Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001
7
i
I
!
DV
HEILDARVIÐSKIPTI
- Hlutabréf
] - Húsbréf
MEST VIÐSKIPTI
; © Bakkavör
o Pharmaco
Hlutabréfasj. Búnaöarb. 11 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O Tryggingamiðstööin 5,4 %
O Hlutabréfasjóöur Islands 3,5%
©Íslandssími 2,4 %
MESTA LÆKKUN
OBaugur 3,8 %
©Landsbankinn 3,8 %
© Sjóvá-Almennar 3,5 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1.087 stig
- Breyting O 1,16 %
Evrur strax á
miðnætti
Finnski Seðla-
bankinn verður opn-
aður á miðnætti á
gamlárskvöld til að
gefa landsmönnum
kost á að ná sér í
evru-seðla og -mynt
um leið og gjaldmið-
illinn verður opinber mynt land-
anna. Tíminn hjá Finnum og
Grikkjum er einni klukkustund á
undan öðrum evruríkjum og því
verður nýi gjaldmiðillinn fyrst
gjaldgengur i þessum löndum.
í gær tilkynnti finnski seðlabank-
inn að allir fimm afgreiðslustaðir
hans verði opnir frá miðnætti til
klukkan eitt á nýársnótt. „Við bú-
umst nú ekki við örtröð,“ sagði
Antti Juusela, starfsmaður bank-
ans, „en héldum það gæti verið
gaman að bjóða upp á þessa þjón-
ustu.“ Hún var auglýst sem New
Year Europening.
Enn eykst hús-
bréfaútgáfa
Samkvæmt bráðabirgðatölum frá
íbúðalánasjóði nam fjárhæð útgef-
inna húsbréfa í nóvember 3,5 millj-
örðum króna samanborið við 2,6
milljarða í nóvember í fyrra.
í Morgunkorni Islandsbanka í
gær kom fram að það sem af er ár-
inu nemur útgáfan um 29,4 milljörð-
um króna samanborið við 26,2 millj-
arða á sama tímabili í fyrra. í nóv-
ember var samdráttur í fjölda lána
til kaupa á notuðu húsnæði en mik-
il aukning í lánum til nýbygginga.
Það sem af er árinu er aukningin
hlutfallslega mest í lánum til bygg-
ingaraðila en minnst til kaupa á
notuðu húsnæði sem að sögn Grein-
ingar íslandsbanka staðfestir vís-
bendingar þess efnis að fjármögnun-
in sé að færast yfir til byggingaraö-
ila.
04.12 .2001 kl. 9.15
KAUP SALA
F ÍDollar 106,540 107,090
KiSlPund 151,570 152,350
; l*Hkan. dollar 67,500 67,920
I Slpönsk kr. 12,7410 12,8110
rfir-Norsk kr 11,8820 11,9470
C—Sænsk kr. 9,9800 10,0350
hHFi. mark 15,9473 16,0431
_jFra. franki 14,4550 14,5418 ]
LÍÍBelg. franki 2,3505 2,3646
: eai Sviss. franki 64,3600 64,7100
BhoII. gyllini 43,0267 43,2852
^jpýskt matk 48,4798 48,7712
Jjh. líra 0,04897 0,04926
i VÚAust. sch. 6,8907 6,9321
3port. escudo 0,4730 0,4758
' ]Spá. peseti 0,5699 0,5733
• Jjap. yen 0,86060 0,86580
| jírskt pund 120,394 121,117
SDR 134,8200 135,6300
EUecu 94,8183 95,3881 ;
1.470 m.kr.
118 m.kr.
418 m.kr.
42 m.kr.
20 m.kr.
