Alþýðublaðið - 02.04.1969, Side 4

Alþýðublaðið - 02.04.1969, Side 4
4 Alþýðu'blaðið 2. apríl 1969 AD H.OSNA UPP Gu^mundur Halldórsson: Undir ljásins egg Aknenna bókafélagið, 'Reykjavík 1969. 138 bls. | Gifemundur Halldórsson dregur sterkin dám af Indriða G. Þorsteins- synijbæði söguefni hans og sögu- háttur. Svo var um smásögur Guð- muníar, Hugsað heim um nótt, sem tit k|mu fyrir nokkrum árum, og svo er enn um nýja skáldsögu hans með jhinu ankannalega heiti Undir Ijásir|> egg. Engu að síður er nýja sagaij ti! muna hurðameira verk en Inásögurnar voru. Þótt Guð- munlur segi enn sem fyrr svipaða sögu I og segi hana með svipuðum hættl og Indriði G. Þorsteinsson fer hann nií með efnið með sjálf- stæðtjri hætti, af meira valdi á að- ferð Jsinni; saea hans hefur eigin reynJju að miðla. Söjtuefni Guðmundar Halldórs- sonaij í Undir Ijásins egg er mjög svipafS eða hið sama og Indriði G. Þorstfcinsson fer með í Landi og snnum þó tímatal sé annað, en saga Guðmundar virðist gerast nú á síð- ustu árum. Báðar sögurnar greina frá ftngum mönnum við það að flosna upp úr sveitinni sinni, háðar lýsa þær samskonar viðhorfi sögu- manna við landinu og sveitinni. En atburðir þróast í gagnstæðar áttir í sögunum; sögumaður Indriða tek- ur með skvnseminni þá ákvörðun að hverfa úr sveitinnt, flytjast suð- ur, þó það stangist á við hans innsta eðli og tilfinningar. Ogmundúr, sögurrtaður Guðmundar Halldórs- sonar, tekur þá ákvþrðun þvert ofan í alla skvnsemi að verða um kvrrt í sveitinni þegar foreldrar hans hættá búskap út af „ís og dýrtíð og •helvítis basli“. Hann er um kyrrt á vanlivstri iörð, selur ckki kindurn- ar sínar þegar foreldrar hans flvti- ast hrott, fær að nytja hálft túnið, og í sögttlokin gengur hann út í •varpa með orfið sitt og ljáinn upp á gantlan móð. Dnpinn eftir ædar hann; í útilegu til fjalla með stúlk- unni: sinni bancnð „sem ég hafði scð splina rísa forðum yfir morgun- Jandið". Bæði hessi efnísatriði skinta sög- una tnikhi. Stúlkan hans, Edda, er eitt af því sem heldur Ögmundi kyrriim heima í sveitinni; ástarsaea þeirrji er sögð af furðu mikillí hóf- semijsem fer henni vel. En hans fvrsti verk við sjálfstæðan búskap cr aa snúa til fjalla á vit róman- tískrj hugmynda um ástir og ætt- jörð. Og fvrsta eiginlega búskapar- framkvæmdin er ekki að koma sér unp traktor og ekki einu sinni sláttuvé! við jeöpann, heldur geng- ur söcumaður út í varpa með orf •og Ijá og tekur að losa bæinn úr grasi.: Hið rómantíska viðhorf sög- unnar við sveitalífi og húskap felur í sér æðimikla íhaldssemi, vantrú og gígnrýni á framvinduna og tækn ina: „Bæirnir stóðu undir hröttuni hlíðum stutt frá árbakkanum með útsýn upp í himininn. Það var búið sð byggia íböðarhúsin ' úr varan- 3egu; efni og þeir. höfðu verið að koma upp peningshúsum og kaupa dráttarvélar þessi síðustu og verstu ár. Þær voru víðast komnar t\rær á bæ. Heyvinnutækjunum aftan í þær fjölgaði líka árlega. Stöðugt var stefnt að því að fá afkastameki tæki við heyskapinn til þess hann stæði skemur, þótt skepnutala og túna- stærð yxi ekki samsvarandi. Um- boðin höfðu allar klær úti ti! að losa sig við þessár vélar af því að þau þurftu að græða peninga. Það voru ekki alltaf inneignabændurnir sem gengu á undan með þessa fjár- festingu, hinir sem þurftu að semja um skuldir sínar í kaupfélaginu við 'hver áramót, ef þeir áttu að fá matarúttekt, hældu sér af að ljúka túnaslætti á hálfum mánuði með til- komu þessara tækja, en skuldirnar tóku risaskref. Gjörningahríð aug- lýsinga um fullkomnari vinnuvélar myndi halda áfram að blinda fólk og tæknin að afmanna það.