Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2002, Síða 24
28 MIÐVIKUDAGUR 23. JANUAR 2002 Tilvera I>V lif ið Kajakferð um Angmagssalik Myndasýning veröur í Norræna húsinu í kvöld kl. 20. Þar verða sýndar myndir úr níu daga ævintýraferð íslendinga á sjókajökum um lognsæla firði austur Grænlands. Þar var siglt á milli borgarísjaka og ýmis veiðimannasamfélög heimsótt. Krár ■ CENTAUR A GAUKNUM Hljóm sveitin Centaur mætir galvösk á Gauk á Stöng og lætur Ijós sitt skína. ■ GRAS Á VÍDALÍN Hljómsveitln Gras spilar á Vídalín frá kl. 22.30. Hljómsveitina skipa þau Teena Pal- mer, KK, Magnús Einarsson, Dan Cassidy, Gummi Þétur og Jón Skuggi og flytja þau roots-músík í anda O’þrother, where art thou. ■ NUDD Á KAUPFÉLAGINU Mið- vikudagskvöldin eru rólegheitakvöld á Kaupfélaginu. Þá er spiluö notaleg tónlist og frá kl. 21.30 gengur nudd- ari á milli gesta og býöur þeim axla- nudd þeim aö kostnaðarlausu. Fundir ■ BILL HOLM I SALNUM Kvöld stund með vestur-íslenska rithöfund- inum og Ijóðskáldinu Bill Holm verö- ur í Salnum í kvöld, kl. 20.Dagskráin fer fram á ensku. Holm áritar bækur sínar aö dagskrá lokinni. ■ REISUBÓK GUÐRÍÐAR RÆDD í REYKHOLTI Aðfóng og aöferö Reisubókar Guöríöar er yfirskrift fyrirlesturs sem Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur heldur í Snorrastofu í Reykholti í kvöld. Þar fjallar hún um ritun Reisubókar Guöríðar sem er skáldsaga, byggö á heimildum og kom út fyrir jólin. Fyrirlesturinn hefst kl. 21. Aðgangseyrir er 500 en boðiö er upp á kaffiveitingar. ■ RÉTTINDI KVENNA OG BARNA í ZIMBABWE Málstofa Mannréttindaskrifstofu íslands efnir til málstofu í dag. Þar heldur Magnfríöur Júlíusdóttir, lektor í landafræði viö HÍ, erindi sem hún nefnir: Réttindi kvenna og barna í Zimbabwe: Á mótum hefða og settra laga. Málstofan veröur í Litlu- Brekku viö Bankastræti og hefst kl. 17. ■ ISRAEL - PALESTINA: ER EINHVER LEIÐ TIL SATTA? Vaka, félag lýðræðissinnaöra stúdenta hejdur málfund i dag sem hefur heitið Israel-Palestína: Er einhver leið til sátta? Frummælendur verða þau Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður, Óli Tynes fréttamaður og Viöar Þorsteinsson frá samtökunum Ísland-Palestína. Fundurinn hefst kl. 12.15 og veröur í Odda stofu 101. ■ LIFSGÆÐI OG SAMKEPPNI I BORG FRAMTIÐARINNAR Ingiblórg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, heldur erindi í stofu 201 í Odda á morgun 24. janúar kl. 12.05 - 13.00. Erindið nefnir hún Lífsgæöi og samkeppni i borg framtíöarinnar. Það er haldið á vegum stjórnmálafræðiskorar HÍ. ■ GERÐ HJÚPPRÓTEINS MÆDI- VISNUVEIRUNNAR Fræðslufundur veröur haldinn í bókasafninu að Keldum á morgun 24. janúar kl. 12.30. Fyrirlesari er Benedikta S. Hafliðadóttir, líffræðingur, Keldum. Titill erindisins er Gerö hjúppróteins mæöi-visnuveirunnar. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Hóf æfingar þremur dögum fyrir frumsýningu: Martröð hvers leikara - segir Ellert Ingimundarson Bíógagnrýni Sambíóin/Háskólabíó - Domestic Disturbance + „Þetta er eiginlega martröð hvers leikara að lenda í,“ segir Ellert Ingi- mundarson sem i gær hóf æfingu nýs hlutverks í Boðorðunum 9, að- eins þremur dögum fyrir frumsýn- ingu, vegna meiðsla Jóhanns G. Jó- hannssonar. Við hittum hann um miðjan dag þar sem hann var einn að æfa á stóra sviðinu, undir hand- leiðslu Viðars Eggertssonar leik- stjóra. „Viðar er að segja mér hvað ég á að gera á hverri stundu um leið og ég les yfir handritið í fyrsta sinn. Ég er ekki kominn nema fram að hléi!