Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Side 15
15 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2001 DV___________________________________________________________________________________________ Merming Myrkriö í ljósinu DV-MYND E.ÓL. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur Persónumar sem hún vekur hér til lífsins eru fullar af ást og æöruleysi, hamingju og lífsgleöi. Ef maður elskar skil- yrðislaust og er óspar á kærleikann uppskera manns nánustu gott og gjöfult lif og verða ávallt sólarmegin í lífinu. Þessi göfugi boðskapur birtist lesendum í nýjustu skáld- sögu Vigdísar Grímsdótt- ur, Frá ljósi til ljóss, eða svo virðist a.m.k. vera við fyrstu sýn. Frásögnin sýnist gjörsneydd ijótum, leiðum og truflandi eiginleikum manneskjunnar, grimmd, eigingirni, afbrýði- semi, geðveiki eða drykkjusýki, svo eitthvað sé upp talið af því sem einkennt hefur persón- ur Vigdísar fram til þessa. Persónurnar sem hér vakna til lífsins eru fullar af ást og æðru- leysi, hamingju og lifsgleði og hafa aflar sem ein hæfileika til að laða fram það besta bæði í sjálfum sér og öðrum. Veröldin er sælureitur þar sem hamingjudraumarnir rætast, svo framarlega sem menn eru góðir hver við ann- an, lausir við heimtufrekju og græðgi og kunna að bíða. Eða hvað? Aðalpersónan er Rósa, barn kærleikans (8). Hún er getin í botnlausri ást og þótt móðir hennar deyi skömmu eftir fæðinguna fylgja upphafnar minningar henni tengdar stúlkunni eftir í vöku sem draumi. Lenni, fað- ir Rósu, helgar barninu líf sitt og ást í 10 ár en svo verður hann að fara til að láta drauminn sem hann hefur dreymt siðan hann var lítill drengur rætast. Rósa verður eftir hjá vina- fólki Lenna, Helenu og Róbert, sem ganga henni í móður- og föðurstað. Og af því stúlkan er alin upp í æðruleysi „sættir" hún sig við brottfór föðurins og býr sig undir langa bið sem mun ljúka þegar Lenni flnnur hamingj- una og kallar hana til sín. Biðin virðist létt- bær í faðmi yndislegra fósturforeldra og vin- konunnar Lúnu sem er eins og Rósa sjálf, með kollinn fullan af ást, list, fegurð og hamingju- draumum. Listin ratar út í flngurna á Lúnu sem verður myndlistarmaður en Rósa tileink- ar sér listina að lifa og iáta öskirnar rætast. Og að sjálfsögðu rætast þær, enda engin ástæða til annars. Eða hvað? Bókmenntir Allt virðist ofureinfalt og framvinda mála er eins og i ævintýri eða rómantískri 19. ald- ar sögu. Vandamálin sem upp koma, svo sem dauðsfóll eða ástarsorg, eru afgreidd með því að tíminn lækni öll sár og að allt fari vel - á endanum. En í þessum hamingjusama texta býr annar og raunsærri boðskapur. Hér er á óvenjulegan hátt Qallað um háskann sem felst i lyginni, sem í þessu tilviki er vandlega innpökkuð í „sannleikann". Hér er fjaflað um barn sem verður eigin- girni hinna fufl- orðnu að bráð og leitar á vit drauma og ímyndunar til að lifa af og um grimmdina sem felst í að fóma hamingju annarra fyrir sína eigin. Þessar stað- reyndir rata til les- anda sem skynjar að frásögnin er aðeins að hluta til sönn. Á yfirborðinu er fjall- að um óskaveröld sem flestir þrá; ver- öld skilnings, hlýju, skilyrðislausrar