Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001
29
I>V
Tilvera
Biofrettir
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Harry Potter á í
vök aö verjast
Harry Potter og visku-
steinninn er þriðju vik-
una í röð í efsta sæti yfír
mest sóttu kvikmyndirnar
í Bandaríkjunum og hefur
smáforskot á gamaldags
spennumynd Behind
Enemy Lines með Owen
Wilson og Gene Hackman
í aðalhlutverkum. Sjálf-
sagt hefur sætanýtingin
verið betri á þá mynd því
Harry Potter var sýnur í
rúmlega eitt þúsund fleiri
sýningarsölum. Harry
Potter mun að öllum líkindum falla
úr efsta sætinu í næstu viku en þá
verður frumsýnd hin stjömum
prýdda Ocean’s Eleven. Það er
einnig ljóst að Harry Potter mun
ekki slá út aðsóknarmet Titanic,
sala aðgöngumiða er þegar í rénun
og má nefna að Harry Potter náði
ekki að bæta met sem Star Wars:
Harry Potter
Gefur smátt og smátt eftir.
Episode 1 átti, það er að fara yfiir
200 milljón dollara markið á minna
en tíu dögum. Það tók Harry Potter
15 daga að komast í þessa upphæð.
Sjálfsagt eru þetta einhver von-
brigði fyrir aðstandendur myndar-
innar sem þó geta varla kvartað yfir
aðsókninni.
-HK
FYRRI JfjBls. -■ ALLAR UPPHÆÐIR 1 ÞUSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA. INNKOMA INNKOMA FJÖLDI
SÆT1 VIKA TTTILL HELGIN: ALLS: BÍÓSALA
O 1 Harry Potter. 23.642 219.670 3672
o _ Behind Enemy Lines 18.736 18.736 2770
o 3 Spy Game 11.013 46.692 2770
o 2 Monsters Inc. 9.105 204.025 3390
o 4 Black Knight 5.522 22.783 2534
o 5 Shallow Hal 4.525 61.101 2429
o 6 Out Cold 2.718 10.288 2011
o 7 Domestic Disburbance 1.912 42.381 1850
o 11 Amelie 1.358 9.754 218
© 8 Heist 1.182 22.005 1252
© 9 Life as a House 1.096 13.833 950
0 13 The Wash 794 7.885 535
© 10 The One 772 43.074 973
© 12 K-Pax 675 49.252 889
© 16 Sidewalks of New York 604 1.417 207
© 15 The Man Who Wasn’t There 596 5.434 247
0 14 13 Ghosts 578 40.442 568
© 18 Serendipity 559 48.730 1008
© _ Texas Rangers 319 319 402
© 20 Novocalne 236 1.291 145
Vinsælustu myndböndin:
Múmían snýr aftur
The Mummy Retums kemur
eins og stormsveipur inn í mynd-
bandalistann og fer beint í efsta
sætið. I myndinni eru átta ár liðin
frá því að aðalpersónumar urðu
að berjast upp á líf og dauða í Eyg-
ptalandi við múmíuna Imhotep.
Rick og Evelyn eru nú gift og hafa
komið sér fyrir í London þar sem
þau ala upp son sinn, Alex. Röð at-
vika leiðir til þess að Imhotep er
, vakinn til lífsins í The British
Museum og að þessu sinni er Im-
hotep ákveðinn í að ná takmarki
sínu sem er að verða ódauðlegur.
Nú er hann hins vegar
ekki einn því annaö
illt afl hefur einnig
risið upp frá dauðum
og er jafnvel enn
valdameira en Imhot-
ep. Rick, sem Brend-
an Frasert leikur,
verður því enn og aft-
ur að bjarga málum
áður en það er orðið
of seint.
Tvær aðrar myndir
koma inn á listann.
Gamanmyndin Dr.
Doolittle með Eddie
Murphy er i efri hlut-
anum á meðan róm-
antíkin verður heldur
betur að lúta haldi
því Sweet November
nær aðeins sautjánda
sætinu þrátt fyrir að
skarta Keanu Reeves
og Charlize Theron í
aðalhlutverkum.
-HK
The Mummy Returns
Rick (Brendan Fraser) og Evelyn
(Rachel Weisz) eru oröin hjón og eiga
einn son.
SÆTI
o
e
©
Q
Q
Q
Q
Q
Q
©
FYRRI VIKUR
VIKA TITILL {OREIRNGARAÐILI) Á USTA
_ The Mummy Returns (sammyndbönd) 1
2 The Animal ímyndformi 2
1 Bridget Jones’s Diary (sam myndbönd) 3
3 Crimson Rivers (skífan) 3
_ Dr. Doolittle 2 iskIfanj 1
4 Antitrust isam myndbönd) 2
5 Pearl Harbor isam myndbönd) 4
13 Double Take isam myndbönd) 2
7 The Tailor of Panama (skífan) 4
6 Blow (myndform) 5
11 The Virgin Suicides (bergvík) 3
16 The Grinch isam myndbönd) 8
12 Dracula 2001 (skIfan) 2
10 Bais-moi isam myndböndi 3
14 Brother (sam myndböndi 4
8 One Night at McCool's iskífan) 5
_ Sweet November <sam myndböndi 1
15 Exit Wounds (sam myndbönd) 7
9 The Mexican isam myndbönd) 7
17 Miss Congeniality isam myndböndi 10
Hafa lengi staöiö vaktina
Þær hafa lengi staöiö vaktina í ísfélaginu: F.v. Ólöf, Kristín, Mattý, Ásta og Tóta.
