Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 20
Á miðvikudaginn efnir Þjóðleikhúsið til kvöldsýningar á
barnaleikritinu Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magna-
son. Tilefnið er útkoma nýrrar plötu með tónlistinni úr
verkinu en hún er samin af hljómsveitinni múm.
múm o bloo hnettinum
Leikritið Blái hnöttur-
inn er spennandi og inni-
haldsríkt ævintýri ætlað
jafnt ungum sem öldnum.
Það segir frá villibörnun-
um sem búa á Bláa hnett-
inum og eru algerlega
frjáls og saklaus. Þau
þekkja ekkert slæmt og
lifa sælulífi í sátt og sam-
lyndi þangað til að geim-
skrímsli lendir á plánet-
unni þeirra. Hann kennir
börnunum að fljúga og
upphefst ótrúlegt ævin-
týri þegar að börnin upp-
götva hugtök líkt og samkeppni, öfund og afbrýði-
semi. Þetta er fyrsta leikverk höfundarins, Andra
Snæs Magnasonar, en hann hlaut einmitt Islensku
bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Sagan af bláa
hnettinum, fyrstur barnabókahöfunda.
Verkið hefur vakið mikla athygli og verðskuldað
lof, ekki síst vegna tónlistarinnar sem prýðir verkið.
Það eru krakkarnir í múm sem sáu um að semja tón-
listina í samvinnu við Andra Snæ en þau hafa verið
að gera það gott víðs vegar um Evrópu með spila-
mennsku sinni. Von er á nýrri plötu frá múm í byrj-
un næsta árs en þau vöktu fyrst athygli þegar útgáfu'
fyrirtækið Thule musik gaf út plötu þeirra Yesterday
was Dramatic - Today is
OK. Síðan þá hafa verið
gefnar út tvær remix
plötur með sveitinni,
önnur af Thule musik en
múm tók engan beinan
þátt í gerð hennar en hin
bar heitið Please Smile
My Noise Bleed. Meðlim-
ir múm tóku virkan þátt í
gerð síðarnefndu plötunn-
ar sem kom út á vegum
Morr Music en hún inni-
hélt endurhljóðblandanir
af tveimur nýjum lögum
frá sveitinni. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem að Andri Snær og múm
vinna saman að gerð plötu en Andri hefur áður gefið
út ljóðadisk en þar var múm honum innan handar.
Á miðvikudag verður eins og áður segir kvöldsýn-
ing á Bláa hnettinum þar sem að múm flytja nokkur
lög úr verkinu en plata með þeirri tónlist er væntan-
leg eftir áramót. Einnig gefst áhorfendum kostur á að
ræða við Andra Snæ um leikverkið og bókina eftir
sýningu verksins auk annara leikara sem koma við
sögu. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá sýninguna
með lifandi undirspili frá múm auk leiðsagnar höf-
undar.
Longlifasti pöbb
Reykjavíkur
Þessi mynd er tekin
I. mars árið 1989,
daginn sem bjór var
loksins leyfður á Is-
landi, og eins og
sést þá var mikil
gleði hjá gestum
Gauksins.
Gaukur á Stöng
fagnar þeim tímamót-
um á mánudagskvöldið
að vera orðinn 18 ára
gamall. Á þessum tíma
hefur staðurinn gengið
í gegnum ýrnsar breyt-
ingar en hefur þó alltaf
haldið þeirn titli að
vera merkisberi iifandi
tónlistar f höfuðborg-
inni. Stærstu breyting-
arnar á staðnum voru
gerðar fyrir um ári þeg-
ar staðurinn var
stækkaður frá því að
taka 200 gesti og upp í
700. I gegnum tíðina
hafa ýmsir frægir lista-
menn sést á Gauknum
og ber þar helst að
nefna Kim Larsen,
Rammstein, Will Old-
ham, Björk, Wise
guys, Dj. Luke Slater,
Dj. Dave Clarke, Mike
Bruce gítarleikara,
Alice Cooper og Steve
Albini, upptökustjóra
Nirvana og Pixies.
