Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Page 22
u ... Oc FÁÐUR ÞÉR DISKÓDJÚS Fram til 9. desember er boðið upp á sérstak- an bamamatseðil um helgar á Kaffistofu Nor- ræna hússins í tengslum við ævintýrasýning- una Köttur úti í mýri. Þessi matseðill inmheld- ur mjög nýstárlegan mat eins og fljúgandi furðuhorn, brakandi loftsteina og melónubáta ásamt diskódjúsi. Sannarlega spennandi nýj- ungar sem vert er að prófa ef krakkarnir manns eru ekki þeim mun meiri matargikkir. ... Að prjóna Nú er rétti tíminn til að kaupa sér garn og fitja upp. Góð afþreying í skammdeginu og hvað er líka skemmtilegra en gefa heimatil- búna jólagjöf? I garnverslunum fæst líka mjög gróft gam þannig að það liggur við að trefillinn klárist í fjórum umferðum, sem sagt ekkert mál. ... OC KÍKTU Á CLER Gler er nefnilega ekki bara gler eins og þú getur komist að á Kjarvalsstöðum á sýningunni „Leiðin að miðju jarðar". Þar er að finna hin furðulegustu verk úr gleri, gerð af tékkneskum glerlistamönnum. Litadýrð sem lætur engan ósnortinn. Rétt er að minna á það að táknmáls- túlkur verður með leiðsögn um safnið þann 25. nóvember. ... Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ Kvikmyndahátfðin stendur enn en nú fer hver að verða síðastur að berja myndir hátíðar- innar augum því henni lýkur á sunnudag. Um að gera að drífa sig af stað því á hátíðinni eru margar skrýtnar og forvitnilegar myndir sem ekki sjást venjulega í bíóhúsunum. Um helgina verður síðasta sýning á sýningunni Haust á nýja sviði Borgarlelkhússins en hún samanstendur af þremur nýjum dansverk- um sem eru öll eftir íslenska höfunda. Tónlistin við eitt þessara verka, Milli heima eftir Katrínu Hall, er samin af Barry Adamson og finnsku hljómsveitinni Pan Sonic en hún hefur nú verið gefin út á geisladiski I samvinnu við Tilraunaeldhúsið. Við kynntum okkur málið aðeins nánar. Samstarf án eyrnatappa Um þessar mundir sýnir Islenski dans- flokkurinn þrjú ný íslensk verk eftir fslenska danshöfunda á Nýja sviði Borgarleikhúss- ins og gengur sýningin undir nafninu Haust. Verkin sem um ræðir heita Da eftir Láru Stefánsdóttur, Milli heima eftir Katrínu Hall og Plan B eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Tónlistin var samin sérstakíega við verkin en mesta athygli vekur þó tónlistin við verkið Milli heima en hún kallast The Hymn of the 7th 111- usion og er samin af hljómsveitinni Pan Sonic og Barry Adam- son. Frá Björk til Nick Cave Pan Sonic er finnsk mínimalísk raftónlistarsveit sem er eitt af virtari nöfnum í þeim geira í dag. Þeir hafa gefið út fjölda platna auk þess sem sveitin hefur séð um hjóðinnsetningar í hinum ýmsu listagalleríum bæði í París, London og New York. Af samstarfsmönnum þeirra má sem dæmi nefna Björk, Sakamoto og Alan Vega, söngvara Suicide. Þeir byrjuðu ekki að koma fram opinberlega fyrr en árið 1996 en hafa síðan spilað víðs vegar um Evrópu og Japan. Barry Adamson hóf ferilinn sem bassaleikari hljómsveitarinnar Magazine og Nick Cave and the Bad Seeds en hætti árið 1987 og hóf þá sólóferilinn. Hann var undir miklum áhrifum frá hinum ýmsu kvikmynda- tónskáldum og höfðu John Barry, Ennio Morricone og Bern- ard Herrmann t.d. mikil áhrif á hann. Eitt af hans helstu verk- um var að semja tónlistina fyrir kvikmyndina Oediþus Shmoedipus sem kom út árið 1996 en einnig var plata hans Sour Murder tilnefnd til Mercury-verðlaunanna. Hucmynda- FRÆÐI TIL- RAUNAGLEÐ- INNAR