“ segir hann. „Svo verður rennsli í kvöld og frumsýning á fóstudaginn." Stjúpfaðir með fortíð Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Undirbúningur á viðkvæm- asta stigi - Eruð þið leikarar búnir undir það í leiklistarskólanum að gripa inn í sýningar á síðustu stundu? „Nei og þetta er heldur ekki eins og sums staðar í útlandinu þar sem varaleikarar eru ávallt til taks. Nú verður maður bara að halda haus og ró og takast á við verkefnið. Vissu- lega er undirbúningur sýningarinn- ar á viðkvæmasta stigi því í frum- sýningarvikunni er svo mikið að gerast." - Er það algengt í leikhúsi aö svona komi upp á? „Nei, en slíkar aðstæður koma upp annað slagið. Nú er til dæmis líklegt að Halldór Gylfason fari inn í hlutverk Jóhanns í Fjandmanni fólksins á sunnudaginn og það án þess að fá nokkra æfingu." - Þú hefur ekki sjálfur lent i þessu áður? „Nei, aftur á móti má segja að ég sé skuldugur Jóa frá þvi við vorum með Galdrakarlinn í Oz á fjölunum. Jói hljóp þar i skarðið fyrir mig með stuttum fyrirvara þegar ég bil- aðist í baki.“ - Veistu hvað kom fyrir hann? „Hann sleit liðbönd en ég veit ekki hvernig það gerðist. Það eina sem ég veit er að hann er í aðgerð núna.“ Búningurinn smellpassaði - Er hlutverkið stórt sem þú þarft að læra? DV-MYND PJETUR A síöustu stundu Þeir Ellert og Viöar voru aö æfa stööur og hreyfingar um leiö og Ellert fór yfir textann í fyrsta sinn í gær. „Já, nokkuð og þetta er fjörug sýning. Brúðkaupsveisla og allir þátttakendur eru meira og minna á sviðinu allan tímann, þar á meðal ég.“ - Og auðvitað bannað að skandalisera? „Ja, þetta er nú kannski veisla sem er allt í lagi að skandalisera svolítið í ef ég næ að kynnast þess- um karakter aðeins." - Þú ert þá ekki í öðrum hlutverk- um í sýningunni. „Nei, nei, og hef ekkert fylgst með æfmgunum. Oft er erfitt að koma inn í sýningu þegar maður er hluti af hóp og er inná allan tímann. Þótt maður sé ekki á framsviðinu eru ýmsir litlir hlutir að gerast allt í kring.“ - Nú beinast allra augu að þér. Þú verður aðalstjarnan. „Nei, ætli það. Það eru sterkir leikarar þarna sem hljóta að geta tekið til sín athyglina. Fólk fylgist með þeim.“ - Hvernig er með leikbúninginn. Þarf að sauma nýjan á þig? „Nei, það merkilega er að búning- urinn hans Jóa smellpassar. Það er eins og hver önnur heppni. Eins og einhver hafi lagað Jóa aö mér!“ Rennir hýru auga... - Segðu mér aðeins frá verkinu. „Ég veit nú kannski varla nógu mikið um það en leikritið gerist sem sagt i brúðkaupsveislu sem er nokkuð langt liðið á. Þarna eru nán- ustu aðstandendur og vinir brúð- hjónanna og á því andartaki sem leikritið hefst byrjar hjónabands- sagan að líða fram hjá áhorfendum í stikkorðum. Þannig að þótt brúð- kaupið sé aðalatriðið og veislugestir séu allt í kring sjáum við aðdrag- anda brúðkaupsins, auk þess sem gripið er niður hér og þar í lífi hjón- anna. Undirtitill verksins er líka „Hjónabandssaga á augnabliki" og þetta er glænýtt verk eftir Ólaf Hauk Simonarson." - Ert þú í hlutverki eins gestanna í veislunni? „Já, ég leik vin brúðhjónanna og renni meira að segja hýru auga til brúðarinnar. Hefði kannski átt að vera við hliðina á henni. Ég veit það ekki enn þá.