ísfélag Vestmannaeyja hf. 100 ára en síungt og á uppleið:
Elst í sjávarútvegi
og elsta hlutafélagið
Líknarfélög styrkt
Fulltrúar líknarfélaga sem fengu 100 þúsund krónur hvert ásamt Ægi
Páli sem er lengst til hægri á myndinni.
ísfélag Vestmannaeyja hf. varð
100 ára á laugardaginn en félagið
var stofnað þann 1. desember 1901.
Þetta eru merk tímamót í atvinnu-
sögunni, og þá ekki aðeins i Vest-
mannaeyjum heldur öllu landinu
því ísfélagið er ekki aðeins elsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins
heldur er það líka elsta starfandi
hlutafélag á íslandi.
Reksturinn hefur eðlilega geng-
ið upp og ofan á heilli öld og hef-
ur afkoman oftast haldist í hendur
við afkomu í sjávarútvegi. Eitt
mesta áfallið í sögu félagsins var
þegar frystihús þess brann fyrir
réttu ári, þann 9. desember. Þá
var Vestmannaeyingum brugðið
en eigendur og stjómendur félags-
ins hafa ekki lagt árar í bát og eru
að taka í notkun nýja og mjög full-
komna vinnslulínu fyrir uppsjáv-
arfisk. Auk þess er unnið að end-
urbótum á bræðslum félagsins í
Vestmannaeyjum og á Akureyri.
Framtíöin björt
í tilefni Eifmælisins ákvað stjórn
fyrirtækisins að ánafna sjö líknar-
félögum í Vestmannaeyjum 100
þúsund krónum hverju félagi.
Móttaka var fyrir gesti í nýju
frystihúsi félagsins og um kvöldið
var mikið um dýrðir í Höllinni
þar sem öllu starfsfólki og velunn-
urum Isfélagsins var boðið til
veislu. Félaginu bárust margar
heillaóskir og gjafir á þessum
merku tímamótum og elstu starfs-
menn félagsins fengu viðurkenn-
ingar fyrir langa og dygga þjón-
ustu við félagið.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður ísfélagsins,
segir framtíðina bjarta hjá ísfélag-
inu. Síðasta ár kom vel út þó geng-
istap hafi sett strik í reikninginn
hjá félaginu eins og öðrum fyrir-
tækjum i greininni. „ísfélagið er
vel í stakk búið til veiða og
vinnslu á uppsjávarfiski. Við
erum með tvær öflugar verksmiðj-
ur. Þær hafa verið endurbættar
með það fyrir augum að auka af-
köstin. Nýja vinnslulínan í upp-
sjávarfiski er bylting sem á eftir
að skila okkur miklu. Það sem
háir okkur er skipakosturinn, þar
er helst breytinga þörf. Það segir
kannski sína sögu að elsta skipið,
Sigurður VE, sem var smíðaður
1960, skilar okkur bestri afkomu.
Þetta er það mál sem við verðum
að skoða í framtíðinni öðrum
fremur. Það gæti orðið með nýjum
skipum eða að önnur félög, sem
hefðu yfir að ráða skipum sem
uppfylla kröfur okkar, sameinuð-
ust ísfélaginu."
Aukin framleiöslugeta
Ægir Páll Friðbertsson tók við
starfi framkvæmdastjóra ísfélags-
ins 1. janúar sl. og var hans fyrsta
verkefni að skipuleggja félagið eft-
ir brunann í desember. Hann hef-
ur því haft i mörg horn að líta frá
því hann kom til starfa. Ægir Páll
er líka farinn að sjá árangur erf-
iðsins nú þegar félagið er að taka
í notkun nýja vinnslulínu fyrir
loðnu og súd. „Það hefur verið
nóg að gera frá því ég byrjaöi í
janúar. Við erum bæði í fram-
kvæmdum við frystihúsið og svo
réðumst við í það að setja upp ný
eimingartæki í FES og nýjan
þurrkara í bræðslunni á Akur-
eyri. Með þessu erum viö að auka
framleiðslugetuna í bræðslunum
um 300 tonn á sólarhring og get-
um við þá afkastað samtals um
2000 tonnum í báðum bræðslun-
um,“ sagði Ægir.
Nú er farin í gang vinnsla á síld
í nýrri vinnslulínu frystihússins
en hún er staðsett í kjallara og úti
í porti sem var á milli frystihúss-
ins og frystiklefa og er þvi öll á
einni hæð. Samhliða því að byggja
upp nýja og tæknivædda vinnslu á
uppsjávarflski var ákveðið að *r
byggja bolfiskvinnslu félagsins
ekki upp eins og hún var enda fé-
lagið með lítinn bolflskkvóta en
góðan kvóta í loðnu og síld. Þess-
ar staðreyndir urðu til þess að
þessi leið var farin,“ segir Ægir
Páll.
Starfsmenn ísfélagsins voru að
meðaltali 198 á síðasta starfsári og
námu launagreiðslur til þeirra um
654 milljónum króna. Ægir Páll er
bjartsýnn á framtíðina ef vel
veiðist af síld og loðnu. „Það er
engin ástæða til annars en bjart-
sýni, ekki síst vegna þess að gott
verð er á mjöli, lýsi og síldaraf-
urðum. Auðvitað hefðu síldveiðar
mátt ganga betur í haust en það er r
aldrei á vísan að róa í þeim veiði-
skap frekar en öðrum,“ segir Ægir
Páll.
-ÓG
Viöurkenning á góöu samstarfi
Fulltrúar félaga og samtaka sem fengu viöurkenningu
fyrir langt og farsælt samstarf viö ísfélagiö.
Gott starfsfólk
Þau fengu viöurkenningar fyrir langt og farsælt starf
hjá ísfélaginu: F.v. Eygló, Ásta, Kristín, Viöar, Ólafur,
Birgir og Birkir.
r