Alþýðublaðið - 02.04.1969, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 02.04.1969, Qupperneq 7
Alþýðublaðið 2. apríl 1969 7 ' Aðdragandinn að inngöngu ís lands í Atlantshafsbandalagið Þegar Atlantsliafsbandalagið var stofnað fyrir 20 árum, var Stefán Jóhann Stefánsson, ' þáverancíi |formaður Allþýðu- flokksins, forsætisráðherra, en ríkisstjórn hans var samstjórn Alþýðuflokksinjs, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks- ins. Stjórn Stefáns Jóhanns ákvað eftir nána athugun að mæla með því við Alþingi ,að ísland gerðist stofnaðili að bandalaginu, og var sú niðurstaða staðfest af þinginu þann siigufræga dag 30. marz 1949. Tæpri viku síðar undirritaði Bjamf Benediktsson, utanríkisráðherra, 'síðan stofnskrá bandálagsins á stofndegi þess 4. apríl. Stefán Jóhann gaf út endurminningar sínar í tveim bind- ura fyrir fáeinum árum, og þar ritar hann all-ítarlega uni aðdragandann að stofnun Atlantsliafsbandalagsins og afstöðu manna og (flokka til þeds. Alþýðublaðið hefur fengið góðfús- legt leyfi Stefáns til að birta þann kafla úr bókinni, sem um þessi mál fjallar, og birtist fyni liluti hans í blaðinu í dag, en afgangurinn á morgun. ^kömmu eftir lok heimstyrjaklar- innar tóku lýðræðisríkin að draga mjög úr herstyrk sínum, og var það greinilegur ásetningur þeirra að afvopnast að miklu leyti. En Sovét Rússland fór aðrar leiðir. Þar var vígbúnaðinum haldið við. Þeg- ar .svo þar við bættist að öll ríki Austur-Evrópu urðu háð Rússum, her þeirra hélt áfram að hafa þar setu • og kommúnistar voru látnir brjptast til valda í Tékóslóvakíu í skjóli hins rússneska herveldis vökn uðu vesturveldin upp við vondan draum og sáu að svo við búið mátti ekki standa. Þeim varð ljóst, að Sovét-Rússland var að seilast til valda í Mið og Vestur Evrópu og að lýðræðisríkin í Evrópu yfirleitt væru í voða, ef ekkert yrði að gert þeim til varnar. Það var um þetta leyti sem hinn nldni og trausti utanríkisráðherra Rreta, jafnaðarmannaforinginin Ern- est Bevin, varpaði fram hugmynd sinni um öflugt bandalag til varnar Vestur-Evrópu. Það yar uppþafið að umræðunum um Atlantshafsbanda lagið. Um svipað leyti, það var í febrúar 1948, fór-ég utan til þess að sitja fund samvinnunefndar norræna jafnaðarmanna, en samtímis skyldi vera haldinn fundur forsætisráðherra Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Islands. Aður en ég fór í þessa for,- minntist ég á það við samráðherra rnína, að mér fyndist hugmyndin um varnarsamtök vestrænna ríkja mjög athyglisverð, og vel mætti svo fara að afstaða Islands til slíkrá samtaka kæmi til athugunar, já,. bæri kannski þegar á góma á for- 'sæfisráðhérra-fundinum.'Man ég vel - að þeir Rjarni Benediktsson og Ey- steinn Jónsson, sögðu þá að ekkert gæti verið við það að athuga, að ég kynnti mér álit manna á Norður- löndum á þessari þugmynd, en að sjálfsögðu væri ekkert hægt áð segja að svo stödclu, hver kynni að vtjrða afstaða Islands, ef leitað yrði eftir henni. Var ég þeim auðyitað sam- mála um það, en gat þess að ég teldi mér bæði rétt og skylt að ræða þessi mál í trúnaði við flokksbratður rrtína á Norðurlöndum, T þessari tytagfgr. yArðség þcss var, að forsætisrnðhtrrttm ÖMterkur; ■l Noregs og Svíþjóðar, þeim Hans Heíltoft, Einaf* 'CÍérEáríIsén "óg Tágé' Erlander þótti brýna nauðsyn til bera, að hervarnir Norðurlanda yrðu teknar til gaumgæfilegrar at- hugunar. Fannst mér einkum Ger- hardsen vera áfram um það, enda óttast varnarleysi Noregs sem á lanclamæri á löngu svseði ásamt Rúss landi. Sama mátti að vísu segja um Hedtoft, enda örskammt frá landa- mærum Danmerkur til þess hluta Þýzkalands, sem Rússar héldu her- setnum. En Erlander hafði nokkra sérstöðu. Varnir Svíþjóðar voru til- lögulega öflugar og þar í landi ríkti sú skoðun, að Svíþjóð mætti ekki gera hernaðarbandalag við neitt stórveldi. Eg varð þess einnig var að Gerhardsen sem var uggandi um Noreg, var ekki sama hver af- staða Islands yrði til hugsanlegra varnarsamtaka hinna vestrænu ríkja. Eg kvaðst engar yfirlýsingar geta gefið um afstöðu íslenzku ríkisstjórn arinnar en sjálfur væri ég þeirrar skoðunar að vel bæri að athuga og hugsa sig um, áðuí en með öllu væri neitað tilmælum, sem fram kynnu að koma um þátttöku Islands í vestrænum varnarsamtökum. Varð sú ein niðtirstaða af viðtölum okkar að við skyldum skrifast á í trúnaði um þessi mnl og láta hver annán vita hverju fram yndi í þeim lönd- um okkar, ;ekki 'sízt ef tilmælum yrði beiíit til þeirra uiil þátttökh í sífkuni varharsamtökum. Lauk 'svo fundi okkar í það sinn. Þegar heim' kom skýrði ég ríkis- sljórninni frá jnv, senv rætt hefði iverið um, hugsanleg varnarsamtök Vestui Evrópu 6g 'ftfstöðu Norður- landa til þeirra. Verða- hugleiðingar iiiínár sQg afstaða ujn þær rqundií' kannski ;best skýrðar með því að birta hétþýddah kafla ,úr biéfi seih ég skrifaðj Eledtoft 19. febrúar 1948, þá nýlega heim kominn. „Sfrax eftir heimkomuna skýrtji ég ríkisstjórninni í trúnaði frá for- sætisráðherrafundirtum og skoðun- nm þeim og hugleiðingum, er þar 'ltomu' friini. MiIIi mín bg hmná’ ráðherranna var full samstaða urn það, sem ég liafði sagt á fundinum. Allir stjórnarflokkarnir hér studdu aðild Islands að Marshallaðstoðinni, en þeir vilja bíða og sjá, hverju fram fer um það, hvort hugmynd Bevins gæti stutt að nánara og inni- legra samstarfi í Vestur Evrópu og hver afstaða annarra Norðurlanda- ríkja verðttr til hugsanlegra varnar- samtaka. Ég vildi gjarnan hafa náið sam- band við þig, Gerhardsen og Erland- er um þetta mál í framtíðinni, einn- ig hvað snertir afstöðu Alþýðúflokka Frh. á 12. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.