ást- ar og fölskvaleysis en undir krauma óheilindi, óhamingja, svikin loforð, vanmáttur og efi. Höfundur pakkar al- varlegum atvikum svo vandlega inn í orð- ræðu ástarinnar að það er ekki fyrr en undir lok sögu að lesandinn áttar sig á óheilindum textans sem er svo lúmskur i fegurð sinni að lesandinn meðtekur nær gagnrýnislaust van- rækslu, lygi og svik. Það er ekki síst i þessum tvöfalda texta sem galdur og - áfall sögunnar býr. í Frá ljósi til ljóss bætir Vigdís Grímsdóttir glænýjum og velútfærðum hliðum í glæsilegt völundarhús höfundarverksins, arkitektúr sem mun vekja undrun, ánægju og óhug. Sigríður Albertsdóttir Vigdís Grímsdóttir: Frá Ijósi til Ijóss. löunn 2001. Frida Kahlo Frídurnar tvær eftir Fridu Kahlo. Olía á striga 1939. Varöveitt í Nútímalistasafninu í Mexíkóborg. Það voru miklir umbrotatímar í Mexikó á fyrrihluta síðustu aldar, jafnt í pólitísku og menningarlegu tilliti. í kjölfar byltingar sem hófst 1910 og stóð í heilan áratug komust vinstrimenn til valda og í þeirra tíð voru gerð- ar miklar umbætur i efnahags- og menntamál- um auk þess sem listir og menning blómstr- uðu sem aldrei fyrr. Meðal listamannanna var Frida Kahlo sem vakti verðskuldaða athygli með sinni fyrstu einkasýningu í New York árið 1938, þó ekki öðlaðist hún heimsfrægð fyrr en hún var öll. Myndir hennar þóttu sér- stæðar og jafnvel óhugnanlegar enda var meg- inviðfangsefni Fridu hún sjálf og sársaukinn sem hún bjó við lungann úr ævinni eftir al- varlegt umferðarslys. Einkalíf Fridu var álíka skrautlegt og sjúkrasaga hennar en hún var gift málaranum Diego Riviera sem hafði mikil áhrif á málara- list í heimalandi sínu og Bandaríkjunum. ! kvöld kl. 20.30 verður dagskrá helguð Fridu Kahlo í Listaklúbbi Leikhúskjallarans og flall- að um ævi hennar og listsköpun i máli og myndum. Lesnir verða kaflar úr ævisögu Fri- du og dagbókinni sem hún hélt síðustu árin auk þess sem gestum gefst færi á að virða fyr- ir sér flölmargar af myndum hennar. Umsjón- armenn eru Jón Proppé listfræðingur og Hall- dóra Friðjónsdóttir leikhúsfræðingur, lesari með þeim er Brynhildur Guðjónsdóttir leik- kona og Páll Eyjólfsson leikur á gitar. Bókmenntir BÍÍIÍS Afturgenginn íkorni Það er svolitið sérkenni- legt að byrja að lesa nýj- ustu skáldsögu Gyrðis Elí- assonar, Næturluktina. Bókin er framhald af skáld- sögu Gyrðis, Gangandi íkoma, sem kom út árið 1987 og það í svo bókstaf- legum skilningi að það er eins og ekkert hafl breyst á þessum árum, sagan held- ur einfaldlega áfram þar sem frá var horflð. Og það er að sínu leyti svolítið einkennilegt líka, þvi Gangandi íkoma lýkur á heimsslitum. Drengur- inn Sigmar hverfúr inn í ævintýraheiminn, sem síðan ferst þegar myndinni sem hann hvarf í gegnum er tortimt í eldi. Nú stígur Sigmar fram að nýju eins og ekkert hafi ískorist, hann hefur verið týndur í sólar- hring, en finnst aftur sofandi á legubekk í stof- unni. Lif hans hjá hjónunum Ágústi og Björgu gengur sinn vanagang, nema hvað hann dvelur nú hjá þeim yfír vetur eftir að skilaboð koma um það frá móður hans. Einnig fær hann fréttir af því að faðir hans sé látinn. Líkt og i nýrri smá- sögum Gyrðis er Sigmar