Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Qupperneq 22
26
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_________________________________
Jónína Jónsdóttir,
Gullsmára 11, Kópavogi.
80 ára_________________________________
Helgi Jónsson,
Melgeröi 5, Kópavogi.
75 ára________________________
Sigurður I. Jónsson,
Hraunbæ 75, Reykjavík.
70 ára_________________________________
Svala Einarsdóttir,
Gnoðarvogi 18, Reykjavlk.
Helgi Þorsteinsson,
Logafold 188, Reykjavík.
60 ára_________________________________
Elín Þóröardóttir,
Skólavöröustíg 16a, Reykjavík.
Bogdan Charyton,
Miklubraut 78, Reykjavík.
Sighvatur K. Björgvinsson,
Ljárskógum 19, Reykjavík.
Jóhanna G. Vilhjálmsdóttir,
Silfurbraut 29, Höfn í Hornafirði.
Halldór Helgason,
Hjallanesi 1, Hellu.
Brynja Bjarnadóttir,
Þykkvabæjarklaustri,
Kirkjubæjarklaustri.
50 ára_________________________________
Theódór Lúðvíksson,
Barónsstíg 39, Reykjavík.
Guöný Þórsdóttir,
Leirubakka 20, Reykjavlk.
Sveinn Brynjar Sveinsson,
Jörfabakka 28, Reykjavík.
Eysteinn Sölvi Torfason,
Engihjalla 13, Kópavogur,
Oddur Jónsson,
Bergvegi 20, Keflavík.
Ingvar Jón Óskarsson,
Einholti 1, Garöi.
Þorkell Guöbrandsson,
Mel, 311 Borgarnesi.
Ásgeir Einarsson,
Sigtúni 6, Patreksfirði, kafari. Eiginkona
hans er Bylgja Glsladóttir.
Hann er að heiman.
Bjarni Halldórsson,
Kvistahlíö 5, Sauðárkróki.
Barbara María Geirsdóttir,
Goðabyggð 4, Akúreyri.
Borghildur F. Blöndal,
Löngumýri 7, Akureyri.
40 ára_________________________________
Chung Thi Nguyen,
Fellsmúla 5, Reykjavík.
Omar Daudo Chipa,
Yrsufelli 5, Reykjavlk.
Óskar Friðbjörnsson,
Fífuhjalla 17, Kópavogi.
Árni Grétarsson,
Hóli, Sauöárkrókur.
Eygeröur Björg Þorvaldsdóttir,
Þórunnarstræti 132, Akureyri.
Helga Sigríöur Sveinsdóttir,
Álftarima 1, Selfossi.
Ólafur Jónsson,
Túngötu 45, Eyrarbakki.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I 550 5000
Blrna Hjaltested andaöist á hjúkrunar-
og vistheimilinu Grund laugard. 19.1.
Gísfl Guöjónsson, Lindarbraut 16, Sel-
tjarnarnesi, lést á Landspítála viö Hring-
braut föstud. 18.1,
Ófafnr Ragnar Eggertsson rekstrar-
tæknrffæöingur, Birkihlíð 36, Reykjavík,
lést föstud. 18.1.
Aðatheíöur Hatldórsdóttir lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir sunnud. 20.1.
Guöbergur Ó. Guðjónsson, Hjallabraut
33, Hafnarfiröi, lést laugard. 19.1.
Guöjón Högnason, Ástjörn 7, Selfossi,
lést á Landspítalanum viö Hringbraut
mánud. 7.1. Útförin hefurfariö fram I
kyrrþey.
Auöur Haraldsdóttir, Stórholti 29, and-
aðist á Landspitalanum við Hringbraut
föstud. 11.1. Jarðarförin hefur farið
fram I kyrrþey.
MIDVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002
Helena M. Eyjólfsdóttir
söngkona á Akureyri
Helena Marín Eyjólfsdóttir, söng-
kona og fulltrúi Tryggingastofnunar
ríkisins hjá sýslumanninum á Ak-
ureyri, Mýrarvegi 113, Akureyri, er
sextug í dag.
Starfsferill
Helena fæddist í Reykjavik og
ólst þar upp. Hún lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskólanum í Vonar-
stræti.
Helena var söngkona með ýmsum
hljómsveitum í Reykjavík á árun-
um 1957-66. Hún flutti til Akureyrar
1966 og var þar söngkona með
Hljómsveit Ingimars Eydal 1967-76,
með Hljómsveit Finns Eydal 1979-92
og var söngkona með eigin hljóm-
sveit 1997-2000.