“ Sögumaður Indriða Þorsteinsson- ar í Landi og sonum hverfur úr sveitinni, þó það taki hann sárt, af því að hann eygir þar ekki lífvæn- lega framtíð, sér ekki frarn á að unnt verði að færa búskapinn í nútímahorf svo að starfræksla hans horgi sig. Sögumaður Guðtnundar Halldórssonar fer þveröfugt að: hverfur aftur að háttum fyrri tíðar í trássi við nútímann og þróunina, góð ráð og fyrirhyggju. Þessi við- horf kunna að virðast andstæð tneð öllu, þó þau geti bæði verið jafn- sönn fyrir því, en kjarni þeirra er raunar sama rómantíska tilfinning til sveitarinnar og fólksins í sveit- inni og búskaparins. Treginn í sögu Indriða stafar af þv! að þetta róman tíska viðhorf virðist ekki eiga sér viðreisnar von; Guðmundur 'Hall- dórsson setur rómantískuna á odd- bækur inn í sinni sögu, kotni hvað sem koma vill. En það er ekki cinasta tilfinningin í sögunni og að sögu- baki sem minnir á Indriða í sögu Guðtnundar Elalldórssonar heldur einnig aðferð hans að segja sögu sína, hlutlægnislegur frásöguháttur á beinum frásagnarköflum, stuttara- legur satntalastíllinn með tilhneig- ing sinni til „spakmæla" eins og „Sársauki verður tæplega mældur í kindarverðum" eða „Frægðin er ekki staðbundin" eða „Senni- lega er ekkert til setn gerir fólk frekar að manneskjum en hitninn og jörð.“ Ögmundur er ekki .gcf- inn fyrir að flíka tilfinningum sín- um, frekar en gerist í sögum sem með þessum hætti eru sagðar. En tilfinningar hans eru engu að síður efni sögunnar, undiralda aJlra henn- ar atvika; og það er auðvitað ekki þar með sagt að Guðmundur Hall-1 dorsson miðli ekki sannri reynslu I og tilfinningum í sinni sögu þó að-i ferðir hans minni á aðra höfunda j sem ef til vill eru lagnari en hann j að láta það ósagt berum orðum sem mestu skiptir í sögu. Sögumaður Guðmundar Halldórs I sonar t Undir Ijásins egg er upp- ’ kominn maður að því er virðist og j í sögulokin er hann búinn að ráða við sig tilfinningar sínar, hann vill j vera um kyrrt í sveitinni og hvergi , annars staðar. Þessi niðurstaða get- ur mætavel verið rétt og sönn þó torvelt sé að eygja raunverulega I möguleika hans í sveitinni eða ráða I í það hvers vegna hann hafi ekki fest þær rætur til hlítar fyrr. En | einkennilegt er það að hann virðist finna sig á einhvern hátt aðgreind- j an frá öðru fólki í sveitinni, af öðru tagi en það; og lakast þykir mér | Guðmundi Halldórssyni, eða réttar , sagt: Ögmundi, takast til þegar hann fer að bollaleggja um tilfinn- ingar, hug óg háttu ,LóIksins“ eins • og hann standi sjálfur ein.hvers stað-1 ar utan og ofan við það: „Einn var sá tími sem fólkinu | fannst að áin væri tekin frá því, , þott hun væri kannski aldrei nær vitund þess en þá. Hann hófst þeg- ar leigutakar hennar kornu að ' sunnan í skrautlegum vögnum með I mikið magn af áfengi innanborðs, til að veiða laxinn. Þótt fólkið væri J stundum sljott fyrir nið árinnar í önn dagsins, hlustaði það gjarnan eftir hjartslætti hennar á meðan þessir förumenn róluðu um bakk- ann.