Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Page 2
2
Fréttir
Ráöherra leggst gegn beinum samningum við heimilislækna:
Vill opna heilsu-
gæslustöð
- kærir seinagang afgreiöslu málsins til umboðsmanns Alþingis
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Vill opna heilsugæslustöö en mætir andstööu heilbrigöisráöherra.
Guömundur Karl Snæbjörnsson heimilislæknir ásamt sonum sínum,
Davíö Arnljóti og Gunnari Hákoni.
Guðmundur Karl Snæbjörnsson,
formaður félags heimilislækna á
Norðurlöndum, telur að um 30 þús-
und manns séu án heimilislæknis á
höfuðborgarsvæðinu og því fjarri lagi
að það séu „aðeins" 5 þúsund manns
eins og Lúðvík Ólafsson, héraðslækn-
ir Reykjavíkur og forstöðumaður
Heilsugæslu Reykjavíkur, heldur
fram.
Einnig undrar Guðmundur sig á
þeim orðum Lúðvíks að ekki vanti
heimilislækna. Guðmundur Karl hef-
ur sótt um að opna heilsugæslustöð
þar sem starfi 4 tii 7 heimilislæknar
og sérfræðingar og sinni bráðamót-
töku fyrir þá sem eru án heimilis-
læknis. Það sé úrelt fyrirkomulag að
skipta heimilislæknum eftir hverfum
og það kerfi fæli unga lækna frá því
að leggja fyrir sig heimilislækningar,
enda vilji þeir fá aukið svigrúm til
jafns við aðra lækna til að opna eigin
stofur.
Á þriðja tug heimilislækna hefur
gefist upp á því að vera á ríkisjöt-
unni, þeir vilji fá að stjórna þessu
sjálfir, og fleiri munu hætta og flytja
sig yfir í aðrar greinar læknisfræð-
innar. Kostnaður verði sá sami fyrir
þann einstakling sem leiti til einka-
rekinna heilsugæslustöðva.
Brotið á iæknum
Tryggingaráð hefur verið með um-
sókn Guðmundar Karls til skoðunar
síðan í marsmánuði sl. og segir hann
að Tryggingaráð vilji semja við sig en
fái ekki leyfi heilbrigðisráðherra,
Jóns Kristjánssonar, til þess.
Ráðherra bíði hins vegar eftir svari
nefndar sem skipuð var 10. október sl.
og hefur það verksvið að efla aðgengi
að heilsugæslu. Guðmundur Karl telur
alveg fráleitt að biða þurfi eftir því að
sú nefnd skili áliti, enda taki það ef-
laust marga mánuði þar sem verksvið
hennar sé svo víðfeðmt. Það sé einnig
mjög gagnrýnivert, og móðgun við
lækna, að í nefndinni sitji enginn
heimilislæknir af höfuðborgarsvæðinu
en þar búi um 65% þjóðarinnar. Guð-
mundur Karl segir að málið verði nú
sent til umboðsmanns Alþingis, enda
sé verið að brjóta á þeim læknum sem
fá ekki að opna heilsugæslu eins og
hann hafi í hyggju.
„Við munum opna í byrjun næsta
árs og ef ekki með stuðningi Trygg-
ingastofnunar þá með fjárhagsstuðn-
ingi annars staðar frá. Ég get hins veg-
ar ekki upplýst nú hvaðan það íjár-
magn kemur," segir Guðmundur Karl
Snæbjörnsson heimilislæknir.
Máliö í nefnd
Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráð-
herra segir að
hann hafi ekki léð
máls á því að
Tryggingastofnun
semji beint við
heilsugæslulækna
og ekki hafi verið
opnað á nýjar
samningaleiðir við Tryggingastofhun,
en að vísu hafi verið samið við Lækna-
vaktina utan venjulegs vinnutima.
Starfandi sé nefnd sem eigi að skoða
mál heilsugæslunnar á breiðum
grundvelli. Hún sé þegar komin nokk-
uð áleiðis og henni beri að vinna hratt.
Ráðherra á von á niðurstöðum nefhd-
arinnar innan tíðar.