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaðiö
Hagnaður Baugs dregst
saman um 67% milli ára
Afkoma Baugs fyrstu níu mánuði
ársins dróst saman um 67% milli
ára. Hagnaðurinn nam 131 milljón
króna miðað við 394 milljónir á
sama tímabili í fyrra. Framlegð fé-
lagsins dróst saman milli ára. Fram-
legð félagsins var 4,1% fyrstu niu
mánuði ársins en 6,4% á sama tíma-
bili í fyrra. Tekjur félagsins jukust
um 58%, úr 16.513 milljónum í
26.054 milljónir. Gjöldin jukust að-
eins meira eða um 62% úr 15.453
milljónum í 24.977 milljónir.
Afskriftirnar rúmlega tvöfaldast á
milli ára úr 342 milljónum í 716
milljónir. Fjármagnsgjöldin aukast
um 113% úr 211 milljónum i 450
milljónir. Á móti þessu kemur eykst
hagnaður hlutdeildarfélaga um
1500% úr 38 milljónum í 626 milljón-
ir.
Það sem dregur hagnaðinn niður á
milli ára eru önnur gjöld að upphæð
284 milljónum króna og hlutdeild
minnihluta sem voru 39 milljónir en
báðir þessi liðir voru núll í fyrra.
Bakkavör
Kaupþing hf., Búnaöarbanki íslands hf., íslandsbanki hf. og MP-Veröbréf hf.
munu annast sölu til fagfjárfesta á íslandi.
2,9 milljarða hlutafjár-
útboð hjá Bakkavör
- 700 milljónir seldar almenningi
Hlutaijárútboð Bakkavarar í
tengslum við kaup þess á matvæla-
fyrirtækinu Katsouris Fresh Foods
Ltd mun nema alls 2,9 miUjörðum
króna að söluverðmæti. Útboðið
verður tvískipt.
Þannig er áformað að selja bréf
fyrir 700 miUjónir króna til almenn-
ings á genginu 6,8 sem þó gæti
lækkað ef endanlegt útboðsgengi,
sem ákvarðast mun af áhuga fag-
fjárfesta, verður lægra. Sala tU al-
mennings mun fara fram með raf-
rænum hætti á heimasíðu Kaup-
þings frá klukkan 10 að morgni
föstudagsins 7. desember næstkom-
andi tU klukkan 18 miðvikudaginn
12. desember.
HeimUd tU aukningar hlutafjár í
allt að 3,6 miUjarða króna.
Þá er ætlað að selja hlutabréf fyr-
ir 2,2 miUjarða króna til fagfjárfesta
á íslandi, í Sviþjóð og i Danmörku.
Útboðsgengi verður á bilinu 6,2-6,8.
Mun endanlegt útboðsgengi ákvarð-
ast af áhuga fagfjárfesta á sk. „book-
building" tímabili, sem er frá kl.
10.00 mánudaginn 3. desember nk.
til kl. 18.00 miðvikudaginn 12. des-
ember nk. Tilkynnt verður um end-
anlegt útboðsgengi eftir lok „book-
building" tímabils. Heimilt er að
hækka fjárhæð hlutafjár sem boðið
verður fagfjárfestum um aUt að kr.
700.000.000, í allt að kr. 2.900.000.000
að markaðsvirði, enda verði um
verulega yfiráskrift fagfjárfesta að
ræða. Kaupþing hf., Búnaðarbanki
íslands hf„ íslandsbanki hf. og MP-
Verðbréf hf. munu annast sölu til
fagfjárfesta á íslandi, Aragon Fond-
komission AB og Kaupþing Invest-
ment Bank, Stokkhólmi, til fagfjár-
festa í Svíþjóð og Kaupþing Bank
Danmark til fagfjárfesta í Dan-
mörku.
Þannig verður heimilt að hækka
heildarfjárhæð útboðsins í allt að
3,6 miUjarða enda verði um veru-
lega umframeftirspurn að ræða.
Mun fjárhæð skuldabréfs með
breytirétti, sem gefið verður út sam-
fara útboðinu, þá lækkuð um sam-
svarandi fjárhæð.