þannig örlítið hefð- bundnari skáidsagnapersóna en í fyrri bókinni. Hann á sér fortíð og foreldra, sem gefúr þeim les- endum sem vilja færi á sálfræöilegri skilningi á honum en áður. Sigmar liggur í bókum og þvælist um bæinn. Hann virðist ekki hafa neinar skyldur og búskapm- á bænum er lítill sem eng- inn. Lif hans markast af iðjuleysi, draumum og prakkaraskap, sem virðist einhvem veginn koma af sjálfu sér og óvart. Allt þar til sagan endur- tekm- sig. Sig- mar handleik- m íkorna sem þeir Ágúst hafa smíðað í sameiningu, og skyndilega er hann „aftm orðinn að íkoma“, horf- inn inn i dystópískan heim þar sem dýrin hafa tek- ið völdin en mennimir flestir verið af- hausaðir, eins og lesendm fyrri bókarinnar vita. í heimi íkomans hafa orð- ið meiri breytingar en í hinum heiminum. Hann er aftm lagstur í flakk, hvorki borgin né kofinn hans em honum lengur heimili og eftir langt ferðalag endar hann sem næturvörðm á gisti- heimili í litlum heilsubæ. Það er eflaust hægt að túlka heimana tvo á ýmsa vegu, og ákveðinni tengingu miili þeima er líka gefið undir fótinn. T.d. er talað um Ágúst sem broddgölt, sem leiðir hugann að broddgelti sem íkominn rekst á í fyrri sögunni. Þá minnist Gyrðir Elíasson rithöfundur Eina leiöin er aö taka heim sögunnar gildan og fylgja Sig- mari á flakki hans milli heima þar sem flest efekki öll mörk hafa veriö þurrkuö út. Sigmar þess að honum sé illa við eld, eftir að hús hans og móðminnar brann, en líkt og í fyrri bók- inni tortímist heimur íkornans í eldi. Þannig veifar textinn framan í lesandann nokkrum túlkunarleiðum sem gætu virst ganga upp, en reynast líklega allar vera blindgötm. Líkt og í öðrum lengri prósaverkum Gyrðis, Svefnhjól- inu og sögunum í Bréfbátarigningunni, er eina leiðin sú að taka heim sögunnar gildan, og fylgja Sigmari á flakki hans rnifli heima þar sem flest ef ekki öll mörk hafa verið þurrkuð út. Tengslin við fyrri bókina ítreka þetta svo enn frekar. Gang- andi íkorni verðm ekki söm eftir þetta framhald. Heimm sem tortímdist þar reynist geta risið upp aftm fyrirvaralaust flórtán árum seinna. Hér verðm ekki flölyrt einu sinni enn um stil- snifld Gyrðis, hún ætti að vera orðin óumdeild. En Nætmluktin vekm með lesandanum ýmsar spumingar, ekki síst þeim lesanda sem hefur tryggm fylgt höfundarverki Gyrðis í vel á annan áratug. Næturluktin er endurtekning ekki síðm en framhald og fyrst hægt er að endurtaka sög- una einu sinni er þá nokkm vissa fyrir því að heimsendir íkomans í þessari bók sé varanlegm. Er ekki hægt að halda áfram alla ævi Sigmars að flækjast með honum milli heima? Það er svo sannarlega hægt að mæla með því að fólk fari annan hring með hinum gangandi íkoma. En maðm hlýtm líka að spyrja sig hversu lengi hægt er að halda áfram slíkri endurtekningu. Jón Yngvi Jóhannsson Gyröir Eliasson: Næturluktin. Mál og menning 2001. Leikari eða skáld? Það var ákaflega gaman á ritþingi Steinunnar Sigmð- ardóttur um næst- síðustu helgi. Stóri salurinn i Gerðu- bergi var svo þétt- setinn að við lá að síðustu gestir þyrftu að troða sér í sófann hjá skáld- inu og viðmælend- um hennar. Stein- unn byrjaði á því, hvött af fyrirspurn