„Það eru til margar útgáfur af samn-
ingum við heilsugæslulækna en við
höfum viljað að þeir samningar fari
gegnum Heilsugæsluna í Reykjavík og
hún hefur samið við sjálfstætt starf-
andi lækna. Það er opið fyrir Guð-
mund Karl að gera það. Það er einka-
rekin stöð í Lágmúla sem starfar eftir
samningi við Heilsugæsluna í Reykja-
vík,“ segir heilbrigðisráðherra.
Ráðherra segist ekki geta metið
hvort 30 þúsund manns séu án heimil-
islæknis en margir hirði ekki um að
skrá sig og enn aðrir leiti beint tii sér-
fræðinga, en það sé markmið sitt að
beina öllum inn í heilsugæsluna.
-GG
Braust inn í Amtsbókasafnið og háttaði sig:
Sofandi innan um
heimsbókmenntir
- hafði farið úr skónum og stillt þeim snyrtilega upp
Brotist var inn
í Amtsbókasafhið
á Akureyri
eldsnemma á
laugardagsmorg-
un. Engu var
stolið en skemmd-
ir urðu vegna
rúöubrots. Þegar
starfsmenn komu
til vinnu skömmu
síðar sáu þeir
strax ummerki
innbrots og
nokkru síðar kom í ljós að útiskóm
hafði verið stillt upp með snyrti-
Brottkastsskipst j órinn:
Fékk hjartaáfall
Sigurður Grétar
Marinósson, skip-
stjóri á Báru, sem
sagði frá brottkasti
á skipi sínu i DV-
yfirheyrslu fyrir
rúmri viku, fékk
hjartaáfall á fóstu-
dag. Sigurður fer í
hjartaþræðingu í
dag. Hann kveðst
tvisvar hafa fengið
kransæðastíflu á einu ári. „Það átti
eftir að þræða eina æð, og ég vissi
það, en hafði trassað að fara í þá að-
gerð. En nú er ekki eftir neinu að
bíða. Það er þó ansi langsótt að
kvótakerfið eða brottkast afla sem
verið hefur í sviðsljósinu að undan-
fómu eigi þátt í þessu nú,“ segir Sig-
urður Grétar Marinósson. -GG
Amtsbókasafnið
Maöurinn sem braust inn fékk mola-
sopa áöur en hann fór.
Siguröur Grétar
Marinósson.
legum hætti inn-
ar í húsinu. Þess
má geta að gestir
safnsins fara alla
jafnan úr skón-
um þegar þeir
koma þangað
inn. Skömmu síð-
ar fundust buxur
og enn innar í
húsinu, i her-
bergi þar sem
geymdar eru vin-
sælar bækur sem
eru í útlánaumferö, fannst sofandi
maður. Hann hafði háttað sig og
lagst fyrir, eða öllu heldur sest fyr-
ir, innan um heimsbókmenntir
sem þarna stóðu í stöflum. Lög-
reglu var gert viövart og kom hún
á staöinn.
Maðurinn, sem hafði verið ölv-
aður um nóttina og fram undir
morgun og hafði ekki sofið lengi
þegar að var komið, gaf þá skýr-
ingu að honum hefði verið vísað á
bókasafnið sem næturstað af ein-
hverjum heimamönnum. Maður-
inn var aðkomumaður og hafði
verið með stéttarfélagsíbúð á öðr-
um stað í bænum á leigu og taldi
sig jafnvel hafa verið kominn
þangað. Þegar maðurinn hafði klætt
sig og gefiö lögreglunni skýrslu um
málið fékk hann molasopa hjá
starfsfólki bókasafnsins áður enn
hann fór. Mun Hólmkell Hreinsson
amtsbókavörður hafa bent mannin-
um á almennan afgreiðslutíma
safnsins og hvatt hann til að koma
næst á þeim tíma. ^BG
14 Bandaríkjamanna leitaö
Árni Guömundsson svæöisstjórnarmaöur talar viö aöra björgunarsveitarmenn
sem tóku þátt í leitinni.