Á mánudagskvöldið
verða það hins vegar
Stefán Hilmarsson og
Eyjólfur Kristjánsson
sem heiðra munu af-
mælisgesti með því að
taka lög Simon and
Garfunkel. Hljóm-
sveitin Buff mun svo
einnig stíga á svið með
partíprógramm sem
hægt verður að skola
niður með fríum veig-
um á barnum. Húsið
verður opnað kl. 21 og
það er frítt inn.
Margir frægir listamenn hafa
spilad á Gauki á Stöng í gegnum
tíðina. Þessi mynd var tekin árið
1990 þegar Kim Larsen spilaði á
staðnum.
Á sínum tfma var Gaukurinn glæsi-
legt veitingahús eins og sést á
þessari mynd frá 1987. f dag eru
bara fljótandi veigar seldar á
staðnum.
Nú er komið að lokum Vetrardagskrár Hljómaiindar sem
séð hefur landanum fyrir gæðatónleikum upp á síðkastið.
Wolf nokkur Coionel mun mæta og rauia nokkur lög við
eigið kassagítarspil á Vldalín. Forsala miða er hafin í
Hljómalind.
Vetrardogskróin kveður
Á mánudagskvöldið eru seinustu tónleikar Vetrar-
dagskrár Hljómalindar haldnir. Þeir fara fram á
staðnum Vfdalín við Austurvöll. Inngangur mun
kosta litlar 700 spírur og húsið verður opnað kl. 22.
Að þessu sinni er það tónlistarmaðurinn Wolf Colon-
el, réttu nafni Jason Anderson, sem kemur á klak-
ann til að skemmta tónþyrstum Frónbúum. Tónleik-
amir munu verða á rólegu nótunum þar sem Wolf
mætir einungis vopnaður gítar og eigin raddböndum
líkt og Will kallinn Oldham gerði fyrir stuttu á
Gauki á Stöng við mikinn fögnuð viðstaddra. Það á
vel við að ljúka Vetrardagskránni með ljúfum tónum
og syngja hana þar með í svefh eftir fjölda góðra tón-
leika undanfarna tvo mánuði. Fókus mælir með að
fólk kíki á Wolf Colonel og njóti vaxandi skamm-
degis með rólegum tónum og kannski köldum öl eða
kakói.
f ó k u s 16. nóvember 2001
,augardagur
17/11
•Popp
■ N0RDEN0M í tilefni af Norrænu bókasafnavikunni
heldur kvartettinn Nordenom tónleika en hann skipa
Kalle Zwilgmeyer frá Noregi, Stanley Samuelsen frá
Færeyjum, Hans Eriksson frá Svíþjóö og Per Jensen frá
Danmörku Þetta eru allt vanir menn og sá elsti þeirra,
Kalle Zwilgmeyer, á að baki meíra en 30 ár sem „alt-
muligmann" i norrænni vísnatónlist. Hann kom m.a.
hingað til íslands vorið 1996 með félögum sinum í „PoL
arkvartetten" og hélt tónleika á nokkrum stöðum við
góðar viðtökur. Allir félagarnir leika á gitar og þeir syng
ja á dönsku, norsku, sænsku pg færeysku. Þeir flytja
bæði eigin lög og texta og sígildar norrænar vísur. Vis-
urnar eru af öllu tagi nýjar og gamlar, lyndnar og dapur-
legar.innilegar og Ijúfar og allt þar á milli.
■ ÍSLENSKI FALDBÚNINGURINN UM 1800. Elsa E.