“ i Slíkar og þvílíkar athuganir sem þessi og fyrrgreind ályktun um tæknina sem afmannar fólkið, og þær eru fleiri { sögunni cru auðvitað sprottnar af hinu sairta rómantíska viðhorfi sem sag-1 an Iysir t hcild sinni. En þær fara | miklu miður í munni Ögmundar sögumanns en frámgn hans af sjálf- um ser, eigin orðuni, gerðum og hugstinum, sem víða kemur einlæg-1 lega og drengilega fyrir af þvf hve hofsöm og stillileg hún er. En Ijóst I er þó af þeim að sagan vill eigna I Ögmundi skiining, þroska, mann- vit sem hún Ivsir að öðru leyti engum heimildutn fyrir. Siálf reynsla hans eins og sagan lýsir j henni virðist hins vegar einlæg og ósvikin og sagan er í heild sinni I miög svo snvrtilega stíluð þó orð- , færi sé dálítið stirðlegt mcð köfl- um, og víðar en á heiti sögunnar. — Ó..J. Flugfélag fslands býður nú einkar ódýrar og þægilegar einstakl- ingsferoi með nær 40% afslætti til Spónar og Portúgals. Þotuflug til Barcelona, Malaga og Palma de Mallorca á Spóni og Lissabon og Faro í Portúgal Viðdvöl í London á heimleið ef óskað er. Allar frekari upplýsingar og fyrirgreiðsla hjó lATA-ferða- skrifstofunum og Flugfélagi Islands. Hvergi ódýrari fargjöld. FLUCFÉLAC ÍSLANDS ÞJÓNUSTA HRAÐI ÞÆGINDI Miarzhefti Kfrkjuritsins ALÞÝÐUBLAÐINU hefur borizt Kirkjuritið, marzhefti 1969. Af efni ritsins má nefna viðtal við dr. theol. Jakob Jónsson; ávarp á æsku- Iýðsdegi á Akranesi 3. marz 1968, eftir Magnús Oddsson, stúdent; A hausti lífsins, hugleiðingu eftir sr. Ingþór Indriðason; pistla ritstjór- ans, sr. Gunnar's Arnasonar; James • Bond, drauniaprins æskunnar á 20. öld, greitj eftir séfa Arelíus Níels- son; nokkur orð um vandamál æsk- unnar, eftir Guðnýju Þorsteinsdótt- ur — og álitsgerð hins almenna kirkjufundar 29. október til 1. nóv. 1967. A forsíðu ritsins, sem er hið vandaðasta að allri gerð, er merki þings lútherska heimssambandstns í Porto Algere í Brasilíu 1970. „Rjómaostu^ , úr grænmeti! GERVI-mjólkurafurðir virðast nú í örum uppgangi í Bandaríkjunum, þar sem m.a. rná fá „rjómaost", sem eingöngu er búinn til úr grænmeti Að ytra útliti er ostur þessi alveg eins og venjulégur rjómaostur ~ og bragðið er mjög áþekkt. Þá hefur og gervimjólk náð tölo- verðri útbreiðslu í Bandaríkjunurtt, en hún er þannig gerð, að fitan er fjaflægð en eggjahvítuefni notuð { staðinn. Sagt er, að mjólk þessi sé í senn bragðbetri og geymist betur en venjuleg rnjólk. Jarðgas finnst í fyrsta skipti í Suð- ur-Afríku IHÖPÐABORG 26.3. (ntb-afp): í tfyrsta skipti í sögu Suður- Afrífcu hefur 'Þeir fundizt gas í jörðu, að því er skýrt var frá í suður-afríska þinginu í gær. Fannst gasið í svonefndum Bero-flóa fyrir sunnan Höfðaborg, og er talið að það kunni að vald-a gjörbyltingu í stóriðjumáium Suður-Afríkaina, þar sem um verulegt rnagn virðist að ræða. í ,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.