Landgönguliðar týndust á fjöllum
14 landgönguliða úr varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli var leitað í
fyrrinótt og gærmorgun á svæði
sunnan Tindfjalla. Björgunarsveit-
armenn fundu mennina, sem allir
eru ungir og vel á sig komnir, und-
ir hádegi í gær. Landgönguliðarnir
höfðu verið á ferð á svæðinu með
tveimur íslenskum leiðsögumönn-
um sem voru meðal annars að
kenna þeim á áttavita. Á laugardag
var komin súld um það leyti er tók
að dimma. Vissu þá menn ekki hvar
þeir voru staddir og var farið að
sakna landgönguliðanna. Var leit
hafm en þegar mennirnir komu í
leitimar á sunnudag voru þeir
staddir um einn kílómetra frá skála
þar sem þeir höfðu gist nóttina
áður. Voru þeir vel búnir, í goretex-
göllum. Gallarnir eru hins vegar í
„felulitum“. -ótt
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2001
x>v
SBl'
Ekki á hjánum
Samfylkingarfund-
urinn virðist öðrum
þræði hafa snúist um
að sannfæra fundar-
menn um aö flokkur-
inn sé ekki á hnján-
um heldur standi
þrátt fyrir allt upp-
réttur. Bjöm Bjama-
son menntamálaráðherra segir þetta í
pistli á heimasíðu sinni.
Alvarlegt vinnuslys
Skipverji á erlendu flumingaskipi í
Grundartangahöfn var fluttur slasaður
á Landspítalann í Fossvogi í gær. Mað-
urinn slasaðist þegar verið var að taka
upp stimpil í vél. Stimpillinn féll niður
og lenti á fótum mannsins. Hífa þurfti
stimpilinn ofan af hinum slasaða.
Hann fór í aðgerð í gær.
Miðasalan að hefjast
Sala á tónleika
Bjarkar og Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
hefst i dag, mánudag,
klukkan 10. Miðamir
verða seldir í núm-
emð sæti og fer
miðasalan fram i Há-
skólabíói. Tónleik-
amir verða í Laugardalshöll þann 19.
desember.
Minnkar um milljarð
Ný skýrsla Byggðastofhunar leiðir í
ljós að aflaverðmæti krókabáta á Vest-
fjörðum gæti minnkað um rúmlega
einn milljarð í kjölfar kvótasetningar á
ýsu, ufsa og steinbít. Mbl.is greindi frá.
Skjálfti á Akureyri
Snarpur jarðskjálfti fannst á Akur-
eyri um fjögurleytið í fyrrinótt. Skjáift-
inn mældist um 2,5 stig á Richter og
átti sér stað klukkan 4.09.
Doktorsnemastaða
Landgræðsla ríkisins og Garðyrkju-
skóli ríkisins hafa ákveðið að taka upp
samstarf á sviði rannsókna í plöntulíf-
fræði. Það verður gert með því að
kosta eina sameiginlega stöðu doktor-
snema á þessu sviði.
Baitasar tilnefndur
Kvikmyndaleik-
stjórinn Baltasar
Kormákur hefúr ver-
ið tilnefndur sem
einn þriggja leik-
stjóra til að hljóta
verðlaun fyrir kvik-
myndahandrit á und-
irbúningsstigi á
Sundance-kvikmyndahátíðinni.
Baltasar vinnur nú að gerð myndar
sinnar, Hafið, og fara tökur fram í Nes-
kaupstað.
Lottó gekk ekki út
Enginn datt í lukkupottinn lottósins
á laugardagskvöld en potturinn var
þrefaldur að þessu sinni. TO skiptanna
voru rúmar tíu mflljónir króna og
flytjast þær yfir á næsta laugardag og
verður fyrsti vinningur þá fjórfaldur.
Sambærileg lausn
Bæjarstjóm Árborgar hefur sam-
þykkt ályktun þar sem hvatt er tfl þess
að verkfafl tónlistarkennara verði
leyst á sambærOegum forsendum og
gert hefur verið í kjaradeOum annarra
kennara í landinu.
Vaxandi síldveiði
Góð sOdveiði hefur verið siðustu
sólarhringa í Berufjarðarál og út af
Vopnafirði. Veður hefur þó stundum
hamlað veiðum. Þaö em þó aðaUega
nótaskipin sem halda sig í Berufjarð-
arál en stærri skipin, s$n eru með
flottroO, eru út af Vopnafirði, 50 tO 90
mflur frá landi. Sildin sem fæst út af
Vopnafirði er mun vænni en hún er
aðaMega flökuð og fryst á Skandinavíu-
markað. SOdaraflinn það sem af er ár-
inu er nærri helmingi minni en á
sama tíma í fyrra. -aþ/GG/sbs