“ - Geta fastráðnir leikarar ekki sagt nei þegar þeir eru beðnir að taka verkefhi að sér á síðustu stundu? „Nei, maður ætti erfitt með það enda er ein af höfuðsetningum leik- hússins: „The show must go on“ eða „Sýningin verður að halda áfram.“ -Gun. Þegar miðað er við síöustu kvik- myndir Harolds Beckers náði hann hápunkti feril síns í kringum 1990 þegar hann sendi frá sér spennu- myndirnar Sea of Love og Malice, tvær hörkugóðar myndir. Sérstak- lega er Sea of Love eftirtektarverð kvikmynd þar sem vel næst að blanda saman sálarástandi aðalper- sónanna við atburðarás myndarinn- ar. Becker hefur síðan haldið sig að mestu við spennumyndir en ekki tekist að fylgja fyrrnefndum mynd- um eftir. Myndir á borð við City Hall og Mercury Rising hafa haldiö nafni hans á lofti en ekki mikið meira. Með Domestic Disturbance nær Becker nýrri lægð á ferli sín- um, er með frekar kléna sögu í höndunum sem honum tekst ekkii að setja púður í. Fjallar myndin um fósturfóður með fortið, nýríkan mann sem kemur í stað föður og sýnir á sér aðra hliö þegar móðirin er ekki nærri. Þetta er gamalkunn- ug tugga sem Becker kemur ekki með nýja sýn á, auk þess sem per- sónumar eru litt áhugaverðar. John Travolta leikur skipasmið- inn Frank Morrison sem er í ágætu sambandi við fyrrum eiginkonu sína. Þau eiga einn son sem er að komast á unglingsaldurinn. Skiln- aðurinn hefur farið illa í hann og er hann staðinn að óknyttum og lyg- um. Ekki bætir úr þegar móðirin (Teri Polo) er í upphafi myndar komin með nýjan mann sem hún ekki aðeins giftist í flýti heldur er orðin ófrísk eftir hann strax eftir brúðkaupið. Nýi eiginmaðurinn (Vince Vaughn), sem af mörgum er talinn bjargvættur bæjarfélagsins, á sér aðrar hliðar sem skuggalegri eru. Fyrstur til að fá smjörþefinn af þeim er sonurinn. Þegar hann reyn- ir að telja öðrum trú um hvernig nýi stjúpfaðirinn er bak við grimu sakleysisins trúir honum enginn og stjúpfaðirinn passar upp á að halda hræðslu drengsins við... Domestic Disturbance fer óvenju ró- lega af stað og þar má að sumu leyti kenna um að verið er að gefa John Travolta nóg pláss. Hann er jú stjam- an í myndinni. Hefði einhver minna þekktur leikari verið í hlutverkinu hefði hlutverk hans verið aukahlut- verk. Aðalhlutverkið er í höndum Matts O’Learys sem leikur soninn Danny. Sjálfsagt hefði myndin orðið mun sterkari hefði áherslan verið lögð á hans þátt eins og raunar er gert um miðbik myndarinnar sem er besti hlut- inn. Það er þegar Darrny kemst að því hvem mann stjúpfaðirinn hefur að geyma. En John Travolta á að vera að- dráttaraílið og er það að öllum líkind- um. Eftir að þessu ágæta atriði lýkur er honum gefið meira pláss en hann á skilið þannig að sú spenna sem hefur magnast verður að engu. Domestic Disturbance er dæmi- gerð Hollywood-stjörnumynd þar sem verið er að hugsa meira um umbúðirnar en innihaldið og mynd- in nær aldrei að lyfta sér upp úr þeirri flatneskju sem sagan er. Leikstjóri: Harold Becker. Handrit: Lewis Colick. Kvikmyndataka: Michael Seresin. Tónlist: Mark Mancina. Aöalleikarar: John Travolta, Vince Vaughn, Teri Polo, Matthew O’Leary og Steve Buscemi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.