Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Síða 13
13
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2001
DV
Utlönd
Borgaraflokkarnir í Danmörku sækja í sig veðrið:
Kraftaverk þarf til að
bjarga stjórn Nyrups
Aðeins kraftaverk virðist geta
komið í veg fyrir að ríkisstjórn
Pouls Nyrups Rasmussens missi
völdin eftir kosningarnar sem verða
haldnar í Danmörku á morgun.
Skoðanakannanir sem danskir
Qölmiðlar birtu í gær benda til aö
borgaraflokkarnir fái hreinan
meirihluta atkvæða. Samkvæmt
könnun Vilstrup Research, sem net-
útgáfa Politiken birti i gær, fá borg-
araflokkarnir Venstre, Konserva-
tive og Danski þjóðarflokkurinn
52,6 prósent atkvæða. Ef 2,4 pró-
senta fylgi Kristilega þjóðarflokks-
ins er bætt þar við fá hægriflokk-
arnir 55 prósent atkvæða og 99
menn af 179 sem sitja á danska þing-
inu. Venstre, undir forystu Anders
Foghs Rasmussens yrði stærsti
flokkurinn á danska þinginu.
Jafnaðarmenn, Radíkalar, Sósíal-
íski þjóðarflokkurinn og Einingar-
listinn fá samkvæmt könnun Vil-
strup aðeins 42,4 prósent atkvæða,
eða 76 menn kjörna.
Poul Nyrup boðaði til kosning-
„Eg geri mér grein fyrir að það er
á brattann að sækja,“ sagði forsæt-
isráðherrann í viðtali við Jyllands-
Posten um helgina.
Málefni innflytjenda hafa verið
aðalhitamálið í baráttunni fyrir
kosningamar. Hægriflokkarnir
hafa laðað til sín kjósendur með því
að lofa að taka hart á málum inn-
flytjenda og þeirra sem leita hælis í
Danmörku. Þar hafa haft hæst liðs-
menn Danska þjóðarflokksins sem
vilja helst losna við útlendinga úr
landinu.
Ef marka má skoðanakannanir
gæti farið svo að flokkurinn yrði sá
þriðji stærsti á þingi eftir kosning-
arnar.
„Við erum ekki bara lítill
hægriöfgaflokkur. Margir jafnaðar-
menn eru sammála okkur um að of
margir útlendingar komi til Dan-
merkur,“ segir Pia Kjærsgaard, leið-
togi Danska þjóðarflokksins.
Olíufundur við
Færeyjar væntan-
lega staðfestur
Hvort olíudraumur frænda okk-
ar, Færeyinga, verða að veruleika
kemur væntanlega í ljós í dag.
Búist er við að stjórnvöld stað-
festi þá fréttir færeyskra fjölmiðla
um helgina þess efnis að borpallur
olíufélagsins Amerada Hess hafi
fundið bæði olíu og gas á 4.200
metra dýpi á færeyska landgrunn-
inu, ekki langt frá miðlínunni að
efnahagslögsögu Bretlands, þar sem
auðugar oliulindir hafa fundist.
Eydun Eltter, sem fer með olíu-
mál í færeysku landstjórninni, vildi
ekkert segja um hugsanlegan ol-
iufund í viðtali við færeyska ríkis-
útvarpið. Þá neitaði talsmaður olíu-
félagsins í Aberdeen í Skotlandi að
segja nokkuð um árangur borana
þegar danska blaðið Jyllands-Posten
leitaði eftir fréttum á laugardag.
REUTER-MYND
Poul Nyrup Rasmussen
Ekki blæs byrlega fyrir danska for-
sætisráðherranum ef marka má
fylgiskannanir flokkanna.
anna á morgun, samhliða sveitar-
stjórnarkosningum, vegna mikils
stuðnings sem hann fékk fyrir ein-
arða afstöðu sína i kjölfar hryðju-
verkaárásanna á Bandaríkin í sept-
ember. Yfirstandandi kjörtímabil
átti annars ekki að renna út fyrr en
í mars á næsta ári.
Mér finnst ég hvorki geta andað að mér né frá mér, eins og ég hafi verið slegin í brjóstið. Mér
finnst ég vera að kafna og fyllist ofsahræðslu. Ég er asmasjúklingur og svona líður mér stundum
ef ég tek ekki innúðalyf. Án þeirra gæti ég ekki andað eðlilega.
Lyf skipta sköpum!
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
REUTER-MYND
Mandela ánægður með lofið
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, og Graca eiginkona hans
eru greinilega ánægð með ræðurnar sem voru fluttar þegar nafni grunnskóla
í Toronto í Kanada var breytt og hann nefndur í höfuð Mandela.
Lyfjafyrirtækin
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • GlaxoSmithKline ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf
Lyfjaverslun íslands hf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.
- nýjungar í launavinnslu
á Grand Hótel 22. nóvember. Skráöu þig á www.tm.is
H-Laun
... ekkisætta þig við minna!
TÖLVUIiliÐLUn
Tölvumiðlun hf. • Engjateigur 3 • 105 Reykjavik
Sími 545 5000 • Fax 545 5001 * www.tm.is • tm@tm.is