Guðjónsson textíl- og búningafræðingur, flytur fýrirlestur
með litskyggnum í dag kl.14 á vegum Heimilisiðnaðar-
skólans i húsnæði Heimilisiðnaðarfélags íslands, Lauf-
ásvegi 2. í erindi sínu mun Elsa fjalla, í máli og mynd-
um, um faldbúning íslenskra kvenna eins og hann tiðk-
aðist á seinni hluta 18. og fyrri hluta 19. aldar,
•Klúbbar
■ SPOTLIGKT Slsley.com kvöld á Spotiight. Dj Sesar,
sá langflottasti, veröur í biluðu stuði. 1/2 lítri bjór á 300
til 01.
•Krár
■ SVENSEN. HALLFUNKEL OG MATUR Á GULLÖLD-
INNI Gömlu, gömlu kempurnar Svensen og Hallfunkel
eru staðráðnir [ því að skemmta gestum Gullaldarinnar
í kvöld, alveg þangað til klukkan slær 3. Og fyrir fyllibytt
unnan Heitur matur veröur framreiddur frá klukkan 2
svo fólk fari nú ekki óétið i bólið.
■ ZÚRI Á 22 Ámi Þór sem ætið kallar sig Zúra gæj-
ann er snúinn aftur í Dj-harkiö og verður í búrinu á 22 í
kvöld. Gott partý eins og allir þekkja. Fritt inn til 1 en
stúdentar fá alltaf fritt inn.
■ GRÆNIR VINIR Á hinum magnaða skemmtistað
Catalínu Hamraborg verður hljómsveitin Grænir vinir
með dansleik.
■ KOKKAÐ Á NELLYVS Dj. le chef í búrinu á Nelly¥s
Cafe. Tilboð á bar og 500 kall inn eftir kl 24.
I KÁTT í HÖLLINNI Á VEGAMÓUJM Dj Kári mætir
ásamt söngkonunni Miss Nice, Funky Moses á bassa
og Peter Hall á gítar á Vegamótum. Þetta er nokkuð
sem enginn ætti að missa af.
■ PENTA Á CAFÉ AMSTERDAM Hljómsveitin Penta
verður með skemmtilegheit á Café Amsterdam alla
helgina. Landsbyggðarfólk sérstaklega velkomið.
> PLAST Á VÍDALÍN Það stígur ný sveit á stokk á
Vídalín í kvöld sem ber nafnið Plast. Sveitin er vísu
skipuð gömlu biýnum og ætti þvi ekki að vera neinn
byijendabragur á kvöldinu. Það eru þeir Tommi Tomm
úr Rokkabillýbandinu, Gunni Óla úr Skítamóral, Jonni úr
Ensími og Diddi úr Sniglabandinu sem skipa sveitina.
Góða skemmtun.
B PjTUR Á LÆKJARKOTl Plötusnúðurinn Pétur skek-
ur skanka á Lækjarkoti i kvöld. Ungir sem aldnir ættu
að hafa gaman af því.
B SIXTIES Á PLAYERS Gleðisveitin Sixties sér um
tiörið á Players, Kópavogi.
B SPILAFÍKLAR Á DUBLINERS Hljómsveitin SpílafikF
arnir sér um stemninguna á Dubliners.
B SPÚTNIK Á KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin
Spútnik heldur uppi dúndurstemningu á Kaffi Reykja-
vík. Auk þeirra mun Dj. Bestboy þeyta skífur af sinni al-
kunnu snilld.
B SPÚTNIK Á KAFFIREYKJAVÍK Sú saga gengur um
bæinn (Selfoss og nágrenni þ.e.) að hljómsvertin
Spútnik sé í hljóðveri að taka upp nýja plötu. Þar sem
sveitin er að spila á Kaffi Reykjavik alla helgina er
aldrei að vita nema þetta nýja efni fái að hljóma. Hljóm-
sveitina skipa Kristján Gislason söngvari, Ingólfur Sig-
urðsson trommari, Kristinn Gallagher bassaleikari,
Bjami Halldór Kristjánsson gítarleikari og Kristinn Ein-
arsson hljómborðsleikari.
B SÓLDOGG Á GAUKNUM Hressu strákarnir i Sól-
dögg hrista upp i liðinu á Gauk á Stöng.