The Hymn of the 7th 111- usion varð til þegar Tilrauna- eldhúsið bað Pan Sonic og Barry Adam- son að semja verk fyrir ís- lenskan kór sem þeir sam- þykktu að gera þótt svo það væri ólíkt öllu sem þeir höfðu áður gert. I apr- íl síðastliðnum hófust svo upp- tökur sem fóru fram á Islandi, Englandi og Spáni en afurð þeirra hljóðrit- ana er platan Motorlab# 3: Pan Sonic og Barry Adam- son sem kemur út á vegum Kitchen Motors í sam- vinnu við Oma sem er afleggj- ari af Eddu - miðlun og út- gáfu. Kitchen Motors er hins vegar útgáfuleggur Tilraunaeld- hússins en meginmarkmið þess er, eins og þau-segja sjálf, að kveikja í stuðandi samstarfsverkefnum og koma á legg skrýti- lega sjarmerandi uppákomum sem byggjast á hugmyndafræði tilraunagleðinnar, frumkvæði og samstarfi án eymatappa. Motorlab# 3 er ágætlega vel heppnað framtak þar sem kórsöng er blandað saman við raftónlist en útkoman er ansi áhugaverð og minnir óneitanlega á tónskáldið Philip Glass sem er ein- hver umdeildasti tónlistarmaður síðustu aldar. Áður hefur Til- raunaeldhúsið stefnt saman t.d. múm og Sjón, Stilluppsteypu og Magnúsi Pálssyni og einnig Orgelkvartettnum Apparati og tf3ira. Allt eru þetta mjög áhugaverðar blöndur og því verður gaman að fylgjast með hvað verður eldað næst í Tilraunaeldhús- inu og hvernig það smakkast. erjir ^erða hvar? Stemning á Akureyri „A föstudagskvöldið verð ég á Gauknum þar sem nýi diskurinn okkar „Öll ljós“ verður kynntur og spilaðúr í heild sinni. A laugardag fer hljómsveitin til Akureyrar. Þar verður nóg að gerast hjá okkur því við munura byrja á því að árita diskinn okkar í Bókval, sfðan mun- um við líklega spila í félagsmiðstöð- inni Kompaní. Um kvöldið verðum við svo með ball í Sjallanum og býst ég við því að það verði gott balll því það er alltaf stemning í Sjallanum. Eg á marga vini og kunningja fyrir norðan en því mið- ur mun ég ekki hafa tíma til að fara í neinar heimsóknir en vonast í staðinn til þess að hitta einhverja þeirra á balíinu." íris Kristinsdóttir, söngkona í Buttercup Fullur oc vitlaus „Á föstudag ætla ég að borða róman- tískan kvöldverð með kærustunni minni þar sem ég mun elda fyrir hana önd og drekka rauðvín með þvf. Svo verður hald- ið út til að skemmta sér en þá fer ég nátt- úrlega á Vegamót og kannski á NASA líka, það er nefnilega alltaf nauðsynlegt að vera með puttana á því sem er að gerast. Eg verð reyndar líka að vinna við að taka upp Spritz, þurfum að fara f eitthvert partí til þess. Annars verður bara fyllirí eitthvað fram eftir nóttu. Á laugardaginn ætla ég að vakna kl. 10.15 og fara í sund með kærustunni í Árbæjarlaugina en að því loknu verður stundað kynlíf. Um kvöldið verður svo bara hefðbundið fyllirí. Sunnudagurinn fer svo allur í þynku og viðbjóð." Jón Mýrdal, einn umsjónarmanna Spritz á PoppTíví. Kíkja í leikhús „Eg ætla að fara í Þjóðleik- húsið á föstudagskvöldið og sjá leikritið Vilja Emmu auk þess að kíkja á eitthvert veit- ingahús og snæða þar góðan mat. Laugardagurinn er skipulagður þannig að fyrst verður sofið vel út, svo verður tekið til og því næst ætla ég út að labba með hundana mína. Ég ætla ekkert að gera um kvöldið nema þá í mesta lagi að kíkja smá á eitthvert kaffihúsið. Sunnudagurinn fer síðan í afslöppun og lestur nýju jólabókanna." Sólveig Kristbjörg Berg- rruinn, ritstjómarfulltrúi hjá Mannlífi. www.astro.is 16. nóvember 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.