Helena söng í og tók þátt í gerð
fjölda sjónvarpsþáttta á árum áður
með Hljómsveit Ingimars Eydal og
hefur sungið inn á ótal hljómplötur
með ýmsum hljómsveitum.
Helena var starfsmaður MIFA-
tónbanda um skeið og hefur starfað
við Sjúkrasamlag Akureyrar frá
1980. Hún hefur verið fulltrúi Trygg-
ingastofnunar - sjúkratrygginga-
deildar hjá sýslumannsembættinu á
Akureyri frá 1991.
Helena var stofnfélagi í Zonta-
klúbbnum Þórunni hyrnu á Akur-
eyri 1983.
Fjölskylda
Helena giftist 10.6. 1961 Finni Ey-
dal, f. 25.3. 1940, d. 16.11. 1996, tón-
listarmanni. Hann var sonur Harð-
ar Ólafs Eydal, f. 13.2. 1909, d. 3.4.
1976, mjólkuriðnaðarmanns, og
Pálínu Indriðadóttur Eydal, f. 10.1.
1909, húsmóður.
Börn Helenu og Finns eru Hörður
Eydal, f. 6.6. 1963, verslunarmaður í
Reykjavík, í sambúð með Magneu
Ólafsdóttur; Laufey Eydal, f. 19.9.
1965, skrifstofumaður í Reykjavík,
gift Skapta Þórhallssyni frá Akur-
eyri og eiga þau þrjár dætur; Helena
Eydal, f. 13.10.1972, nemi við HA, en
maður hennar er Sigurður Jörgens-
son og eiga þau tvö börn.
Systur Helenu eru Ingveldur Eyj-
ólfsdóttir, f. 29.6. 1938, húsmóðir í
Keílavík; Eygló Eyjólfsdóttir, f. 3.7.
1949, skrifstofumaður, búsett í
Kópavogi.
Hálfsystkini Helenu, sammæðra,
eru Eyjólfur Bjarni Gíslason, f. 13.9.
1954, búsettur í Danmörku; Bjargey
Gigja Gísladóttir, f. 12.1. 1958, búsett
í Kópavogi.
Hálfbróðir Helenu, samfeðra, er
Reynir Jónsson, f. 7.7.1937, búsettur
í Hafnarfirði.
Foreldrar Helenu voru Eyjólfur
Kolbeins Steinsson, f. 22.7. 1911, d.
2.11. 1952, plötu- og ketilsmiður í
Reykjavík, og Laufey Árnadóttir, f.
18.7. 1921, d. 25.11. 1996, húsmóðir í
Reykjavík.
Ætt
Eyjólfur var sonur Steins, b. á
Bjarghóli og í Litla-Hvammi í Mið-
firði Ásmunds-
sonar, af Rauðs-
eyjarætt. Móðir
Eyjólfs var Val-
gerður Jónas-
dóttir.
Laufey var
dóttir Árna, út-
vegsb. i Teigi í
Grindavík Guð-
mundssonar, b. á
Klöpp i Grinda-
vík Jónssonar.
Móðir Laufeyj-
ar var Ingveldur,
dóttir Þorkels, b.
í Lambhaga
Árnasonar, bróð-
ur Guðrúnar,
langömmu Víg-
lundar Þorsteins-
sonar forstjóra.
Móðir Þorkels í Lambhaga var
Steinunn Þorkelsdóttir, b. í Krýsu-
vík Valdasonar, og Þórunnar Álfs-
dóttur, b. í Tungu í Flóa Arasonar,
hreppstjóra á Eystri-Loftsstöðum
Bergssonar, ættfóður Bergsættar
Sturlusonar. Móðir Steinunnar
yngri var Ingveldur, langamma Páls
Jenssonar prófessors. Systir Ing-
veldar var Sigríður, langamma
Harðar Sigurgestssonar, fyrrv. for-
stjóra Eimskipafélagsins. Önnur
systir Ingveldar var Sigurbjörg,
amma Guðmundar Björnssonar
læknaprófessors. Ingveldur var
dóttir Jóns, ættfóður Setbergsættar,
bróður Sigurðar, afa Ottós N. Þor-
lákssonar, fyrsta forseta ASÍ. Jón
var sonur Guðmundar, b. í Miðdal í
Mosfellssveit, hálfbróður Einars,
langafa Sigriðar, móður Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Ingveldar
var Sigríður Þórðardóttir, b. á
Reykjum í Biskupstungum Jónsson-
ar, b. á Rafnkelsstöðum, bróður Sig-
urðar, afa Vilborgar, langömmu Sig-
urborgar, móður Emils Jónssonar
forsætisráðherra.