B TVÖ DÓNALEG HAUST Hljómsveitin Tvö dónaleg
haust leikur fyrir dansi á Celtic Cross í kvöld. Magnað
band á mögnuðum skemmtistað, það ætti ekki nokkur
maður að láta þetta fram hjá sér fara.
•Klassík
B SÁLMAR JÓLANNA - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR í tilefni
af útkomu geisladisksins Sálmar jólanna halda Sigurð-
ur Rosason saxófónleikari og Gunnar Gunnarsson org-
anisti tónleika í Hallgrimskirkju kl. 17. Á tónleikunum
leika Gunnar og Sigurður lög sem tengjast aðventu, jóf
um og áramótum. Lögin eru frá ýmsum tímum, þau
elstufrá miðöldum, en hið yngsta var samið árið 1995
af Atla Heimi Sveinssyni við nýfundiö Ijóð Halldórs Lax-
ness. Marga af þekktustu jólasálmum heimsbyggðar-
innar er að finna á efnisskránni, svo sem Það aldin út
er sprungið og Heims um ból, en einnig verða flutt göm-
ul íslensk jólalög, misvel þekkt meðal þjóðarinnar.
Gunnar og Sigurður leika lögin i eigin útsetningum, en í
þeim er áhersla annars vegar á spuna, en hinsvegar á
flölbreytilega nálgun að viðfangsefnunum.
•Sveitin
B SKUGGABALDUR í VESTMANNAEYJUM Meistari
Skuggabaldur stekkur í Heijólf í dag og gerir sig kláran
til að skemmta á Lundanum í Vestmannaeyjum í kvöld.
Ert þú klár?
B BUTTERCUP FYRIR NORÐAN Buttercup verður á
Akureyri allan laugardaginn og áritar nýja diskinn sinn í
Pennanum Bókvali á Glerártorgi kl. 15.30. Síðan er
ball í Sjallanum um kvöldiö en þar hefur sveitin ekki
spilað síðan í vor.
B BÁSINN Félag Harmonlkku unenda á Selfossi held-
ur upp á 10 ára afmæli sitt í kvöld á Básnum Ölfussi.
B EURÓVEISLA í EGILSBÚÐ Enn gengur Euróvisjón-
skemmtunin í Egislbúð, Neskaupstað. Uppselt er á
þessa sýningu en sjálfsagt pláss á ball með Ózon og
Einar Ágústi. 18 ára aldurstakmark á ballið og 1800
spírur inn.
B FLAUEL Á N-1BAR Hljómsveitin Flauel sér um stuð
ið í N-1 bar, Grindavík,
fl GILDRUMEZZ Á ODÐVITANUM Hljómsveitin Gildru-
mezz verðum með frábæra Greedence Clerwater dag-
skrá á skemmtistaðnum Oddvitanum en þessi dagskrá
hefur slegið í gegn á Akureyri.
B MILUÓNAMÆRINGARNIR í EYJUM Hinir einu
sönnu Milljónamæringar sjá um fjöriö ásamt stór-
söngvurunum Bjama Ara, Páli Óskari og Stefáni Hilm-
arz í Höllinni, \festmannaeyjum.
B PEUCAN Á POLUNUM Ein vinsælasta hljómsveit
áttunda áratugarins, Pelican, flýgur norður um helgina
og skemmtir gestum veitingastaðarins Við Pollinn á Ak-
ureyri. Sveitina skipa Pétur Kristjánsson söngvari,
Ómar Óskarsson gítar og söngur, Jón Ólafsson, bassi
og söngur, Ásgeir Óskarsson trommur og Tryggvi
Hubner gftar.
B STUÐ í SJÁVARPERLUNNI Eyjólfur Kristjánsson
tjúttar ásamt hljómsveitinni Hálft í hvoru á stuðstaðn-
um Sjávarperiunnl, Grindavík.
B ÚTÓPÍA Á AKUREYRI Jaðarsveitin Útópia heldur i
víking til heimaslóðanna á Norðurlandi og heldur tón-
leika á Kaffi Akureyri frá kl. 22.0024.00.
•Leikhús
B BLESSAÐ BARNALÁN Leikfélag Akureyrar sýnir um
þessar mundir leikritið Blessað bamalán efitr Kjartan
Ragnarsson. Heima menn sem og aðrir nærsveitungar
eru hvattir til að mæta en sýningin hefur fengið af-
bragðs dóma og góðar viðtökur áhorfenda. En eru örfá
sæti laus.
fl BLÍÐnNNUR Barnaleikritið Bliðfinnur eftir Þorvald
Þorsteinsson [ leikgerð Hörpu Amardóttur verður sýnt á
fjölum Borgarieikhússins í dag kl.14. Sagan segir frá
Blíðfinni og ævintýrum hans, Smælksins, Drullumalla,
Vitringsins og að sjálfsögöu Bamsins. Skemmtileg sýn-
ing fyrir alla flölskylduna.
B BRÚÐKAUP TONY OG TINU Leikfélag Mosfellsbæ}
ar sýnir kl.20 i kvöld leikritið Brúðkaup Tony og Tinu en
sýnt er I Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ, Sýningin hefur
fengið ótúlega góðar viðtökur og uppsek hefur verið á
allar sýningar til þessa.
B DA. MILU HEIMA OG PLAN B íslenski dansflokk-
urinn sýnir í kvöld 3 ný íslensk dansveik eftir islenska
höfunda en verkin heita Da, Milli heima og Plan B en
saman heitir sýningin Haust. Sýnt verður í kvöld á nýja
sviði Borgarieikhússins kl.20. Þetta eru síðustu sýning
ar en enn eru örfá sæti laus.
fl EVA Kaffileikhúsið er með til sýningar um þessar
mundir verkið Eva: bersögull sjáHsvamarielkur en
hann verður einmitt sýndur í kvöld kl.21
B FJANDMAÐUR FÓLKSINS í kvöld sýnir Borgarleik-
húsið leikritið Fjandmaður fólksins eftir Henrik Ibsen.
Leikritið hefur fengið góðar viðtökur áhorfenda en sýnt
er á stóra sviðinu og hefst sýningin kl. 20
fl HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF7 í
kvöld sýnir Þjóöleikhúsið hið magnaða leikverk Hver er
hræddur við Virginíu Woolf? sem að hefur verið til sýrr-
ingar í langan tíma en vinsældum þess ætlar víst aldrei
að Ijúka. Höfundur verksins er Edward Albee en sýning-
in í kvöld hefst kl.20
fl KAFFILEIKHÚSIÐ í kvöld sýnir Kaffileikhúsið leikrit-
ið Eva sem er bersögull sjálfsvamarleikur og hefst sýn-
ingin kl. 21
B KARÍUS OG BAKTUS í dag sýnir Þjóöleikhúsið hið
margþekkta bamaleikrit Karius og Baktus eftir Thor-
bjöm Egner, Sýningin hefst kl.15 og sýnt er á Smíða-
verkstæðinu.
B LAUnN í TOSCANA i kvöld veröur leikverkið Laufin
i Toscana sýnt i Þjóðleikhúsinu. nánar til tekið á stóra
sviðinu. Sýningin hefst að vanda kl.20 en höfundur leik-
ritsins er Lars Norén
B MOZART íslenska óperan sýnir í kvöld Töfraflautuna
eftir Wolfgang Amadeus Mozart en þetta er einhver
viðamesta sýning sem að þau hafa ráðist í og er hún
stórglæsileg í alla staði. Sýnt verður í kvöld í íslensku
óperunni kl.19 og eru örfá sæti laus.