Vigdísar Finnboga- dóttur, annars spyrils, að viðurkenna að um tíma hefði vafi leikið á hvort hún yrði leikari eða rithöfundur. Satt að segja ætlaði hún sér að verða leikkona en ias hins vegar allt sem hún komst í og yfir, ekki síst ljóð^, þannig að meðvitundin vildi eitt en undirvitundin ann- að. Málið var auðvitað að Steinunn vissi að leikkonur voru til, en allir rithöfundar voru karlmenn... Sameiginlegt sagði hún að þessar tvær starfsgreinar ættu endurtekninguna: Leikarar lékju sömu hlutverkin kvöld eftir kvöld, rit- höfundar þyrftu að lesa textann sinn ótal sinnum yfir. Kostinn við starfsgreinina sem hún valdi sagði Steinunn þann að leikkonan væri líklega orðin atvinnulaus núna! En allir vita að skáldkonan stendur á hátindinum með nýja glæsilega skáldsögu í fanginu. Veruleikinn yfirtrompar Ung ljóðskáld græða á því að vita að Stein- unn var í öflugum leshring á menntaskólaár- unum þar sem lesnar voru fagurbókmenntir, einkum atómskáldin, og á kvennaskóla í Sviss lá hún i Rainer Maria Rilke og ljóðum Hall- dórs Laxness sem hún hafði með sér hand- skrifuð að heiman. Það var fyrir tíma ljósrit- unarvélarinnar! Svo fór hún til Dyflinnar sem er „góð borg fyrir despair", eins og hún orðaði það. Þar stúderaði hún og skemmti sér: „Djöf- ulli dansaði maður!“ Heim komin fór hún að vinna á Máli og menningu hjá atómskáldinu Sigfúsi Daðasyni sem var henni „ótrúlegur skóli“. Hún sagðist flakka milli forma til að forðast stöðnun, en í öllum formum er hún fyndin - enda ein af listaskáldunum vondu. Ekki ímynda ykkur rithöfund án púka (og púka- blístru), segir hún, en þó að maður hafi gróteskt ímyndunarafl yfirtrompar veruleik- inn mann alltaf. Ástin er regnbogi Auðvitað var talað um ástina á þessu rit- þingi um konuna sem er sérfræðingur i óham- ingjusömum ástum. „Ástin er eins og regn- boginn," sagði Steinunn, „hún er ekki þar sem við erum. Það er mannlegi harmleikur- inn.“ Hin fræga bók Tímaþjófurinn var einmitt það i lifi Steinunnar, sjö eða átta ára sársaukafullt ferli sem enginn hélt að nokkur myndi lesa, hvað þá kaupa. En hún seldist í bilfórmum! Og hvað vill Steinunn með bókum sínum? Afhjúpa hvað við erum skrýtin. Vekja til umhugsunar? Nei, fremur vekja djúpa gleði. Yfirbót í viðtali við Torfa K. Stefáns- son Hjaltalín um rit hans Eld- ur á Möðruvöll- um á menning- arsíðu á föstu- dag eyddi mjmd út hluta textans þannig að samhengi rofnaði. Óbjagaður er kafl- inn svona: „Árið 1783 verða Möðruvellir amt- mannssetur og brennur bústaður amtmanns tvisvar. Fyrst brann íbúðarhús amtmanns 1826, timburhús frá 1788, og eftir það var reist hið þekkta hús Friðriksgáfa sem Friðrik kon- ungur 6. gaf íslendingum. Jónas Hallgrímsson orti um það hús og Tómas Sæmundsson kom þangað þegar verið var að byggja það og sagði þar „dægilega fallegt". En Friðriksgáfa brann 1874 og eftir það fluttist amtmannssetrið til Akureyrar. Möðruveilir höfðu þá verið amt- mannssetur í tæp hundrað ár og þar sátu merkismenn eins og Bjarni Thorarensen skáld. Þar orti hann til dæmis erflljóðið um Odd Hjaltalín, ástarkvæðið „Kysstu mig aft- ur“ og fleira gott.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.