í tilefni afmælisins tekur Helena
á móti ættingjum og vinum í Golf-
skálanum að Jaðri, laugardaginn
26.1.
Fímmtugur
Valgeir Guðjónsson
tónlistarmaður í Reykjavík
Valgeir Guðjónsson tónlistarmað-
ur, Ægisíðu 52, Reykjavík, er fimm-
tugur i dag.
Starfsferill
Valgeir fæddist í Reykjavik, lauk
stúdentsprófi frá MH 1972, stundaði
nám í ensku og landafræði við HÍ
1973-74, nam hljómfræði við Tón-
listarskólann í Reykjavík 1974-75 og
lauk prófi í félagsráðgjöf frá Social-
högskolen í Þrándheimi 1981.
Valgeir var kennari í Lækjar-
skóla, Ármúlaskóla og Réttarholts-
skóla 1973-75 og var forstöðumaður
Félagsmiðstöðvarinnar Ársels í Ár-
bæjarhverfi 1981-83.
Valgeir lék með Stuðmönnum
1975-76 og 1980-87 og Spilverki þjóð-
anna 1976-79. Hann samdi tónlistina
fyrir kvikmyndirnar Punktur,
punktur, komma, strik 1980; Stella i
orlofi, 1987; Pappírs-Pési, 1989,
Stikkfrí, 1997, og með Stuðmönnum,
Með allt á hreinu, 1982, og Hvítir
mávar, 1984. Hann samdi tónlist í
sjónvarpsmyndina Ást í kjörbúð
1987, tónlist og leiktexta í Síldin
kemur, síldin fer, sýnt hjá LR 1988,
tónlist við sjónvarpsmyndina
Gamla brúðan, 1991, fór tónlistar-
ferð til Kína með Strax, 1986 og var
gerð um þá ferð kvikmyndin Strax í
Kína, 1986. Hann er höfundur að
samnorrænu tónlistarverkefni
vegna siglingar víkingaskipsins
Gaia til Bandaríkjanna, var höfund-
ur og umsjónarmaður sjónvarps-
þáttanna Ungmennafélagið, sýnt í
ríkissjónvarpinu 1991, starfaði að
gerð sjónvarpsþáttanna Scandinav-
ia fyrir PBS í Bandaríkjunum
1993-95 sem meðframleiðandi og
höfundur tónlistar, samdi tónlist
fyrir flölda bandarískra sjónvarps-
þátta á vegum PBS og Discovery, og
hefur starfað fyrir hugbúnaðarfyrir-
tækið Netalbúm frá 2000.
Valgeir var formaður Samtaka
um byggingu tónlistarhúss og vann
að ýmsum verkefnum fyrir samtök-
in, formaður Félags tónskálda og
textahöfunda og formaður stjórnar
STEFS. Hann hefur gefið út mikinn
fjölda hljómplatna með Stuðmönn-
um, Spilverki þjóðanna og á eigin
vegum og sigraði í sönglagakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva á íslandi
með lagi sínu Hægt og hljótt, 1987,
og laginu Það sem enginn sér, 1989.
Fjölskylda
Eiginkona Valgeirs er Ásta
Kristrún Ragnarsdóttir, f. 25.8. 1952,
náms- og starfsráðgjafi. Foreldrar
hennar eru Ragnar Tómas Árnason,
útvarpsþulur, og k.h., Jónína Vigdís
Schram húsmóðir.
Böm Valgeirs og Ástu eru Árni
Tómas, f. 9.5.1977, meðferðarfulltrúi
í Reykjavík; Amar Tómas, f. 10.5.
1989; Vigdís Vala, f. 9.3. 1993.
Systur Valgeirs eru Guðrún
Arna, f. 13.6. 1957, hjúkrunarfræð-
ingur i Garðabæ; Sigríður Anna, f.
2.2. 1959, kennari í Garðabæ.
Foreldrar Valgeirs: Guðjón Val-
geirsson, f. 13.5. 1929, d. 7.3. 1993,
hdl. í Reykjavík, og k.h., Margrét
Ámadóttir, f. 1.10. 1928, athafna-
kona.
Ætt
Guðjón var sonur Valgeirs, múr-
ara í Reykjavík Guðjónssonar, b. á
Svarfhóli í Geiradal Sigurðssonar.