B PÚÐURTUNNAN í kvöld veður sýning á vegum Stúd-
entaleikhússins á verkinu Púðurtunnan, en það verður
sýntí Vesturporti í kvöld kl.20. \ferkið er samtímaverk
frá fyrrverandi júgóslavneska lýðveldinu Makedóníu og
er eftir ungan rithöfund að nafni Dejan Dukowskji.
B VERÓLDIN ER VASAKLÚTUR Síðasta sýning á verk-
inu Veröldin er vasaklútur verður í kvöld kl.21 í Kaffi-
leikhúsinu. Leikfélagið The lcelandicTakeAwayTheatre
sér um sýninguna og öllu sem að henni kemur og
merkilegt nokk er talað á íslensku i þessu veiki þótt svo
að aðstandendur leikfélagsins gátu ekki valið sér ís-
lenskt nafn á félagið.
•Kabarett
B LADDI í KJALLARANUM Þórhallur Sigurðsson með
frábæra skemmtun við allra hæfi á Leikhúskjallararr-
um. Borðhald hefst kl, 20 og sýningin kl, 22. Eftir sýn-
inguna munu gleðipiltarnir i Hunang leika fyrir dansi
fram eftir nóttu. Húsið opnar fyrir gesti kl. 23,30. Að-
gangseyrir er 1000,- kr.
•Fyrir börnin
B KOTTUR í NORRÆNA HÚSINU Trlvalið að kíkja í
Norræna húsið með krakkan í dag á sýninguna Köttur
út í mýri. 100 kall inn. Þar er hægt að leggjast inn í fiðr-
ildahellinn sem sagt er frá í Bláa hnettinum, setjast i
hásceb' Óðins og hlusta á frásagnir hrafnanna Hugins
og Munins, heimsækja hinn ógurlega tröllaskóg og þan-
nig mætti lengi telja. í æskulandi Sjöunda himinsins
geta böm og fullorðnir notið þess að gefa sig sögnum,
söngvum og goðsögnum á vald. Upplifunin er sett í
samhengi við sögur, söngva, myndir, goðafræði, ævin-
týri, vísur crg þulur og þar er líka rými fyrir sagnalist, tón-
list, leikhús og framtak bamanna sjálfra. Sýningin
stendur til 9.desember.
B MYNDIR ÚR BARNABÓKUM Sýning á myndum úr
bamabókum stendur sem hæst. í Norræna húsinu eru
sýndar 15 frumteikningar úr þekktustu bamabókum
Svía, (bækur sem einnig eru til í íslenskri útgáfu). í
Borgarbókasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi er hins vegar
að frnna teikningar úr íslenskum bamabókum.
•Opnanir
B TÉKKNESK GLERUST í dag veröur opnuð spenn-
andi sýning á Kjarvalsstööum þar sem sýnd verða verk
eftir fremstu gleriistamenn Evrópu. Sýningin ber nafn-
ið Leiðin að miðju jaröar.Efnistök gleriistamannanna
sem verk eiga á sýningunni eru ólik og endurspegla sér-
stöðu hvers og eins þeirra. Þannig gefur að líta flöl-
breyttan þverskurð af þeim óþijótandi fomigerðum og
litadýrð sem glerið hefur upp á að bjóða, ýmist eitt og
sér eða með öðrum efnum. Útkoman er meistaraleg og
lætur engan ósnortinn. Við opnunina leikur pianóleikar-
inn Davið Þór Jónsson. Leiðsögn verður um sýninguna
alla sunnudaga, kl. 15.
•Fundir
B SAMFYLKINGARMATUR Hátiðarkvóldverður lands-
fundar Samfylklngarlnnara verður á Hótel Sögu i
kvöld.Glæsileg þriggja rétta máitíð á 4000 krónur og úr-
vals skemmtiatriði með Stuðmönnum, Geirfuglunum
ofl.
B ÍSLENSKI FALDBÚNINGURINN UM 1800. Bsa E.
Guðjénsson textík og búningafræðingur, flytur fyririestur
meö l'rtskyggnum i dag kl.14 á vegum Heimilisiðnaðar-