónlist, mótuð af persónum verksins,
aðstæðum og dramatfskri framvindu. Flest
stykkin em stemningar og lög ætluð í bak-
grunn, hljóðskreytingar (t.d. Smíðavél og
Hulduhrútur, hvorttveggja mjög flott stykki!),
en að auki eru þrjú sönglög, Úrsúlulokkur og
Úrsúlugjá sem Edda Heiðrún Backman syngur
og sem eru eins og hvor sín hliðin á sama pen-
ingnum og svo sungna útgáfan af laginu Prím-
us sem Árni Tryggvason raular.
En þó að hér sé ekki rappað þá er margt á
þessari plötu sem minnir okkur á tónlist Qu-
arashi. Lögin eru flest byggð upp með mjög
þéttum og flottum bítum (við erum að tala um
hip-hop uppbyggingu á tónlist) og svo skreytt
með píanóstefum, ýmsum hljóðeffektum og
aukahljóðfærum. Sums staðar eru
þetta strengir, annars staðar gítarar, hljóm-
borð eða blástur. Lagið Godman Sýngmann er
keyrt áfram af bassa og gítarleik í stíl við Stick
‘Em Up eða Baseline þó að yfirspilið séu streng-
ir, en ekki rapp og lagið Umbi einkennist af
þessum kraftmikla rífandi Quarashi-bassa.
Beitarhúsamenn er léttleikandi popplag með
nettu big bíti (gæti næstum verið komið úr
smiðju Propellerheads) og Umbi II er breikbít
keyrsla. Tónlistin er kraftmikil og nútímaleg,
en virkar samt aldrei óviðeigandi. Það besta við
þessa plötu er að Quarashi tekst að framreiða
sannfærandi leikhústónlist, en ná um leið að
koma sínum tónlistareinkennum að.
Þó að þessi tónlist sé aðallega ætluð til neyslu
á leiksýningum þá virkar stór hluti hennar
samt furðuvel heima í stofu. Lög eins og Prím-
us, Godman Sýngmann, Ursúlulokkur, Beitar-
húsamenn, Umbi og Umbi II standa alveg fyr-
ir sínu utan veggja leikhússins.
Það er óhætt að segja að menningarstórveld-
ið Quarashi hafi klárað þetta verkefni með
miklum sóma. Það er greinilega nóg eftir af
sköpunargleði og snerpu. Þetta er fín plata í
safnið fyrir aðdáendur sveitaririnar og ætti að
endast þeim eitthvað fram yfir áramótin þegar
næsta hreinræktaða Quarashi-plata kemur út
á vegum Sony-risans, samtímis á íslandi og í
Bandaríkj unum.
Trausti Júlíusson
Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra.
Chloe í Playboy
A næstu dögum kemur til landsins
blað sem eflaust á eftir að gera ein-
hverja lukku. Þetta er desemberhefti
Playboy í Bandaríkjunum og prýðir
Strandvörðurinn Gena Lee Nolin
forsíðuna. Stúlkan sú á þó ekki eftir
að verða aðalaðdráttaraflið því hinni
íslensk-rússnesku Chloe Opheliu
Gorbulew bregður nefnilega fyrir í
blaðinu. A heimasíðu stúlkunnar,
http://iceophelia.tripod.com/, segir
Chloe að í blaðinu sé að finna fimm
myndir af sér en því miður sé þar
ekki um nektarmyndir að ræða, hafi
einhver verið að gera sér vonir um
slíkt.
Ekkert Rautt hverfi
Svo virðist sem verslunin Rauða
hverfið á Grettisgötu hafi orðið fal-
landi góðæri að bráð. Verslunin var
opnuð í haust og bauð upp á hjálpar-
tæki ástarlífsins og erótískar kvik-
myndir. Hvort sambúðin við Þráin
skóara (sem er í næsta húsi) eða
samkeppni á hjálpartækjamarkaðin-
um hafi verið banameinið skal ekki
fullyrt en velta má þeirri spurningu
upp hvort Islendingar eigi nú þegar
bara nóg af hjálpartækjum eða séu
orðnir leiðir á þeim.
Smokkar oc teppi á Nasa
Skemmtistaðurinn Nasa, sem
opnaður var um síðustu helgi, hefur
vakið verðskuldaða athygli. Sárlega
hefur vantað stað í miðbæinn með
stóru og rúmgóðu dansgólfi en það er
einmitt það sem er aðalsmerki Nasa.
Nafnið á staðnum hefur reyndar vaf-
ist fyrir mörgum og heyrst hafa radd-
ir sem ekki skilja hvers vegna staður-
inn fékk ekki bara áfram að heita
Sigtún. Fyrir utan að skarta þrusu-
góðum húsplötusnúðum sem spila
góða blöndu af alls konar tónlist þá
eru einnig seldir smokkar í fata-
henginu sem verður að teljast frábært
framtak. Búast má hins vegar við því
að ræstingarkostnaður á staðnum
verði töluverður því staðurinn er allur
teppalagður með ljósu teppi og vask-
amir á kvennaklósettunum eru ljós-
grænir — sem er ekki allra besti litur-
inn upp á hreinlæti að gera.
Þorsteinn Guðmundsson
leikari.
Ámi M. Mathiesen er nú vart þekktur fyrir skemmtilegheit enda ekki öf-
undsverður af starfi sínu þessa dagana. Slagurinn um kvótakerfið og rifrildin
við sjómenn geta vart talist nein skemmtiefrii og mótast framkoma Áma
nokkuð af því. Þorsteinn Guðmundsson er akkúrat á hinum endanum, hann
vinnur við að vera skemmtilegur og stendur sig bara helvíti vel í því. Það kem-
ur því nokkuð á óvart hversu líkir þeir eru í útliti en þegar aðeins er kafað kem-
ur sannleikurinn í ljós. Fólk skal ekki draga þá ályktun að Árni sé einhver
laumusprelligosi. Nei, það er Þorsteinn sem er á rangri hillu. Það er í raun
nokkur stofnanabragur á Steina sem sést best á nýjasta uppátækinu hans, fyr-
irlestur sem kennir fólki að verða betri starfsmaður á 30 mínútum. Er þetta ekki
málið?
f ó k u s 16. nóvember 2001