Móðir Guðjóns var Sigríður Sveins-
dóttir, trésmiðs í Reykjavik Gísla-
sonar, b. á Þrándarstöðum í Kjós
Ögmundssonar, b. á Skálpastöðum,
hróður Jóns, afa Sigmundar Guð-
bjarnasonar, fyrrv. háskólarektors.
Annar bróðir Ögmundar var Oddur,
langafi Önnu, móður Flosa Ólafs-
sonar leikara. Oddur var einnig
langafi Arnlaugs, foður Guðmund-
ar, rektors og skákmeistara. Ög-
mundur var sonur Bjarna, ættföður
Stóra-Vatnshornsætta Hermanns-
sonar.
Móðurbræður Valgeirs eru
Tómas seðlabankastjóri og Vil-
hjálmur hrl. Margrét er dóttir Áma,
útgerðarmanns og erindreka Fiski-
félags fslands, á Hánefsstöðum í
Seyðisfirði, bróður Hjálmars, fyrrv.
ráðuneytisstjóra. Annar bróðir
Árna var Þórhallur, afi Snorra Sig-
fúsar Birgissonar tónskálds. Þriðji
bróðir Árna var Hermann, afi Lilju
Þórisdóttur leikkonu. Systir Árna
var Sigríður, móðir Vilhjálms Ein-
arssonar, skólameistara á Egilsstöð-
um, fóður Einars spjótkastara. Árni
var sonur Vilhjálms, útvegsb. á Há-
nefsstöðum Árnasonar, b. á Hofi í
Mjóafirði Vilhjálmssonar. Móðir
Árna var Guðrún Konráðsdóttir,
systir Ragnhildar, langömmu Gísla,
föður Ingvars, fyrrv. ráðherra. Móð-
ir Árna var Björg, systir Stefaníu,
móður Vilhjálms Hjálmarssonar,
fyrrv. ráðherra. Björg var dóttir Sig-
urðar, b. á Hánefsstöðum Stefáns-
sonar, bróður Gunnars, afa Gunn-
ars Gunnarssonar skálds. Móðir
Bjargar var Þorbjörg Þórðardóttir,
ættföður Kjarnaættar.
Móðir Margrétar var Guðrún Þor-
varðardóttir, útvegsb. i Keílavík
Þorvarðarsonar, beykis í Keflavík
Helgasonar, langafa Þorvarðar
Helgasonar leiklistarfræðings. Móð-
ir Þorvarðar Helgasonar var Guð-
rún, systir Jakobs, langafa Vigdísar
Finnbogadóttur.
Valgeir dvelur í faðmi fjölskyld-
unnar í dag.
Smáaugtýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Merkir Islendingar
Eyþór Stefánsson, tónskáld og
heiðursborgari Sauðárkróks, fæddist á
Sauðárkróki 23. janúar 1901 og átti þar
heima allt sitt lif að undanskildum þeim
ámm er hann siundaði nám. Foreldrar
fians vora Stefán Sigurðsson og
Guðrún Jónasdóttir.
Eyþór hóf að syngja í Kirkjukór
Sauðárkrókskirkju er hann var sex
ára. Hann stundaði tónlistarnám hjá
Emil Thoroddsen og Páli ísólfssyni í
Reykjavík 1928, lærði auk þess leiklist
hjá Indriða Waage og stundaði
framhaldsnám í tónlist og leiklist í
Hamborg 1934.
Eyþór var á langri ævi einn helsti
menningarfrömuður Sauðkrækinga. Hann
Eyþór Stefánsson
stundaði skrifstofu- og verslunarstörf á
Sauðárkróki á árunum 1923-1948 en var
jafnframt organisti og kórstjóri við
Sauðárkrókskirkju 1929-1972. Hann var
skólastjöri Tónlistarskóla Sauðárkróks
frá stofnun 1964-1974, var einn af
stofnendum Lúðrasveitar Sauðárkróks
og stjómandi hennar fyrstu árin, einn
stofnenda leikfélags á Sauðárkróki og
lék og leikstýrði þar fjölda verka og
starfaði mikið með ungmennafélaginu
Tindastóli.
Eftir Eyþór liggur fjöldi sönglaga en
sum þeirra hafa orðið býsna vinsæl,
jafnvel klassísk, s.s. Lindin og Erla.
Eyþór var heiðursborgari Sauðárkróks.
Hann lést háaldraður, 3. nóvember 1999.