Bakkavör Group hf. og umsjónar-
aðilar útboðsins áskilja sér allan
rétt tU að hverfa frá og breyta fram-
angreindri áætlun um skiptingu á
milli þess sem ætlað er að selja tU
almennings annars vegar og fagfjár-
festa hins vegar, tU samsvörunar
við það hver eftirspurn verður eftir
hlutabréfum frá hvorum hópi um
sig.
Tap KEA 419 milljónir króna
Tap varð af rekstri Kaupfélags
Eyfirðinga og dótturfélaga fyrstu
níu mánuði ársins að upphæð 419
milljónir króna. Umtalsverðar
breytingar hafa orðið á samstæðu
Kaupfélags Eyfirðinga frá fyrra ári.
Rekstrartekjur samstæðunnar
námu 3.904 milljónum króna og
rekstrargjöld fyrir afskriftir og
vexti námu 3.705 milljónum króna.
Afskriftir námu 185 milljónum
króna og rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliði nam 60 milljónum
króna. Fjármagnsgjöld umfram fjár-
munatekjur námu 606 milljónum
króna og vegur þar stærst gengistap
af erlendum lánum og afleiðusamn-
ingum að fjárhæö 517 milljónir
króna. Tap af reglulegri starfsemi
félagsins eftir skatta nam 440 millj-
ónum króna en tap ársins nam 419
milljónum króna. Veltufé til rekstr-
ar nam 413 milljónum króna. Bók-
fært eiginfjárhlutfall samstæðu er
25% og móðurfélags 40%.
Uppgjöriö vonbrigöi
Eiríkur S. Jóhannsson kaupfé-
lagsstjóri segir uppgjörið vonbrigði
líkt og sex mánaða milliuppgjörið
en áfram verði unnið að þvi að ná
fram aukinni hagræðingu í rekstri
innan samstæðunnar. Ytri skilyrði
félagsins eru áfram óhagstæð eins
og flestra annarra fyrirtækja og veg-
ur þar þyngst staðan á fjármagns-
mörkuðum. í nóvember var lokið
samningum við helstu lánardrottna
móðurfélagsins um endurfjármögn-
un skammtímaskulda. Við þá end-
urfjármögnun fer veltufjárhlutfall
samstæðunnar miðað við tölur úr
niu mánaða uppgjöri úr 0,48 í 1,03
fyrir samstæðuna en úr 0,35 i 2,7
fyrir móðurfélagið. Eiginlegur
rekstur móðurfélagsins hefur breyst
mikið frá fyrri tíð og einkennist
rekstur þess nú fremur af starfsemi
eignarhalds- og fjárfestingarfélags.
Um áramótin verða allar eignir og
skuldir Kaupfélags Eyfirðinga svf.
færöar í sérstakt hlutafélag sem
mun hafa fjárfestingar- og eignaum-
sýslu að meginstarfsemi.
^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
( Láttu
þér ekki
(Wa5t!
j.;,
Aldrei hefur Bert átt
svona marga aðdá-
endur - á öllum aldri
og af öllum geröum.
Þrettánda bókin
um þessa sívin-
sælu sögu-
persónu.
í i
m
Skemmtilegar og
áhrifamiklar frásagnir
af vináttu, úrsígildum
bókum vinsælla
barnabókahöfunda.
Hrífandi lýsingar á
sterkuni tilfinn-
ingum og
skoplegum
atvikum.
Svanur Andersson -
kvennagullið fræga,
rómantíski
riddarinn, hetja
allra stelpna.
Tíunda bókin í
þessum vinsæla
bókaflokki.
t
Ný söguhetja frá
höfundum Bert-bók-
anna. Emanúel veitir
okkur innsýn í heim
nútímaunglings-
ins, þar sem
spjallrásirnar
eru jafnsjálf-
sagðar og
ástin, tón-
listin og
skólinn.
SkjaJdborg bókaútgáfa
Grensásvegi 14 • icé Iteykjtá'Sírri 586-2400• Fwc5888994
’mmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmt^